Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
21
'+
%
33 starfsstúlkur dagheimila hækka
um tvo launaflokka eftir námskeið
Morgunblaðið/Bjami
Starfsstúlkumar, nýútskrifaðar af námskeiðinu. Myndin er tekin
fyrir framan Miðbæjarskólann, en þar fór kennslan fram.
FYRSTA námskeiðinu, sem
haldið hefur verið á vegum
borgarinnar fyrir starfsfólk á
barnaheimilum, lauk i vikunni
og útskrifuðust þá 33 starfs-
stúlkur. Við það hækka þær um
tvo launaflokka samkvæmt
Sóknartaxta. Af tilefninu hélt
borgarstjóri þeim boð i Höfða.
„Þetta er langþráður draumur
sem er að rætast,“ sagði Aðal-
heiður Bjamfreðsdóttir, formaður
Sóknar, í samtali við blaðamann,
„og geri ég fastlega ráð fyrir að
áframhald verði á námskeiðunum
ef marka má ummæli borgarstjóra
í Morgunblaðinu 27. maí. Almenn
ánægja ríkti meðal kvennanna
með námskeiðahaldið og allt
skipulag, sem var í höndum skóla-
stjóra Námsflokka Reykjavíkur,
Guðrúnar Halldórsdóttur."
Námskeiðið hófst 28. apríl sl.
Það stóð yfir í 100 tíma og er þar
með lengsta námskeiðið sem hald-
ið hefur verið fyrir Sóknarfólk.
Aðalheiður sagði jafnframt að
einnig væri þetta í fyrsta sinn sem
starfsfólki væri boðið upp á nám-
skeið í vinnutímanum, en annars
hefðu námskeiðin á vegum borg-
arinnar ævinlega verið haldin í
frítíma starfsfólks og hefði megn
óánægja ríkt með það fyrirkomu-
lag.
Starfsstúlkumar, sem lokið
hafa námskeiðinu, hækka í laun-
um um rúmlega 3.000 krónur og
eru laun flestra þeirra nú um
27.800 krónur. Hæst geta þær
farið sem hafa 15 ára starfsaldur
og eru yfírmenn deilda - þær fá
nú um 29.700 krónur í mánaðar-
laun, að sögn Aðalheiðar.
Valtýr Pétursson við málverk á síðustu sýningu sinni á Kjarvalsstöð-
um.
Listasafn Borgarness:
44 myndir eftir Valtý
Pétursson á vorsýningu
Borgarnesi.
VORSÝNING Lástasafns Borgar-
ness 1986 hefst klukkan 18 í dag,
föstudaginn 30. maí, í Grunnskóia
Borgamess og stendur til sunnu-
dagskvölds 1. júní. Listasafnið sýnir
að þessu sinni 44 myndir eftir hinn
kunna listmálara Valtý Pétursson.
Valtýr var á heiðurslaunum hjá
Reykjavíkurborg 1985. Hann var
síðast með sýningu á Kjarvalsstöð-
um sem lauk þann 6. apríl síðastlið-
inn.
- TKÞ
Minningarsjóður Sam-
taka um kvennaathvarf
SAMTÖK um kvennaathvarf
hafa nýlega látið gera minning-
arkort og mun það fé sem þannig
kemur inn renna óskert til
rekstrar Kvennaathvarfsins.
Nokkrar gjafir hafa þegar bor-
ist.
Kortin eru afgreidd á tveim stöð-
um, Reykjavíkurapóteki og á skrif-
stofu samtakanna í Hlaðvarpanum
á Vesturgötu 3, 2. hæð, sem er
opin alla virka daga árdegis kl.
10—12 (og stundum lengur). Þeir
sem þess óska geta hringt á skrif-
stofuna og fengið senda gíróseðla
fyrir greiðslunni. Síminn er 23720.
(Fréttatílkynnmg)
Shm premium bensín
t