Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 29
Fréttir í stuttu Minnast at- burðannaá Heysel Brussel. AP. EITTHUNDRAÐ ítalir, sem búsettir eru í Belgíu, lögðu í gær blómsveiga og -vendi að veggjum Heysel-leikvangsins í Brussel, þar sem 39 manns biðu bana fyrir ári. Ár er liðið frá úrslitaleik Li- verpool frá Englandi og Juventus frá Ítalíu um Evrópumeistaratit- ilinn. Áhangendur Liverpool fóru með ofbeldi á áhorfendapöllunum með þeim afleiðingum að 39 menn biðu bana rétt áður en leikurinn átti að hefjast. í Tórínó minntust menn dags- ins með því að mála ókvæðisorð um Breta á húsveggi. Skaðabætur vegna geisla- virkni Stokkhólmi. AP. SÆNSKA stjómin ákvað f gær að veija 25 milljónum sænskra króna, eða tæplega 150 m. isl. kr., til að greiða bændum skaðabætur vegna kjamorkuslyssins i Cherno- byl. Bændur, sem urðu fyrir upp- skerutjóni vegna geislavirks úr- fellis í Svíþjóð, hljóta bætumar. Von er á frekari bótagreiðslum þegar fyrir liggur hvað tjón bændanna er mikið. Verst úti urðu bændur í nágrenni borgar- innar Gávle, sem er 160 km norður af Stokkhólmi. Glemp gagn- rýnir yfirvöld Varsjá. AP. ÞÚSUNDIR Pólveija hylltu Jozef Glemp, kardinála, er hann gagnrýndi pólsk og sovézk stjómvöld fyrir að beijast gegn trúrækni með þvi að reka mikinn áróður fyrir heiðni. Um 15.000 manns voru við- staddir útimessu við Önnukirkj- una í Varsjá og féllu yfirlýsingar Glemps í garð stjómvalda í góðan jarðveg. Mannfjöldinn rétti upp hendur og myndaði V-merkið, sem er tákn hinna útlægu óháðu verkalýðsfélaga, Samstöðu. Bandarískur togari sökk undan Sovét- ríkjum Moskvu. AP. BANDARÍSKIR og sovézkir togarar björguðu áhöfn bandarísks togara, sem steytti á skeri og sökk nálægt sovézkri lögsögu í Kyrrahafi, en nánar var ekki skýrt frá staðsetningu. Togarinn sem sökk var í eigu fískvinnslufyrirtækis, sem er í sameign sovézkra og bandarískra aðila. Togarinn var einn fímm togara sem landa um borð í sovézkt verksmiðjuskip. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986 29 Hafnarfjörður er einn blómlegasti bær landsins VjSláttuvélar nifyrir allar stærðir garða mH • Landsins mesta úrval viöurkenndra sláttuvéla. Í# Landsins mesta úrval viöurkenndra sláttuvéla. 0 Liprir sölumenn veita faglegar ráöleggingar. • Árs ábyrgð fylgir öllum vélum. ► Öruggarleiöbeiningarumgeymsluogmeöferösem tryggir langa endingu. > Góð.varahluta- og viðgerðarþjónusta. fir 40 tegundir sláttuvéla iléttir Flymosvifnökkvar. sem hægt er aö leggja saman og hengja upp á ig eftir notkun 0 Rafsvifnökkvar 0 Bensínsvifnökkvar fyrir litla og ðalstóra grasfleti 0 Atvinnusláttuvélar fyrir fina grasfleti jafnt sem larbústaðalóðir 0 Snotra með aflmiklum 3.5 hestafla mótor 0 ibunaður stillanlegur með einu handtaki 0 Með eða án grassafnara. twood garðtraktorar sterkir og fjölhæfir. 7.5—16 hestafla mótor. Margvislegir fylgihlutir gir. Henta vel fyrir sveitanelög og stofnanir. 3II gróðurhús Margar stæröir. Einnig vermireitir. . Verslið þar sem úrvalið er mest og þjónustan er best. eftirÁrna Grétar Finnsson Stór þáttur í lífshamingju hvers og eins er að vera sáttur við sitt umhverfí og kunna við sig, þar sem maður á heima. Þar kemur að sjálf- sögðu margt til. Mestu virðist þó oftast ráða lífsafkoman og þeir möguleikar, sem byggðarlagið hef- ur upp á að bjóða. Þó bæir landsins séu auðvitað misvel settir gagnvart gæðum lands og sjávar, þá mótast velgengni þeirra tíðum af framtaki og forsjálni þeirra, sem þeim stjóma. Hafnarfjörður er gott dæmi um bæjarfélag, sem vaxið hefur og daftiað ört á undanfömum ámm. Sú var tíðin, að íbúatala Hafnar- fjarðar óx lítið og dróst jafnvel saman um hríð. Á þeim ámm réðu Alþýðuflokksmenn einir öllu í Hafn- arfirði og höfðu hreinan meirihluta í bæjarstjóm. Allt er þetta liðin tíð. Undanfarin kjörtímabil hafa Sjálf- stæðismenn verið forystuafl í bæj- armálum Hafnarfjarðar og myndað þar meirihluta í góðri samvinnu við fulltrúa Félags óháðra borgara. Á Arni Grétar Finnsson þessum ámm hefur bærinn gjör- breytt um svip til hins betra. Á þessum ámm hefur atvinnulíf- ið stóreflst og fjöldi nýrra fyrir- tækja hafíð starfsemi í bænum. Heilu byggðahverfin hafa risið af gmnni. Hitaveitu hefur verið veitt „Þessari góðu stöðu bæjarsjóðs hefur ekki verið náð með því að leggja hærri gjöld á bæjarbúa en önnur bæjarfélög gera. Þvert á móti eru þau gjöld, svo sem fasteignagjöld og útsvar, hvergi lægri í hliðstæðum bæjarfé- lögum en í Hafnar- firði.“ í bæinn, sem sparar hverri 5 manna fjölskyldu tugi þúsunda króna í hitunarkostnaði árlega. Nær allar götur bæjarins hafa verið lagðar slitlagi. Byggðir hafa verið skólar, dagheimili, leikskólar, íþróttamann- virki og leiguíbúðir fýrir aldraða. Miklar framkvæmdir hafa verið við höfnina og er hún nú hin önnur umsvifamesta á landinu. Þannig Nú eiga Kópa- vogsbúar tækifæri eftir Jósafat J. Líndal í þeim kosningum sem nú em framundan eiga Kópavogsbúar tækifæri til að kjósa einn flokk, Sjálfstæðisflokkinn, til ábyrgðar í bæjarstjóm Kópavogs. Eg hefi fylgst með bæjarmálum f Kópavogi frá upphafí, átti sæti í síðustu hreppsnefndinni og fyrstu bæjarstjóminni eftir að Kópavogur fékk kaupstaðarréttindi 1955. Hér var margt af vanefnum gert í upphafí og ennþá búum við við ófullgerðar götur í miklum hluta af eldri byggðinni. Kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins hér í Kópavogi hefur stöðugt farið vaxandi allan þennan tíma utan 1978 þegar flokkurinn tapaði fylgi víða um land. Hér á höfuðborgar- svæðinu hefur flokkurinn víðast haft hreinan meirihluta í bæjar- stjómum og kjósendur í þeim sveit- arfélögum hafa veitt honum meiri- hlutafylgi í hverjum kosningum á fætur öðmm. I Kópavogi hefur þessi þróun verið hægari en annars staðar á svæðinu. í upphafí náðu kommúnistar hér öllum völdum og Sjálfstæðisflokkurinn hefur því átt við ramman reip að draga. Fólk í Kópavogi er samt síður en svo neitt öðmvísi en annars staðar á höfuð- borgarsvæðinu, enda sýnir þróunin það. Kommúnistar eða Alþýðubanda- lagið, eins og þeir heita núna, hafa aðeins 2 bæjarfulltrúa af ellefu og er því smá flokkur eins og hinir vinstri flokkamir. Sjálfstæðisflokk- urinn vann sinn glæsilegasta kosn- ingasigur hér í Kópavogi 1982, fékk 5 bæjarfulltrúa kosna, náði 42,1% af lq'örfylginu með um 74% fylgis- aukningu. Hann er nú yfirgnæfandi stærsti flokkurinn. Öll rök hníga að þvf, að Sjálfstæðisflokkurinn geti nú unnið hreinan meirihluta. Það hefur sýnt sig að þar sem Sjálf- stæðisflokkurinn fer með völd í sveitarstjómum er styrk og góð stjóm. Þegar kjósendur þeirra sveit- arfélaga hafa kynnst þeim breyt- ingum og framfömm, sem þar hafa orðið, kjósa þeir Sjálfstæðisflokkinn aftur og aftur. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var { meirihlutasamstarfi hér á ámnum „ÖIl rök hníga að því, að Sjálfstæðisflokkur- inn geti nú unnið hrein- an meirihluta. Það hef- ur sýnt sig að þar sem Sjálf stæðisflokkurinn fer með völd í sveitar- stjórnum er styrk og góð s1jórn.“ 1970—78, kom í fyrsta skipti vem- legt framfaraskeið í Kópavogi. Ég skora á kjósendur í Kópavogi að nota þetta tækifæri sem nú er framundan til þess að efla Sjálf- stæðisflokkinn og kjósa sex bæjar- fulltrúa af D-listanum á laugardag- inn. mm Jósafat J. Lindal Höfundur er fyrrverandi spari- sjóðsstjórí í Sparísjóði Kópavogs og hefur veríð einn af forystu- mönnum sjálfstæðismanna íKópa- vogi um áratugaskeið. mætti lengi áfram telja þá upp- byggingu, sem átt hefur sér stað í Hafnarfirði á undanfömum ámm. Á sama tíma hefur verið haldið þannig á fjármálum bæjarfélagsins, að Hafnarfjörður er í dag eitt best stæða bæjarfélag landsins. Fram- kvæmdir á vegum bæjarsjóðs Hafn- arfjarðar hafa verið greiddar jafn- óðum og þær hafa verið unnar, svo bæjarsjóður er ekki með neinn skuldahala á eftir sér þeirra vegna. Sjálfur skuldar bæjarsjóður í heild um 86 milljónir króna og er tölu- verður hluti þeirrar upphæðar, vegna bæjarútgerðarinnar, sem nú hefur verið lögð niður. VeltuQár- munir bæjarsjóðs em hins vegar um 200 milljónir króna og heildar- tekjur hans í ár áætlaðar rúmar 600 milljónir króna eða um sjöfaldar heildarskuldir. Þessari góðu stöðu bæjarsjóðs hefur ekki verið náð með því að leggja hærri gjöld á bæjar- búa, en önnur bæjarfélög gera. Þvert á móti em þau gjöld, svo sem fasteignagjöld og útsvar, hvergi lægri í hliðstæðum bæjarfélögum eníHafnarfirði. í gróskumiklu bæjarfélagi, eins og Hafnarfírði, em að sjálfsögðu mörg verkefni, sem kalla á áfram- haldandi ffamkvæmdir. í þeim kosningum, sem framundan em, ræðst það, hvort áfram verði fylgt þeirri stefnu, sem núverandi meiri- hluti bæjarstjómar hefur mótað og skilað hefur þeim árangri, sem við blasir, jafnt á sviði framkvæmda sem íjármála eða hvort við tekur meirihluti margra og sundurleitra flokka með allri þeirri óvissu, sem því fylgir. Máltækið segir, að hver sé sinnar gæfu smiður, og Hafnfírðingar hafa sýnt það og sannað á undanfömum ámm, að þeir hafa haft dug og ffamtak til að byggja upp blómleg- an bæ með bjarta framtíð. Ég veit líka, að Hafnfirðingum þykir vænt um sinn fallega bæ og að þeir em ánægðir með þann mikla árangur, sem náðst hefur á undanfömum ámm. Ég er sannfærður um að þann árangur vilja menn varðveita og jafnframt vinna að því að Hafn- arfjörður haldi áfram að þróast á sömu braut undir forystu Sjálfstæð- isflokksins, sem lyft hefur Hafnar- fírði úr lægð fortíðarinnar inn í þá blómlegu nútíð og björtu framtíðar- sýn, sem við blasir í dag. Höfundur erforseti bæjarstjómar Hafnarfjarðar og skipar efsta sæti á framboðslista Sjálfstæðis- nokksinsþar. F,Vnto Sr*>tra m/gr 6O0P IláMuvéla markaðurlnn Smiðjuvegur 30 E-gata, Kópavogur Sími 77066 Opiö laugardag fró kl. 10—04 ÆfegylFÍymoliftímif Westwood
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.