Morgunblaðið - 30.05.1986, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ1986
+
Blý- og zinknáma verði lýst gjaldþrota:
Eina ráðið til að halda
áfram rekstri námunnar
— segir Tom Höyem
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, Grænlandsfréttaritara Morgunblaðsins.
DANSKI Grænlandsmálaráðherrann, Tom Höyem, hefur
krafist þess að námafyrirtækið Greenex verði lýst gjald-
þrota. Greenex rekur blý- og zinknámuna Marmorilik við
Umanak á norðvesturströnd Grænlands. Landsréttur
Grænlendinga fjallar um beiðnina um að fyrirtækið verði
lýst gjaldþrota á fimmtudag.
Höyem fór fram á að fyrirtækið
yrði lýst gjaldþrota vegna þess að
Greenex hefur tilkynnt að námunni
yrði lokað. Það borgi sig ekki lengur
að reka hana vegna lækkandi zink-
verðs. Kanadíska móðurfyrirtækið
Cominco sendi fyrr á þessu ári 35
milljónir dollara til grænlensku
námunnar. Cominco neitaði að
senda meira þegar þetta fé fór allt
í rekstur og ákvað Greenex þá að
loka námunni. Blý- og zinknáman
er stærsti vinnustaður á Grænlandi
og vinna þar 350 manns. Umanak-
sveitarfélagið hefur helming tekna
sinna af skattheimtu af starfsmönn-
um við námuna.
Danska Grænlandsmálaráðu-
neytið reyndi að komast að sam-
komulagi við ýmsa aðilja um að
halda áfram rekstri námunnar eftir
að tilkynnt var að henni ætti að
loka. Bæði sænska fyrirtækið Bolid-
en og finnska fyrirtækið Outu-
kompu komu til greina, en Cominco
krafðist hærri upphæðar fyrir
hlutabréf í Greenex en Boliden vildi
greiða.
Höyem segir að þetta hafi verið
eina ráðið til að halda áfram rekstri
námunnar.
Áskorun frá 20 rithöfundum í Kína:
Ottast að allt að
600manns hafi farist
AÐFARANÓTT sl. mánudags hvolfdi tviþilja farþegafeiju I ofsaveðri á Bengalflóa. Var skipið á siglingu
með skemmtiferðarfólk á heimleið frá eyjunni Bhola á Bengalflóa til Dhaka, höfuðborgar Bangladesh.
Talið er, að um 1500 manns hafi verið með í þessari ferð, en feijan mátti mest taka 1000 farþega.
Um 200 lík hafa þegar fundist, en óttast er að allt að 600 manns hafi farist í slysinu. Eins og sjá má
á myndinni reyndu þeir, sem lifðu fyrstu byltuna af, að haldast við á kili skipsins, en sterkar vind-
hviður sviptu mörgum þeirra á brott.
Yilja lög til að
tryggja tjáfrelsi Sakharov býðst til
Peking. AP.
TUTTUGU af kunnustu rithöfundum Kína hafa hvatt til
þess, að sett verði lög til að tryggja, að rithöfundar, lista-
menn og vísindamenn hafi frelsi til að láta í ljós skoðanir
að hætta öllu andófi
sinar. Skýrði Xinhua, hin
frá þessu í gær.
Rithöfundamir halda því fram,
að slík stefna sé grundvallarþáttur
í kenningum marx-leninismans og
sósíalísku lýðræði. Báru þeir til-
lögu sína um hin nýju lög fram í
síðustu viku á ráðsteftiu, sem hald-
in var á vegum Dagblaðs alþýðunn-
ar, málgagns kínverska kommún-
istaflokksins. Var ráðstefnan hald-
in til þess að minnast 30 ára
afmælis „Hundrað blóma“-hreyf-
ingarinnar svonefndu, sem barðist
opinbera fréttastofa landsins,
fyrir frelsi menntamanna en varð
skammlíf.
Hreyfing þessi kom fram 1956
og dró nafn af hvatningarorðum
Maos formanns: „Lofum hundrað
blómum að blómstra og hundrað
hugmyndastefnum að keppa.“
Innan hreyfingarinnar skapaðist
víðtæk gagnrýni á kommúnista-
flokkinn, sem svaraði með því að
refsa menntamönnum fyrir að láta
í ljós skoðanir sinar.
Á ráðstefnu rithöfundanna nú
var því haldið fram, að ráðstafanir
yrði að gera til að hvetja og vemda
það fólk, sem starfaði sem frum-
kvöðlar á sviði vísinda, bókmennta
og lista.
Margir menntamenn í Kína voru
ofsóttir á dögum menningarbylt-
ingarinnar 1966—1976 og margir
þeirra eru enn mjög varkárir í að
tjá skoðanir sínar.
Hamborg’. AP.
SOVÉZKI andófsmaðurinn
Andrei D. Sakharov hefur boðist
til að hætta öllu andófi ef sovézk
yfirvöld leyfa honum að snúa
aftur til visinda- og fræðistarfa
í Moskvu. Þetta kemur fram í
viðtali, sem HeraJd Tribune á í
gær við stjúpdóttur Sakharovs,
Tatiönu Yankelevich.
Yankelevich segir Sakharov hafa
skrifað Mikhail Gorbachev, for-
manni sovézka kommúnistaflokks-
ins, bréf í júlí sl. þar sem hann
hefði boðist til að hætta andófsað-
gerðum gegn því að fá að heíja
aftur fræðistörf í Moskvu. Hún
sagðist hafa gert sér vonir um að
bréfið yrði alla vega til þess að
Sakharov og kona hans, Yelena
Bonner, fengju að snúa aftur til
Moskvu, þar sem þau áttu heimili
áður en þau voru dæmd til útlegðar
í Gorkí. Þau hafa verið í útlegð í
Gorkí frá því í janúar 1980, en
þangað voru þau send eftir að
Sakharov gagnrýndi innrás Sovét-
manna í Afganistan.
Yankelevich er búsett í Banda-
nkjunum, en er nú í Evrópu ásamt
móður sinni, sem snýr á mánudag-
inn til Moskvu eftir sex mánaða
dvöl á Vesturlöndum þar sem hún
leitaði sér lækninga. í gær var
fyrirhugaður fundur frú Bonner og
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, í London.
í bréfinu til Gorbachevs mun
Sakharov hafa áskilið sér rétt til
að „tjá sig um sérstök mál“, sem
upp kynnu að koma. Hann hefur
látið ýms mál til sín taka, t.d. af-
vopnunarmál, en ekki einskorðað
andóf sitt við mannréttindamál.
Vestur-þýzka blaðið Bild segist
í gær hafa fengið nýtt myndband
af Sakharov. Þar sést hann m.a. í
símaklefa og mun þá hafa verið að
tala við konu sína, sem stödd var
í Bandaríkjunum. Jafnframt sé á
því viðtal við Sakharov þar sem
hann svarar ýmsum spurningum
varðandi slysið í kjamorkuverinu í
Chemobyl 26. apríl sl.
Thailand:
20 létu lífið 1 skotárás-
um á búðir flóttamanna
Bangkok, Thailandi. AP.
SKOTARASIR voru gerðar á
Forfaðir pandabjarnarins fundinn
Sidney. AP.
VÍSINDAMAÐUR, sem rann-
sakað hefur steingervinga sem
fundust á Nýju-Gíneu fyrir 20
árum segir að þeir séu af risa-
vöxnum pokabirni, sem geti
verið forfaðir pandabjarnarins
hins kínverska.
Dýrið vó sennilega um 200 kíló,
lifði fyrst og fremst á bambusviði
og gekk um á afturfótunum í
hitabeltisskógum. „Þetta gerir
dýrið einstakt í sinni röð,“ segir
dr. Tim Flannery, steingervinga-
fræðingur í Ástralíu. „Þetta er
fyrsta vísbendingin um að risa-
pokadýr gætu lifað í þessu lofts-
lagi og farið ferða sinna upprétt,"
bætti hann við.
Flannery sagði að kolefnisrann-
sóknir bentu til þess að steingerv-
ingamir væm um 38 þúsund ára
gamlir. Segir hann að dýrinu hafi
greinilega verið útrýmt af veiði-
mönnum á steinaldarstigi. „Þetta
er stærsta dýr sem vitað er til að
hafi lifað á Nýju-Gíneu,“ sagði
hann.
Það vom fmmbyggjar á þess-
um slóðum sem fundu beinin fyrir
20 ámm, þegar unnið var að gerð
flugbrautar á eyjunni. Vegna hjá-
trúar vildu þeir ekki snerta þau
og eyðilögðu sum þeirra. Prestur
á svæðinu gerði sér hins vegar
grein fyrir vísindalegu gildi þeirra
og kom þeim í hendur vísinda-
manna. Þau lágu síðan ósnert á
safni í Ástralíu þangið til snemma
á þessu ári að hafist var handa
um að rannska þau.
flóttamannabúðir Kambódíu-
manna í Thailandi í gær, skammt
innan austurlandamæranna. Að
minnsta kosti 20 manns létu lífið
og 41 særðist i árásunum, að
sögn háttsetts starfsmanns
Rauða krossins.
Starfsmaður Alþjóðanefndar
Rauða krossins (ICRC) sagði, að
fyrir árásunum hefðu orðið búðir,
sem nefndin bæri ábyrgð á og sinnti
með læknisþjónustu.
Talið er, að víetnamskar her-
sveitir, sem aðseturhafa í Kambód-
íu, hafi staðið fyrir árásunum. Atta
flóttamannabúðir eru á þessu svæði
meðfram landamærum Thailands
ogKambódíu.