Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986 Troðfullt hús á sameiginlegnm framboðsfundi á Akranesi: Helsta deilumálið hverjum þakka beri nýgerðan samning við ríkið KJÓSENDUR á Akranesi troðfylltu hús Bíóhallarinnar á Akranesi sl. miðvikudagskvöld og hlustuðu þar á framsöguraeður tuttugu og þriggja frambjóðenda af þeim fimm framboðsiistum, sem eru í kjöri við sveitarstjómarkosningarnar á morgun, laugardag. Þá svöruðu frambjóðendur fyrirspumum fundar- manna. Að sögn kunnugra vora fundargestir á fimmta hundrað en fundurinn var með rólegu yfir- bragði: „Það vantar lífið og baráttuna í þetta, eins og það var i gamla daga. Þetta var bara sýning á fólki, engin barátta," sagði einn af eldri frambjóðendunum við blaðamann Morgunblaðsins í fundarlok og mátti heyra að margir vom honum sammála, enda ekki að heyra að nein stór ágreiningsmál vœra uppi. Allir voru sammála nm að gera góðan bæ betri og helsta deilumálið á fundinum virtist vera, hveijum bæri að eigna góða hluti gerða á þvi kjörtímabili sem er að ljúka. Á Akranesi búa 5.384 manns (1. des. sl.) en á kjörskrá eru 3.596. Útgerð og fiskvinnsla hefur verið einn undirstöðuatvinnuvegur stað- arins, þá hafa byggst upp öflug atvinnu- og iðnfyrirtæki og má þar helst nefna Sementsverksmiðjuna og Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts. Á Akranesi eru fimm listar í kjöri, eins og að framan segir A-listi Alþýðuflokks, B-listi Fram- sóknarflokks, D-listi Sjálfstæðis- flokks, G-listi Alþýðubandalags og M-listi Flokks mannsins. í bæjar- stjóm sitja nú ijórir fulltrúar Sjálf- stæðisflokks, þrír frá Framsóknar- flokki og einn frá hvomm, Alþýðu- fiokki og Alþýðubandalagi. Meiri- hluta mynduðu í upphafi kjörtíma- bilsins Sjálfstæðisflokkur, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag, en Alþýðubandalagið yfirgaf sam- starfsflokka sína á kjörtímabilinu. Niðurstöður skoðanakannana á Akranesi gefa til kynna að miklar breytingar geti orðið á skiptingu bæjarfulltrúa. Skagablaðið, útgefíð sl. miðvikudag, segir í forsíðufrétt að samantekt sjö vinnustaðakann- ana, sem tæplega 500 manns tóku þátt í, gæfi til kynna að Alþýðu- flokkurinn komi til með að fjölga bæjarfulltrúum úr einum í þrjá. Þessa tvo menn muni þeir taka af Sjálfstæðisflokki og FVamsóknar- fiokki. Þá telja aðrir, að Alþýðu- bandalagið nái öðram þessara tveggja manna. Menn reikna því með að úrslit geti orðið tvísýn. Fundarstjórar á fundinum á miðvikudagskvöld vora þau Gísli Gíslason og Bára Jósefsdóttir. Fyrst fengu listamir 15 mínútur hver til framsöguræðna og var dregið um röð listanna. A-listi Alþýðuflokks A-listi Alþýðuflokks tefldi fram þremur ræðumönnum: Gísla Ein- arssyni, Sigriði Óladóttur og Kjartani Guðmundssyni. Gísli ræddi launa- og húsnæðismál, ennfremur atvinnumál. Hann kvað aðkallandi að veija höfnina hröm- un, eins og hann kallaði það. Þá þyrfti að stækka hana og gera að útflutningshöfn fyrir Vesturland. Af brýnum málum á komandi lgör- tímabili neftidi hann m.a. að leysa þyrfti sorpeyðingarvandamál og að almenningsvagn þyrfti að vera í gangi allt árið. Sigríður sagði í upphafi sinnar ræðu, að það hefði verið Alþýðuflokkurinn sem barist hefi mest fyrir lækkun kosningaald- urs. Hún ræddi síðan Qölskyldumál og tillögur Alþýðuflokks um kaup- leiguíbúðir, ennfremur ýmis félags- mál. Þá sagðist hún stolt af nýgerð- um samningi ríkisins og Akraness- bæjar um uppbyggingu skólahús- naeðis fyrir grannskóla á staðnum, en um það mál má með sanni segja, að allir vildu Lilju kveðið hafa, því einn eða fleiri ræðumanna allra flokkanna sem menn eiga í bæjar- stjóm ræddu þennan samning og vildu eigna hann, a.m.k. að hluta, sínu fólki. Kjartan notaði í upphafí ræðu sinnar útilokunaraðferðina til að sýna fram á að launafólk ætti að kjósa A-listann. Fann hann öðram flokkum flest til foráttu en eyddi ekki orðum á M-listann, sagði að ekki þyrfti að fjölyrða um hann. Hann kvað Alþýðuflokkinn mundi beita sér sérstaklega í atvinnumál- um og málefnum aldraðra og sagð- ist í lokin eiga sér draum, þ.e. drauminn um að gera Akranes að betri bæ. M-listi Flokks mannsins M-listinn, Flokkur mannsins, var næstur og ræðumenn fimm, þau Guðrún Aðalsteinsdóttír, Hreinn Gunnarsson, Erlingur Smári Rafnsson, Þóra Gunnarsdóttir og Gauti Halldórsson. Guðrún sagði framboð M-listans ekkert grín, eða blöðra sem myndi springa. Þau myndu þó ekki lofa neinu en teldu að hækka ætti laun bæjar- starfsmanna upp í 30 þúsund krón- ur að lágmarki. Hreinn ávarpaði fundargesti og „þokkalega fjór- flokksframbjóðendur“. Hann bað fólk að láta ekki blekkjast af þeim frambjóðendum sem hann teldi ekki ætla að bæta hag fólksins. Hann sagði þá m.a. hafa blekkt gamla fólkið, þegar byggð hefðu verið raðhús fyrir aldraða við Höfða. Húsin hefðu kostað heilar 2,5 millj- ónir króna og að gamla fólkið hefði verið blekkt til að selja eigur sínar fyrir lítið. Erlingur Smári sagðist hafa gengið í Flokk mannsins af því að hann hefði gefíst upp á íjór- flokkunum. Hann væri verkamaður sem ynni 10—12 tíma á dag, jafnvel um helgar, en launin nægðu engan veginn til að framfleyta Qölskyldu. Hann sagði Flokk mannsins hafa það helst til að bera að vera lausan við alla hagsmunaspotta, eins og hann orðaði það. Þóra sagðist vera 26 ára, þriggja bama heimavinn- andi móðir og þyrfti að lifa af 17.700 kr. dagvmnutekjum einnar fyrirvinnu á mánuði. Hún spurði af hveiju húsmæður fengju ekki laun fyrir að vera heima, til dæmis samsvarandi því sem það kostaði að hafa bam á dagvistarheimili. Gauti sagði m.a. að peningum bæjarfélagsins væri ekki rétt varið, þeir fykju til dæmis í „malbikskless- ur aðeins til að halda bflunum hrein- um“. Þá sagði hann fjölskyldur í dag tvístraðar og að foreldrar hefðu ekki tíma til að sjá um bömin, því væri ekkert undarlegt að bömin leiddust út á villigötur. B-listí Framsóknar- flokks Frá Framsóknarflokki héldu raeður í þessari umferðþau Magnús Ólafsson, Andrés Olafsson og Steinunn Sigurðardóttir. Magnús gerði Iistamál að umræðuefni og sagðist vilja gera Bíóhöllina að miðstöð menningar og lista. Þá ræddi hann samgöngumál og einnig kvað hann biýnt að fá betra út- varpsefni á rás 2. Hann ræddi nokkuð frambjóðendur listanna, sagði m.a. að helmingur skólastjóra bæjarins væru í framboði. Þá sagði hann framsóknarmenn ætíð hafa gert sér grein fyrir að á bak við hvem karlmann í valdastöðu væri kona, sem í raun réði ákvörðunum hans. Framsókn hefði nú ákveðið að hætta þessari milliliðastarfsemi, því væra konur Qölmennar á listan- um og tvær í efstu sætum. Andrés ræddi m.a. framkvæmdir bæjarfé- lagsins og deildi hart á verklegar framkvæmdir unnar á vegum Hagvirkis á sl. ári. Sagði hann m.a. einstætt að upp úr varanlegri gat- nagerð yxu blóm strax á fyrsta ári. Hann spurði ennfremur hvort það væri ekki stefna flokkanna að efla heimafyrirtæki og kaupa þjónustu af þeim og upplýsti að fyrra kosn- ingablað A-listans hefðu verið prentað í Reykjavík. Þá sagði hann það öllu verra með Alþýðubanda- lagið, sem hefði látið prenta bæði kosningablöð sín í Reykjavík. Sjálf- stæðismenn berðust síðan fyrir því að fá Reykvíking til að skipuleggja hafnarsvæðið. Af baráttumálum framsóknar á komandi kjörtímabili nefndi hann að aukin yrðu tengsl bæjarfulltrúa og bæjarbúa og að lokið yrði byggingu sundlaugar. „Vinnum öll að betri bæ“ vora lokaorð hans. Steinunn Ias upp úr samkomulagi meirihlutaflokkanna frá árinu 1982, stefnumál sem hún sagði að ekki hefði verið staðið við. Þá ræddi hún fjármál bæjarfélags- ins og sagði íhugunareftii hversu lántökur hefðu aukist, lántökur milli áranna 1985 og 1986 myndu aukast um 72%, eða úr 16,9 millj. í 29,1 millj. Hún sagðist sinna öllum málaflokkum, ekki aðeins svoköll- uðum mjúkum málum, eins og oft væri sagt um konur. I lokin sagði hún að framsókn myndi auka tengsl við bæjarbúa. G-listi Alþýðu- bandalags Af G-lista Alþýðubandalagsins fluttu framsögur þau Guðbjartur Hannesson, Ragnheiður Þor- grímsdóttir og Gunnlaugur Har- aldsson. Guðbjartur sagði m.a. að hann hefði hlustað á raddir fólksins í þessari kosningabaráttu. Efst á lista hjá þeim væra kjaramál, hús- næðismál og atvinnumál. Varðandi kjaramál sagðist hann fullviss að hækkun lægstu launa þyldi enga bið. „Við verðum að reyna að sníða helstu vankantana af kjarasamn- ingunum með því að hækka lág- markslaun veralega og mér er jafn- framt ljóst að 30 þús. kr. lág- markslaun geta aldrei orðið endan- leg Iausn.“ Þá sagði hann að sér væri ljóst að launþegahreyfingin hefði ekki treyst sér til að ganga lengra í síðustu kjarasamningum gegn sterkum atvinnurekendum, studdum af ríkisvaldinu. Þá kvatti hann til að bæjarfélagið stæði sjálf- stætt að gerð kjarasamninga, með því gæti það stutt launþegahreyf- inguna. Ragnheiður vildi enn- fremur að bæjarstjómin mótaði stefnu með því að semja við bæjar- starfsmenn sína um hækkun launa. Hún sagði skuldastöðu bæjarins hættulega. í lok ræðu sinnar ítrek- aði hún, að það væri mikill misskiln- ingur hjá fólki sem teldi framboðs- listana alla eins og stefnuskrár þeirra. Gunnlaugur ræddi hús- næðismál, sérstaklega íbúðir fyrir aldraða á Höfða og dvalarheimilið þar. Hann sagði 60 manns á biðlista eftir dvöl þar og deildi á meirihlut- ann fyrir að hafa fellt tillögu þeirra um stækkun Höfða. Hann sagði afstöðuna til þeirra, sem byggt hefðu bæinn og lagt granninn að því sem fólk byggi nú við, hreint sleifarlag, sem Alþýðubandalagið hefði á stefnuskrá sinni að bæta úr. D-listi Sjálfstæðis- flokks D-listi Sjálfstæðisflokks var síð- astur í röðinni. Ræðumenn hans vora Þórður Björgvinsson, Jón- ína Ingólfsdóttir, Rúnar Péturs- son og Viktor Guðlaugsson. Þórð- ur sagði brýnt að endurskoða rekstrarþætti bæjarfélagsins. Þá sagði hann það ánægjulegt að sjá ýmsa áhugamannahópa eflast, svo sem foreldrafélög, og að brýnt væri fyrir bæjarfélagið að efla slíka hópa með sameiginlega hagsmuni fyrir augum, þ.e. að nýta framtak þeirra til góðs. Hann gerði æskulýðsmál sérstaklega að umræðuefni og sagði að starfsemi bæjarins í Amardal hefði gefið mjög góða raun. Starf- semin þar yrði aukin og endurbætt. Jónína sagði blómlegan Akranes- kaupstað ávöxt þróttmikils starfs. Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði sér að skila betri bæ með áframhaldandi uppbyggingu, t.d. í öldranar-, æskulýðs- og dagvistarmálum. Hún ræddi ýmis félagsmál og sagði í lokin takmark sjálfstæðismanna að halda sínum íjórða manni. Flokkur- inn væri svo heppinn að fá í það sæti Þórð Björgvinsson formann æskulýðsnefndar, sem væri ungur maður og efnilegur. Hún hvatti kjósendur til að koma honum í bæjarstjóm og gera með því Akra- nes að enn betri bæ. Rúnar lagði áherslu á atvinnumál og sagði sinn flokk leggja áherslu á ný atvinnu- tækifæri. Hann ræddi hugmynd að samstarfshópi fulltrúa atvinnulífs- ins í bænum, tæknimenntaðs fólks og áhugafólks um atvinnurekstur. Tengsl við bæjarstjóm gætu verið í gegnum atvinnumálanefnd. Þá lýsti hann áhuga á skipulagðri ferðamannaþjónustu. Þá vildi flokk- urinn athuga ítarlega hvort ekki mætti skapa verðmæti með því að nýta heitt vatn sem nú rynni ónýtt til sjávar rétt hjá bænum, „ekki veitir Hitaveitunni af,“ sagði hann. Viktor sagði að fjármálastjóm bæjarins væri góð. Þá ræddi hann nokkuð um yfirlýsingar annarra frambjóðenda og gerði að umræðu- efni mismunum stjómarhátta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.