Morgunblaðið - 30.05.1986, Qupperneq 19
(f)i>\fTiTTTJ'T*íf'tfi* 'ífT'^'I'K1 iWtK***ft WW'ÍV5VKWF
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
19
50.000 einstaklingar
á gervigrasvellinum
eftir Júlíus
Hafstein
Borgarstjómarkosningar verða á
laugardaginn eins og öllum ætti að
vera Ijóst. Hér í Reykjavík verður
kosið um það, hvort í borginni
verður áfram styrk stjóm sjálfstæð-
ismanna, eða hvort hér muni ráða
ríkjum sundurlynd vinstri öfl. Við
sjálfstæðismenn leggjum óhræddir
verk okkar í dóm kjósenda, enda
sýnir starf okkar síðasta lq'örtímabil
að Sjálfstæðisflokknum er einum
treystandi til að fara með stjóm
höfiiðborgarinnar. í þessari grein
ætla ég að fjalla um íþróttamál í
Reykjavík — hverju okkur hefur
tekist að hrinda í framkvæmd á
því kjörtímabili sem nú er að ljúka
og einnig að lýsa þeim málum sem
sjálfstæðismenn munu hrinda í
framkvæmd á næsta kjörtímabili,
fái flokkurinn til þess styrk.
Öllum sem fylgjast með íþrótta-
málum í Reykjavík er kunnugt um
það hve illa var búið að íþróttum
árin 1978 til 1982, þegar vinstri
flokkamir undir forystu Alþýðu-
bandalagsins vom við stjómvölinn
í Reykjavík. Þá voru framkvæmdir
í íþróttamálum í algem lágmarki
og íþróttahreyfingunni haldið í fjár-
svelti svo að í algert óefni steftidi.
Deyfð og doði þessara ára sýnir
stefnu vinstri flokkanna í íþrótta-
málum í hnotskum, svo ekki sé
minnst á afstöðu Alþýðubandalags-
ins til íþrótta sem oft hefur verið
beinlínis fjandsamleg.
Stóðum við stóru orðin
Eftir borgarstjómarkosningam-
ar árið 1982, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn náði meirihluta í borg-
inni á ný, mótuðu fulltrúar flokksins
stefnuna fyrir þetta kjörtímabil og
hefur þeirri stefnu verið fylgt eftir.
Ákveðið var að standa myndarlega
að uppbyggingu á íþróttamann-
virkjum í Reykjavík, bæði fyrir
keppnisfólk og almenning. Við það
hefur verið staðið. Ákveðið var að
veita íþróttafélögum hærri rekstr-
arstyrki og einnig að auka fjár-
stuðning til framkvæmda. Þetta
hefur verið gert. Ennfremur var
ákveðið að koma á einhverri sam-
nýtingu á félagsaðstöðu á íþrótta-
svæðum og hefur það verið gert
og er nýbyggt KR-heimili við
Frostaskjól gott dæmi um það. En
það sem er þó mest um vert, er það
að nú er góður skilningur hjá borg-
aryfirvöidum á þörfum íþrótta-
hreyfíngarinnar og þar er fullur
vilji til að mæta óskum hennar á
sem flestum sviðum.
í stuttri blaðagrein er ekki rúm
til að tíunda öll verk meirihluta
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í
íþróttamálum, en hér verður aðeins
drepið á helstu atriðin.
Ný stólalyfta í Bláfjöllum
Tekin hefur verið í notkun ný
stólalyfta í Bláflöllum og hefur til-
koma hennar stórbætt alla aðstöðu
til skfðaiðkunar á þessu helsta
skíðasvæði Reykvíkinga. Langar
biðraðir við skíðalyftumar hafa
styst að mun, enda þótt stöðugt
fjölgi iðkendum skíðaíþróttarinnar
í Reykjavík og gestir í Bláfj'öllum
séu fleiri með hveiju árinu.
Þá hefur þjónustumiðstöðin verið
endurbætt og ný tæki hafa verið
tekin í notkun, eins og snjótroðari
til dæmis, í þeim tilgangi að bæta
þjónustuna við ört stækkandi hóp
skíðaáhugafólks.
Ge rvigras vö llurinn —
eitt vinsælasta íþrótta-
mannvirkið
Eins og menn muna börðust
vinstri flokkamir í Reykjavfk, með
Alþýðubandalagið í broddi fylking-
ar, hatrammlega gegn gervigras-
vellinum f Laugardal. Þegar ákveðið
var að leggja gervigras á Hallarflöt-
ina umtumuðust fulltrúar þessara
flokka gjörsamlega og í málgögnum
þeirra birtist hver breiðsfðan eftir
aðra, þar sem tíundað var hvílíkt
hneyksli þessi framkvæmd væri.
Því var haldið fram að vegna gervi-
grassins væri útséð með að endur-
bætur við sundlaugamar í Laugar-
dal kæmust í gagnið á næstu árum.
Því er þetta rifjað upp, að f
þessari kosningabaráttu vekur sér-
staka athygli hin æpandi þögn
vinstri flokkanna um sundlaugam-
ar í Laugardal og gervigrasvöllinn,
enda hefur komið í ljós að hrakspár
þeirra og úrtölur hafa reynst al-
rangar og byggðar á miklum mis-
skilningi.
Gervigrasvöllurinn hefur reynst
mjög vinsæll og hafa alls um 50
þúsund manns æft og spilað á vell-
inum, frá þvf hann var tekinn í
notkun í október 1984. Hefur völl-
urinn verið leigður út í 2.500 til
3.000 klukkustundir á ári, sem er
meira en þekkist á sambærilegum
völlum erlendis. Til gamans má
nefna það til samanburðar að aðal-
leikvangurinn í Laugardal er leigð-
ur út í 50 til 70 klukkustundir á ári.
Þegar þetta er skoðað er ekki
að undra þögn Alþýðubandalagsins
og hinna vinstri flokkanna sem
börðust hvað hatrammlegast gegn
gervigrasvellinum á sínum tíma,
því það hefur komið f ljós að brýn
þörf var á byggingu þessa vallar
og hann er mikil lyftistöng fyrir
knattspymuiðkun hér í Reykjavík.
Það er ekki skrítið að vinstri flokk-
amir vilji helst af öllu gleyma því
að það vom þeir sem börðust af
hörku gegn því að gervigrasvöllur-
inn í Laugardal yrði til.
Ný og glæsileg aðstaða
við Laugardalslaugina
Nú hefur ný og fullkomin bað-
og búningsaðstaða verið tekin í
notkun við sundlaugamar í Laug-
ardal. Eins og menn muna fullyrtu
vinstri flokkamir að bygging knatt-
spymuvallar með gervigrasi þýddi
það að menn þyrftu að bíða ámm
saman eftir bættri aðstöðu við
Laugardalslaugina. Þetta, eins og
annað í málflutningi vinstri flokk-
anna í borgarmálum, hefur rejmst
alrangt, enda hefur reynslan sann-
að það og reynslan er ólygnust í
þessu máli sem öðmm.
í nýbyggingunni er auk bað- og
búningsklefa rúmgóð aðstaða fyrir
móttöku gesta, skáli, kaffistofa og
snyrtiherbergi. Þá nýtist það rými
sem f eldri byggingunni er til ýmissa
þátta í íþróttaiðkun, svo sem til
þrekæfinga og einnig verður þar
fullkomin búnings- og snyrtiað-
staða fyrir fatlaða. Þá verður kjall-
aranum undir nýju byggingunni
ráðstafað til íþróttafélaga. Oþarfi
ætti að vera að nefna nýjan heitan
pott við sundlaugina, en hann nýtur
mikilla vinsælda.
Af öðmm framkvæmdum núver-
andi borgarstjómarmeirihluta f
íþróttamálum má meðal annars
nefna endurbætur á fijálsíþróttaað-
stöðu á Valbjamarvöllum í Laug-
ardal og byggingu áhorfendastúku
þar. Viðbótarsundlaug hefur verið
reist við Breiðholtslaugina og ný
böð og búningsklefar hafa verið
byggðir við sundlaug Breiðholts-
skólinn) verði gert að menning-
armiðstöð.
• Dvalarrýmum fyrir aldraða
verði fjölgað og hafin verði
bygging nýs dvalarheimilis.
Reynsla liðinna ára
Af reynslu liðinna ára er augljóst
að það er fullkomlega tímabært
fyrir Akureyringa að huga vandlega
að því hvort ekki sé skynsamlegt
að veita nýjum aðilum tækifæri til
að hafa fomstu í bæjarmálum. Eins
og vikið var að hér að framan er
augljóst að þetta vildu Akureyring-
ar síðast þegar gengið var að kjör-
borðinu 1982 og Sjálfstæðismenn
og Kvennaframboðið unnu mikinn
kosningasigur. Því miður áttuðu
margir sig ekki á því að með víð-
tækum stuðningi við Kvennafram-
boðið var verið að styðja áfram-
haldandi vinstri stjórn í málefnum
bæjarins. Alþýðuflokkurinn tók þátt
í meirihlutaviðræðunum og minnstu
munaði að hann stæði einnig að
núverandi meirihluta. Þetta er vert
að benda á þegar óákveðnir kjós-
endur gera upp hug sinn á síðustu
dögum fyrir kosningar.
Það er augljóst af reynslu liðinna
ára að allir aðrir flokkar munu
íhuga það gaumgæfílega að endur-
vekja vinstra samstarf að kosning-
um loknum nema Sjálfstæðisflokk-
urinn fái það afgerandi stuðning
að augljóst sé hver vilji kjósenda er.
Kjósendur hafa því ekki nema tvo
valkosti f þessum kosningum.
Áframhaldandi vinstra samstarf og
sömu vinnubrögð í bæjarmálum
annarsvegar eða nýtt afl til fram-
fara undir forustu Sjálfstæðis-
manna. Þessa staðreynd er nauð-
synlegt að gera sér ljósa. Stuðning-
ur við framboð Sjálfstæðismanna
er því eini raunhæfí möguleikinn
til breytinga.
Nýir kjósendur
Sú mikla breyting sem verður í
þessum kosningum vegna lækkunar
kosningaaldurs mun hafa mikil
áhrif á niðurstöður kosninganna.
Það er mikilvægt að þessi stóri
hópur sem hefur kjörgengi til bæj-
arstjómarkosninga í fyrsta sinn átti
sig á mikilvægi þess að notfæra sér
þennan rétt. Ég hvet þetta unga
fólk til að taka afstöðu S þessum
kosningum og með þeim hætti hafa
áhrif á sín mál. Ungu fólki finnst
sjálfsagt að störf frambjóðenda
fyrir kosningar séu innantómt hjal
og smeðjuháttur gagnvart kjósend-
um í nokkra daga fyrir kosningar.
Þetta er oft á tfðum rétt mynd sem
dregin er upp, en hins ber að geta
að kosningar eru mikilsverð mann-
réttindi í lýðræðisþjóðfélagi, sem
ber að virða og niðurstöður kosn-
inga verða því marktækari sem
fleiri taka þátt í þeim.
Framanritað gefur ekki tæmandi
lýsingu á því ástandi sem á Akur-
eyri ríkir eða fullnægjandi svör við
því sem telja verður mikilvægt fyrir
kjósendur að vita áður en að kjör-
borði er gengið. ítarlegri stefnuskrá
okkar hefur verið dreift í öll hús
og þar er nánar vikið að einstökum
málum og málaflokkum. Ég er
sannfærður um það að öflugur
stuðningur við framboð Sjálfstæðis-
manna í þessum bæjarstjómarkosn-
ingum á Akureyri er skref til efling-
ar Akureyrar. Stuðningur við fram-
boðslista Sjálfstæðismanna tryggir
breytingar í stað áframhaldandi
stöðnunar. Látum því 31. maí verða
sigurdag fyrir Akureyri. Sigur í
þessum kosningum er sigur á stöðn-
un og afturför.
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks á Akureyri.
Júlíus Hafstein
„Sjálfstæðisflokkurinn
mun leggja sérstaka
áherslu á að auka veru-
lega aðstoð við íþrótta-
félögin, sérstaklega til
uppbyggingar íþrótta-
og félagsaðstöðu á fé-
lagssvæðum þeirra. Sú
reynsla sem fengist
hefur af uppbyggingu
með þessum hætti á
íþróttasvæðum KR og
Þróttar er góð að mati
allra aðila og teljum við
skynsamlegt að halda
áfram á þessari braut.“
skóla. Einnig hefur verið opnað nýtt
alhliða íþróttahús við Seljaskóla.
Hvað er framundan?
Það er ljóst að í kosningunum á
laugardaginn stendur valið á milli
Sjálfstæðisflokksins annars vegar
og vinstri flokkanna hins vegar.
En í raun velja kjósendur um það,
hvort þeir vilja hafa áfram styrka
stjóm Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, eða sundurlynda stjóm
fjögurra til fimm vinstri flokka.
Þriggja flokka vinstri stjóm rejmd-
ist afleitlega, hvemig mjmdi þurs-
inn rejmast með flögur eða jafnvel
fimm höfuð?
Enginn ætti að velkjast í vafa
um það hvað mun gerast, fái Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki meirihluta-
fylgi í kosningunum.
En það sem við sjálfstæðismenn
ætlum að gera að kosningum lokn-
um i íþróttamálum, fáum við til
þess traust, er að halda áfram
markvissri uppbyggingu í íþrótta-
málum í Reykjavík.
Af einstökum málum sem verða
á verkefnaskránni á næsta kjör-
tímabili er rétt að nefna að undir-
búin verður bygging sundlaugar
fyrir Árbæjar-, Selás- og Ártúns-
holtshverfi, ný skólasundlaug við
Ölduselsskóla verður á dagskrá og
nýtt íþróttahús við fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, en brýn þörf er
nú á slíku húsi og mjmdi húsið
nýtast Hólabrekkuskóla einnig. Þá
verður unnið að því að koma upp
vélfrystu skautasvelli í Laugardal.
Loks verður að geta um nauðsyn
þess að halda áfram af krafti við
umbætur á skíðasvæðum Reykvík-
inga, ekki síst með lagningu not-
hæfra vetrarvega og bættri þjón-
ustu á svæðunum.
Forgangs verkefnin
Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja
sérstaka áherslu á að auka verulega
aðstoð við íþróttafélögin, sérstak-
iega til uppbyggingar íþrótta- og
félagsaðstöðu á félagssvæðum
þeirra. Sú rejmsla sem fengist hefur
af uppbyggingu með þessum hætti
á íþróttasvæðum KR og Þróttar er
góð að mati allra aðila og teljum
við skynsamlegt að halda áfram á
þessari braut. Enda er það nauðsjm-
legt hveiju félagi að hafa aðstöðu
til að sinna margvíslegum verkefn-
um félaga sinna.
Síðast en ekki síst verður að
nefna að Sjálfstæðisflokkurinn mun
halda áfram störfum við uppbygg-
ingu og endurbætur á íþróttamann-
virkjunum í Laugardal, þannig að
Laugardalurinn standi undir nafni
sem íþróttamiðstöð höfuðborgar-
innar. Flokkurinn mun aldrei ljá
máls á því að þrengja að þessu
helsta íþrótta- og útivistarsvæði
borgarinnar með byggingu íbúða-
eða atvinnuhúsnæðis, eins og
vinstri flokkamir höfðu á prjónun-
um á síðasta kjörtímabili. Áfram
skal haldið á þeirri braut að byggja
upp aðstöðu til íþróttaiðkunar, bæði
fyrir almenning og keppnisfólk og
gera Laugardalinn að alhliða
íþrótta,- útivistar og skemmtisvæði
Reykvíkinga.
Óþarfi ætti að vera að taka það
fram eftir þessa upptalningu, að
Sjálfstæðisflokkurinn er eini stjóm-
málaflokkurinn sem er með
raunsæja og markvissa stefnu í
íþróttamálum í borginni. Það sýna
verkin á þessu kjörtímabili sem nú
er að ljúka. Eini raunhæfi valkost-
urinn í kosningunum á laugardag-
inn er Sjálfstæðisflokkurinn og ég
hvet alla Reykvíkinga og ekki síst
íþróttafólk til þess að fjölmenna á
kjörstað og tryggja flokknum
brautargengi í þessum kosningum.
Því reynslan sýnir, að atkvasði
greitt Sjálfstæðisflokknum, er ávís-
un á árangur!
Höfundur skipar 8. sæti á fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins við
borgarstjómarkosningar á morg-
Sjómannadagurinn haldinn
á „réttum tíma“ á Höfn
Höf n í Homafírði.
SJÓMENN á Höfn í Horna-
firði hafa ákveðið að halda
sjómannadaginn hátíðlegan á
réttum tíma, það er 1. sunnu-
dag í júní, þrátt fyrir að sveit-
arstjórnarkosningaraar beri
upp á þá helgi. Var þetta
samþykkt á fundi sjómanna
þann 17. maí og taldi sjó-
mannadagsráðið á Höfn að
þvi bæri að framfylgja vilja
sjómanna.
Að sögn Bjöms Grétars
Sveinssonar formanns Verka-
lýðsfélagsins Jökuls er það sem
sjómenn sætta sig ekki við að
þama er verið að fara inn í
kjarasamninga um humarveið-
ar, sem var gerður miðað við
þær forsendur að sjómannadag-
ur yrði haldinn 1. sunnudag í
júní. Einnig vilja sjómenn fá sinn
hátíðisdag lögleiddan. „Við
höldum okkar sjómannadag með
pompi og prakt kosningahelg-
ina,“ sagði Bjöm Grétar.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!