Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
Fella- og Hólahverfi:
Fjallkonur
selja blóm
KVENFÉLAGIÐ Fjallkonurn-
ar í Fella- og Hólahverfi efnir
til blómasölu til ágóða fyrir
Fella- og Hólakirkju í dag og
á morgun.
Síðdegis í dag ganga kon-
urnar í hús til að selja blóm
og á morgun, kosningadag,
verða þær við Fellaskóla og
bjóða blóm sín til sölu.
Blómasala kvenfélagsins er nú
orðin árlegur viðburður í starf-
semi þess í sambandi við fjáröflun
fyrir kirkjuna. En kvenfélagskon-
ur hafa, eins og íbúar hverfisins
vita, unnið ötullega að því að
Fella- og Hólakirkja megi verða
fullbúin sem fyrst. Eiga þær
mikla þakkir skilið fyrir það.
Ég hvet alla sem til verður
leitað að taka vel á móti konunum
og sömuleiðis hvet ég þá er til
kosninga ganga að kjósa nú um
leið gott málefni með því að
kaupa blóm til ágóða fyrir kirkju
sína.
Hreinn Hjartarson
"f
Fyrstu vistmenn flytja inn
í dvalarheimilið Seljahlíð
FYRSTU vistmenn á dvalar-
heimilinu Seljahlíð við Hjallasel
55 flytja inn 1. júní næstkomandi.
María Gísladóttir, forstöðumað-
ur heimilisins, sagði að vistmenn
yrðu 79 og munu búa i 60 ein-
staklingsíbúðum og 10 hjóna-
íbúðum.
Guðmundur Pálmi Kristinsson,
hjá borgarverkfræðingi, sagði að
einstaklingsíbúðimar væru 24 fer-
metrar að stærð en hjónaíbúðimar
58 fermetrar. Á fyrstu hæð og í
kjallara er þjónustumiðstöð með
mötuneyti, sjúkraþjálfun, fótsnyrt-
ing, hjúkran, setustofa og fleira. í
garðinum er heitur nuddpottur.
í Hjallaseli 19—53 era 18 þjón-
ustuíbúðir sem Reykjavíkurborg
hefur látið smíða og selja. íbúar
eiga kost á sömu þjónustu frá Selja-
hlíð og vistmenn þar.
Fyrsta íbúðin var afhent í þessari
viku. Hjörtur Hjartarson, deildar-
stjóri á skrifstofu borgarinnar,
sagði í gær að verið væri að ganga
frá öðram samningum. Þetta era 9
parhús við Hjallaveg 19 til 53 og
er hver fbúð 70 fermetrar; stofa,
svefnherbergi, eldhús, baðherbergi
og geymsla. Kaupverð er 3,2 millj-
ónir. Húsnæðisstofnun veitir kaup-
endum 916 þúsund króna lán, en
250 þúsund eru greiddar við undir-
ritun samnings, 1860 þúsund era
greiddar á 16 mánuðum og er lánið
vaxtalaust. Það sem eftir stendur
lánar Reykjavíkurborgtil sex ára.
Þeir þekkjast sem fremstir fara