Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986 47 Áshildur Jónsdóttir hingað til verið þekktir fyrir annað en manngæsku og lýðræði. Við höfum lítið að gera við stjóm- endur sem sækja hugmyndir sínar til Síberíu. Við viljum manneskjulegt um- hverfi og að það komi fram í kjömm fólks og í skipulaginu. Valið í vor er skýrt í kosningunum í vor er valið því mjög skýrt. Það er á milli Flokks mannsins annars vegar og fjór- flokksins hins vegar. Fjórflokkurinn er fulltrúi fyrir hagsmunasamtök og viðskiptaaðila sem em hinir raunvemlegu stjómendur. Eða af hveiju haldið þið að þessir flokkar eyði milljónum í kosninga- baráttu sína? Þessir peningar koma frá þeim aðilum sem stjóma þeim. Fyrirtækjum sem ætla að græða góðan skilding — græða á okkur fólkinu. FuIItrúar fjórflokksins Frambjóðendur fjórflokksins em fulltrúar þessara aðila. Til að hylma yfir það þykjast margir vera í per- sónulegum framboðum. Sem dæmi um þetta má nefna að Sigurjón Pétursson dreifði bæklingi í Reykja- vík 1. maí og krafðist 30 þús. kr. lágmarkslauna í borginni. Nokkmm dögum síðar sat þessi sami Sigurjón á samningafundi með húsvörðum í Reykjavík þar sem hann talaði gegn 30 þús. kr. lágmarkslaunum og sagði húsvörðunum að það væri ekki hægt að hækka hin lágu laun þeirra. Sigutjón og félagar hans em fulltrúar Alþýðubanda- lagsins og þar kemur skýringin á I tilefni skrifa Richards Björgvinssonar í Morgunblaðið 27. maí sl. Odrengilegar blekk- ingar um Kópavog Nokkrar tölulegar staðreyndir um fjármál Kópavogskaupstaðar eftir Kristján Guðmundsson Það hefur iengi vakið undmn mína, að jafnstór og öflugur flokkur og Sjálfstæðisflokkurinn er, skuli í Kópavogi hafa valið tii forystu mann, sem nánast aldrei stingur niður penna um bæjarmálefnin öðmvísi en að ófrægja kaupstaðinn. A hans bæ virðist sólin bara aldrei koma upp. Um framlagningu reikninga Kópavogskaupstaðar þarf ekki að fjölyrða. Um langt árabil hefur verið kappkostað að leggja þá snemma fram og hafa upplýsingar glöggar, enda segir annar kjörinna endurskoðenda bæjarins, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Halldór Jóns- son, um þá orðrétt í athugasemdum sínum á síðasta ári: „í heild em reikningamir vel og skilmerkilega uppsettir og vel sundurliðaðir." Ég vek á því athygli að enn hafa reikningar „fyrirmyndarbæjanna" Reykjavíkurborgar og Seltjamar- ness ekki verið lagðir fram fyrir árið 1985. Greiðslustaða Kópavogskaup- staðar var vel viðunandi á mæli- kvarða annarra kaupstaða og batn- aði enn 1985, enda er hún eins og vera ber á góðum bæjum þannig, að öll lán em í skilum og bæjarfé- lagið stendur við allar Qárskuld- bindingar sínar. Yfírdráttarheimild bæjarins hjá Búnaðarbanka íslands, sem er aðalviðskiptabankinn, hefur aldrei verið nýtt til fulls á þessu ári. Þrátt fyrir að reikningamir séu settir upp samkvæmt beztu bók- haldsvenjum, virðist bæjarfulltrú- inn hafa misskilið uppsetningu þeirra, er hann oftelur heildarskuld- ir um 36 millj; segir þær 266 millj. í stað 230 millj. Þess má geta til fróðleiks, að heildarskuldir bæjarins að frá- dregnum útistandandi tekjum em aðeins 78 millj. Vert er að benda á, að velta Kópavogskaupstaðar var tæplega 600 millj. á síðasta ári. Allir sem fylgjast með fjármálum sveitarfélaga, vita, að íjármagns- og vaxtakostnaður í Kópavogi er með því lægsta á landinu öllu, enda er kaupstaðurinn einna skuld- minnstur miðað við stærð, þrátt fyrir að í mörg hom sé að líta í bæ, sem vaxið hefur örar en dæmi em um annars staðar. Örfáar staðreyndir úr reikning- um Kópavogs, fýrir þá sem áhuga hafaátölum: ★ Heildartekjur bæjarins vom 592 millj. Af þeim var varið 447 millj. í rekstur hinna fjölmörgu þjónustufyrirtækja bæjarins og 125 millj. í stofnkostnað. ★ Til reksturs, viðhalds og ný- bygginga gatna var varið 73 millj. ★ Skammtímaskuldir lækkuðu sem hlutfall af tekjum milli áranna 1984 og 1985 úr 24,3% í 21,2%. Hreint veltufé jókst um 32,4 millj. á árinu og hækkaði veltu- fjárhlutfallið úr 0,88 í 1,15. Ef næsta árs afborganir em und- anskildar, var veltufjárhlutfallið 1,61. Innheimtan var slakari en árið á undan, 79,6% í stað 83,9%, en er þó bezt meðal kaupstað- anna fimm á þessu svæði. Óinn- heimtar tekjur í árslok vom 102,6 millj. Vaxtatekjur bæjarins urðu 31,4 millj. í upphaflegri áætlun árs- ins var áætiað hóflega eða 18 millj. En heildarvaxtagjöld bæj- arins urðu 24,6 millj. „Allir sem fylgjast með fjármálum sveitarfé- laga, vita, að fjár- magns- og vaxtakostn- aður í Kópavogi er með því lægsta á landinu öllu, enda er kaupstað- urinn einna skuldm- innstur miðað við stærð, þrátt fyrir að í mörg horn sé að líta í bæ, sem vaxið hefur örar en dæmi eru um annars staðar. “ ★ Fastafjármunir hækkuðu um 32,9% á milli áranna 1984 og 1985 eða um 750 millj. og urðu Kristján Guðmundsson íárslok kr. 3.028.361.100. ★ Eigið sé var 92,6% af heildar- §ármagni f árslok 1985. Kópavogur er ungur og þrótt- mikill bær. Mér hefur verið það mikið gleðiefni að starfa með dug- miklum bæjarfulltrúum og röskum og ábyrgum embættismönnum þetta kjörtímabií. Fjölmargt hefur áunnist. Áhugaverðum verkefnum hefur verið hrint í framkvæmd, sem víða hafa vakið athygli. Þessi atorka og þetta manngildi verða áfram að sitja í öndvegi í Kópavogi. Höfundur er bæjarstjóri íKópa- vogskaupstad. Hvers vegna býður flokk- ur mannsins fram? eftirÁshildi Jónsdóttur Margir hafa sjálfsagt hugleitt hvers vegna Flokkur mannsins bjóði fram til borgarstjómarkosninga í vor. Þetta er nýtt framboð sem kemur ekki bara fram í Reykjavík heldur á þrettán stöðum úti um allt land. Það er orðið langt síðan nýr stjómmálaflokkur hefur boðið fram í fyrsta skipti á svo mörgum stöð- um og það án þess að vera klofning- ur úr öðmm flokkum. Þetta er nýtt afl fólksins í landinu sem rís nú upp af miklum krafti, því það treystir ekki lengur „gömlu flokkunum" til að ráðskast með líf sitt. Treystir þeim ekki lengur til að stjóma og skipuleggja hér í þessu landi. Stefna gömlu fiokkanna kemur ekki bara fram í lélegum kjömm fólks heldur líka umhverfmu, hvem- ig það er skipulagt. Yfirvöld þykjast vera góðir skipu- leggjendur, en ef litið er á Reykja- vík og stærri bæi er greinilegt að ekki er byggt fyrir lifandi fólk, heldur fyrir bfla, verslunarhallir og svefnkumbalda. Hugmyndir frá Síberíu Fyrir skömmu var grein um Reykjavík í Lesbók Morgunblaðsins sem fjallaði um skipulag borgarinn- ar. Með greininni fylgdi mynd sem vel hefði getað verið götumjmd frá Reykjavík. En svo var ekki, heldur reyndist hún vera frá borginni Bratsk i Siberíu. Stjómendur þar eystra hafa Skíðaskálinn í Hveradölum: Sýning Bjarna Jónssonar Bjarni Jónsson, listmálari, hefur opnað sýningu í Skiðaskálanum í Hveradölum. Þetta er þriðja sumarið sem Bjami sýnir þar, en hann hefur sýnt víða um land á undanfömum ámm og tekið þátt í samsýningum erlendis. Um helgar mun Astrid Ellingsen sýna handpijónaða kjóla úr íslensku einbandi. því af hveiju Siguijón vildi ekki hækka laun húsvarðanna. Það er nefnilega ekki stefna þeirra að hækka launin. Og nú er sennilega búið að kippa í spottann því frambjóðendur Álþbl. tala lítið um launamál. Persónuleg framboð Sama má segja um fulltrúa Al- þýðuflokks, Bryndísi Schram sem talar mjög fagurlega um húsnæðis- mál, launamál og málefni aldraðra, en formaður flokksins, Jón Baldvin, hefur samþykkkt síðustu kjara- samninga og með því staðfest ríkj- andi ástand. Bryndís er ekki í per- sónulegu framboði heldur er hún fulltrúi Alþýðuflokksins og við vit- um að hún er ekki húsbóndinn á þeim bæ. Davíð Oddsson frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins er enginn ein- valdur. Hann er bara starfsmaður borgarinnar og fulltrúi peninganna sem eiga Sjálfstæðisflokkinn og hann sjálfan. Frambjóðendur fjórflokksins eru að plata fólk með því að þykjast vera aðrir en þeir eru. Varpaðu hlutkesti Við í Flokki mannsins erum ekkert á móti atvinnurekstri en við erum á móti því að borgar- og bæjarfulltrúar séu fulltrúar fyrir- tækja og hagsmunaaðila en ekki fólksins. Ef þú, kjósandi góður, vilt sama vælið og vandamálahjakkið, kjóstu þá einhvem þeirra. — En varpaði hlutkesti því það er alveg sama hvem þeirra þú kýst. í kjörklefanum 31. maí er valið skýrt, annars vegar um gömlu fiokkana og hins vegar nýtt stjóm- málaafl sem mun standa vörð um hagsmuni fólksins, mannrettindi og lýðræði í landinu. Þú hefur engu að tapa en allt að vinna með því að kjósa nýtt fólk, nýja stefnu. Eitt verka Bjama Jónssonar, sem um þessar mundir sýnir i Skíða- skálanum í Hveradölum. ÁGÓÐUVERÐI - ACDelco Nr.l BSLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300 SÍUR ER BÍLLINN ÍLAGI Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! A GÓÐU VERÐI - ALTERNATORAR Original japanskir varahlutir í flesta japanska bíla. HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 LAWN-BOY GARÐSLÁTTUVÉLIN Það er leikur einn að alá með LAWN-BOY garösláttuvélinni, enda hefur allt verið gert til að auðvelda þér verkiö. Rafeindakveikja. sem tryggir örugga gang- setningu. Grassafnari, svo ekki þarf að raka. 3,5 hö, sjálfsmurð tvi- gengisvél, tryggir lág- marks viðhald. Hljóölát. Slær út fyrir kanta og alveg upp að veggjum. Auöveld hæðarstilling. Ryðfri. Fyrírferðalítil, létt og meðfærileg. VELDU GARDSLATTUVEL, SEM GERIR MEIR EN AD DUGA. PÖRf SlMI B8150D ARMULA 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.