Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986 Leynilegar kosningar? eftir Hallgrím Sveinsson Áður fyrr tíðkaðist það að kosið var í heyranda hljóði sem kallað var. Það þótti ekki gott og voru leynilegar kosningar teknar upp árið 1908 og hefur svo verið síðan í Alþingis- og sveitarstjómarkosn- ingum, enda eitt af grundvallarat- riðum í stjómarskrá okkar. Þrátt fyrir það er þama svolítill galli á gjöf Njarðar. í fámennustu sveitarfélögum þessa lands fer yfírleitt fram svo- kölluð óhlutbundin kosning til sveit- arstjómar. íbúar em þá allir í kjöri sem á kjörskrá standa. Samkvæmt nýsamþykktum sveitarstjómarlög- um fer kosning fram með þeim hætti að kjósandi ritar nafn og heimili þeirra sem hann vill kjósa í sveitarstjóm eða sýslunefnd á kjörseðil. Áð kosningu lokinni fer fram talning atkvæða. Formaður kjörstjómar á hveijum stað les upp nöfn þeirra sem kosnir hafa verið og sýnir öðmm kjörstjómarmönn- um seðlana og gæta þeir þess að allt sé rétt sem formaður kjörstjóm- ar les upp. Kjörseðlana skoðar svo hver kjörstjómarmaður í krók og kring, allt eftir sínum hentugieik- um. í kjörstjómum í þessum áður- nefndu fámennu sveitarfélögum situr að sjálfsögðu valinkunnugt sæmdarfólk, með hreppstjórann í fararbroddi. Þrátt fyrir það er satt að segja óskiljanlegt hvers vegna verið er að leggja á þetta ágæta fólk þá byrði að geta grandskoðað meira og minna hvemig samborgar- ar þess kjósa. í fámennum sveitar- félögum er nokkum veginn vitað hvemig skrift manna lítur út. Hreppstjóri getur t.d. í flestum til- fellum sagt til um hver á hvaða skrift og mun svo vera um fleiri. Hvaða áhrif þetta kann svo að hafa á móral í litlu sveitarfélagi geta menn svo ímyndað sér. Þjóð veit þá þrír vita segir máltækið. En sem betur fer sýnist ákaflega auðvelt að breyta þessu með nútíma tækni ef menn vilja. Ekki þarf annað en að kjörseðillinn sé útbúinn með þeim hætti að á honum standi nöfn allra þeirra sem em á kjörskrá viðkomandi hrepps. Síðan krossar kjósandi eða setur tölu við nöfn þeirra aðila sem hann kýs í stað þess að skrifa þau. Svona einfalt virðist þetta í augum leikmanns. Sagt er að kjörseðillinn í Hafnar- fírði í komandi kosningum sé að minnsta kosti um hálfur metri að lengd. í þeim sveitarfélögum sem hér hafa verið gerð að umræðuefni þyrfti seðillinn ekki að vera nema svosem 20 til 30 sentimetrar ef sú aðferð væri notuð sem hér hefur Hallgrímur Sveinsson „Þrátt fyrir það er satt að segja óskiljanlegt hvers vegna verið er að leggja á þetta ágæta fólk þá byrði að geta grandskoðað meira og minna hvernig sam- borgarar þess kjósa. \ fámennum sveitarfé- lögum er nokkurn veg- inn vitað hvernig skrift manna lítur út.“ verið lýst. Og það sem meira er. Það fyrirkomulag myndi koma í veg fyrir hluta af þeim leiðindum sem oft skapast í kringum kosningar á landi hér. Hvar eru nú þín haukfránu augu, Eyjólfur Konráð? Höfundur er bóndiá Hrafnseyri og skólastjóri grunnskólans á Þingeyri. Stjórn Slysavamadeildarinnar Ingólfs við nýkeyptan torfærubíl af MAN-gerð sem sameinar marga kosti. Hann er mjúkur og liðlegur fólksbíll sem getur borið 20-25 manns ásamt öllum búnaði sem þeim fylgir og jafnframt dregið vagn með tveimur stórum snjóbílum. Tæki þetta er hið fyrsta hér á landi sem notað er við björgunar- og leitarstörf. Stjórnarmennimir era talið frá hægri: Örlygur Hálfdanarson, formaður, Guðni Sigþórsson, gjaldkeri, Skúli Ólafsson, meðstjóm- andi, Kristján Jón Hafsteinsson i stjóra björgunarsveitarinnar, Sigurður Guðmarsson, meðstjórnandi, Gunnar Karl Guðjónsson, rit- ari, Stefán Bragi Bjaraason í stjóra björgunarsveitar, Jón A. Jónsson, meðstjóraandi, Gunnar Magnússon, meðstjóraandi, Brynjólfur Þór Brynjólfsson, varaformaður, og Böðvar Ásgeirsson, formaður björgunarsveitarinnar. Slysavarnadeildin Ingólfur: Sínntí 31 útkalli á síðasta ári Á AÐALFUNDI Slysavarna- deildar Ingólfs í Reykjavík, sem nýlega var haldinn, kom fram að umsvif deildarinnar hafi aukist ár frá ári og var björgun- arsveitin kölluð út þijátíu og einu sinni á árinu. í frétt frá fundinum, sem haldinn var um borð í varðskipinu Þór og Slysavamafélagið eignaðist á síð- asta ári, kemur fram að félagar í Slysavamadeild Ingólfs eru ríflega eitt þúsund. Björgunarsveitina skipa 75 félagar auk 15 nýliða og 20 varamanna. Áhersla er lögð á þjálfun mannanna og að þeir hafí yfir sem bestum búnaði að ráða. Á síðasta ári fóru tveir björgunar- sveitarmenn á vegum Almanna- vama ríkisins til Danmerkur til þjálfunar í ruðningsstörfum úr föllnum húsum og einn fór til Bandaríkjanna til þjálfunar í köfun. Allt starf í Ingólfi er sjálfboða- liðastarf og hefur deildin Qármagn- að starf sitt, rekstur og viðhald björgunartækjanna með sölu merkja, happdrættismiða og flug- elda. Á síðasta ári færði Kvenna- deild SVFI í Reykjavík, slysavama- deildinni að gjöf torfærujeppa og Reykjavíkurborg styrkti starfsem- ina með 70.000 kr. ffamlagi á ár- inu. Þá hafa fjölmörg fyrirtæki í borginni sýnt slysavamastarfinu velvild og skilning. Aukin umsvif björgunarsveitar- innar á síðustu árum hafa þrengt að starfsemi hennar og leitar nú stjóm Ingólfs og Slysavamafélags- ins leiða til úrbóta og hafa meðal annars sótt til borgarinnar og hafnaryfirvalda um úrlausn. I stjóm Björgunarsveitar Ingólfs eiga sæti Böðvar Ásgeirsson for- maður, Kristján Jón Hafsteinsson, Stefán Bragi Bjamason, Ásgeir Böðvarsson og Kristján Magnús- Á aðalfundinum baðst Engelhart S. Bjömsson, sem verið hefur for- maður björgunarsveitarinnar und- anfarin ár en hefur nú tekið við stjóm á umdæmi nr. 1 hjá SVFÍ, undan endurkjöri. Þá baðst Böðvar Vemharðsson, sem hefur verið gjaldkeri deildarinnar undanfarin flögur ár, einnig undan endurkjöri. Voru þeim Engelhart og Böðvari færðar sérstakar þakkir fyrir störf sín. f stjóm Slysavamadeildrar Ingólfs fyrir starfsárið 1986 til 1987 voru kjömir Örlygur Hálf- danarson, formaður, Birgir Þór Brynjólfsson, varaformaður, Guðni Sigþórsson, gjaldkeri, Gunnar Karl Guðjónsson, ritari, Skúli Ólafsson, Sigurður Guðmarsson, Páll Frans- son, Jón A. Jónsson og Gunnar Magnússon. Fulltrúi deildarinnar í minningarsjóð Tómasar Hjaltason- ar var kjörinn Stefán Bragi Bjama- Skólameistarar MK og MS: „Vinna nemenda með námi hlýtur að vera til baga“ — kannanir skólanna leiddu í ljós að rúm- lega helmingur nemenda vinnur með námi KANNANIR voru gerðar ínnan tveggja menntaskóla í vetur, Mennta- skólans við Sund og Menntaskólans i Kópavogi, um hversu margir nemendur skólanna stunduðu hlutastörf með námi. Niðurstöður sýndu að allt upp í 70% nemenda unnu með námi. Hæst var hlutfallið í fjórða bekk. Blaðamaður Morgunblaðsins snéri sér til Ara Trausta Guðmunds- sonar aðstoðarskólameistara í MS og Ingólfs Þorkelssonar, skólameist- ara i MK. „Það er vel rúmur meirihluti nemenda sem vinnur með námi — misjafnt hversu mikið — en við höfum ekki treyst okkur til að setja jafnaðarmerki milli lélegs námsár- angurs og mikils vinnuálags," sagði Ari Trausti. „Það er auðvitað misjaftit hversu margar klukku- stundir á viku nemendur vinna — allt frá 2—3 stundum upp í yfir 40 stundir, en ég giska á að meðaltalið sé á bilinu 10—15 stundir á viku. Aðalatriðið er að skólatíminn er 35—36 kennslustundir á viku sem er það mikið starf að ætli nemendur sér í frekara nám, þá á ekki að vera hægt að vinna úti með náminu. En ef unglingamir vinna samt sem áður, þá hlýtur það á einhvem hátt að koma niður á náminu." Ari Trausti sagði að það lægju margar ástæður að baki vinnuviljan- um. Þessi aldurshópur vildi nú í meiri mæli hafa peninga milli hand- anna í ýmislegt svo sem fatnað, skemmtanir, íþróttir og annað slíkt. „Þetta er e.t.v. ekki spuming um að lifa flott heldur vilja krakkamir vera sjálfstæðir og eignast hluti upp á eigin spýtur sem kosta mikla peninga. Síðan em þeir nemendur til sem vinna með námi af hreinni fátækt — foreldrar hafa beinlínis ekki efni á að sjá fyrir þeim í skóla svo þau eru tilneydd til að mennta sig algjörlega sjálf. Það hafa verið gerðar nokkrar úrtakskannanir í skólunum við og við á undanfömum ámm viðvíkjandi vinnu nemenda og miðað við þessa heildarkönnun, sem nú var gerð, hefur þetta frekar aukist heldur en hitt og bendir ekkert til þess að það snúist við á næstunni. Við höfum af þessu miklar áhyggjur en getum lítið að gert þar sem okkur er ekki uppálagt að skipta okkur af einkahögum nemenda," sagði Ari Trausti. „Ég vil fullyrða að hlutfall þeirra nemenda sem vinna með námi er svipað í öllu framhaldsskólakerfinu," sagði Ingólfur Þorkelsson. „Og ég er alveg sannfærður um að samræmi er milli lélegs námsárangurs og vinnu með námi — við höfum dæmi um það. Einn nemandinn sagði $ samtali við Morgunblaðið 23. mars sl. eftir könnunina að það væri mál hvers og eins hvort hann ynni eða ekki og að skólastarfið væri ekki fullt starf. Það kom í ljós að fleiri nemendur voru sammála þessu þegar ég ræddi þetta alvarlega mál við þá eftir könnunina. Auðvitað hefur nemandi frelsi til þess að skríða eða falla á prófum en það er mitt hlutverk sem skólameistari að hvetja nemendur til þess að ganga uppréttir og viðvíkjandi þeirri full- yrðingu um hvort skólastarfíð sé fullt starf, þarf að líta á forsendum- ar sem nemendur gefa sér. Ef byggt er á þeirri forsendu að nægilegt sé að kasta höndum til verksins, þá getur fullyrðingin reynst rétt. Hins- vegar ef nemandinn hefur heilbrigð- an metnað þá er fullyrðingin fírra. Það er tvímælalaust fullt starf að vera í menntaskóla ef menn sinna starfínu vel.“ Ingólfur sagði að auðvitað væru til þeir nemendur sem þyrftu á at- vinnu að halda með námi og eins þyrftu sumir að borga heim, en þó væru þeir fáir. „Þeir eru undantekn- ingin sem sannar þá reglu að megin- hluti nemenda fær fæði og húsnæði endurgjaldslaust heima — þess vegna á þeim að duga sumarkaupið fyrir bókum, nauðsynlegum fatnaði og skemmtunum. Hinsvegar ef nemendur freistast til þess að kaupa nýjustu glæsigræjumar sem aug- lýstar eru í sjónvarpinu og tísku- klæðnaðinn, þá auðvitað dugir sum- arkaupið ekki svo ég tali nú ekki um alla þá nemendur sem leggja metnað sinn í að kaupa bifreiðir. Þá eru nemendur komnir á kaf í lífs- gæðakapphlaupið. Þó að veraldleg velferð sé ágæt út af fyrir sig, tel ég að andleg verðmæti séu ofar og hefur nám svo sannarlega varan- legra gildi en auglýsingaskrumið. Ég ætla að ræða þetta við nem- endur þegar ég slít skólanum. Ég ætla að taka þetta mál upp aftur í haust í sérstakri umræðu við for- eldra og mér fínnst að skólastjóram- ir sumir séu allt of linir í afstöðu sinni við þennan tíðaranda. Við getum auðvitað ekki bannað nem- endum að vinna, en það er hægt að ræða við nemendur, hvetja þá til þess að hætta þessu og hægt er að haga starfi innan skólanna þannig að það verði hreinlega erfitt fyrir nemendur að ætla að vinna mikið með náminu," sagði Ingólfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.