Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986 PállÞorláks- son rafverk- takilátinn Utankjörstaðakosning erlendis: Óánægja í Amsterdam Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson * 90 A sundi í Oxará Sumarið framundan verður væntanlega mikið ferðasumar hjá hestamönnum, þvi búast má við að margir þeirra fari ríðandi á landsmótið, sem haldið verður á Hellu í byrjun júlí. Nokkrir tamningamenn í Mosfellssveit ákváðu að æfa hross sin í ferðalögum og fóru ríðandi til Þingvalla nú í vikunni. Um 60 hross voru i rekstrinum og var myndin tekin þegar hópurinn fór yfir eitt vætufallið á leiðinni. Víðishúsið slegið sjóðum iðnaðarins á 73,5 milljónir Lýstar kröfur í þrotabúið 170 milljónir kr. HÚS þrotabús Trésmiðjunnar Víðis hf. á Skemmuvegi 2 i Kópa- vogi var slegið Iðnaðarbankan- um, Iðnlánasjóði og Iðnþróunar- sjóði fyrir 73,5 milljónir kr. á nauðungaruppboði bæjarfóget- ans í Kópavogi í gær. Búist er við að aðrar eignir fyrirtækisins, vélar og fleira, verði boðnar upp síðar i mánuðinum. Þrír aðilar buðu í húsið. Sjóðir iðnaðarins buðu sameiginlega og byrjuðu á 56 milljóna króna boði. Trésmiðjan Smiður hf. bauð 60 milljónir og síðan buðu þessir aðilar til skiptis, ásamt Verzlunarbankan- um sem bauð einu sinni, þar til eignin var slegin Iðnaðarbankan- um, Iðnlánasjóði og Iðnþróunarsjóði á 73,5 milijónir kr. Hæstbjóðendur eru stærstu kröfuhafar í þrotabúið. Trésmiðjan Smiður hf. er skráð með heimilsfang á Stórhöfða. Stjómar- formaður félagsins er Þórarinn Jónsson forstjóri JL-byggingarvara sf. Brunabótamat Víðishússins er rúmar 133 milljónir kr., en fast- eignamat 56 milljónir kr. Heildarupphæð lýstra krafa í þrotabú Trésmiðjunnar Víðis hf. er tæpar 170 milljónir kr. Þar af eru 120 milljónir með veði f húseigninni og tækjum, og 8,6 milljónir í svo- kölluðum forgangskröfum, það er launum og fleiru. Virðist söluverð eignanna ekki duga til að greiða veðskuldir og lítið sem ekkert af- gangs upp í almennar kröfur. NOKKUR óánægja iríkir meðal íslendinga I Hollandi, sem ekki gátu greitt atkvæði 21. og 22. inaí á iræðismannsskrifstofunni í Amsterdam að sögn í'réttaritara Morgunblaðsins þar. UJtanrikis- L’áðuneytið hafði auglýst að utan- Ikjörstaðakosning gæti farið fram f Amsterdam fyrrnefnda tvo daga eða eftir samkomulagi. Komelíus Sigmundsson, sendi- fulltrúi í utanríkisráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið, að leiðinlegt væri að þessi óánægja hefði ekki komið fram fyrr en á sfðasta degi. Hefðu menn haft samband við utanríkisráðuneytið í tíma hefði allt verið gert til að kippa þessu í liðinn. Samkvæmt eftirgrennslan ffettaritara Mbl. mun ræðismaður- inn í Amsterdam ekki hafa verið beðinn um að vera á skrifstofu sinni nema umrædda tvo daga. Komelíus sagði, að sami hátturinn hefði alls staðar verið hafður á; tveir ákveðnir dagar og síðan reynt að liðka fyrir með kosningu aðra daga væri slíkt knýjandi. Oánægju hefði ekki orðið vart frá öðmm kjörstöðum erlendis og hann harmaði að svona hefði farið í Amsterdam. Nýja bíó verður Bíóhúsið NÝJA BÍÓ, sem heitir Bíó húsið frá 1. júlí n.k., hefur verið leigt Árna Samúelsyni eiganda Bió- hallarinnar. „Við lokum fram til 1. júlí á meðan verið er frísak upp á bíóið," sagði Ámi. Anddyrið, miðasalan og sýningarsalurinn verða máluð en óráðið er hvort settar verða upp nýjar innréttingar. Ætlunin er að breyta rekstrarfyrirkomulaginu í líkinug við Bíóhöllina og verður meðal annars komið fyrir mynd- bandi í forstofu. Z*S828Í*- Páll Þorláksson rafverktaki í Kópavogi er Játinn. Páll fæddist í Reykjavík 6. september 1934. Hann var sonur Þorláks Jónsson- ,ir rafverktaka i Reykjavík og Kristjönu Ömólfsdóttur. en hún lést árið 1969. Páll Þorláksson lauk prófí frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann rak fyrirtækið Raffell í Kópavogi í Qölda ára. Páll tók þátt í störfum Landsambands íslenskra rafverk- taka og auk þess starfaði hann að ýmsum féiagsmálum rafvirkja og rafverktaka. Hann tók einnig virk- an þátt í félagsstarfí Sjálfstæðis- fíokksins í Kópavogi. Eftirlifandi kona Páls er Ást- hildur Pétursdóttir bæjarfulltrúi í Kópavogi. Þau eignuðust tvö böm, Björgvin og Margréti, sem bæði em uppkomin. PáU Þorláksson Hörður Helga- son af henti trúnaðarbréf sitt í gær HÖRÐUR Helgason sendiherra afhenti í gær Margréti Dana- drottningu trúnaðarbréf sitt sem sendiherra íslands í Danmörku. Myndin er tekin er ráðgjafí drottn- ingar sótti Hörð og Söru, konu hans, á Hotel D’Angleterre fyrir athöfnina. Seat-bílamir að losna frá Spáni Þrýstingur frá Seat í Madrid á her og lögreglu leysti málið eftir mánaðar þóf 50 Seat Ibisa-bílar í eigu íslendinga verða í dag fluttir frá Bilbao á Spáni til Bayonne í Frakklandi. I um það bil einn mánuð hafa bUarnir beðið út- skipunar í Bilbao, en vegna verkfalla hafa þeir ekki fengizt lausir. 1 Bayonne bíður flutningaskipið Saga og er áætlað að það komi með bílana hingað til lands 10. júni. Agúst Ragnarsson, markaðs- stjóri fyrirtækisins Töggur, sem flytur bílana inn, sagði í gær, að eftir mikinn þrýsting frá Zeat í Madrid, skipamiðlunnini Emesa og fyrirtækinu, meðal annars á her og lögreglu , hefði loksins fengizt leyfí til að flytja bflana. Þeir yrðu fluttir frá Bilbao með flutningabfl- um klukkan 10 fyrir hádegi áleiðis til Bayonne og þar yrði þeim ekið um borð í Sögu upp úr hádeginu ef allt gengi að óskum. Ágúst sagði þessa bið hafa verið erfiða, því markmið fyrirtækisins væri að þjóna viðskiptavinum sín- um eins vel og unnt væri. Þeir ættu bflana og Spánverjar hefðu engan rétt til að halda á þeim. Vegna þess hefði allra ráða verið leitað til að koma bflunum heim eins fljótt og unnt væri. Yfirlýsingar MORGUNBLAÐINU hafa borizt eftirfarandi yfirlýsingar frá Hagvirki hf. og formanni stjórnar verkamannabústaða í Hafnarfirði: í tilefni af skrifum í kosninga- blaði Einars Þ. Mathiesen í Hafti- arfírði, Frjálsu framboði, 2. tölu- blaði, um að Ámi Grétar Finns- son, hæstaréttarlögmaður hafi verið greiddar kr. 800.000 í sölu- laun af þeim íbúðum sem Verka- mannabústaðir í Hafnarfírði keyptu af Hagvirki hf. við Hvammabraut 10 og 12, Hafnar- firði, vil ég undirritaður formaður stjómar Verkamannabústaða í Hafnarfirði, taka fram að kaupin voru gerð milliliðalaust, með við- ræðum fulltrúa stjómar verka- mannabústaða við Hagvirki hf. og enginn fasteignarsali kom þar nálægt. Þá vill undirritaður láta koma fram vegna aðdróttanna í sama blaði, að Sigurður Þorvarðarson sem skipar 6. sæti lista Sjálfstæð- isflokksins, vann við eftirlitsstörf fyrir hönd stjómar verkamanna- bústaða í Hafnarfírði á Hvamma- braut 10 og 12, en hann hefur nú mörg undanfarin ár unnið að sambærilegum störfum fyrir verkamannabústaði nú hin síðustu ár við eftirlit á byggingu verka- mannabústaða að Móabarði 34 og 36. Því vísa ég fram komnum ásök- unum á bug sem rætnum dylgjum. Hafnarfirði 28. maí 1986. Grétar Þorleifsson formaður stjómar verka- mannabústaða í Hafnar- firði. í tilefni af aðdróttunum, sem fram koma í kosningablaði Einars Þ. Mathiesen í Haftiarfírði, Fijálsu Framboði, 2. tölublaði, um að Ámi Grétar Finnsson, hæsta- réttarlögmaður, hafí fengið kr. 800.000 í sölulaun frá Hagvirki hf. fyrir sölu fyrirtækisins, á íbúð- um að Hvammabraut 10 og 12, Hafnarfirði, til Verkamannabú- staða í Hafnarfírði, þá skal upp- lýst, að engin sölulaun eru greidd af þessum íbúðum, hvorki til Áma Grétars, né annarra, enda sá Hagvirki hf. sjálft um söluna. Dylgjumar í kosningablaði Einars Þ. Mathiesen em því tilhæfulaus- ar. Hafnarfirði 28. mai 1986, f.h. Hagvirkis hf., . Guðbjörn Ólafsson. Stranglers koma ekki í frétt frá Listahátíð segir að hljómsveitin Stranglers sem til stóð að léki á hátíðinni komi ekki þrátt fyrir að búið hafí verið að ganga frá samningum varðandi hana. Framkvæmdastjóm hátíðarinnar fær ekkert við ráðið en unnið er að því að fá aðra góða hljómsveit í stað Stranglers.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.