Morgunblaðið - 30.05.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
Gyðingar eru uggandi
vegna fólksfækkunar
Tel Aviv. AP.
MIKLAR umræður hafa orðið
í ísrael upp á síðkastið uin nýjar
tölur um gyðinga innan og utan
ísraels. Mörgum þykja þær
upplýsingar uggvænlegar. Það
kemur í ljós að gyðingum um
allan heim fer beinlinis fækk-
andi og gyðingar halda ekki i
við araba innnn ísraels og á
herteknu svæðunum, hvað
varðar fjölgun. Gætu arabar
verið orðnir i meirihluta upp úr
aldamótum, skv. spám.
í þeim er sagt að gyðingar í
ísrael séu að vísu enn í meirihluta,
en óðum saxist á þann mun og
hann gæti verið að engu orðinn
innan fárra áratuga. Nú búa 2,2
milljónir araba og 3,5 milljónir
gyðinga undir ísraelskri stjóm.
Aröbum fjölgar langtum meira,
arabísk hjón eiga oftast fimm til
átta böm, en æ fleiri gyðingaQöl-
skyldur eiga ekki nema tvö eða í
mesta lagi þijú böm.
Ríkisstjóm ísraels hefur látið
málið til sín taka og rætt það og
skiptar skoðanir meðal ráða-
manna hvað valdi. Yosef Burg
sem er trúmálaráðherra sagði að
ein ástæðan lægi í þvi hversu
auðvelt væri að fá fóstureyðingu
og á síðasta ári hefðu 20 þúsund
gyðingakonur f ísrael fengið
fóstureyðingu. Yitzak Peretz inn-
anríkisráðherra segir að skýringa
sé einnig að leita í því, að ýmsir
kristnir söfnuðir hafí hreiðrað um
Roberto Bachi, prófessor.
sig í ísrael og reyni að snúa fólki
frá gyðingatrú. Sömuleiðis séu
blönduð hjónabönd, bæði milli
gyðinga og araba og gyðinga og
kristinna, alltof algeng og ætti
að grípa til ráðstafana sem banni
slík hjónabönd. Peretz tók það
djúpt í árinni að segja að nauðsyn-
legt væri að skilja að arabísk böm
og gyðingaböm og hefta allan
samgang á milli þeirra strax í
bemsku.
Þeir sem em hvað lengst til
hægri í sljómmálum, eins og til
dæmis hinn umdeildi þingmaður
Meir Kahne, rabbí, hefur skoraði
á stjómvöld að leysa málið í eitt
skipti fyrir öll með því að hefja
fjöldabrottrekstur allra araba frá
Israel og frá herteknu svæðunum.
Skýrslu þessa, sem hefur komið
r^ti á hugi manna f ísrael og víð-
ar, vann prófessor Roberto Bachi
og sagði að af 110 þúsund lifandi
fæddum bömum f ísrael og á
herteknu svæðnum árið 1985,
hefðu 60 þúsund verið arabfsk og
50 þúsund gyðingaböm. Hann
spáir því einnig í skýrslunni að
gyðingum utan Israels muni einn-
ig fara fækkandi á næstu áratug-
um. Nú búa um 9,5 milljónir
gyðinga utan ísraels og segir
hann að tala þeirra muni varla
verða hærri en 8 milljónir um
aldamótin ef svo fari fram sem
horfi.
Ýmsir hófsamir þingmenn hafa
langt til að hafin verði áróðurs-
herferð innan ísraels fyrir því að
fólk eignist fleiri böm og gert
verði átak til að veita bammörg-
um fjölskyldum aðskiljanlega fyr-
irgreiðslu og styrki, meðal annars
með það fyrir augum að konur
sem hafa sérmenntað sig og vilja
sinna starfi utan heimilis, fái
nægilega aðstoð til að geta það
en gefi sér einnig tíma til að eiga
böm.
Simon Peres hefur hvatt gyð-
ingahjón til að eiga að minnsta
kosti flögur böm. Hann er sjálfur
alveg á mörkunum, hann og Sonja
kona hans eiga þrjú.
(Eínnig heimild: Jerusalem Post)
íeggjandi sömbu í Óðinsvéum
Kjötkveðjuhátíðahöldin í Óðinsvéum og Álaborg i Danmörku gengu
mun friðsamlegar fyrir sig en í höfuðborginni, Kaupmannahöfn.
Skínandi veður var i Óðinsvéum á laugardaginn og troðfullur mið-
bærinn af dansandi fólki á öllum aldri, eins og sjá má á myndinni,.
sem þar var tekin. Morgunblaðið hefur eftir íslenskum námsmönnum,
sem tóku þátt í gamninu, að allir hafi verið í hátíðarskapi og dansað
sig „fótalausa“ í eggjandi sömbu, klæddir í viðeigandi glysklœðnað
af léttara taginu og prýddir skrautlegri andlitsmálningu. í Kaup-
mannahöfn logaði hins vegar allt í slagsmálum helgina á undan og
íhuga lögregluyfirvöld þar að flytja hátíðina úr miðborginni eða
banna hana með öUu, ekki síst fyrir áskoranir frá tryggingarf élögum.
--------------------------------------------i
15%
afsláttur
í tilefni kosninganna og sjómanna-
dagsins veitum við 15% afslátt af
öllum jakkafötum og stökum jökkum.