Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
hrekkjalóma
á sérstöku afsláttarverði.
Heildsölub.
K. Árnason, síml 7S677.
Hjartans þakkir sendi ég börnum mínum,
tengdabörnum, barnabörnum og öllum þeim
sem glöddu mig á 70 ára afmœli mínu 18.
maí sl. og geröu mér daginn ógleymanlegan.
GuÖ blessi ykkur öll.
Víglundur Arnljótsson,
Hafnarstræti 23,
Akureyri.
SÉRTILBOÐ
RF 570 Kæliskápur
fyrir orlofshús — einstaklingsíbúðir —
kaffistofur — dvalarheimili o.fl.
Kæliskápur sem þarf lítið pláss. Vinnuborð
kæliskápur undir. Skápurinn hefur l-stjörnu frystihólf
14,5 I. Hálfsjálfvirk afþýðing. Sérhólf fyrir ávexti og
grænmeti. Hentugar hillur og rými í skáp og hurð
fyrir smjör, ost, egg og flöskur.
Tækniupplýsingar
Heildarrúmál ...160 I. Wött ............ 100
Frystihólf ....14,5 I. Orkunotkun Kwh/
Ytri mál hæð cm...76 sólarhring ........0,7
breidd cm .... 55 Nettoþyngd .37 kg.
dýpt cm ...60
Verð aðeins kr. 13.708.-.«
Vörumarkaðurinn hf.
Sími: 686117 Ármúla 1A
Alþýðubandalagsmenn í Reykjavik: 1
Festu áróðursspjöld ál
ljósastaura án leyfis i
Alþýðubandalaginu boðið að fjarlægja skiltin, að öðr
um kosti gera starfsmenn borgarinnar það árdegis^
Hroki Alþýðubandalagsmanna
Hroki sá, sem forystumenn Alþýðubandalagsins sýna Reykjavík-
urborg og borgarbúum í kosningabaráttunni, hefur vakið furðu
margra, og ættu menn þó að vera ýmsu vanir af þeim bæ. Frægt
er, þegar doktor Össur Skarphéðinsson taldi það bestu leið til
að niðurlægja embættismenn borgarinnar, að senda þá í ösk-
una. Hvað skyldu reykvískir sorphreinsunarmenn, sem eru ein-
hverjir ötulustu starfsmenn borgarinnar, segja um þessa kveðju
Þjóðviljaritstjórans? En hvergi birtist þó hrokinn skýrar en í
þeirri afstöðu kosningastjórnar Alþýðubandalagsins, að aðrar
reglur skuli gilda um kosningaáróður flokksins en annarra flokka
og samtaka. í Staksteinum í dag er vikið að hinu lærdómsríka
„skiltamáli", en einnig er vitnað í ummæli Indriða G. Þorsteins-
sonar í nýlegu viðtali og ávarp Magnúsar L. Sveinssonar við
opnun Húss aldraðra.
Við megum,
aðrirekki
Borgarráð Reykjavík-
ur hefur sett skýrar
reglur, sem banna notk-
ini á eignum borgarinnar
í augiýsinga- eða áróð-
ursskyni. Uppsetning
skilta, tji.m. á Ijósa-
staura, er talin valda
óþrifum, skemmdum á
málningu eða málm-
húðun, truflun á umferð,
auk þess sem leyfi til eins
aðila myndi leiða af sér
flóðbylgju, sem ekki væri
unnt að stöðva. Um þetta
hefur aldrei verið
ágreiningur í borgarráði
og Siguijón Pétursson,
fulltnii Alþýðubanda-
lagsins i ráðinu, hefur
verið þessari stefnu
samþykkur. Hann tók t.d.
þátt i því, að árétta þetta
bann gagnvart Flokki
mannsins, þegar þau
samtök settu upp áróð-
ursspjald á Hringhraut á
síimm tima.
Siguijón og félagar
hans virðast hins vegar
álita, að reglumar gildi
um alla aðra en Alþýðu-
bandalagið. Aróðurs-
skiltin, sem þeir festu í
heimildarleysi á ljósa-
staura viða i Reykjavík
og Morgunblaðið sagði
frá í gær, sýna þetta
viðhorf glöggiega. Hátt-
visri ábendingu borgar-
yfirvalda er síðan svarað
með ósvifnu bréfi.
Indriði kýs
Davíð
Indriði G. Þorsteinsson
er ekki aðeins þjóðkunn-
ur rithöfundur heldur
ltka þjóðkunnur fram-
sóknarmaður. Hann var,
sem kunnugt er, ritstjóri
Timans, málgagns
flokksins, um árabil.
Ætla mætti, að hann kysi
þess vegna flokkssy stkini
sín, Sigrúnu Magnús-
dóttur og Alfreð Þor-
steinsson, i borgarstjóm-
arkosningunum. Það
ætlar liann ekki að gera.
í nýlegu viðtali við Vik-
una segir Indriði: „Ég
hef alltaf kosið Fram-
sóknarfiokkinn, að
minnsta kosti siðan 1951.
En það er nú meira fyrir
siðasakir þvi ég er í raun
og vem flokksleysingi.
En núna er ég ákveðinn
að kjósa Davíð Oddsson
í næstu borgarstjómar-
kosningum." Og síðar i
viðtalinu segir hann:
„Davið er maður að minu
skapi, hann beitir valdi
sinu á skynsamlegan
hátt. Sjáðu Grafarvog-
inn. Þama spírar byggð-
in og blómstrar á
skömmum tima og nú
sjá allir að þetta var rétt
ákvörðun hjá honum...“
í viðtalinu er lika leit-
að álits Indriða á Al-
þýðubandalaginu. „Nú
vilja margir meina, að
Alþýðubandalagið sé
ósköp venjulegur krata-
fiokkur," segir blaða-
maðurinn. Og Indriði
svaran „Það getur vel
verið, en þar sem heims-
kommúnisminn er kom-
inn með klæraar, þar
sleppir hann ekki takinu.
Og það getur vel verið,
að það séu einhveijar
kratasveiflur innan Al-
þýðubandalagsins, en
kjaminn er harður og
hann breytist ekki.“
Hús aldraðra
Hús aldraðra í
Kringlubæ, sem reist er
í samstarfi Verslunar-
mannafélags Reykjavík-
ur og borgarstjómar, var
formlega afhent 11. maí
sl. við hátiðlega athöfn.
Þar flutti Magnús L.
Sveinsson, formaður VK,
sem jafnframt er forseti
borgarstjómar, ávarp.
Hann vakti athygii á því
nýmæli i húsnæðismál-
um, sem Hús aldraðra er,
og samstarfið um bygg-
ingu þess. I húsinu eru,
sem kunnugt er, sölu-
ibúðir fyrir aldraða, en
borgin hefur þar siðan
þjónustuaðstöðu fyrir
ibúana. Taldi Magnús L.
Sveinsson, að byggingin
bryti blað í starfi verka-
lýðshreyfingarinnar á ís-
landi. Hann fór sérstök-
um þakkarorðum um
stuðning Lifeyrissjóðs
verslunarmanna við
bygginguna: „Það má
segja, að framan af
byggingartímanum hafi
Iífeyrissjóðurinn einn
fjármagnað fram-
kvæmdimar, þar sem við
lögðum áherslu á, að
íbúðarkaupendur, sem
flestir áttu íbúðir fyrir,
gætu búið í þeim og
þyrftu ekki að selja þær
fyrr en um það leyti, sem
þeir flyttu hér inn, svo
komist yrði hjá þvi að
þeir byggju við öryggis-
leysi hvað húsnæði
snerti, ef þeir hefðu
þurft að selja eldri ibúð-
iraar til að fjármagna
hinar nýju íbúðir á bygg-
ingartíma þeirra," sagði
Magnús.
Magnús L. Sveinsson
sagði ennfremur, að
kaupendum ibúðanna i
Húsi aldraðra hefði að-
eins verið gert að greiða
100-150 þúsund krónur
við staðfestmgu á kaup-
unum, en frekari
greiðsla gat beðið þar tíl
þeir hefðu selt ibúðir sín-
ar, sem gert var ráð fyrir
að yrði um það leyti, sem
þeir flyttu inn. „Hér var
um mjög þýðingarmikið
mál að ræða, þvi fólk sem
komið er á þennan aldur
má ekki við því, og á alls
ekki að þurfa að búa við
óvissu og öryggisleysi
hvað húsnæði varðar
vegna fjármögnunar á
meðan á framkvæmdum
sem þessum stendur,"
sagði hann.
íslensk listmiðlun
Suðurlandsbraut 4,2. hæð, 108 Reykjavík.
Umboðssala — uppboðshald — sérfræðiráðgjöf.
Höfum verið beðnir
að útvega verk eftir:
Svavar Guðnason,
Gunnlaug Scheving,
Jón Stefansson,
Júlíönu Sveinsdóttur.
Höfum listaverk í
umboðssölu eftir:
Einar Hákonarson,
Gunnlaug Blöndal,
Gunnlaug Scheving,
Helga Þorgils,
Jóhannes Kjarval,
Jón Engilberts,
Karl Kvaran,
Kjartan Ólason,
Kristján Daviðsson,
Masson,
Matta,
Rainer,
Vasarély,
Venet.
íslensk listmiðlun er opin daglega frá kl. 16—18 og á laugardögum frá kl. 14—16. Upplýsingar
eru gefnar í síma 688884 og 688885 á sama tíma.
Gunnar B. Kvaran listfr., Hallgrímur Geirsson hrl.,
Haraldur Johannessen lögfr., Ólafur Kvaran listfr.