Morgunblaðið - 06.04.1986, Qupperneq 36
í
I
|
3
í
f
3é ÉÍ
MÓRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
'JOfi'
Suouc-i
öíríaLo.
„ ELleFu og þrir fjóráu-"
© 1986 Universal Press Syndicate
it-i«
... að óska þess að
þú ættir einhvem til
að halda á þér hita
TM Reg. U.S. Pat. Off.—all rights reserved
c1985 Los Angeles Times Syndicate
áster...
HÖGNI HKEKKVtSI
Safnahúsið við Hverfisgötu.
Itrekuð fyrirspum til
húsfriðunamefndar
Ágæti Velvakandi.
Undirrituð gerði fyrirspum til
húsfriðunamefndar í Mbl. þriðju-
daginn 18. mars sl. varðandi Safna-
húsið við Hverfisgötu í Reykjavík
ogjafnframt um húsfriðun almennt.
Ekkert svar við þessari fyrir-
spum hefur enn komið, hvað sem
veldur. Er ég þó viss um að fleiri
en mig fýsir að vita hvaða breyting-
ar megi gera utan húss og innan á
friðuðum húsum í A-flokki. Til
viðbótar vil ég spytja, hvort nokkuð
sé um það í þjóðminjalögum (1969
nr. 52), að friðuð hús breyti alveg
um hlutverk, t.d. hvort breyta
mætti friðaðri kirkju í safnahús, ef
einhveijum félagsskap dytti í hug
að gera samþykkt þar að lútandi.
Margt áhugavert kemur nú frá
menntamálaráðuneytinu um vemd-
un margvíslegra menningarverð-
mæta, okkur almenningi tii íhugun-
ar og eftirbreytni. Hvers konar
fróðleikur um þessi mál er afar
nauðsynleg undirstaða þess, að
almennur áhugi vakni á þessum
málum. Það ætti því ekki að þurfa
að standa á upplýsingum varðandi
vemdun menningarverðmæta þeg-
ar eftir þeim er leitað. Því ítreka ég
fyrri fyrirspum mína til húsfriðun-
amefndar varðandi Safnahúsið við
Hverfisgötu og vænti þess að henni
verði svarað og það sem allra fyrst.
Skv. upplýsingum menntamála-
ráðuneytisins eru eftirtaldir aðilar
í húsfriðunamefnd: Þór Magnússon
þjóðminjavörður er formaður. Aðrir
eru Hörður Ágústsson, Þorsteinn
Gunnarsson, Þórður Tómasson og
Gylfi Guðjónsson. Ritari nefndar-
innar er Lilja Ámadóttir.
Með aðstoð Velvakanda tel ég
víst að umbeðnar upplýsingar komi
fyrir almennings sjónir.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til - eða hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga til
föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er
þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla
og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer
og heimilisföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski
nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum.
Víkverji skrifar
að var forvitnilegt að horfa á
mynd, sem sjónvarpið sýndi
fyrir nokkrum dögum um ferð
nokkurra erlendra ævintýramanna
frá jökullóninu á Breiðamerkur-
sandi, yfir Vatnajökul og til sjávar
norðanlands með siglingu á Jökulsá
á Fjöllum - og raunar flugi að hluta
til. Við Islendingar erum því ekki
vanir að ferðast um land okkar með
þeim hætti, sem þessir kappar
gerðu, en kannski verður þessi
mynd til þess t.d. að siglingar á ám
og vötnum eigi eftir að aukast hér.
Þetta ferðalag þurfti þó ekki að
vera eins glæfralegt og það sýndist
á köflum. Oneitanlega var t.d.
broslegt að fylgjast með ferðum
þeirra félaga niður í íshellinn í
Kverkfjöllum. Þeir bröltu þar niður
um opið á hellinum með miklum
tilþrifum en að sjálfsögðu er mun
greiðfærari leið inn í hellinn með
því einfaldlega að ganga inn í hann,
þar sem hann opnast við jökul-
brúnina.
Þá vakti sú lífshætta, sem einn
leiðangursmanna virtist komast í á
Jökulsá, einnig nokkrar spumingar.
Þótt maðurinn hyrfi í ána sáust
þess enginn merki, að ferðafélagar
hans gerðu t'ilraun til þess að bjarga
honum. Við og við skaut hann upp
kollinum en að lokum gekk hann í
land óstuddur og sýndist ekki þjak-
aður á nokkrun hátt, þótt þulur
myndarinnar hefði lýst því með
alvarlegum orðum, að hann hefði
verið nær dauða en lífi. Var þetta
sett á svið?
xxx
Inæstu viku verður frumsýning
í íslenzku óperunni á II Trovat-
ore. Þessi sýning á vafalaust eftir
að verða vinsæl enda tónlistin ákaf-
lega falleg á köflum. Þá mun það
stuðla að mikilli aðsókn að báðar
helztu söngkonur okkar af yngri
kynslóðinni, þær Sigríður Ella
Magnúsdóttir og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, syngja í ópemnni.
Unnendur óperutónlistar hafa haft
af því nokkrar áhyggjur í vetur, að
lítið hefur verið um að vera hjá
ópemnni. Ekki hefur komið fram,
hvort það stafar af fjárhagsörðug-
leikum eða hvort forsvarsmenn
ópemnnar hafi talið að sýning Þjóð-
leikhússins á Grímudansleiknum
hafi dregið úr líkum á því, að sýning
gæti tekizt vel í óperunni. Hvér svo
sem ástæðan er ber að fagna því,
að fmmsýning er í vændum hjá
ópemnni.
XXX
Hvað dvelur hraðbanka bank-
anna annarra en Iðnaðar-
bankans? Þessir sjálfsalar bank-
anna áttu að komast í gagnið sl.
haust en þá urðu tafir á því vegna
mistaka.við gerð þeirra korta, sem
notuð em til þess að eiga viðskipti
við þessi tæki. En nú eru allir frest-
ir löngu liðnir, sem gefnir hafa verið
upp af hálfu bankanna. Em einhver
sérstök vandamál á ferðinni? Það
má sjá að þessi tæki em komin upp
víða, jafnvel á Borgarspítalanum,
en þau em engum til gagns, enn
sem komið er.
Annars er orð á því haft í banka-
kerfinu að það gangi illa með fleira
en hraðbankana. Þannig hafa
margvísleg vandamál komið upp við
uppsetningu beinlínukerfis bank-
anna, sem út af fyrir sig er ósköp
eðlilegt, en kostnaður mun einnig
hafa aukizt vemlega. Hér er um
að tefla fjárfestingu, sem nemur
200—300 milljónum á.m.k.