Morgunblaðið - 30.05.1986, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
Afmælis-
boð
Amnesty Intemational varð 25.
ára í fyrradag og ritaði ég í
því tilefni smá ádrepu á fréttastofu
sjónvarps vegna klaufalegrar
myndatöku er starfsmenn Hafskips
voru faerðir til gæsiuvarðhalds og
einnig ræddi ég um einkennilegar
yfirlýsingar rannsóknaaðila en þær
yfirlýsigar hafa einkum heyrst í
fréttatímum útvarps. Ég vil taka
skýrt fram að ég er ekki að ásaka
einn eða neinn um afglöp í starfi,
Ijarri fer því, en þar sem ég er nú
einu sinni ráðinn til að fj'alla um
dagskrá útvarps og sjónvarps á sem
víðustum grunni þá fínnst mér allt
í lagi að benda fréttamönnum ríkis-
fjölmiðlanna á víxlsporin. Frétta-
menn eru í sviðsljósinu og verða
að sætta sig við að náið sé fylgst
með orðum þeirra og gjörðum. Þeir
mega raunar þakka fyrir að njóta
ríkulegs aðhalds. Þar með er ekki
sagt að sá er hér mundar stflvopn
sé boðberi sannleikans. Ég segi
bara eins og mér býr í bijósti sem
einstaklingur í fijálsu samfélagi. Ég
hef ekkert frekar á réttu að standa
en næsti maður þótt sá sé ekki sí-
fellt að rífa sig í blöðunum.
25. ára
í tileftii aldarfjórðungsafmælis
hins stórmerka félagsskapar Amn-
esty Intemational efndi sjónvarpið
til afmælisveislu í sjónvarpssal og
vom þeir Ögmundur Jónasson og
Jón Gútavsson í hlutverki gestgjafa.
Veisla þessi var í beinni útsendingu
og tókst bara nokkuð vel. Einkum
fannst mér þó sviðsmyndin glæsi-
leg, en þannig vildi til að ég hafði
litið hana augum fyrr um daginn
niðrí upptökusal sjónvarps en
fannst hún miklu glæsilegri í litla
imbakassanum mínum síðar um
kveldið. En svona er sjónvarpið á
vissan hátt blekkingarvefur ofinn úr
ljósperlum en samt fáum við þar
mynd af raunveruleikanum af ver-
öld allri ef svo má segja líkt og
Zeifur forðum þá hann flatmagaði
efst á Olympstindi og skyggndi hina
lágu byggð.
Heildarsvipurinn
Hún er annars ekki mjög glæsi-
leg sú veröld er blasir við af tindi
Amnesty Intemational. Þeirri ver-
öld var aðeins lítillega lýst í af-
mælisboði þeirra Ögmundar Jónas-
sonar og Jóns Gústavssonar. Þó
fundum við fnykinn af myrkraverk-
unum og skyggndumst ögn bakvið
þá blóðugu dulu er Amnesty Intem-
ational freistar að lyfta dag hvem.
En á milli þeirra atriða var spilað
og sungið eins og vera ber í af-
mælisboði. Ég var þó ekki alveg
sáttur við lagavalið og textana er
fylgdu hljómunum. Að mínu mati
verður ætíð að semja sérstaka tón-
listardagskrá þá efnt er til slíkrar
veislu í sjónvarpssal, þannig hefði
verið mjög við hæfí að fá íslenska
tónlistarmenn og ljóðskáld til að
semja lag og ijóð er hæfði þama
stað og stund. Islenskir myndlistar-
menn hefðu síðan gjaman mátt
spreyta sig á að myndskreyta tóna-
galdurinn. Þannig hefði heildarsvip-
ur afmælisdagskrárinnar orðið heil-
steyptari og dagskráin öll markviss-
ari. Það er góðra gjalda vert að
létta yfirbragð alvarlegra gilda en
þá tilefnið er jafii alvarlegt og hér
um ræðir er ekki við hæfí að
dagskáin minni á hversdagslegan
skemmtiþátt. Næst þegar efnt verð-
ur til slíkrar hátíðar í sjónvarpssal
skal stilla saman strengi máls, tóns
og myndar.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Ráseitt:
Breytingar á tónlistardagskrá
■i Þær breytingar
03 verða á tónlist-
“ arflutningi rás-
ar eitt í sumar að milii kl.
11.03 og 12.00 verður út-
varpað ijölbreyttri tónlist-
ardagskrá í beinni útsend-
ingu fjóra daga vikunnar,
en á mánudögum verður á
þessum tíma sjómanna-
þátturinn, „Á frívaktinni".
Bæði verður um að ræða
þætti þar sem kynnt verður
tónlist af plötum með
áherslu á sígilda og þjóð-
lega tónlist, svo og þætti
með léttri tónlist og gestum
í stúdíói. Ifyrstu tvær vik-
umar í júní verða þættimir
að sjálfsögðu undir sterk-
um áhrifum frá Listahátíð
í Reykjavík, og reynt verð-
ur eftir megni að ná tali
af þeim tónlistarmönnum
sem fram koma, bæði er-
lendum og innlendum.
Umsjónarmenn þessara
þátta verða bæði fastráðnir
og iausráðnir dagskrár-
gerðarmenn tónlistardeild-
ar: Knútur R. Magnússon,
Sigurður Einarsson, Ýrr
Bertelsdóttir og Þórarinn
Stefánsson. Þættimir hafa
hlotið nafnið „Samhljóm-
ur“ og sá fyrsti í röðinni
verður á dagskrá þriðju-
daginn 3. júní.
Oöld í Oklahoma
bandarískur vestri
■■■■ Óöld i Oklahoma
OQ 20 (Oklahoma
Kid), bandarísk-
ur vestri frá 1939, er á
dagskrá sjónvarps í kvöld.
Myndin er svart-hvít og
fjallar um átök milli land-
nema í Ameríku. Árið 1892
hófst nýtt landnám í Okla-
homa. Nokkrar fjölskyldur
setjast að og ætla að hefja
uppbyggingu nýs bæjar en
fljótlega kemur í ljós að
flokkur ribbalda hefur tek-
ið sér þama bólfestu. Land-
nemamir gera samning við
þá um að þeir megi reka
spilavíti í bænum en þeir
vinna þar mörg óhæfuverk
auk þess sem spilavítið
verður mörgum til ógæfu.
Ástandið er bæjarbúum
þungbært þar til þekktur
ævintýramaður kemur
þeim til hjálpar. Leikstjóri
er Lloyd Bacon en með
aðalhlutverk fara James
Cagney og Humphrey
Bogart. Kvikmyndahand-
bókin gefur þessari mynd
tvær stjömur og telur hana
ágæta.
Atríði í kvikmyndinni Ötfid í Oklahoma sem sjón-
varpið sýnir i kvöld. Á myndinni má sjá James
Cagney og Humphrey Bogart í hlutverkum sínum.
Heimildarmynd um listmálarann Pablo Picasso er á
dagskrá sjónvarpsins í kvöld.
Heimildarmynd
um Pablo Picasso
■i Bresk-frönsk
50 heimildamynd
um Pablo Pic-
asso er á dagskrá sjónvarps
í kvöld. Picasso (1881-
1973) var einhver áhrifa-
mesti listmálari þessarar
aldar. í myndinni er litið
um öxl yfír langan og stór-
brotinn feril Picassos á
listabrautinni og skoðuð
em verk frá hinum ýmsu
skeiðum sem hann gekk í
gegnum á langri lífsleið.
ÚTVARP
FÖSTUDAGUR
30. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morgunteygjur.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „( afahúsi" eftir Guð-
rúnu Helgadóttur. Steinunn
Jóhannesdóttir les (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegtmál
Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Siguröur
G. Tómasson flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Lesiðúrforustugreinum
dagblaðanna.
10.40 Sögusteinn
Umsjón: Haraldur Ingi Har-
aldsson. (Frá Akureyri)
11.10 Fáein orö i einlægni
ÞórirS. Guöbergsson talar.
11.30 Morguntónleikar. „Pét-
ur og úlfurinn," svita eftir
Sergej Prokofjeff. Sinfóníu-
hljómsveit (slands leikur,
Páll P. Pálsson stjórnar.
Sögumaöur: Þórhallur Sig-
urðsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Fölna
stjörnur" eftir Karl Bjarnhof
Kristmann Guðmunasson
þýddi. Arnhildur Jónsdóttir
les (5).
14.30 Sveiflur — Sverrir Páll
Erlendsson. (Frá Akureyri).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síödegistónleikar
a. Laurence Dale og Am-
brosian-kórinn syngja lög
eftir Albert Ketelby með
Promenade-hljómsveitinni í
Lundúnum; Alexander Faris
stjórnar.
b. Kiri Te Kanawa syngur
lög eftir Kurt Weill og Rogers
og Hammerstein með
hljómsveit Nelsons Riddle.
c. Jessye Norman syngur
lög eftir Richard Rogers og
Cole Porter með John Will-
iams og Boston Pops hljóm-
sveitinni; Arthur Fiedler
stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna.
Stjórnandi: Vernharður
Linnet.
17.40 Úr atvinnulífinu - Vinnu-
staöir og verkafólk. Umsjón:
Hörður Bergmann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.16 Á döfinni. Umsjónar-
maður Maríanna Friðjóns-
dóttir.
19.25 Tuskutigrisdýriö Lúkas
— 12.og 13. þáttur.
(Tygtigeren Lukas)
Finnskur barnamyndaflokk-
ur í þrettán þáttum um
ævintýri tuskudýrs sem
strýkur að heiman.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Sögumaður Sig-
mundur Örn Arngrimsson.
(Nordvision — Finnska sjón-
varpið).
19.60 Fréttaágripátáknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
19.50 Daglegtmál
Örn Ólafsson flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Kvöldvaka
Umsjón: Helga Ágústsdótt-
ir.
a) Fjalliö mitt. Torfi Jónsson
les hugleiðingu eftir
Oddnýju Guðmundsdóttur.
b) Skotist inn á skáldaþing.
Ragnar Ágústsson fer með
vísur um trúna eftir ýmsa
höfunda.
c) Skyggni Helga Sveins-
sonar. Úlfar K. Þorsteinsson
les þátt úr Grímu hinni nýju.
21.30 Frá tónskáldum. Atli
Heimir Sveinsson kynnir
tónverkið „Úr orðskviðun-
um" eftir Jón Ásgeirsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veöurfregnir.
22.20 Kvöldtónleikar.
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
30. maí
20.40 Reykjavíkurlag — Með
þínu lagi.
Fimmti þáttur.
20.60 Picasso
Bresk/frönsk heimildamynd
um Pablo Picasso
(1881—1973), áhrifamesta
listmálara á þessari öld.
Litið er um öxl um langan
og stórbrotinn feril Picassos
á listabrautinni og skoðuð
verk frá hinum ýmsu óliku
skeiðum á langri lífsleið.
Kvikmyndastjórn. Didie
Baussy. Þýðandi Ólöf Pét-
ursdóttir.
22.10 Borgarstjómarkosning-
ar
Hringborðsumræður um
málefni Reykjavíkur. Um-
a. „En sommernat" eftir
Peter Heise. Bent Norup
syngur. Tamás Vetö leikur
á píanó.
b. „Sommernight on the
river" eftir Frederick Delius.
Enska kammersveitin leikur;
Daniel Barenboim stjórnar.
c. „Sommernacht" eftir
Othmar Schoeck. Studio-
hljómsveitin i Genf leikur;
FÖSTUDAGUR
30. maí
10.00 Morgunþáttur
'7
ræðum stýrir Páll Magnús-
son.
23.15 Seinni fréttir.
23.20 Óöld í Oklahoma
(Oklahoma Kid)
Bandariskur vestri frá 1939.
s/h.
Leikstjóri Lloyd Bacon.
Aðalhlutverk James Cagney
og Humphrey Bogart.
Skömmu fyrir aldamótin síð-
ustu hófst nýtt landnám í
Oklahoma. Landnemaflokk-
ur gerir málamiölun við ribb-
alda sem vinna mörg
óhæfuverk. Þá kemur til
sögunnar maður sem þorir
að bjóða þrjótunum birginn.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
00.05 Dagskrárlok.
Othmar Schoeck stjórnar.
23.00 Heyrðu mig — eitt orð.
Umsjón: Kolbrún Halldórs-
dóttir.
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur
-JónMúliÁrnason.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl.
03.00.
Stjómendur: Páll Þorsteins-
sonogÁsgeirTómasson.
12.00 Hlé
14.00 Pósthólfið
í umsjá Valdísar Gunnars-
dóttur.
16.00 Léttir sprettir
Sigurður Sverrisson stjórnar
tónlistarþætti með íþrótta-
ívafi.
18.00 Hlé.
20.00 Hljóödósin
Þáttur i umsjá Þórarins
Stefánssonar.
21.00 Dansrásin
Stjómandi: Hermann Ragn-
arStefánsson.
22.00 Rokkrásin
Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helga-
son.
23.00 Ánæturvakt
með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar i þrjár
minútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.10 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavik og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.