Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986 u n 7 í {{ VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS > ny í/JAmFK'tiKi'i) ir Léleg þjónusta bensínsjálfsala Kæri Velvakandi Fimmtudaginn 8. maí, uppstign- ingardag, var ég á leið út úr bænum og sá að mig vantaði benzín. Þá hafði ég nýlega séð auglýsingu frá Skeljungi um benzínsjálfsala er tæki við öllum íslenskum seðlum, sjálfsalinn átti að vera við Suðurfell í Breiðholti. Það var mikið að gera er ég ók þar að, setti eitt þúsund krónur í sjálfsalann og sá töluna 1000 birtast á skerminum. Ég tók dæluna og benzínið steymdi inn á tankinn, en allt í einu stansaði dælan, ég hafði þá fengið afgreitt fyrir eitt hundrað krónur og meira kom ekki úr dælunni, hún hafði snuðað mig um 900 krónur. Daginn eftir, föstudag fór ég á sömu benzfnstöð og vildi fá aftur 900 krónumar. Þá var mér sagt að ekki væri búið að fara yfir strim- ilinn úr sjálfsalanum, en ég gæti komið aftur sama dag. Þegar ég var búinn að vinna, um 8 leytið um kvöldið, var mér sagt að maðurinn sem kynni að lesa af strimlinum væri farinn, ég gæti komið um hádegi næsta dag, laugardag. Ég fór þangað og sagði maðurinn að hann sæi ekkert á strimlinum og gæti þvi ekkert gert, en benti mér á að tala við þá á aðalskrifstofunni við Suðurlandsbraut. Þangað fór ég f.h. á mánudag og var bent á mann þar, hann sagðist ekkert geta gert fýrst ekkert sæist á strimlinum. Sjálfsalinn á greinilega að vita betur en kúnninn hvort eitthvað fer úrskeiðis eða ekki. Sjálfsalinn býður ekki einu sinni upp á nótu, þannig að viðskiptavinurinn getur ekkert sannað. Þetta kalla ég lélega þjón- ustu. Þökk fyrir birtinguna. Árai Ut um hvippinn og hvappinn Agæti Velvakandi. Mig langar til að koma á fram- færi innilegu þakklæti til Inger Önnu Aikman, stjórnanda þáttarins Út um hvippinn og hvappinn á rás 2. Þessir þættir eru nefnilega alveg frábærir. í þeim fjallar hún um allt milli himins og jarðar, en þó fyrst og fremst um það hvemig það er að vera manneskja. Ég er svo heil- luð af víðsýni hennar og umburðar- lyndi að ég er farin að láta taka þættina upp fyrir mig, ef ég get ekki hlustað. Það er neftiilega stað- reynd að það er sama hversu illa manni kannske líður, manni líður alltaf miklu betur eftir að hafa hlustað á þennan þátt. Það eina sem mætti breyta er útsendingartíminn. Ég er svolítið hrædd um að þáttur- inn fari fram hjá mörgum sem eru að vinna á þessum tíma. Er ekki hægt að færa hann yfír á fímmtu- dagskvöldin til dæmis. Og eitt enn, er ekki hægt að endurflytja eitthvað af hennar fyrri þáttum? Mér skilst nefnilega að hún hafí verið með þessa þætti í a.m.k. eitt ár, en mér var ekki bent á þessa þætti fyrr en fyrir svona 7 mánuðum. Þess vegna segi ég, látið þennan þátt ekki fara fram hjá ykkur. Og Inger, áfram með svona þætti sem fá mann til að hugsa. Ekki veitir af. Ein þakklát Sjálfstæðisflokk- urinn hefur yfir 60% fylgi Enn á ný er runnið upp nýtt kosningaár, og í þetta sinn til allra sveitarstjóma á íslandi á árinu Viðtöl, viðtöl og aftur viðtöl Eins og allir vita hefur orðið sannkölluð sprenging í útgáfumál- um hérlendis undanfarin misseri, á ég þar við öll tímaritin sem sprottið hafa upp með brauki og bramli. Framboð á lesefni er nú orðið gífur- legt, og bætast tímaritin þar við dagblöðin og hinar viðamiklu helg- arútgáfur þeirra. Markaðurinn er mettaður og vel það. Það gefur auga leið að með þessu harðnar slagurinn og bitist er um efni sem trekkir. En því miður eru allir famir að hjakka i sama farinu, sem em viðtöl, viðtöl og aftur viðtöl. Og af því að við emm ekki milljónaþjóð (þó við högum okkur iðulega sem slík) þá er alltaf verið að tala við sama fólkið meira og minna. Við- talið sem form er að verða útjaskað því það er fyrir löngu búið að þurr- pumpa allt það fólk sem eithvað hefur að segja (og þeir em fáir). í langflestum tilvikum er nánast ekkert á viðtali að græða. Það em rétt fleyttar kerlingar á yfírborðinu, aldrei spurt eða rætt um neitt sem Iesendur búa svo að og geta hug- leitt eftir á. Nú myndi margur rísa upp og segja að „þetta sé nú ekki algilt", nei, vissulega em til og hafa verið tekin eftirminnileg viðtöl, en þau em jafn sjaldgæf og logn- dagar í Reykjavfk. Obbinn af við- talaflóðinu er eins og lýst er hér að ofan: innantómt hjal um svo sem ekki neitt. Ef svona heldur áfram verður búið að taka viðtal við þjóð- ina alla fyrir aldamót. íslendingar hafa jafnan verið iðnari við að fjalla um persónur en málefni og á það ekki einungis við í pólitíkinni. Hér með er lýst eftir meiri frumleika hjá tímritum og blöðum, eða öllu heldur (og ekki síður) færri við- tölum. Minnkið dekrið við fræga fólkið og þá sem ekkert hafa fram að færa. Skrifíð um eitthvað sem máli skiptir. Ungur Reykvíkingur 1986. Já, árin líða fram hvert af öðm í sínum eilífa óumbreytanleik, og enginn stöðvar „tímans þunga nið“ segir skáldið frá Fagraskógi. Og hart verður barist næstu daga eða þar til kosningum lýkur. Hér í Reykjavík munu allir vinstri glund- roðaflokkamir reyna að gera hosur sínar grænar fyrir Reykvíkingum, en án árangurs. Öllum er í fersku minni vinstri meirihlutinn er réð hér ríkjum illu heilli frá 1978—1982. Samkvæmt skoðanakönnunum hef- ur Sjálfstæðisflokkurínn nú yfír 60% fylgi hér í Reykjavík og ná- grenni, og mun því vinna glæsileg- an kosningasigur 31. maí næstkom- andi. Þorkell Hjaltason HEILRÆÐI Vandið val bj örgnnarvesta Heilræði Góð björgunarvesti hafa þann kost að snúa sjálfkrafa þeim er þau nota í flotlegu með munn og nef yfir vatnsfletinum og vama því að menn fljóti á grúfu. Öll vesti ættu að vera með endurskins- borðum, flautu og ljósi. Hrói höttur og hár- greiðslu- meistarinn Kvikmyndir Arnaldur Indriðason í hefndarhug (Mission .. .Kill). Sýnd í Regnboganum. Stjörau- gjöf: ’/t Bandarísk. Framleiðandi, leik- stjóri og hlutaðeigandi í handriti: David Winters. Aðalhlutverk: Robert Ginty, Merete van Kamp og Cameron Mitchell. í hefndarhug (Mission .. .Kill) segir frá Cooper (Robert Ginty) nokkrum sem kallar sig Ian Kennedy en er kallaður Hrói höttur af öðrum. Hann er hár og myndar- legur Bandaríkjamaður með blá augu og hann er nógu bijálaður til að beijast við heilan her og nógu harður af sér til að vinna, eins og stendur á auglýsingaskiltinu. Þar stendur auðvitað ekki að þessi lé- lega B-mynd er nógu vitlaus til að sofna á nema maður sé þeim mun harðari af sér. Cooper þessi er einn góðan veður- dag í einhveiju skálduðu S-Amer- íkuríki sem hlotið hefur heitið Santa María. Einhverskonar uppreisn stendur yfír í landinu a.m.k. er þjóð- höfðinginn voðalega grimmilegur, feitur og sveittur kall, sem öllum er illa við, og upp til sveita býr skæruliðaflokkur er gæti vel verið 59 Cooper (i miðið) með skæruliðun- umgóðu. partur af skæruliðahópi Woodys Allen í Bananas. Cooper veit ekki fyrr en hann er farinn að beijast með uppreisnarmönnum og gengur voðalega vel eins og við mátti bú- ast. Hann fellur vel í hópinn sem virðist undir miklum áhrifum frá gömlum amerískum vestrum. „Þeir kenndu mér að beijast," segir einn skæruliðinn heldur en ekki hróðug- ur. Jæja, Hrói höttur, en það er Cooper kallaður af því hann er svo góður maður, hjálpar skæruliðunum að vinna hvem stórsigurinn á fætur öðrum þar til kemur að lokabar- dagnum að allt fer út um þúfur. En það er í lagi því mjmdin er löngu farin út um þúfur, hún er sundur- laus og óspennandi og illa leikin og því fyrr sem maður gleymir henni, því betra. Sá eini sem á eitthvað hrós skilið er hárgreiðslu- meistari Roberts Ginty. Mikilfeng- legt handbragð hans fær að njóta sín í hveijum ramma og honum tekst að láta hið mikla og fallega hár leikarans halda sinni fullkomnu lögun á hveiju sem gengur svo leita þarf allt aftur til Simons Templar til samanburðar. Frá félagsstarf i aldraðra I Gerðubergi Morgunbiaðið/Júiius Sýning á handavinnu og f öndri í Gerðubergi í Gerðubergi í Breiðholti verð- ur haldin sýning á handavinnu og föndri úr félagsstarfi aldr- aðra sunnudaginn I. júní á milli kl. 13.30 og 18. Á sýningunni verður einnig sölu- hom þar sem handavinna er seld og að auki kaffíveitingar. Vakin er athygli á að strætisvagnaleiðir nr. 12 og 13 stansa fyrir framan húsið. Fréttatilkynning Kennarasamband tslands: Krossapróf fyrir frambjóðendur Kennarasamband íslands hef- ur sent frambjóðendum um land allt þríblöðung, sem er krossa- próf, í sambandi við væntanlegar sveitarstjóraarkosningar. Þar gefst þeim kostur á að kanna þekkingu sína varðandi skólahald. Einnig era þeir hvattir til að kynna sér sem flest atriði skólamála í sínu heimahéraði. Kennarasambandið væntir þess að bæklingurinn stuðli að málefna- legri umræðu og úrbótum í þessum eftium. (Úr fréttatílkynningu) Utankiörstaða- skrifstofa S)ÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð. Símar 688322, 688953 og 688954. Upplýsingar um kjörskrá o.fl. Utankjörstaðakosning fer fram í Ármúlaskóla alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22 nema sunnu- dagakl. 14-18. Sjálfstæðisfólk. Vinsamlegast látið skrifstofuna vita um alla kjósendur sem verða ekki heima á kjördegi 31. maí nk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.