Morgunblaðið - 30.05.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
5
Morgunblaðið/Börkur
Cecile Licad
komin til landsins
Cecile Licad, píanóleikarinn frá Filippseyjum, kom til landsins
í gærmorgun. Hún brá sér fljótlega á æfingu í Háskólabíó og
var komin þangað klukkan 11. Þar tóku á móti henni Jean-
Pierre Jacquillat, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar og fram-
kvæmdastjórinn, Sigurður Björnsson. Cecile Licad leikur með
Sinfóniuhýómsveitinni á Listahátíð á laugardag.
r--------
Eru
þeir að
fá 'ann
->
m
A--------
Laxinn er farinn að sýna sig æði
víða, í Þverá í Borgarfirði, Laxá í
Aðaldal, Norðurá, Elliðaánum og
Korpu, svo ekki sé minnst á Hvítá
í Borgarfirði þar sem netaveiði hófst
að vanda 20. maí og hafa nokkrir
tugir laxa veiðst, 8—17 punda
þungir. Mest af því hefur verið lax
á leið í Þverá, en þar hafa sést að
sögn nokkrir laxar. Fyrir norðan
hefur frést af laxi sem flækti sig í
silunganet. Var það 15 punda lax,
nýrunnin hrygna.
Stangveiði hefst í fyrstu laveiði-
ánum um helgina, nánar tiltekið í
Norðurá og Laxá í Asum á sunnu-
daginn. Síðan hefst veiðin í hverri
ánni af annarri, en flestar opna
10,—20. júní. Síðustu daga hafa
fyrstu laxamir verið að ganga í
Elliðaámar og í gærmorgun vom
vænir laxar, smáhópar,_ bæði i
Fossinum og í Holunni. Ámar em
afar vatnslitlar en laxinn hefur ekki
iátið það á sig fá. Vitni staðfesta
að þetta séu 6—10 punda laxar,
alvanaleg stærð á þessum tíma.
Veiði hefst 10. júní. Ekki er um
eins mikla fiskfor að ræða í Korpu,
þar sást einn fallegur lax í Sjávar-
fossinum strax eftir að það féll frá
fyrr í vikunni. Eftir næsta flóð var
laxinn á bak og burt, en hvort hann
synti fram eða aftur er ekki vitað.
Þetta er sá tími sem menn eiga
það til að mgla saman hóplöxum
og nýrenningum, en það sem að
framan er greint á ekkert skylt við
Frá Norðurá í Borgarfirði,
Stokkhylur og sér til Laugar-
kvarnar. Stangveiði hefst i ánni
á sunnudaginn og er talið að
eitthvað sé gengið af laxi í ána.
niðurgöngulaxa. Þeir munu yfirleitt
horfnir úr ám sunnanlands og vest-
an, en einhver brögð em að því að
þeir séu enn að tínast niður fyrir
norðan. Til dæmis hefur frést, að
töluverð ganga sé nú niður Laxá í
Aðaldal. Þess má að lokum geta,
að fiskifræðingar spá öflugum laxa-
göngum í ár í sumar, bæði er reikn-
að með sterkum göngum af laxi sem
hefur dvalið 2 ár í sjó, „stórlaxin-
um“, svo og ekki lakari smálaxa-
göngum en í fyrra. Ef spámar
standast, verða ámar fullar af fiski,
en sunnanlands og vestan óttast
þó margir vatnsskort vegna sjóleys-
is á vetrinum sem leið.
Vegagerð:
Miðfell lægstbjóðandi
í slitlög á Reykjanesi
í ÞESSARI viku voru opnuð tilboð i tveimur útboðum Vegagerðar
ríkisins, efnisvinnslu á Norðurlandi vestra og slitlög á Reykjanesi.
Tiltölulega fáir verktakar buðu og voru lægstu tilboð 78,6% og 98%
af kostnaðaráætlun.
Miðfell hf. átti lægsta tilboð í
lagningu slitlaga á Reykjanesi í
sumar (útlögn malbiks og olíumal-
ar), 5.503 þúsund kr., sem er 98%
af kostnaðaráætlun, en hún hljóðaði
upp á 5.611 þúsund kr. í verkið
buðu einnig Loftorka sf, Halldór
Bjömsson & Guðmundur Bjömsson
og Hlaðbær hf. og vom tilboð þeirra
allra yfir kostnaðaráætlun. Hæsta
tilboðið var 9.530 þúsund, eða
tæplega 70% yfir áætlun.
Króksverk átti lægsta boð í efnis-
vinnslu á Norðurlandi vestra í
sumar (46 þúsund rúmmetrar alls),
7.700 þúsund kr., sem er 78,6% af
kostnaðaráætlun sem reyndist vera
9.791 þúsund kr. Undir kostnaðar-
áætlun vom einnig verktakafyrir-
tækin Btjótur, Völur og Borgar-
verk, en Hagvirki var með lang-
hæsta tilboðið, 12.473 þúsund kr.,
sem er 27% yfir kostnaðaráætlun.
Látum ekki lævísar raddir svæfa okkur:
Davíð þarf á atkvæðum
okkar allra að halda
eftír Hrafn
Gunnlaugsson
í kosningum er alltaf hætta á
því að menn trúi blint á gamla
listabókstafínn. Sú kynslóð sem er
að erfa þetta land verður að leyfa
sér að hugsa öðruvísi. Við verðum
að setja menn í öndvegi en ekki
bókstafstrúna.
Það hefur sannast æ ofaní æ,
að ef forystumanninn vantar skiptir
litlu máli hvaða flokkur fer með
völdin þegar losa á um hlekki aftur-
halds og stöðnunar. Þá reynir á
menn, en ekki flokkspólitíska hjá-
trú. Þá reynir á þann, sem valinn
er til forustu, sama fyrir hvaða
listabókstaf hann stendur. Þetta
skulum við hafa hugfast í dag.
Við skulum kjósa Davið Oddsson
boigarstjóra, manninn sem hefur
sýnt það í verki, að hann er tilbúinn
að skapa Reykjavík framtíðarinnar.
Ungt fólk og listamenn, sem hafa
fylgst með starfi hans, vita að allir
geta nú fengið lóð í borginni, lóða-
Hrafn Gunnlaugsson
braski er lokið, og borgarleikhús
rís af gmnni. Listalífíð hefur aldrei
staðið með meiri blóma í þessari
borg.
Það er til marks um hugsun lít-
illa sanda, að upp á síðkastið hefur
áróður andstæðinga Davíðs Odds-
sonar gengið æ meir út á það eitt
að ata persónu hans auri og gera
hann tortryggilegan sem forystu-
mann. Þeir menn sem þekkja
Davíð, hvar í flokki sem þeir standa,
vita að þessar árásir em einungis
taugaveikluð málefnafátækt —
Davíð hefur hreinlega staðið sig svo
vel sem boigarstjóri, að nú dugir
það eitt að sækja að honum per-
sónulega með dylgjum og útúr-
snúningum.
Látum ekki blekkjast af þessari
rógsherferð og látum heldur ekki
lævísar raddir svæfa okkur á verð-
inum. Síðasta vopn þeirra er að
reyna að telja okkur trú um að
Davíð sé svo ömggur að ekki þurfi
að kjósa. Gætum okkar á slíkum
málflutningi, Davíð þarf á atkvæð-
um allra fijálshugsandi manna að
halda. Baráttan er tvísýn.
Höfundur er rithöfundur og leik-
stjóri, hann er jafnframt varafor-
seti Bandalags íslenskra lista-
mnnnn.
Landbúnaður:
6118 tonn af kindakjöti
til í birgðum í landinu
Salan í apríl 11,4% minni en í apríl á síðasta ári
f aprílmánuði voru seld 584
tonn af kindakjöti á innan-
landsmarkaði, 75 tonnum
(11,4%) minna en í apríl 1985.
Frá byrjun september til
aprílloka, það er 8 fyrstu
mánuði verðlagsársins, voru
seld 5.987 tonn af kindakjöti
hér innanlands á móti 6.231
tonni sömu mánuði árið áður.
Samdrátturinn nemur því
tæpum 4% þrátt fyrir kinda-
kjötsútsöluna í nóvember og
desember síðastliðnum.
Kindakjötssalan eykst nú smám
saman eftir mikla lægð fyrstu
mánuði ársins í kjölfar kindakjöts-
útsölunnar, en hún er enn töluvert
miklu minni en var á sama tíma
í fyrra. Það sem af er verðlagsár-
inu hafa verið flutt út 1.947 tonn
af kindakjöti, á móti 2.019 tonn-
um á sama tima á verðlagsárinu
1984/85. Nú eru til í birgðum
PÓSTUR og simi er nú að reyna
nýja gerð af þráðlausum sima,
sem gerður er eftir evrópskum
staðli. Simi þessi hefur veríð
samþykktur til notkunar viða i
Vestur-Evrópu og búizt er við
þvi að svo verði hér fljótlega.
Gústav Amar, yfirverkfræðingur
hjá Pósti og síma, sagði að til þessa
hefði notkun þráðlausra síma af
6.118 tonn af kindakjöti, 623
tonnum (11,3%) meira en 1. maí
ífyrra.
bandarískri gerð verið bönnuð hér
vegna þess að símamir hefði tmflað
sjónvarpsútsendingar og bátabylgj-
una. Það gerðu þessir nýju símar
ekki og auk þess væri erfíðara að
komast inn á þá en bandarísku sím-
ana. Hann sagði að prófunum á
símanum væri að ljúka og líklega
yrði sala hafin fljótlega.
Póstur og sími:
Þráðlausir símar
að koma á markað
VEL KLÆDD,
SÍMASKRÁ SIMASKRA alltaf sem ný í kápunní frá Múlalundí Engri bók er flett jafnmikið og símaskránni. Hún þarf því að eiga góða Yfirhöfn svo hún losni ekki úr böndunum og verði ílla til reika. í hlífðarkápunni frá Múlalundi, vinnustofu SÍBS, er símaskráin vel varin! Fæst í öllum helstu bóka- og ritfangaverslunum Iandsins Hátúni 10 C, Símar: 38450 38401 f
Múlalundur