Morgunblaðið - 30.05.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1986
45
Kuldaboli kemur
eftir Guðna
Jóhannesson.
í grein sinni í Mbl. 28. maí bregð-
ur Guðrún Zoéga verkfræðingur og
17. maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins sér í líki fréttamannsins og
greinir frá vinnustaðafundi Al-
þýðubandalagsins hjá Fjarhitun hf.
og fleiri fyrirtækjum í Borgartúni
17 20. maí sl.
ekki til. Hún fullyrðir hins vegar
að ég hafi ekki svarað hvað það
kostaði að tvöfalda dreifikerfi hita-
veitunnar til þess að geta hitað
vatn með afgangsrafmagni. Um
það var ekki spurt vegna þess að
allir, sem til þekkja, vita að þegar
er fyrir hendi 100 MW olíukyndistöð
í Reykjavík sem nota má til þess
að hita bakrennslisvatn frá tvöföld-
um kerfum í kuldaköstum.
Oddssonar í Mbl. 23. maí eru safn
almennra fullyrðinga um hitt og
þetta, sem settar eru fram til þess
að breiða yfir að engin heilstæð
áætlun er til um framtíðarorkuöflun
Hitaveitu Reykjavíkur þar sem
metin er arðsemi mismunandi val-
kosta og áhrif þeirra á orkuverð.
Sjálfstæðismenn hafa þess í stað
valið þann kostinn að hræða fólk
til fylgis við sóunarstefnu sína í
málefnum hitaveitunnar og tefla
fram í því skyrii garminum honum
kuldabola.
Davíð Oddsson segir í niðurlagi
greinar sinnar sem áður er vitnað
til:
„Ef þessari stefnu yrði fylgt
sætu Reykvíkingar að tíu árum
liðnum með sárt ennið hundruðum
milljóna króna fátækari í kuldalegri
borg.“
Og Guðrún „Zoéga segir í niður-
lagi greinar sinnar:
„ ... að hvorki þeir né framsýnni
Reykvíkingar þurfi að sitja skjálf-
andi í kaldri borg að tíu árum liðn-
um...“
Hvetju er fólkið að lýsa? Kjam-
orkuvetri? Nei. Þau eru að lýsa
afleiðingunum af stefnu Alþýðu-
bandalagsins í málefnum Hitaveitu
Reykjavíkur.
Höfundur er verkfrtedingur og
skipar 13. sæti á lista Alþýðu-
bandalagsins til horgarstjómar-
kosninga 31. maí.
Rétt
Hún greinir þar réttilega frá því
að ég hafi látið orð falla um það
að ef 60 milljónir króna væru ávaxt-
aðar með 7% vöxtum til 50 ára, sem
er nokkum veginn sá tími, sem
fyrirsjáanlegt er að líði þar til þörf
verður fýrir virkjanir í landi Olfus-
vatns, þá mjmdi höfuðstóll með
vöxtum nema tæplega 2000 millj-
ónum að raunvirði við lok tímabils-
ins.
Rangt
Hún greinir ranglega frá því áð
fátt hafí orðið um svör þegar spurt
var hvar ætti að fá þá orku, sem
nota ætti til fiskeldis í stórum stíl
ef ekki yrði virkjað á Nesjavöllum.
Ég svaraði því til að ætlunin væri
ekki að rækta hveragæfa fiska og
að kjörhiti fyrir fískeldi af þessu
tagi væri mun lægri en hitastig
þess vatns sem nú fer út af hitakerf-
um húsa út í frárennslið. Hún hefur
hins vegar ekki skilið þá spumingu
sem fylgdi um það hvað það kostaði
að safna afgangsvatninu saman til
þessara nota. Um það hafði ég ekki
tölur enda ekki áhugi fyrir þessum
möguleika hjá forsvarsmönnum
hitaveitunnar og slík áætlun því
Rétt
Hún greinir réttilega frá því að
ég hafí látið þau orð falla að ég
ruglaði alltaf saman megawöttum
og Gigawattstundum þegar hún bað
mig að rekja fyrir sig tvær orku-
spár nokkur ár fram í tímann og
lét sér ekki nægja það svar að við
teldum spá hitaveitustjóra helmingi
of háa sem við m.a. rökstuddum út
frá þeim forsendum um mannfjölda-
aukningu og þróun íbúðastærðar,
sem hann hefur gefið sér. Þessa
óvægnu sjálfsgagnrýni gerir Guðr-
ún að áhersluefni greinar sinnar og
kemst reyndar að því í greininni
að ég hafí í raun og veru ruglað
saman grundvallarhugtökum, án
þess að nefna nokkur dæmi máli
sínu til stuðnings. Ég verð víst í
framtíðinni að læra að uphefja sjálf-
an mig í stað þess að lítillækka og
helst á kostnað annarra ef ég á að
hljóta náð fyrir augum Guðrúnar.
vaiJf»tO
Morgunblaðið/Theodór.
Kuldaboli kemur
Þau skrif sem hér er vitnað til
staðfesta betur en nokkuð annað
að málefnastaða Sjálfstæðisflokks-
ins varðandi virkjunaráfangann við
Nesjavelli er öll á brauðfótum. Grein
Guðrúnar sem og skrif Davíðs
170 manns hlupu í Borgarnesi
Borgaraesi
í AFRÍKUHLAUPINU í Borgamesi síðastliðinn sunnudag hlupu um 170 manns á ýmsum aldri tveggja og
hálfs km hring f bænum. Alls seldust merki og bolir fyrir 44.100 krónur. Á myndinni sést hluti hópsins leggja
af stað frá íþróttamiðstöðinni.
EIVIGIIXI ÚTBORGUIM!
TILBOÐ
TIL
20. JÚNÍ
Vegna óvenju hagstæðra samninga
getum við boðið stórglæsileg
orlofshús á Spáni tilsölu.
Prima Vera: Einbýlishús 100 m2. Húsin skiptast í góða stofu, eld-
hús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þessi hús skera sig úr að
því leyti að þau hafa svalir á þaki og bogalagaöa verönd sem gefa
þeim óneitanlega sérstakan stíl.
Öll þjónusta á svæðinu, svo sem matsölustaðir, sund-
laugar, vatnsrennibrautir, minigolf, tennisvöllur ásamt
hinum fræga 18 holu Villa Martin golfvelli. Húsin eru
staðsett á Costa Blanca ströndinni í skandinavísku
hverfi.
Upplýsingar um flug og aðra þjónustu veittar í símum
skrifstofunnar.
Ath. 5 daga kynningarferð farin 5. júní.
Orlofsferöir hf.,
Laugavegi 28, símar 622675 og 622634.
Noregur: Raðhús 45 m2 með 30 m 2 garði. Húsin skiptast í stofu,
eldhús, svefnherbergi, bað og þvottahús. Hús þetta kostar fullklárað
kr. 725.000.