Morgunblaðið - 30.05.1986, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
23
stjómmálaflokkanna í landsmálum.
Það væri sterkri fjármálastjóm
Sjálfstæðisflokksins að þakka að
nú væri íjármálastjóm landsins
komin á fastan gmnn og kvað hann
Alþýðubandalagsmenn mega hafa
það hugfast, hvemig sá flokkur
hefði skert launin 14 sinnum í
stjómartíð þess með valdboðum.
Hann gerði síðan góðlátlegt grín
að spumingalista Alþýðuflokks,
sem sendur hefði verið í hús í
bænum, og kvaðst ekki hafa talið
neina — nema framsóknarmenn —
geta spurt slíkra spuminga.
Næst á dagskrá voru fyrirspum-
ir. Hver flokkur fékk fimm mínútur
til að svara þeim. Spumingamar
verða ekki raktar hér né einstök
svör, en þær fjölluðu um dagvistar-
mál, um afstöðu til 30 þús. kr. lág-
markslauna, Hitaveitu Akraness,
Fjölbrautaskólann, fjármál, hús-
næðismál Tónlistarskólans, félags-
aðstöðu unglinga, málefni öryrkja
o.fl. Ein spuming barst í bundnu
máli til eins frambjóðenda Alþýðu-
flokksins og var hún svohljóðandi:
Eruð þið kratar aðcins hjómið,
sem athugið ekki nokkur gögn.
Og af hveiju drepur þú blessað blómið
barasta til þess að skreyta þig ögn?
„Höldum áfram traustri
fjármálastjórn“
í lok fundarins fékk hver flokkur
fímm mínútur til lokaræðu. Oddviti
sjálfstæðismanna, Guðjón Guð-
mundsson, var ræðumaður þess
flokks. Hann fjallaði fyrst um ýmis-
legt af því sem fram hafði komið,
m.a. samninginn við ríkið um skóla-
byggingar. Hann sagði m.a. að sú
ádeila að sjálfstæðismenn hefðu
ekki verið nógu duglegir við að
notfæra sér það að eiga ráðherra í
ríkisstjóm væri hrakin með þessum
samningi. Varðandi ádeilu á Hag-
virki benti hann á að ræðumaður
Alþýðuflokksins, sem haldið hefði
henni uppi, hefði samþykkt sjálfur
þær framkvæmdir í bæjarráði.
Hann kvað fjármál bæjarins ekki
verri en annarra bæjarfélaga, rekja
mætti bága stöðu þeirra til mikillar
óðaverðbólgu í upphafí kjörtíma-
bilsins og erfíðast væri fyrir sveitar-
félögin við þær aðstæður, því flestir
Itekjustofnar þeirra væm óverð-
Itiyggðir. Varðandi það að Akranes
væri láglaunasvæði sagði hann að
meðaltalslaun þar væra 7% yfír
landsmeðaltali, aftur á móti væra
tekjur kaupstaðarins sjálfs lágar
miðað við landsmeðaltal. Atvinnu á
Akranesi sagði hann næga, því til
sanninda sagði hann að aðeins
hefðu 17 manns verið á atvinnuleys-
isskrá um síðustu mánaðamót.
Þætti það gott miðað við hvemig
staðið væri að þeirri skráningu.
Sagði hann Sjálfstæðisflokkinn
ætla að halda áfram traustri fjár-
málastjóm. Flokkurinn ætlaði sér
að halda sínum fjórða manni og í
lok ræðu sinnar beindi hann orðum
sínum til ungs fólks, sem kysi nk.
laugardag í fyrsta sinn. Sagði hann
að með því að styðja Sjálfstæðis-
flokkinn kæmist Qórði maður list-
ans, ungur maður, í bæjarstjóm,
en hann hefði unnið mikið og gott
starf.
„Þakka ber þeim sem
þakkir eru skyldar“
Ingibjörg Pálmadóttir var
ræðumaður FVamsóknarflokksins.
Hún byijaði einnig á að svara fram-
komnum ádeilum. Þá sagði hún að
hver kosningabarátta ætti að hefj-
ast daginn eftir kjördag en ekki
síðustu daga fyrir hveijar kosning-
ar. Hún gerði samninginn við ríkið
að umræðuefni og sagði að hann
bæri að þakka öllum þeim sem
þakkir væra skyldar. Sér væri þetta
sérstaklega mikið fagnaðarefni sem
skólanefndarmanni, og málið væri
alls ekki eingöngu sjálfstæðismönn-
um að þakka. Rétt væri rétt, en
sjálfstæðismenn mættu alveg hrósa
sér af þessu. Þá hvatti hún Akur-
nesinga til að íhuga vel framboðin
áður en þeir tækju ákvörðun við
kjörborðin á morgun, laugardag.
„Stefnan er að gera þjóö-
félagið manneslgulegra“
M-listinn, Flokkur mannsins,
tefldi fram Smára Hannessyni.
Hann sagði flokkinn setja á oddinn
öll mál sem vörðuðu efnahagsmál
fólks, því vildi hann 30 þúsund kr.
lágmarkslaun. Þá vildi flokkurinn
að komið væri á kaupleiguhúsnæði
fyrir launafólk. Dagheimilisgjöld
ætti að lækka um helming og greiða
ætti húsmæðram laun fyrir að vera
heima með börn sín. Kjami málsins
við framboð flokksins væri sú
stefna flokksins að gera þjóðfélagið
manneskjulegra með því að treysta
efnahagslega afkomu fólks.
„ Vonumst til að fá tvo
bæjarfulltrúa“
Jóhann Ársælsson talaði fyrir
hönd Alþýðubandalags. Sagði hann
m.a. að það væri skemmtilegt að
heyra sjálfstæðismenn telja það
afrek að semja við sína eigin menn
í ríkisstjóm. Hann rakti síðan ýmis
stefnumál flokks síns m.a. í at-
vinnumálum og sagði flokkinn
leggja til að starfsemi fram-
kvæmdasjóðs Akraness yrði tekin
til endurskoðunar með það fyrir
augum að gera hann að öflugu .
tæki til atvinnuuppbyggingar. í lok
ræðu sinnar kvaðst hann vonast til
að Alþýðubandalagið fengi tvo
menn inn í bæjarstjóm, þakkaði
hann síðan fundarmönnumn kom-
juna og rólegt yfirbragð fundarins.
„Við rOdsvaldið að sak-
ast - ekki bæjarstjóm“
Af hálfu Alþýðuflokks flutti Ing-
var Ingvarsson lokaræðuna. Hann
varði dijúgum tíma til að svara
framkomnum fullyrðingum. Hann
sagðist vilja vekja athygli á lið í
stefnuskrá flokks síns sem varðaði
starfshætti bæjarstjómar og kvað
seinagang í afgreiðslum óþolandi.
Það væriJiður sem betrumbæta
yrði með góðri samvinnu bæjarfull-
trúa. Þá sagði hann húsnæðismál
hvað brýnust úrlausnar, en þar
væri við ríkisvaldið að sakast en
ekki bæjarstjóm. Hann þakkaði í
lokin fundarstjóram fyrir ágæt
störf.
Fundarstjórar lásu í lokin svar
eins Alþýðuflokksmanns við fram-
kominni fyrirspum í bundnu máli,
en svarið var þannig:
Andstæðinga dugur dvín,
daprast þeirra orkuljós.
Öfiindin úr augum skín
allir dást að kratarós.
Texti: Fríða Proppé
Ljósm.: Júlíus Sigurjónsson
FLOKKUR
mannsins
ÚTIFUNDUR Á
LÆKJAR TORGI
ÍDAGKL. 17.00.
Nýtt fólk í
borgarstjórn
Ræðumenn: 3 efstu menn á
framboðslista Flokks manns-
ins Áshildur Jónsdóttir, Júl-
íus Valdimarsson, Þór Vík-
ingsson.
Ávarp: Pétur Guðjónsson,
formaður flokksins.
Mannsæmandi laun - Manneskjuleg borg
Kjósum fíokk mannsins íborgarstjóm