Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 63 Gleraugu fundust Starfsmaður Sundlaugar Vesturbæjar hringdi: „Gleraugu með brúnni umgjörð fundust á sunnudag við Hagamel. Þau er nú að fínna í afgreiðslu sundlaugarinnar og getur sá er þeirra saknar vitjað þeirra þar.“_ Nóg komið af Dallas Nýstúdent hringdi: „Eg mæli eindregið gegn því að fleiri þættir af Dallas verði keyptir yfir þjóðina. Það er eitt einkenni manna að geta lært af mistökum sínum. Þrátt fyrir að öllum hljóti að vera ljóst að kaup- in á þessu frauði voru mistök frá upphafi til enda, eru enn til menn sem vilja kalla þessa hörmung yfir sig að nýju. Allir skyni bom- ir menn sem hafa lagt það á sig að horfa á brotabrot af þeirri lág- kúru sem í þessum þáttum er hljóta að vera því mótfallnir að afnotagjöldum og skattfé sé eytt í svona gegndarlausa vitleysu. Gefið frekar andvirðið til hungr- aðra bama í Afríku." Rógnr og dylgjur Kristján Gunnarsson, Akureyri skrifar: Velvakandi. „Undanfarið ár hafa farið fram athyglisverð skrif hjá vikublaðinu Helgarpóstinum. Þar á bæ hafa menn velt sér upp úr gjaldþroti Hafskips og í framhaldi af því rann- sókn á bókhaldi þess fyrirtækis, svo sem þekkt er orðið. Hér á landi em sjálfsagt ein 20—30 þúsund fyrir- tæki sem rekin em með hlutafélags- forminu eins og Hafskip. Þau em bæði í eigu einstaklinga, eins og t.d. Hafskip var, og eins í eigu hins opinbera, samvinnufélaga og bæj- arfélaga eða þá samtökum þessara aðila. Flest þessara hlutafélaga hafa sem betur fer Iukkast vel, þó em alltaf einhver sem lenda í stór- áföllum, enda er rekstur í eðli sínu áhætta. Sum komast í gegnum áföllin, önnur ekki og fara þá á hausinn sem kallað er. Sem dæmi um hlutafélög sem lent hafa í stór- áföllum og tekist að bjarga em til að mynda: Flugleiðir, Amarflug, K. Jónsson & Co á Akureyri, Söltun- arfélag Dalvíkur, Utgerðarfélag Dalvíkur, Utgerðarfélag Akur- eyringa, Hraðfrystihúsið á Raufar- höfn, Slippstöðin á Akureyri og svo mætti lengi telja. Önnur hlutafélög sem lent hafa í stóráföllum en ekki tekist að bjarga úr ógöngunum era til dæmis: Hafskip, Trésmiðjan Víðir, nokkrar togaraútgerðir sem gerðar vom upp á síðasta ári og áfram mætti telja. Það sem gerist þegar fyrirtæki fer á hausinn er að útgjöld og skuldir em hærri en tekjur og eignir. Það sem gerðist hjá Hafskip var eftir frásögn þeirra sem til þekktu eftirfarandi: Stór- felld eignarýmun sem stafaði af verðfalli á flutningaskipum á heims- markaði. Vegna þessa lenti Utvegs- bankinn í súpunni, einmitt vegna verðfalls á skipum á alþjóðamark- aði, þ.e. veðin (veðréttimir) sem vom til tryggingar á lánunum rým- uðu verulega á einni nóttu og eignir Hafskips hmndu vegna þessa. Það var annað áfall sem Hafskip varð fyrir, fyrirtækið var rekið með 10% tapi um nokkurra mánaða skeið þar til upp komst. Þess ber að geta að upplýsingastreymi innan fyrirtækisins var í molum vegna þess að það var í mjög hraðri upp- byggingu og bætti sífellt við sig flutningamörkuðum og var með fjölda umboðsskrifstofa í fjölmörg- um löndum. Mun hafa farist fyrir að byggja upplýsingakerfí til aðal- skrifstofu jafnhliða útþenslunni. Vegna þessa uppgötvaðist tapið ekki fyrr en 10% tapið var orðið að stóráfalli fyrir Hafskip. Skrif vikublaðsins Helgarpóstsins um forráðamenn og stjómendur Haf- skips, þar á meðal alþingismanninn og ráðherrann Albert Guðmundsson em skammarlegar dylgjur og vísvit- andi ósannindi og rahgtúlkanir í Sólveig Eggerz Pétursdóttir skrifar: „Velvakandi. Eg má til með að vekja athygli fólks á hreint frábæmm sumardval- arstað við Gardavatnið. Ég er nýkomin þaðan úr þriggja vikna ferð og gæti hugsað mér að fara aftur á morgun. Staðurinn hefur fram að þessu verið lítt þekktur meðal íslendinga, en ferðamenn annarra þjóða hafa flykkst þangað ámm saman og kunna vel við sig. Við dvöldumst í þorpinu Garda sem er rétt við vatnið, en fjölmörg önnur þorp er að fínna meðfram vatninu. Þorpið er vel staðsett með tilliti til annarra staða á Ítalíu, s.s. Flórens, Feneyja, Austurríkis, garð þingmannsins og til þess eins gerðar að finna höggstað á pólitísk- um andstæðingi. Skrifín hafa einkennst af rógi og dylgjum og það með þeim hætti að fáheyrt er og hefur Helgarpósturinn fengið dyggan stuðning frá fréttastofu útvarps. Hefur þjóðin þurft að sitja undir þessu síðustu 9 mánuði. Skrif þessi em til þess eins gerð að veikja traust og trú manna á helstu undir- stöðu þjóðfélagsins, atvinnulífinu og þeim sem em þar í fyrirsvari. Padua, Veróna og Mílanó, þannig að menn em vel í sveit settir ef þá langar til að ferðast um Ítalíu. Landslagið er einnig sérlega fag- urt. Hægt er að fara í gönguferðir um nágrennið, en það skartar mjög ijölbreyttu landslagi. Gististaðimir em flestir hveijir reknir af Ijöl- skyldum og em því hæfílega stórir og heimilislegir. ítölsku ferðaskrif- stofumar keppast við að undirbjóða hver aðra þannig að verðið er mjög viðráðanlegt, vilji menn ferðast um nágrennið. Eg hvet alla sem ekki hafa ákveðið hvert þeir eiga að fara í sumarleyfínu að kynna sér nánar þennan stað, paradísina við Garda- vatnið." Paradís við Garda-vatnið Átímabilinu l.maítll 30.sept.Átímabilinu 1. júm' til 31. ágúst Mánudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Btjánslæk kl. 14.00 Til Stykkishólms kl. 18.00 fyrir brottför rútu til Rvk. Fimmtudaga: Samatimataflaog mánudaga. Föstudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00, eftir komu rútu. Viðkoma í inneyjum. Frá Brjánslæk kl. 19.30 Til Stykkishólmskl. 23.00 Þriðjudaga: Frá Stykkishólmi kl. 14.00 eftir komu rútu. Frá Brjánslæk kl. 18.00 Til Stykkishólms kl. 2.1.30 Laugardaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Sigling um suðureyjar. Frá Brjánslæk kl. 15.00 Til Stykkishólms kl. 19.00 Á timabilinu 1. iúlí tll 31. áqúst Miðvikudaga: Frá Stykkishólmi kl. 09.00 Frá Brjánslæk kl. 14.00 ■ Til Stykkishólms kl. 18.00, fyrir brottför rútu. Viökoma er ávallt í Flatey á báðum leiðum. Bílaflutnlnga er nauðsynlegt að panta með fyrirvara. FráStykkishólmi: Frá Brjánsiæk: Hjá afgreiðslu Baldurs Hjá Ragnari Guðmundssyni Stykkishólmi, s.:93-8120 Brjánslæk, s.: 94-2020. Lokad verður vegna sumarleyfa frá 14. júlí til 11. ágúst. Agnar Ludvigsson hf. Nýlendugötu 21. Sími 12134. t l ímtr é sparar fyrir þig Límtré fyrirliggjandi úr furu, eik og brennL Tilvalið efni fyrir þig til að smíða úr sjálfum þér til ánægju - og svo sparar þú stórfé um leið! Hringdu í síma 621566 og við veitum fúsiega allar nánari upplýsingar. NYI I SIMANUMER jBBm-di
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.