Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 11

Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986 Tveir nýir skólar í haust í Reykjavík eftirBessí Jóhannesdóttur Tólf þúsund fermetrar af skólahúsnæði Á yfirstandandi kjörtímabili hafa nær 12 þúsund fermetrar af skóia- húsnæði verið byggðir eða verið tilbúnir til notkunar á komandi hausti. Hér er um að ræða húsnæði við Hvassaleitisskóla (3. áfangi að hluta 768 m2 ), Ölduselsskóli (2 áfangi að hluta 233m2), Seljaskóli, íþróttahús 2023 m2, Hólabrekku- skóli (3. áfangi að hluta 1360 m2), Selja- skóli (hús nr. 7 og gangur 780 m2), Foldaskóli, 1. áfangi 1760 m2 , Breiðholtsskóli (búningsklefar v. sundlaug 189 m2 ), lausar stofur 413 m2 . Auk þess verða tilbúnir tveir skólar í haust, Grandaskóli, sem verður um 70 m2 og 1. áfangi Selásskóla, sem byggður er eftir sömu teikningu. Bygging nýs skóla i Vesturbæ hefst innan tíðar svo og bygging sundlaugar við Öldu- selsskóla. Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti hefur verið lokið við byggingarframkvæmdir er stóðu yfir við upphaf kjörtímabilsins og á síðastliðnu ári var byggð útisund- laug. Miklar framkvæmdir hafa því átt sér stað í borginni í þessum málaflokki. Hönnun nýrra skóla Eins og greint var frá í fyrri grein minni ákvað Fræðsluráð að fela hönnunamefnd Foldaskóla að vinna með forstöðumönnum §ár- máladeildar og kennslumáladeildar skólaskrifstofu að undirbúningi hönnunar tveggja nýrra skóla á Granda og i Selási. Þessu verki þurfti mjög að hraða því Ijóst var að skólamir þyrftu að vera tilbúnir til notkunar haustið 1986. Samráð var haft við foreldra- og kennarafé- lög í viðkomandi hverfum svo og skólastjóra í þeim skólum er fyrir em í hverfunum. Hafa þessi vinnu- brögð verið mjög jákvæð fyrir nefndarmenn og stuðla vonandi að betra upplýsinga- og hugmynda- flæði milli þeirra aðiia sem mestra hagsmuna hafa að gæta í þessu máli. Það er ljóst að samfelldur skóladagur brennur heitast á for- eldrum. Skólastjórar vilja sam- felldan skóladag- Samfelldur skóladagur hefur ekki sömu merkingu fyrir öllum. Greina þarf á milli þess að nemandi þurfi aðeins að koma í skólann eina ferð á dag og þess að hann fá viðveru í skólanum ákveðið langan tíma umfram kennslu. Aðeins í Foldaskóla í Reykjavfk er boðið upp á viðveru yngstu bamanna frá kl. 8.00—13.30. Foreldrar greiða vægt gjald fyrir þá aukaþjónustu sem veitt er. Mest kr. 800. Hefur þessi þjónusta mælst vel fyrir. Síðastliðið haust var haldin ráðstefna skóla- stjóra grunnskólanna í Reykjavík. Þessi ráðstefna var vandlega undir- búin og var m.a. af hálfu skólaskrif- stofu Reykjavíkur gerð úttekt á öllu húsnæði grunnskóla í Reykja- vík. Gerð var vönduð skýrsla yfír stærðir skólahúsnæðis og notkun skólaárið 1985—''86, ásamt yfirlits- kortum af skólunum. í ljós kom á ráðstefnunni að samfelldni, þ.e. að nemandi þurfi ekki að fara nema eina ferð á dag í skólann, er ekki langt undan í nokkrum skólum ef samstilltu átaki er beitt og má raunar segja að þessu marki sé þegar náð í sumum þeirra skóla sem ekki hafa unglingadeildir. Ein hindrunin er litlu leikfímis- salimir. Þegar skipta þarf bekkjar- deildum myndast eyða hjá þeim sem ekki geta fengið leikfímina samtím- is hinu kyninu. Þennan vanda mætti í flestum tilfellum leysa með lítils- háttar auknu kennslumagni til þess að kenna hálfu bekkjunum almenn- ar greinar inni í sfnum stofum á meðan bekkjarsystkinin em í leik- fími. Aðalhindrunin fyrir samfelldum skóladegi er án efa nestismálið. í unglingadeildum og í elstu aldurs- flokkum baraastigsins er stunda- fjöldinn það mikill að daglega þarf að kenna þessum aldursflokkum nokkrar stundir eftir hádegið. Þá er nauðsjm á nesti með einhveijum hætti. Eftir mikla undirbúnings- vinnu virtist sem þetta vandamál væri að leysast fyrir fáum ámm þegar um samdist við Mjólkursam- söluna um fullnægjandi nestispakka á viðunandi verði. En nú hefur sala þessara pakka minnkað mikið og er verðhækkunum kennt um. I nokkmm skólum hefúr verið reynt að láta smyrja brauð handa nem- endum en slíkt krefst vinnulauna og aðstöðu. Þetta nestismál verður að leysa með einhveijum hætti eigi skóla- dagurinn að verða samfelldur. Á áðumefndri ráðstefnu beindu skólastjóramir eftirfarandi ályktun til Fræðsluráðs Reykjavíkur »Innan þriggja til fimm ára verði komið á samfelldum skóladegi hjá öllum gmnnskólanemendum í Reykjavík. Samfelldur skóladagur merkir hér að nemendur þurfi að- eins að koma eina ferð í skólann dag hvem og eigi því kost á nær- ingu við hæfí í skólanum. Kannað verði með skipulegum hætti í hveij- um skóla, hvað á skortir til að unnt sé að koma á samfelldum skóladegi, og í ljósi þeirrar könnunar unnin áætlun er komist að fullu til fram- kvæmda innan fimm ára.“ Þessi ályktun er afar jákvæð og vinnu á gmndvelli hennar þarf að framkvæma helst nú í sumar þann- ig að hægt sé að nýta þær upplýs- ingar við gerð næstu flárhagsáætl- unar. Skólarnir mega lengja viðveru nemenda Á fundi í Fræðsluráði 6. maí 1985 var lögð fram tillaga frá greinarhöfundi sem m.a. sagði: „að þeir gmnnskólar, sem sjá sér fært að lengja viðveru nemenda í yngstu bekkjum gmnnskólans hefli sem allra fyrst undirbúning þess. Fræðsluráð leggur áherslu á að Bessí Jóhannesdóttir gott samstarf komist á milli for- eldra, kennara og skólastjóra um framkvæmd þessa máls.“ Hér er um afar stórt mál að ræða, sem ég tel að fjalla þurfí um í hveijum skóla fyrir sig. Hvað varðar fram- tíðina þá þurfa að eiga sér stað vissar gmndvallarbreytingar. Vil ég nefna nokkrar 1. Reglum um skólabyggingar þarf að breyta þannig að rými vegna þessarar þjónustu geti komið til. Ekki er nauðsynlega um að ræða verulegt viðbótarrými ef tekið er tillit til þessarar þjónustu þegar við hönnun skóianna. Þetta hefur þegar verið gert hér í Reykjavík. Má þar nefna hönnun Foldaskóla og ný- justu skólanna í Selási og á Granda. Hönnun þeirra er miðuð við að ... ..•$- m wsm "w ..." . ' Grandaskóli við Keilugranda f byggingu. Grunnmynd af Grandaskóla. Teiknað af Guðmundi Þór Pálssyni arkitekt, Teiknistofu, Öðinsgötu 7. auðvelt sé að breyta húsnseðinu miðað við breyttar þarfír. Grandaskóli Grandaskóli er á lóð við Keilu- granda, og við hönnun hans þurfti að taka tillit til þess að hægt verði að nýta húsið í framtíðinni til ann- arrar starfsemi ef ekki ‘er lengur þörf á skóla á svæðinu. Hér er um að ræða hús sem tengst gæti þjón- ustu í þágu aldraðra. Forsendur skólans em tveir bekkir í árgangi 7—9 ára bama að viðbættum for- skóla fyrir 6 og hugsanlega 5 ára böm. Sérstakar útgöngudyr em á einni kennslustofunni þannig að hægt er að fara t.d. með yngstu bömin beint út á leiksvæði ef þess er óskað. Miðrými er rúmgott og hátt til lofts við útvegg þannig að birta fæst inn í það. Bókasafn er tengt hópherbergi og vinnuherbergi kennara. Kennslustofur em 5 og hafa allar sérstakt salemi. Kennar- ar em mjög hlynntir því að hafa salemi við skólastofuna einkum hjá yngstu bömunum, enda dregur það úr rápi og ónæði á göngum. Við hönnun var leitast við að hafa skólann hlýlegan og fallegan að innan þannig að nemendum og kennumm líði vel á sínum vinnu- stað. Selásskóli Selásskóli verður með tvo bekki í árgangi heilstæður gmnnskóli með um 500 nemendur. Iþróttahús verður byggt við skólann. Búið er að ráða skólastjóra við báða skólana og em það Kristjana Kristjánsdóttir á Granda og Kristin Tryggvadóttir í Selási. Báðar dugmiklir skóla- menn. Ég mun ekki fjölyrða um Foldaskóla hér en vísa til greinar minnar í bókinni Framtíðin í okkar höndum, sem Hvöt og Landssam- band sjálfstæðiskvenna gáfu út í lok siðasta árs. Grunnskólinn færist til sveitarf élag’anna 2. Gmnnskólinn þarf að færast alfarið til sveitarfélaganna. Það er heppilegt vegna nálægðar við þau vandamál sem leysa þarf á hveijum tíma. Það ieiðir af sér hagkvæmni og auðveldar allt skipulag. Það er alltaf erfiðara að eiga við tvo herra en einn. Verður vikið nánar að þessum þætti siðar. Breyttur vinnutími kennara 3. Mikilvægt er að breyting verði á vinnutíma kennara þannig að þeir sem em í fullu starfí séu í skólunum á starfstíma hans t.d. kl. 8—4. Víða skortir á að aðstaðan í skólunum sé nægjanlega góð, en einnig má segja að hér séu gerðar miklar kröfur. Ef litið er til Banda- ríkjanna viða þá láta kennarar sér nægja minna rými en almennt gerist hér í Reykjavík. Segja má að þessi breyting ráði miklu um það hvort hægt verður að lengja viðvem bama í skólanum. Ef aftur er vikið að Bandaríkjunum þá er viðveran víða leyst með vinnu foreldra en þar em gerðar miklar kröfur til þeirra. Við vitum að slíkt gengi ekki nema að litlu leyti hér vegna útivinnu foreldra. Skóla- stjómir, sem í ættu sæti fulltrúar foreldra gætu án efa stuðlað að aukinni samvinnu skóla og heimila. Fjölmargt fleira mætti nefna svo sem spuminguna um það hvaða menntun starfslið sem til starfa kemur við skólana á tímum utan kennslustunda eigi að hafa. Sumir vilja eingöngu fóstmr, aðrir kenn- ara, en ég tel að leysa megi þetta með því að fá húsmæður til starfa, sem vilja vinna hluta úr degi. Vandamál sem þessi og hvað verð- lagningu snertir á viðbótarþjónustu skólanna á hver skóli að leysa fyrir sig. Það er einfaldast og best. Höfundurer varaformaður Fneðsluráðs Reykjavíkur og for- maður hönnunamefudar Folda- skóla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.