Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Terelynebuxur
kr. 1.095, 1.195, 1.495 og 1.595. Gallabuxur
kr. 795, 825 og 395 litlar stærðir. Kvenna-
stærðir kr. 610 og 735. Flauelsbuxur kr. 745.
Skyrtur kr. 434, 450, 485, 495, 510, 513 og
kr. 690 langar og stuttar ermar. Nærföt sokk-
ar o.fl. ódýrt.
Andrós SkólavörAustíg 22,
síml 18250
NÝJA (SLENSKA ELDHÚSIÐ
NÝR MATSEÐILL
Morgunblaðið/EG
Horft suður Vogagerði, aðalgötuna i Vogum. Klæðning verður sett á götuna í sumar eins og flestar
götur staðarins. Þegar framkvæmdum verður lokið, verður mestur hluti gatnakerfisins komið með
bundið slitlag.
Vilhjálmur Grímsson
s veitarsíj óri í Vogum
Stórátak að hefjast í gatnagerð
Vogum, Vatnsleysuströnd.
NÝ hreppsnefnd í Vatnsleysu-
strandarhreppi hefur haldið alls
fimm fundi frá því hún tók við
í byrjun júni sl. I núverandi
hreppsnefnd sitja Jón Gunnars-
son, Omar Jónsson, Ragnar Karl
Þorgrimsson, Sæmundur Þórð-
arson og Ingi Friðþjófsson. Á
fyrsLa fundi hreppsnefndar var
Omar Jónsson kjörinn oddviti og
Ragnar Karl Þorgrímsson vara-
oddviti.
Nýr sveitarstjóri var ráðinn á
fundi hreppsnefndar sl. föstudag.
Það var Vilhjálmur Grímsson, bæj-
artæknifræðingur í Keflavík, sem
var valinn úr hópi 11 umsækjenda.
Vilhjálmur kemur til starfa strax
og hann fær lausn frá störfum hjá
Keflavíkurbæ, þar sem hann hefur
starfað í 19 ár. Áður hafði hann
starfað í Noregi, á verkfræðistofu
í Osló.
Hreppsnefnd hefur sent húseig-
endum í Vogum bréf til kynningar
á stórverkefni í varanlegri gatna-
gerð. Þar segir að ákveðið hafi verið
að taka tilboði Loftorku hf., sem
hafi verið 70% af kostnaðaráætlun.
Til að fjármagna framkvæmdina
verður lagt á svokallað B-gatna-
gerðargjald samkvæmt reglugerð
um gatnagerðargjöld í Vatnsleysu-
strandarhreppi ffá 1. júlí 1986. Þá
segir að ástæður þess að farið sé út
í þessar framkvæmdir séu ákjósan-
legar ytri aðstæður svo sem að
lánamöguleikar úr Byggðasjóði séu
Vilhjálmur Grímsson, nýráðinn sveitarstjóri, tekur við lyklum að
skrifstofu sveitarstjóra úr höndum Ómars Jónssonar oddvita.
Reykjavíkur-
maraþon
í ágúst
Reykjavikurmaraþon fer fram
í þriðja sinn sunnudaginn 24.
ágúst nk. Búist er við að a.m.k.
2.000 manns taki þátt í hlaupinu.
Keppt verður í þremur vega-
lengdum, 42 km maraþonhlaupi,
helmingi þeirrar vegalengdar
eða 21 km og að siðustu verður
6,5 km skemmtiskokk, sem sér-
staklega er ætlað fyrir þá sem í
minni æfingu eru. Að sögn að-
standenda Reykjavíkurmaraþons
miðast framkvæmd öll við að
ungir sem aldnir geti haft þar
ánægju og hollustu af.
Keppt verður í níu aldursflokkum
karla og kvenna. Allir keppendur
sem ljúka hlaupinu fá sérslegna
verðlaunapeninga til minningar um
þátttökuna og sigurvegarar í hverri
vegalengd hljóta verðlaunabikara.
Knútur Óskarsson, sem starfað
hefur að undirbúningi Reyjavík-
urmaraþons, sagði að þó mótið
væri kennt við Reykjavík væri það
hugsað sem hátíð allra landsmanna.
Því stæði fólki utan af iandi til
boða sérstakt maraþonfargjald með
Flugleiðum til Reykjavíkur. Hann
sagði ennffemur að gert væri ráð
fyrir að um 200 erlendir gestir
kæmu til landsins til að taka þátt
í maraþonhlaupinu.
Rétt er að benda væntanlegum
þátttakendum og öðrum skokkur-
um á að íþrótta- og tómstundaráð