Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986 25 Dagvist — skóla- mál í Mosfellssveit eftirÞórdísi Sigurðardóttur og Helgu A. Richter Nú fara í hönd sveitarstjómar- kosningar í Mosfellshreppi eins og í mörgum öðrum byggðarlögum. Þann 31. maí nk. verður kosið um það hvort hér verður áfram styrk stjóm sjálfstæðismeirihluta eða sambland annarra flokka. Við greinarhöfundar sem skipum 2. og 4. sæti D-listans í komandi kosningum höfum ákveðið að beita okkur fyrir öllum málaflokkum, en viljum hér fjalla sérstaklega um þá tvo málaflokka sem okkur fínnst þörf á að ræða. Davistarmál: Leikskóli — dagheimili Á síðasta kjörtímabili var tekið í notkun nýtt bamaheimili sem hlaut nafnið Hlíð. Einnig er starf- ræktur leikskóli í hlýlegu eldra hús- næði að Hlaðhömrum. Þrátt fyrir „Við í Mosfellssveit höfum átt þvi láni að fagna að hafa samfelld- an skóladag. Þessu vilj- um við halda áfram.“ það þarf að undirbúa byggingu nýs bamaheimilis. Mosfellshreppur veitir í dag 138 bömum leikskólavist og 32 bömum dagheimilisvist. Á biðlista fyrir leik- skóla em 66 böm og 32 böm fyrir dagheimili. I dag er algengt að báðir foreldr- ar stundi vinnu utan heimilis og einnig færist það í vöxt að annað foreldranna annist uppeldi bam- anna. Með breyttum þjóðfélags- háttum verður þörfin biýnni fyrir bamaheimilisdvöl. Á nýskipulögðu byggingasvæði á Reykjahvolsmelum er fyrirhuguð bygging bamaheimilis. Nýlega birt- ust í Morgunblaðinu niðurstöður könnunar um biðlista á leikskóla og dagheimili. Forsendur fyrir þeim útreikningi sem þar var á ferðinni vom rangar. Við stöndum síður en svo verr en önnur sveitarfélög í þessum málum. Skólamál Við í Mosfellssveit höfum átt því láni að fagna að hafa samfelldan skóladag. Þessu viljum við halda áfram. Grunnskóli Skólamir okkar em vel búnir og skemmtilegir vinnustaðir nemenda og kennara. Verið er að byggja upp bókasöfn í báðum skólunum og á síðasta kjörtímabili var komið upp skólaeldhúsi. Grenndarskóli Með vaxandi byggð eykst þörfín á húsnæði fyrir gmnnskólann. Athuga þarf gaumgæfílega hvort betra sé að auka við húsrýmið á skólasvæðinu eða að byggja grenndarskóla. Á skólasvæðinu em Þórdis Sigurðardóttir sundlaug og íþróttahús og það þyrfti að aka bömunum úr grennd- arskóla 2—3svar í viku niður á skólasvæðið. Okkur fínnst skyn- samara að auka við húsrýmið á skólasvæðinu, enda sýna nýjustu fæðingartölur að um töluverða fækkun bamsfæðinga er að ræða. Skóladagheimili Stofnun skóladagheimilis hefur hlaupið mjög fyrir bijóstið á vinstri flokkunum hér í sveitinni. Láta þeir eins og að D-listinn hyggist ekkert gera í þessum málum. Hið rétta er að D-listinn vill koma á fót skóla- dagheimili og/eða athvarfi fyrir Helga A. Richter yngstu nemenduma þegar sýnt er að þörf er fyrir hendi. D-listinn vill einnig stuðla að bættum samskiptum heimila og skóla og koma til móts við útivinn- andi foreldra yngstu bamanna. Vaxtarbroddur þjóðarinnar er í bömunum okkar. Við á D-listanum viljum gera vel við bömin og veita þeim gott atlæti í uppvextinum. Mosfellingar em sama sinnis og því hafa þeir valið og velja sjálf- stæðismenn til forystu. Höfundar eru á framboðslista D-Iistans í MosfeUssveit. Fimmta herdeildin eftir Erling Friðriksson Hvað er eiginlega að gerast á Mogganum? Þetta er spuming sem ég hef spurt mig nánast á hveijum morgni að undanfömu. Ég verð að viðurkenna, að ég undrast stómm hvemig Mogginn tekur hveija skoð- anakönnunina á fætur annarri, og slær því upp með stríðsletri hvað Sjálfstæðisflokkurinn er viss með að halda meirihlutanum í Reykja- vík. Fyrir mér lítur þetta nánast út einsogblaðiðsegi: — Þið, ágæta sjálfstæðisfólk og aðrir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins til borgarstjómar, flokk- urinn er svo viss með að halda meirihlutanum að þic^ getið bara setið róleg heima. Það verða svo margir aðrir til að kjósa Davíð & Co. að ykkar atkvæði skiptir engu máli. Sama á við um ykkur, sem alla jafna tilheyrið öðmm flokkum, en viljið styrka borgarstjóm, ykkar atkvæði höfum við ekkert við að gera. Þetta er ég hræddur um að sé vægast sagt stórhættuleg stefna, nema meiningin sé, að sjálfstæðis- flokkurinn standi uppi með kannski 40% atkvæða á sunnudaginn. Vænlegra til árangurs held ég væri að benda fólki betur á að í Erlingur Friðriksson „Spurningin er bara þessi: Viljum við styrka stjórn Sjálfstæðis- flokksins eða vand- ræðalega málþófs- s1jórn?“ raun er ekki um nema tvennt að velja í þessum borgarstjómarkosn- ingum. Spumingin er bara þessi: Viljum við stjrrka sljóm Sjálfstæðis- flokksins, eða vandræðalega mál- þófsstjóm. Vinstri sljóm í borginni held ég geti ekki orðið annað, vegna þess, að engir mið-vinstri flokkanna geta gengið til samstarfs við þessa frekjudós, hann Davíð, eins og þeir hafa lýst honum í ræðu og riti undanfarið ár — það yrði sennilega þeirra pólitíska sjálfsmorð. Hins vegar má reikna með að borgar- stjómarflokkur Sjálfstæðisflokks- ins sé það stór, að hinir flokkamir yrðu allir að sameinast á móti honum til að ná meirihluta. Ég held við þekkjum öll hvemig sú stjóm yrði — ég vil hana alla vega ekki. Þá vaknar líka sú spuming, hvort borgarsljóri þurfí ekki að vera dálít- ið frekur til að ná árangri? Sáum við ekki, fyrir nokkmm ámm, hvemig gekk meðan menn þurftu sífellt að ráðgast við aðra, áður en nokkra ákvörðun var hægt að taka? Sem betur fer hefur Davíð ömgg- lega tekið einhveijar rangar ákvarðanir, — það er mannlegt. Er samt ekki betra að hafa mann sem þó tekur ákvarðanir, en láta flest tækifæri renna sér úr greipum, vegna þess að tíminn fer allur í samningaumleitanir, og endirinn verður alltaf einhvers konar mála- miðlun? Höfum við ekki nóg af slík- um slysum í kringum okkur, þó við séum laus við slíkt í borgarstjóm- inni? Vegna þess að ég vil vera laus við slíkt, bið ég þig, kjósandi góður, hvar í flokki sem þú stendur, kjóstu Sjálfstæðisflokkinn, hvað sem líður misgóðum skoðanakönnunum. Höfundur er eigandi Eldaskálans ÍReykjavík. Þú svalar lestrarþörf dagsins ásfcium Moggans! Þessí vigalegi Breti er einn af 45 sem kastaði út frá bryggjunni í Straumsvík. Kastlengd sumra veiðimanna er mjög mikil og oft flýgur krókurinn yfir 100 metra. Motgunblaðið/Einar Falur. Sj óstangaveiðimenn í Stráumsvík ÞESSA dagana dvelur í Kefla- vík hópur 45 sjóstangaveiði- manna frá Bretlandi. Þetta er annar hópurinn sem kemur í sumar, en sá fyrri var hér í sambandi við fyrsta alþjóðlega sjóstangaveiðimótið í Keflavík. Veiðimennimir, sem allir eru margreyndir sjóstangaveiði- menn, spreyta sig hér á landi bæði við strandveiði og sjó- stangaveiði. Meðal veiðimannanna er Clive Richards, forseti stórra samtaka veiðimanna í Bretlandi, og hefur hann veitt víða í heiminum. Fréttamaður hitti hann að máli þar sem hópurinn var við veiðar á bryggjunni í Straumsvík. „Ég er mjög ánægður með veiðina hér á íslandi hingað til,“ sagði Ric- hards. „í gær fór ég út á bát og það var sá dásamlegasti dagur sem ég hef lent í við veiðar úr bát. Við vorum þrír saman og fengum um 500 kíló á þremur tímum. Það var frábært." Afturá- móti sagðist Richards ekki vera alveg jafn ánægður með strand- veiðina, en hann lofaði mjög gestrisnina og allan aðbúnað. Þessi hópur fer af landi brott á sunnudag, en næstu vikur munu tveir tuttugu manna hópar spreyta sig á veiðinni við Suður- nesin. Það er ferðaskrifstofan Víkingaferðir í Keflavík sem gengst fyrir þessum ferðum í samvinnu við Flugleiðir. Beckers Allar vikur verða fegrunarvikttr með Beckers málníngu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.