Morgunblaðið - 06.04.1986, Síða 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
Vinsældalistar
vikunnar
RÁS2
1. < D
2. ( 2)
3. ( 6)
4. ( 7)
5. ( 4)
6. ( 5)
7. (17)
8. (11)
9. ( 3)
10. (14)
11. ( 8)
12. (13)
13. (10)
14. ( 9)
15. (12)
16. (21)
17. (-)
18. (23)
19. (15)
20. (18)
La Líf...................Smartbandið
Waitingforthe Morning ...Bobbysocks
Little Girl ..................Sandra
Absolute Beginners ......David Bowie
Gaggó Vest........Gunnar Þóröarsson
System Addict...............Five Star
Move Away...............Culture Club
Kiss..........................Prince
King for a Day .....Thompson Twins
Harlem Shuffle.........Rolling Stones
Allt að verða vitlaust...Handboltal.
LoveTakeOver................FiveStar
Won't forget...Herbert Guðmundsson
Tears are Falling ..............Kiss
WhentheGoingGetsTough . BillyOcean
It’s allright.............Eurythmics
Goddbye is Forever..........Arcadia
Just Bugging.................Whistle
Borderline ..................Madonna
Rebel Yell .................Billy Idol
Smartbandið situr nú á toppi vinsældalistans
með hið furðulega lag „La Lífu. Hafið þið reynt
að fá einhvern botn í textann? Reynið að
syngja hann aftur á bak. En hljómsveitin sem
stökk hvað hæst í þesari viku var Culture
Club með lag sitt „Move Away“. Úr 17. sæti
í 7. Hér sjáum við meðlimi Culture Club.
BRETLAIVID
1. ( 1) Living Doll .....Cliff Richard & The
Young Ones
2. ( 5) Wonderful World ........Sam Cooke
3. ( 4) Touch Me(l Want
Your Body).............Samantha Fox
4. (—) DifferentCorner.....GeorgeMichael
5. ( 6) You to me are Everything .Real Thing
6. ( 2) Chain Reaction .........Diana Ross
7. (16) AKindofMagic.................Queen
8. ( 3) Absolute Beginners ....David Bowie
9. (12) PeterGunn ..............ArtofNoise
10. (27) Rock Me Amadeus .............Falco
BANDARÍKiN
1. ( 1) Rock Me Amadeus .............Falco
2. ( 4) R.O.C.K. in the U.S.A.........John
Cougar Mellancamp
3. ( 5) Kiss........................Prince
4. ( 3) Secret Lovers.........Atlantic Starr
5. ( 2) These Dreams.................Heart
6. ( 6) What You Need.................Inxs
7. (11) ManicMonday................Bangles
8. ( 9) Let’s Go All the Way........SlyFox
9. (13) Addicted to Love ....RobertPalmer
10. ( 7) Nikita ..................EltonJohn
4587
Megas syngur hér af mikilli tilfinningu.
UMSJÓN
JÓN
ÓLAFSSON
Passíusálmarnir
íAusturbæjarbíói:
egas ífjólubláu
Ágætlega heppnaðirtónleikar
M
agnús Þór Jónsson
sté á svið um hálf-
tíu leytið að kvöldi 29. mars.
Klæðnaðurinn kom gömlum
Megasar-aðdáendum tölu-
vert á óvart. Gallabuxurnar
og rokkklæðin voru á bak
og burt en silkið og skrúðið
í aðalhlutverkum. Megas
var í fjólubláum glansjakka-
fötum og í skyrtu sem fróðir
menn segja rándýra.
Ekki er ætlunin að fjöl-
yrða neitt frekar um klæða-
burð Magnúsar sem ýmist
verður kallaður skírnarnafni
sínu eða listamannsnafni
það sem eftir er greinarinn-
ar.
„Ég býð ykkur velkomin á
ÖRLÍTIÐ ERLENT
• Queen heldur risatónleika á Wembley Stadium í Lon-
don 12. júlí næstkomandi. Ásamt þeim munu koma fram
hljómsveitirnar Status Quo, The Alarm og Virginia Woolf
en innanborðs þar er Jason Bonham, sonur John Bonham
sem lék með Led Zeppelin. Mikið verður lagt í þessa tón-
leika og talað er um að Ijósabúnaður til dæmis verði sá
mesti í rokksögunni. 160 feta svið er nú í smíðum og eins
og trommarinn Taylor sagði: Þetta verður stærra en allt
það stærsta, Ben Húr verður að Kermit í samanburði við
þetta.“
• Sögusagnir eru á kreiki um að Foreigner sé hætt en
við hér sem þekkjum Popparann höfum ekki haldbærar
sönnur fyrir því. Hljómsveitin Spear of Destiny er hins
vegar hætt og hana nú.
• Nú fer að styttast í nýja hljómplötu frá Van Halen sem
nú skartar Sammy Hagar sem söngvari í stað David Lee
Roth sem er hættur í sveitinni sem kunnugt er. Hljómplat-
an á að heita 5150...
Hljómsveitin Queen ætlar sér stóra hluti á Wembley þann
12. júit næstkomandi. Gangi henni vel.
Passíusálmana" voru fyrstu
orð aðalhetjunnar. Hall-
grímur heitlnn Pétursson er
höfundur Passíusálmanna
en þetta kvöld voru þeir
færðir í búning tóna af
Magnúsi Þór og hljómsveit
hans sem skipuð var fjórum
öðlingsdrengjum; trymblin-
um Ásgeiri Óskarssyni,
bassaleikaranum Haraldi
Þorsteinssyni, sem hefur
millinafnið Gottlieb, gítar-
leikaranum Björgvini Gísla-
syni og Guðmundi Bene-
diktssyni sem blés í munn-
hörpu, lék á kassagítar og
forláta flygil sem að vísu
heyrðist alltof lítið í.
Áhorfendur og jafnframt
áheyrendur voru liðlega 400
sem þýðir að salur Austur-
bæjarbíós var langt frá því
að vera þétt setinn. Ekkert
sjónvarp var þetta kvöld og
miðaverð var mjög sann-
gjarnt og kom þetta Poppar-
anum mjög á óvart. Hann
hélt satt að segja að nafn
Megasar á plakati væri nóg
til að fylla hvaða hús sem
væri hérlendis. Það hefur
virkað hingað til.
Hljóðfæraskipanin í þeim
sálmum sem fluttir voru fyrir
hlé var ansi sérkennileg.
Ásgeir Óskarsson lét alveg
vera að brúka heilt trommu-
sett. Snertiltromman dugði
ein og sér. Guðmundur
Benediktsson lék á munn-
hörpuna af fítonskrafti og
kom mjög á óvart sem og
skemmtilega. Björgvin lék á
hálf-kassagítar og Megas á
sinn kassagítar svo útkom-
an varð í anda bandarískrar
sveitatónlistar. Halli var
auðvitað á bassanum og var
góðurmjög.
Þetta var hálf-
gert „rokkabillí"
Piltarnir fluttu þetta mjög
vel og hljómburðurinn var
til fyrirmyndar. Megas, sem
aldrei hefur talist skýrmælt-
asti söngvari okkar, kom
mjög vel út og virtist í fínu
söngformi. Eftir að hafa flutt
7—8 sálma á þennan hátt
yfirgáfu aðstoðarmennirnir
sviðið og eftir stóð aðal-
maðurinn vopnaður kassa-
gítar einum. Þetta. var há-
punkturtónleikanna. Megas
flutti tvo sálma einn og
óstuddur og gerði þaö
hreint dásamfega. Sérstaka
viðurkenningu á hann skilið
fyrir nákvæman og fram-
sækinn gítarleik.
Svo kom hlé og menn
voru greinilega nokkuð
hressir með fyrri hlutann. í
hléinu gafst tóm til að virða
fyrir sér fólkið sem var alla
vega. Þarna voru gamlir
gæruhippar og stöðumæla-
verðir. Þarna var eldra fólk
nálægt sjötugu og þarna
mátti sjá börn og unglinga
á fermingaraldri. Rabbi í
Grafík var líka þarna.
Eftir hlé settist Óskars-
son við trommusettið og
Benediktsson við píanóið og
leikurinn æstist töluvert við
þetta. Hinsvegar verður það
að segjast eins og er að
lögin voru mörg hver ansi
lík og er það nokkuð sem
Popparinn hélt að væri ekki
til þegar Magnús Þór væri
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Haraldur Þorsteinsson,
er einn albesti bassaleik-
ari okkar í dag þegar rokk
er annars vegar, ef ekki
sá besti. Hér sjáum við
„týpískan11 Haraíd.
annars vegar. Kannski voru
það bara útsetningarnar
sem voru ekki nógu fjöl-
breyttar. Full einhæft var að
mati Popparans að nær
hver einasta sóló alla hljóm-
leikana í gegn var leikin á
munnhörpu.
Lagið við Passíusálm nr.
48 bar af eins og gull af eiri.
Það var listilega útsett með
öllum þeim andstæðum
sem nauðsynlegar eru til að
skapa spennu í tónlist. Tón-
leikunum lauk um hálftólf
og þrátt fyrir langt og mikið
lófatak fengu gestir ekki að
heyra aukasálm. Hins vegar
kom hljómsveitin ásamt fyr-
irliða sínum fram og hneigði
sig pent. Ágætum tónleik-
um var lokið.