Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 66
iaei jjtji .01 auoAOUTMMiu jQiöajhwudhom MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 Rokkari af gamla skólanum í júníhefti þýska tímaritsins Fussball Magazin, er mjög skemmtilegt viðtal við Ásgeir Sigurvinsson, tekið skömmu eft- ir úrslitaleikinn í bikarkeppni þýsku knattspyrnunnar, þar sem Stuttgart tap- aði með miklum mun fyrir Bayern Munchen. Viðtalið er tekið af þýskum blaðamanni og skrifað frá öðru sjónar- horni en viðtöl íslenskra blaðamanna við atvinnumenn okkar í knattspyrnu. Það birtist hér í lauslegri þýðingu. Um lágnættifi yfirgaf Ásgeir Sig- urvinsson danssalinn í „Steglitz lnternational“-hótelinu í Berlín. Fögnuður var honum og félögum hans hjá VFB Stuttgart fjarri skapi. „Ég fer að halla mér," muldraði „Sigi". „Eða kannski ætti ég þrátt fyrir allt að fara yfir til Bæjaranna og drekka einn með „Auge". Stemmningin hjá hinum knáu leikmönnum Stuttgart-liðsins var döpur þessa fögru vornótt í Berlín. Þeir höfðu ásett sér að kóróna glæsilega frammistöðu í síðari umferð „Bundesligunnar", undir stjórn Willi Entenmanns þjálfara, með sigri í bikarkeppninni. En þennan dag gekk ekkert upp hjá liðinu og þeir urðu að þola 2—5 skell gegn léttleikandi liði Bayern Munchen. „Við áttum allir slæman dag," áleit Ásgeir — og fór að sofa. En það var einmitt hann sem mest mæddi á og átti að gera stóra hluti í leiknum. Honum var ætlað að vinna einvigið við Danann snjalla, Sören Lerby, á miðjunni, en þessir tveir höfðu á leiktímabilinu háð harða baráttu um nafnbótina „bezti betlendingurinn" í „Bund- esligunni". En þegar til kastanna kom gekk allt á afturfótunum hjá „Sigi" og ásamt öðrum leikmönn- um Stuttgart-liðsins gerði hann lítið annað en að hrasa og rasa í ráðleysi um ólympíuvöllinn glæsi- lega leikinn á enda. Hinn frábæri leikstjórnandi var svo sannarlega úti að aka. Engar draumasendingar, sólóupphlaup, hælspyrnur eða þrumufleygar sáust frá Ásgeiri í þessum leik, en hins vegar ótal misheppnaðar sendingar, töpuð návígi, ráðleysi og fát. Þjálfarinn Willi Entenmann varði leikstjórnanda sinn: „Viku eftir viku hefur hann drifið liðið áfram með krafti sínum og dugnaði, núna var komið að samherjum hans að porra hann upp. En þeir lögðu árar í bát og því fór sem fór." Án Ásgeirs gengur leikur Stuttgart ekki upp í Berlín kom það glögglega í Ijós að leikur Stuttgart-liðsins stendur • Eins og fram kemur í viðtalinu er Ásgeir tónlistaraðdáandi og er Elvis Presley f miklu uppáhaldi hjá honum. Á glæsilegu heimili Ás- geirs og Ástu, konu hans, eru góð hljómlistartæki - á myndinni hér til hægri stendur Ásgeir við hijómtækjasamstæðu af bestu gerð. • Fjölskylda Ásgeirs á heimilinu í Þýskalandi. Sfðan þessi mynd var tekin f maí hefur þeim hjónum fæðst annað barn. og fellur með Ásgeiri Sigurvins- syni. Þegar liðið varð Þýzkalands- meistari fór hann á kostum í hverjum leik og þótti leikmaður í heimsklassa. Eftir að hafa veriö frá leik um tíma vegna meiðsla lenti Ásgeir síðan í lægð um tíma. Ýms- ir töldu hann þá vera útbrunninn, en síðari hluta síðasta keppnis- tímabils sýndi hann og sannaði að hann hafði engu gleymt af töfra- brögðum knattspyrnunnar. Þegar leikur Stuttgart gengur illa þá á Ásgeir slæman dag. Þegar Ásgeir opnar töfrakistu sína, standast fá liö Stuttgart snúning. Sjálfur þolir Ásgeir ekki slikt tal og hamrar á því að knattspyrnulið samanstandi af ellefu mönnum, sem verði að vinna saman sem ein heild. „Einstaklingurinn einn sér er einskis virði, ef hann fellur ekki inn í heildina, sama hversu góður hann er,“ segir Ásgeir róleg- ur og yfirvegaður að vanda. Af þessu má ráða að Ásgeiri fellur illa að vera í sviðsljósinu. Hann er stjarnan sem geðjast ekki að því að vera stjarna. „Einkalíf mitt kemur Pétri og Páli ekkert við. Ég kýs að halda mig frá sviðsljósinu en mér stend- ur á sama um fjölmiðlafárið þótt ég taki ekki þátt í því.“ Ásgeir hef- ur haldið sínu striki og neitar flestum blöðum, útvarps- og sjón- varpsstöðvum um viðtöl. Én hefur ekki aðdáandinn rétt til þess að kynnast atvinnumannin- um nánar? „Þeir sem vilja sjá mig geta farið á völlinn." Þótt þetta kunni aö virðast hrokafull afstaða, þá fer því fjarri að íslendingurinn sé oflátungur. — Það er nú raunar öðru nær. Honum finnst sjálfsagt að gefa eiginhandaráritanir og við- töl að loknum leik, en vill eiga frí frá slíku utan leikvallarins. Á glæsilegu heimili Ásgeirs í Denkendorf reynir blaðamaöur að nálgast innri mann Ásgeirs Sigur- vinssonar. í eina tíð lagöi hann stund á veiðar (hið forna víkinga- blóð?), spilaði golf, nú hefur hann aðeins tíma til að spila tennis stöku sinnum. önnur áhugamál? „Ég er sjón- varpsfrík og horfi á allt nema vestra og kung-fu-myndir." Þegar Ásgeir er spurður hvaða tónlist honum líki bezt, gellur samstundis í honum „Elvis! Ég er rokkari af gamla skólanum." Uppáhaldsrithöfundur er sam-. landi hans, Nóbelsverðlaunahöf- undurinn Halldór Laxness. Eins og Laxness hélt Ásgeir pngur að árum út í heim. 16 ára gamall æfði hann með Glasgow Rangers í Skotlandi, 18 ára fór hann til Standard Liege í Belgíu, þaðan lá leiðin til Svaba- lands með stuttri viðkomu í Munchen. í Munchen gekk dæmið ekki upp hjá Ásgeiri knattspyrnu- lega séð, þótt hann hafi eignazt góða vini hjá félaginu og haldi enn sambandi við Klaus Augenthaler og Bertram Beierlorzer. Pal Csernai þjálfari stóð á bak við Paul Breitner sem leikstjórnanda og sá „kall" leið engum samkeppni við sig. En átti Ásgeir sér fyrirmynd á leikvellinum? „Leikur Johan Cruyff hafði mest áhrif á mig, það var augnayndi að fylgjast með þeim dreng í leik." „Það er broslegt," heldur Ás- geir áfram, „að á mínum unglings- árum vissi ég alls ekkert um þýzka knattspyrnu." Það munaði mjóu á sínum tíma að „Sigi", sem talar skínandi þýzku og að auki frönsku og ensku, færi ekki á meginland Evrópu. Ensk knattspyrna ekkert fyrir mig „Að öllu jöfnu spila íslendingar á Bretlandseyjum, en ég sá það strax t Glasgow að enski boltinn var ekki mín deiid. Þá vissi ég aö ég yrði að freista gæfunnar annars staðar. Á Englandi eða Skotlandi hefði ég aldrei slegið í gegn." En hvernig stendur á því að Norðurálfumaður hefur slíka bolta- tækni sem Ásgeir? Hver er leynd- ardómurinn að baki „íshafs-Zico“? „Sem ungur drengur notaði ég tækifærið til að leika mér með bolta. Þannig kynntist ég eiginleik- um knattarins svo að segja um leið og ég fór úr vöggunni." Ás- geir játar því að það sé ótrúlegt hve margir fslendingar séu í at- vinnufótbolta ef tekið er mið af fólksfæð og veðurfari á landinu. „fslendingar eru duglegt fólk með stóra drauma og framkvæma það sem þeir ætla sér. Á Islandi eru íþróttamenn, sem ná topp- árangri i mörgum greinum. Þannig mætti nefna að Janus Guðlaugs- son, sem áður spilaði með Fortuna Köln, hefur leikið landsleiki í knatt- spyrnu, handknattleik og blaki. Uerdingen-leikmaðurinn Atli Eð- valdsson var einnig landsliðsmað- ur í blaki ef ég man rétt." En hvað gerist hjá Ásgeiri Sigur- vinssyni eftir að knattspyrnuferlin- um lýkur? „Það kemur margt til greina," segir Ásgeir, sem nú er 31 árs. „Þjálfara- eða fram- kvæmdastjórastaða ef til vill?" hrekkur út úr spyrjandanum. „Maður skyldi aldrei segja aldrei," svarar Ásgeir um hæl. Skömmu fyrir úrslitaleikinn í Berlín framlengdi Ásgeir samning sinn við Stuttgart til ársins 1989, en þá má búast við að hann haldi á ný til lands ísa og elda. „Okkur líður prýðilega hér í Denkendorf, en þegar Tanja dóttir okkar byrjar í skóla, flytjum við að öllum líkind- um til íslands." Þrátt fyrir glæsta sigra á knatt- spyrnuvellinum og reisulegt hús með öðrum veraldargæðum, þá má merkja að í brjósti „Sigi" býr heimþrá: „Ég sakna sjávarins," segir hann tregafullur og sver sig þvi i ætt við eyjaskeggja alls heimsins. „Heima í Eyjum ríkir hin fullkomna ró og friður." En skömmu fyrir úrslitaleikinn leit út fyrir að óvænt félagaskipti ættu sér stað hjá Ásgeiri. Köln sýndi mikinn áhuga á honum — en þó fyrst og fremst Uli Hoeness og Bæjararnir, sem settu Ásgeir efstan á óskalistann til að taka við af Sören Lerby. En forráðamenn Stuttgart dauf- heyrðust við umleitunum Bæjara og stóðu fast á samningi sínum við Ásgeir, sem renna átti út 1987. Varð því ekkert úr félagaskiptum. „Ég hefði verið fús til að fara aftur til Bayern Múnchen," Ijóstrar Ásgeir upp. Hann vildi leiðrétta þann leiða misskilning, sem kom upp á dögum Csernais, og sanna getu sína til að stjórna leik fræg- asta liðs Þýzkalands. Auk þess má ætla að ákveðin óánægja með gang mála hjá Stutt- gart hafi kynt undir löngun Ásgeirs til félagaskipta. Það virðist nefni- lega sem hann efist um getu Stuttgart til að ná toppárangri. Upphafið að óánægju hans má rekja til þjálfaratíðar Ottos Baric, sem var skólabókardæmi um það, hvernig ekki á að stjórna knatt- spyrnuliöi. „Herra Baric er vissu- lega ekki slæmur þjálfari," telur „Sigi", „én andlega hliðin, hinn mannlegi þáttur, sem hver þjáifari verður að búa yfir eigi árangur að nást, var einfaldlega ekki fyrir hendi. Yfirlýsingar hans í dag- blöðum voru orðnar algjörlega óþolandi. Baric hafði allt á hornum sér við leikmenn og vildi sí og æ kaupa nýja menn." Um Ásgeir sagði Baric: „Hann er latur!" En Ásgeir gerði þessi orð hans að engu með stórkostlegri frammi- stöðu sinni undir stjórn Enten- manns í síöari umferö Bundeslig- unnar. „í Bundesligunni eru fáir leik- menn sem hafa þá náðargáfu að geta stjórnað spilinu svo vel fari. Því segi ég enn og aftur að leik- stjórnandinn þarf frelsi til aö fremja sín töfrabrögð," sagði Ás- geir Sigurvinsson að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.