Morgunblaðið - 06.04.1986, Qupperneq 38
:uc H IHl KVIKMyNCANNA
NÝRZORBA
Cannon-fyrirtækið tilkynnti nýlega að það hefði keypt kvik-
myndaréttinn að sögunni um Grikkjann Zorba, nánar tiltekið leik-
ritið, sem byggt var á bókinni eftir Kazantzakis, en það hefur
verið sýnt á Broadway við miklar vinsældir.
Anthony Quinn, sem lék Zorba fyrst í kvikmynd eftir Cacoyannis
árið 1960 mun leika í nýju myndinni. Leikritið skrifað Joe Styne, en
tónlist og söngtextar eru eftir John Kander og Fred Ebb. Leikstjóri
hefur ekki verið ráðinn en Menahem Golan og Yoram Globus munu
standa að gerð myndarinnar.
Sydney Pollack ráðgast hér við innfæddan f Afrfku.
Ekkert mál
Spurt er: Hvers vegna leikur hinn ameríski Robert Redford enska
aðalsmanninn Denys Finch Hatton f kvikmyndinni „Jörð í Afrfku"?
Aðeins einn maður getur svarað þeirri spurningu og hann er vitaskuld
Sydney Pollack:
Jú, segir Pollaqk, myndin er nærri þrír tímar að lengd og það er
frumskilyrði að myndin haldi athygli áhorfandans allan tímann og það
er á færi Roberts. Enginn annar amerískur stórleikari getur það, segir
Pollack — þar fyrir utan er hann sjarmör hinn mesti og býr yfir þeim
rómantísku eiginleikum sem voru svo ríkir í fari Denys.
Pollack hefur sem sagt litlar áhyggjur af þessu hnossi sem hann ber
ábyrgð á sem leikstjóri, en vart verður sagt að Meryl Streep falli í sömu
gryfjuna og meðleikari hennar. Streep hefur nefnilega ekki látið sér
nægja að tala snobb-ensku í Plenty, heldur hefur hún lært póisku (Sop-
hie’s Choice) og í Jörð í Afríku leggur hún sig í líma við að ná málhreim
Karenar Blixen hinnar dönsku.
William Hurt
verðlaunaður
Kunningjar og ráðgjafar William Hurt lögðu hart að honum að leika
ekki f „Kossi köngurlóakonunnar", myndinni sem brasilfski leikstjórinn
Hector Babenco hugðist gera snemma árs 1984. Ástæðan: Persónan
sem hann átti að túlka var hommi. Það er ótrúlegt til þess að hugsa
að hinn aldni Burt Lancaster hafði átt að leika hommann Molina, en
Burt gat það ekki vegna veikinda. Babenco sendi Hurt handritið.
Hurt óð um þær mundir f milljónatilboðum frá Holiywood en hann
kaus frekar að vinna kauplaust fyrir Babenco. Hurt sér að sjálfsögðu
ekki eftir ákvörðun sinni: Hann var kosinn besti karlleikari á kvik-
myndahátíðinni í Cannes vorið 1985 og fékk Óskarinn fyrir nokkrum
dögum eins og flestir ættu að vita.
William Hurt er vel að þessum
verðlaunum kominn. Fáir leikarar
af hans kynslóð eru jafn djarfir í
efnisvali, og það sem mikilvægara
er, jafnríkir að hæfileikum. „Koss-
inn“ er sjötta mynd hans, hinar
eru: Altered States eftir Ken Russ-
el (1980), blóðhiti eftir Lawrence
Kasdan (1983) og Gorky Park eftir
Michael Apted (1984). Strax og
Hurt lauk viö Kossinn lék hann í
Children of a Lesser God, sem
byggð var á samnefndu sviðsverki
og sýnt var í Iðnó fyrir tveim árum.
„Guð gaf mér eyra“ nefndist verkið
í íslenskri þýðingu; myndina á að
frumsýna í Bandaríkjunum á allra
næstu dögum.
„Koss köngurlóakonunnar" er
gerð eftir tíu ára gamalli bók
Óháðir kvikmyndagerð-
armenn mynda samtök
Mynd Stevens Spielbergs,
The Color Purple, sem þvf
miður hefur orðið frægust
fyrir að fá engin Óskarsverð-
laun, verður að öllum líkindum
sýnd hér á landi snemma
sumars, nánar tiltekið í júní-
byrjun.
Að sögn Árna Kristjánsson-
ar í Austurbæjarbíói, sem
tryggt hefur sér sýningarrétt-
inn, fæst myndin ekki til sýn-
inga í Evrópu fyrr en kvik-
myndahátíðinni í Cannes í maí
lýkur. Þetta á einnig við nýjustu
mynd Martins Scorosese, Aft-
er Hours, en Bíóhöllin mun
sýna hana síðar á þessu ári
The Color Purple er átakan-
leg saga ungrar blökkukonu,
lífsbaráttu hennar í Bandaríkj-
unum á fyrri hluta þessarar
aldar. Byggð á bók Alice Walk-
ers, sem fékk Pulitzer-bók-
menntaverðlaunin fyrir nokkr-
umárum.
Joel Coen gerði Blood Simple og
Tónabíó sýndi myndina fyrir ári.
mm
Geraldine Page fékk nýverið Óskarinn sem besta leikkona ársins
1985 og hún var einnig útnefnd af óháðu samtökunum fyrir „The
Trip To Bountiful". Á þessari mynd sést hún ásamt meðleikara sfnum
Rebeccu De Mornay.
Blood Simple, Smooth Talk og
The Trip To Bountiful.
Besti leikstjóri: Joyce Chopra
fyrir Smooth Talk, Peter Master-
son fyrir The Trip To Bountiful,
Joel Coen fyrir Blood Simple og
Martin Scorsese fyrir After
Hours.
Besta handrit: Joel og Ethan
Coen fyrir Blood Simple, Tom
Cole fyrir Smotth Talk, Horton
Foote fyrir The Trip To Bountiful
og Joseph Minion fyrir After
Hours.
Besti leikari: Ruben Blades
fyrir Crossover Dreams, Tom
Bower fyrir Wilfrose, M. Emmet
Walsh fyrir Blood Simple og
Treat Williams fyrir Smooth Talk.
Besta leikkona: Rosanna
Arquette fyrri After Hours, Laura
Dern fyrir Smooth Talk, Gerald-
ine Page fyrir The Trip To Bount-
iful og Lori Singer fyrir Trouble
in Mind.
Besta kvikmyndataka: Mich-
ael Ballhaus fyrir After Hours,
Michaei Chin fyrir Dim Sum,
Toyomichi Kurita fyrirTrouble in
Mind og Barry Sonnenfield fyrir
Blood Simple.
gerðarmenn samtök (The Inde-
pendent Feature Project) sem
verðlauna félaga sem þykja
hafa staðið sig betur en aðrir.
Um 1.000 manns eru í þessum
félagsskap og ætla þeir að
veita þessi verðlaun sem nefn-
ast „Independent Spirti Aw-
ards“ á hverju ári.
Þessir voru útnefndir fyrir
árið 1985:
Besta mynd: After Hours,
Það eru til fleiri verðlaun en
hinn margfrægi og alræmdi
Óskar frændi. Fyrr á þessu ári
stofnuðu óháðir kvikmynda-
sýnd
íjúní