Morgunblaðið - 30.05.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1986
49
en á ýmsum aldri og því skólatími
þeirra mjög mismunandi. Sú leið
hefur því verið farin hingað til
að láta þeim í té ókeypis farmiða
með strætisvagninum sem þau
nota, hver eftir sínum þörfum, án
þess að þurfa að bíða. Nú er skóla-
bömum heldur að fjölga á svæð-
inu og með vaxandi samfelldni í
skólum er þetta nú til athugunar
á ný í Skólaskrifstofu borgarinn-
ar.
6. Tillögur um Suðurgötu em
til en ekki alveg endanlegar m.a.
-vegna þess að eíin er unnið að
skipulagi háskólasvæðisins
beggja vegna hennar. Að öllum
líkindum verður lokið við hana á
næsta ári vestur að innkeyrslu að
Hótel Sögu.
Brúin á Bústaðavegi
Eiður Guðnason, Kúrlandi
24, spyr:
Fulltrúar foreldrafélaga við
Fossvogsskóla, Hvassaleitis-
skóla og Réttarholtsskóla rit-
uðu nýlega Umferðarnefnd
Reykjavíkur bréf og lýstu þar
áhyggjum vegna umferðar-
þunga.
í riti sem Sjálfstæðisflokkur-
inn dreifði á öll lieimili í borg-
inni um síðustu helgi og heitir
Áfram Reykjavík er næst á
eftir ávarpsorðum borgar-
stjóra fjallað um greiða umferð
ogslysavamir.
Þar er talað um brúna á
Bústaðavegi, „sem tekin var í
notkun fyrir tæpu ári“. Rangt.
Vonandi eru aðrar staðreyndir
í þessu riti traustari. Bústaða-
vegsbrú var tekin í notkun 17.
desember 1985. Síðan eru rúm-
ir fimm mánuðir.
Þar er talað um Bústaða-
vegsbrú, sem lið í þvi að byggja
upp stofnbrautir í höfuðborg-
inni. Nú er Bústaðavegur ekki
stofnbraut, heldur tengibraut
að því er undirritaður veit best.
Bústaðavegur liggur í gegnuin
íbúðahverfi og sker skóla-
hverfi. Hvenær varð Bústaða-
vegur stofnbraut?
Ennfremur segir í áður-
nefndu riti: „Áfram verður
unnið við Bústaðaveginn á
næstunni þannig að brúin nýtist
til fullnustu". Spurt er: Hvaða
framkvæmdir eru á döfinni við
Bústaðaveg og hvenær verður
í þær ráðist? Verður ráðist í
framkvæmdir samkvæmt til-
lögum foreldra og kennarafé-
laga í hverfinu?
Svör:
Núgildandi aðalskipulag
Reykjavfkurborgar gerir ráð fyrir,
að Bústaðavegur framlengist
vestur fyrir Kringlumýrarbraut,
sveigi norður fyrir Öskjuhlíð og
komi sem ný gata suðvestan við
slökkvistöð og Sölufélag garð-
yrkjumanna. Bústaðavegur verð-
ur fjórar akreinar á kaflanum
milli Kringlumýrarbrautar og
Miklatorgs. Umferðarspár gefa til
kynna, að f framtfðinni verði
meirihluti umferðar á þessum
kafla tengdur Kringlumýrarbraut,
þ.e. bílar, sem eru á leið til eða
frá nágrannasveitarfélögunum í
suðri. Þessi kafli er þvf eðlilega
flokkaður sem stofnbraut. Austan
Kringlumýrarbrautar hefur Bú-
staðavegur ávallt verið flokkaður
sem tengibraut, og liggur engin
ákvörðun fyrir um að breyta því.
Um þessar mundir er verið að
vinna við endurskoðun á aðal-
skipulagi Reykjavíkurborgar. í
því sambandi hafa verið lögð fram
drög að stefnumörkun fyrir bíla-
umferð.
Samkvæmt þeim drögum er
lagt til að stofnbrautakerfíð verði
gert það vel úr garði, að það rúmi
alla þá umferð, sem vill nota það.
í sambandi við Bústaðaveg austan
Kringlumýrarbrautar virðist
Fossvogsbraut vera sá kostur,
sem helst kemur til álita til að
draga úr umferð á Bústaðavegi.
Annar kostur er breikkun Miklu-
brautar og gerð umferðarbrúa á
gatnamótum hennar. Þessir kostir
verða athugaðir nánar á næst-
unni. Að svo komnu máli er ekki
á dagskrá að breikka Bústaðaveg
austan Háaleitisbrautar, umferð-
arljós hafa nú verið sett upp á
öllum meiriháttar gatnamótum
við Bústaðaveg nema gatnamót
hans og' Sogavegar/Stjömugróf-
ar. Á dagskrá er að setja gang-
brautarljós á Bústaðaveg á móts
við Ásgarð. Á þessu sumri verða
sett umferðarljós á gatnamót
Bústaðavegar og Reykjanes-
brautar, sem era nyrstu umferð-
arljós í keðju samstilltra ljósa á
Reykjanesbraut allt að Nýbýla-
Vegi. Þessi ljós era nauðsynleg
vegna tenginga Reykjanesbrautar
suður til Hafnarfjarðar sem lokið
verður á þessu ári.
Einstefna í Einholti?
Marís Kristinn Arason, Ein-
holti 9, spyr:
Mikil umferð er í Einholtinu
og bílarnir aka hér greitt. Þvi
spyr ég borgarstjóra hvort
hann vilji beita sér fyrir því að
Einholtið verði gert að ein-
stefnuakstursgötu frá Háteigs-
vegi og að Skipholti?
Svar:
Þetta mál hefur aldrei komið
upp og varhugavert er að setja á
einstefnu í einstökum götum án
þess að líta á hverfín í heild. Engu
að síður mun ég biðja umferðar-
deild að líta á þetta mál.
Bílastæði við
Landakotstún
Stefana G. Karlsdóttir, Há-
vallagötu 17, spyr:
Hvað varð um öll þau bíla-
stæði sem teiknuð voru fyrir
framan safnaðarheimili og
skrifstofubyggingu kaþólska
safnaðarins númer 14 og 16 við
Hávallagötu.
Teikningin var birt í Morg-
unblaðinu um það leyti sem
framkvæmdir voru að hefjast
og voru þá bílastæðin í ská í
röð fyrir framan byggingam-
ar.
Þar sem aðeins eru bílastæði
fyrir íbúa götunnar á Hávalla-
götu getur þú ímyndað þér
öngþveitið sem skapast þarna
vegna ólöglega lagðra bifreiða
þegar haldnir eru fjölmennir
bræðrafundir, basarar og önn-
ur kaffisamsæti. Bíllinn á
meðfylgjandi mynd er bUI
systra sem áttu erindi við skrif-
stofuna en var lagt í bílastæði
undirritaðrar.
Svar:
Borgin lét skipuleggja austur-
hluta Landakotstúns og vora
gerðar tillögur um skástæði með-
fram Hólavallagötu, en íbúar
mótmæltu þeim og var hætt við
þau. Varðandi stæði fyrir bygg-
ingar kaþólska safnaðarins var
gert ráð fyrir að bflastæðaþörf
væri fullnægt á lóð þeirra og fímm
stæði eiga að vera norðan við
götu samsíða kanti. Sé þetta ekki
nóg verð ég að beina til þeirra
tilmælum um úrbætur.
Gangstétt við
Eiðsgranda
Hólmfríður Jensdóttir,
Meistaravöllum 5, spyr:
a) Getur borgarráð ekki
beitt sér fyrir því að endurbæta
hreinsibúnað í síldar- og fisk-
mjölsverksmiðjunni við Norð-
urgarð í Örfirisey? I vissri átt
leggst mikill óþefur yfir Vest-
urbæinn og inn í íbúðir fólks.
Svar:
Þessi verksmiðja starfar nú
aðeins á meðan á loðnuvertíð
stendur. Mér er tjáð að illa hafí
gengið að ná burt lykt með tækni-
búnaði en þetta fyrirtæki hefur
sótt um starfsleyfí hjá Hollustu-
vemd ríkisins en kvartanir um
starfsemi þess era mjög fátíðar.
b) Hvers vegna eru sund-
staðir borgarinnar ekki merkt-
ir, eins og flugvöllur og sjúkra-
hús, erlendra ferðamanna
vegna?
Svar:
Góð spuming, ég mun gera
tillögu um bætta merkingu.
c) Hvenær verður lagfærð
gangstétt á Eiðsgranda, móts
við fjölbýlishús Byggung?
Svar:
Gangstétt við Eiðsgranda verð-
ur fullgerð strax og Byggung
hefur lokið við byggingu á bflskýli
sem er meðfram gangstéttinni.
Væntanlega verður þeim fram-
kvæmdum lokið um mitt sumar.
d) Hversvegna er borgin svo
fátæk af sctbekkjum? Okkur,
sem þykir gaman að ganga um
borgina, þykir líka gott að geta
sest niður og hvílst?
Svar:
Á þessu ári hafa verið keyptir
50 bekkir, alls munu verða um
400 bekkir á almannafæri í borg-
inni í sumar.
Hraöahindranir við
Kambasel
Halla Þorsteinsdóttir,
Kambaseli 8, spyr:
Fyrir tveim árum voru sendir
undirskriftalistar til gatna-
málastjóra þar sem beðið var
um að settar yrðu upp hraða-
hindranir við Kambasel en
ekkert hefur gerst í málinu
enn. Hér í hverfinu er mikið
af börnum og skóli stendur
hinum megin við götuna. Því
langar mig til að spyija borgar-
stjóra hvort hann sé tilbúinn til
þess að beita sér fyrir því að
hraðahindranirnar verði settar
upp við Kambasel og þá hvenær
íbúar hverfisins geti átt von á
því að það verði gert?
Svar:
Þetta erindi hefur verið til
athugunar í umferðamefnd. Hef-
ur nefndin m.a. skoðað aðstæður
á staðnum, en hefur ekki afgreitt
þetta mál að svo komnu máli.
Umferðaróhöpp
í Reykjavík
Kristín Viktorsdóttir,
Byggðaenda 8.
Umferðarþungi hefur aukist
mjög á Bústaðavegi eftir að
brúin yfir Kringlumýrarbraut
var tekin í notkun. Mikið af
bílum sem eiga leið í Breið-
holtið aka nú um Bústaðaveg.
Þeir sem búa hér í hverfinu
eiga erfitt með að komast inn
á Bústaðaveg. Sérstaklega eru
gatnamótin fyrir neðan Bú-
staðakirkju og gatnamótin Bú-
staðavegur, Sogavegur og
Stjömugróf umferðarþung.
Því spyr ég hvað stendur til
með að gera varðandi umferð-
ina á þessu svæði?
Einnig vil ég spyija að því
hvað almennt stendur til að
gera í gatnamálum borgarinn-
ar. Alls staðar liggja þvergötur
út á aðalbrautir. Væri ekki
hægt að hafa fleiri undirgöng
og brýr eins og víða erlendis?
c) Hefur verið gerð úttekt á
árekstrum í borginni? Hvaða
árekstrar séu algengastir og
við hvaða aðstæður? Ef svo er
hvað á að gera til úrbóta?
Svar:
Um þessar mundir stendur yfír
vinna við endurskoðun aðalskipu-
lags Reykjavíkur. í því sambandi
hafa verið lögð fram drög að
stefnumörkun fyrir bflaumferð.
Samkvæmt þeim drögum er gert
ráð fyrir því, að stofnbrautarkerfí
Reykjavíkur verði byggt það vel
upp, að það rúmi alla þá umferð,
sem um það vill aka. I sambandi
við Bústaðaveg virðist Fossvogs-
braut vera besti kosturinn við að
draga úr umferð á Bústaðavegi.
Umferðarspár gefa til kynna, að
umferð á Bústaðavegi myndi þá
minnka um helming. Annar kost-
ur er að byggja umferðarbiýr á
Miklubraut og breikka hana upp
í 6—8 akreinar. Á síðari áram
hafa menn horfíð meir frá síðari
kostinum, sérstaklega vegna
umhverfisspjalla í Hlíðahverfí.
Þessir valkostir verða bomir nán-
ar saman á næstunni.
Ekki hefur enn verið gerð heild-
arúttekt á árekstram í Reykjavík.
Umferðardeild Borgarverkfræð-
ins hefur gert staðbundnar at-
huganir á flestum þeim stöðum,
þar sem granur leikur á, að um
slysagildra sé að ræða. í því
sambandi hafa á undanfömum
árum verið gerðar endurbætur á
mörgum af hættulegustu stöðun-
um í gatnakerfinu. Á þessu ári
verður komið upp viðamiklum
gagnagranni fyrir rannsóknir á
umferðaróhöppum. Öll lögreglu-
skráð umferðaróhöpp í Reykjavík
yfír nokkurra ára tímabil verða
skráð á segulmiðil fyrir tölvu-
vinnslu. Með því móti verða rann-
sóknir á slysagildram bæði mark-
vissari og öraggari. Þá verður
einnig auðveldara að raða endur-
bótum á slysagildram í skynsam-
lega forgangsröð.
Austurstræti
Skúli Jóhannesson, Kúriandi
18, spyr:
Þegar gengið er um Banka-
stræti þá blasir við mikill og
hlaðinn gijótveggur, sem
minnir helst á skriðdrekagirð-
ingar sem sjá má enn i Þýska-
landi. Turninn byrgir allt út-
sýni yfir Austurstræti og líkist
varðturni. Það er ekki hlýleg
tilfinning að þurfa að bijótast
gegn um þessar hindranir til
að komast i Austurstræti.
Raunar er þar fátt fallegt að
sjá, aðeins margmisheppnað
götuskipulag, með sóðalegum
útimarkaði. Hvenær megum við
fá að sjá fallegt, hlýlegt og
aðlaðandi Austurstræti?
Væri ekki hægt að bíða með
að staðsetja styttur í Austur-
stræti þangað til að fallegt
skipulg i samráði við íbúa og
vegfarendur liggur fyrir?
Tjörnin í krikanum hjá Leik-
félagi Reykjavíkur býður upp
á ótrúlega mikla möguleika til
mannlífs og útveru. Er ekki
tímabært að taka til starfa þar?
Gleymum ekki gamla mið-
bænum.
Svar:
Á sl. ári vora lagðar fram nýjar
tillögur að deiliskipulagi Kvosar-
innar.
Þessar tillögur hafa hlotið
umfíöllun borgaryfirvalda og vora
kynntar borgarbúum á fundum
og á sýningu í Gallerí Borg í nóv-
ember 1985.
Tillögumar gera ráð fyrir
breyttu fyrirkomulagi á Lækjar-
torgi, göngugötu í Austurstræti
öllu með skjólþökum og Borgar-
torgi á Hótel íslands lóðinni
(„Hallærisplani").
Staðsetning styttunnar af Tóm-
asi Guðmundssyni er _ felld að
þessu nýja skipulagi. Áætlað er
að heíja framkvæmdir við lag-
færingu tjamarbakkanna á næsta
ári.
Varðandi nágrenni Tjamarinn-
ar að öðra leyti visa ég til svars
við fyrirspum Leifs Sveinssonar,
lögfræðings.
Tómasarhagi —
Dunhagi
Gyða Einarsdóttir, Tómasar-
haga 44, spyr:
Gangstígur liggur frá Tóm-
asarhaga upp í Dunhaga. Við
stíginn stendur barnaheimili og
þess vegna er umferð gangandi
vegfarenda þarna mikil. Stíg-
urinn er hins vegar ekki mal-
bikaður og er þetta eini gang-
stígurinn í hverfinu sem þannig
er ástatt um. Því spyr ég hvort
ekki standi til að malbika stíg-
inn og þá hvenær?
Svar:
Gangstígurinn frá Tómasar-
haga upp í Dunhaga er malbikað-
ur að hluta og er á áætlun að ljúka
því verki í sumar.
0
Asg'arður
Hafdís Hannesdóttir, Ás-
garði 103, spyr:
Ég vil leggja tvær spurning-
ar fyrir borgarstjóra.
a) Hvenær má vænta frá-
gangs á gangstétt austan við
Asgarð 22-24?
b) Er áætlað að gera Ásgarð
að einstefnuakstursgötu og þá
hvenær?
Svar:
a) Við vesturendann á Ásgarði
22—24 er hús í byggingu. Gang-
stígurinn verður fullgerður eftir
að byggingarframkvæmdum er
lokið. Norðan við húsið stendur
til að malbika bflastæði og endur-
steypa gangstétt í sumar.
b) Ekki er fyrirhugað að gera
Ásgarð að einstefnuakstursgötu.
Mannlíf í Austurstræti. Morgunblaðið/Börkur.