Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 53 Celebrant Sing- ers á íslandi Og hvað er svona æðislega gam- an? — Gaman að geta farið f sund á hverjum degi, fara í fjöruferðir og gönguferðir um nágrennið. Vera í borðtennis og búa til flugdreka. Jú, líka að vera á kvöldvökunum og leika þar og syngja og leika fyrir myndbandsupptökumar. Við getum séð okkur sjálf þar á eftir. Orðnar sjónvarpsstjörnur. En er ekkert leiðinlegt? — Jú, sagði Ámi. Það er svo sem ekkert gaman að þurfa að taka til eftir sig í borðsalnum en það þarf nú að gera það og gott ef allir hjálp- i ast að við það. Svo það er ekkert svo mjög leiðinlegt. Mér fínnst leiðinlegt að þurfa að f vera inni, ef ég er með kvef og get ekki farið í sundlaugina, þegar hin- ir krakkamir fara, sagði Helga. Við höfum frétt af því, að það sé ekki alveg fullt í síðasta flokkn- um, sem er 21. júlí til 1. águst. Við hvetjum krakka á aldrinum 7-12 ára að slá til og koma í síðasta flokkinn. Starfsliðið er frábært og góður matur hjá Jóhönnu og Haf- dísi. Svo má ekki gleyma því, að við höfum lært heilmikið um Guð sem við vissum ekki áður og það byggir upp okkar trú, svo við höftim eitthvað að geyma okkur eftir að heim er komið. Of lítið talað við krakkana Jóna H. Bolladóttir, einn sumar- búðastjóranna, hefur verið með drama eða leikræna tjáningu með krökkunum. Var Jóna spurð að því, hvaða tilgangi það þjónaði að vera með leikræna tjáningu í sum- arbúðum. — Okkur er það efst í huga að leyfa krökkunum að upplifa ævintýra- heim. Þau leika sér ekki eins mikið og áður fyrr. Nú eru þau mötuð á leiktækjum. Skapa lítið sjálf. Breyta sér ekki í einhveijar kynjaskepnur og leika í leikriti og upplifa eitthvað sem leikrit. Reynum að láta þau eiga lítinn ævintýraheim. Hjálpum þeim til þess að opna sig. Otrúlegt, hvað sum eru heft og þora varla að opna sig. Það getur oft á tíðum verið létt- v/i ast að vera með böm á aldrinum 7-9 ára í leikrænni tjáningu. Þau *' eru ekki eins heft og þau eldri. Oft er ég með þessar æfíngar á fræðslu- stundunum. Reyni að gera drama- æfíngar, sem tengjast viðfangi fræðslustundanna. Láta þau fara í æfíngar einnig, þar sem þau þurfa að einbeita sér. Hópeflisæfíngar eru mjög góðar í þeim efnum. Þar þarf hver og einn að leggja sig fram, fá þau til þess að vinna saman, því ef þau gera það ekki, þá er allt ónýtt, sem verið er að fást við. Leikritin tekin upp á myndband Undanfarið höfum við verið að taka upp leikritið okkar á mynd- band, sagði Jóna. Fá þau tilsögn strax fyrsta daginn og áfram. Síðan, þegar að upptökunni er kom- ið, þá leggja þau sig mjög fram við að standa sig. Það kemur vel í ljós, hversu lítið er talað við þau heima fyrir. Er oft vandamál að fá þau til þess að tala og tjá sig. Hér í sumarbúðunum erum við eins og ein stór fjölskylda í 12 daga. Einbimi geta upplifað það að taka þátt í stórijölskyldulífi. Sést það bezt, þegar þau fara héðan í burtu, þá hefur margt breytzt. Þau þurfa að taka tillit hvert til annars og ná ekki að skila árangri nema láta að stjóm. Krakk- arnir þrá aga og vilja að honum sé viðhaldið. Þar finna þau öryggi og sælu. Það er með öðmm orðum reynt að láta þau fínna það að þau eru einhvers virði og hafi öll ein- hveiju hlutverki að gegna. -pþ Texti og myndir: Pétur Þorsteinsson BANDARÍSKI kórinn og hljóm- sveitin Celebrant Singers verða stödd hér á landi dagana 9.—21. júlí nk. Þau komu hingað einnig siðastliðið sumar og fluttu tónlis sína á Reykjavíkursvæðinu. A tónleikum Celebrant Singers fer saman lofgjörð og tilbeiðsla í söng, með flutningi sálma og trúar- söngva. Einnig segja tónlistar- mennimir frá starfí sínu víða um heim. Meðlimimir koma víðsvegar að úr Bandaríkjunum og Kanada, þeir tilheyra átta mismunandi kirkju- deildum og hafa verið valdir úr stórum hópi ungs fólks. Þetta unga fólk hefur helgað líf sitt boðun fagn- aðarerindis Jesú Krists vítt og breitt um heiminn. Dagskrá þeirra hefst fímmtudag- inn 10. júlí í Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, kl. 20:30. Síðan verða tónleikar á Lækjartorgi kl. 12:00 og 15:45 á föstudag, ásamt íslensk- um iistamönnum, 12. júlí í Fella- kirkju, Breiðholti, kl. 20:30 og í Kristskirkju og Fíladelfíukirkjunni þann 13. júlí kl 10:30 og 20:00. Að þessu loknu heldur hópurinn út á land og syngur í Vestmanna- Celebrant Singers eyjum 14. og 15., á Egilsstöðum 17., Vopnafirði, 18., Akureyri 19. og 20. og loks á Olafsfirði þann 20. júlí. Heimsókn þessi er að tilhlutan Hvltasunnumanna og er öllum heimill aðgangur að hljómleikum þessum meðan að húsrúm leyfír. í Cap d'Agde eru endalausar vatnsrennibrautir og öldusundlaugar fyrir börnin aö busla í. Nú kemst öll fjölskyldan í sólarfeið tíl Cap d'Agde Sumarleyfisstaöurinn Cap d’Agde á Miöjaröarhafsströnd Frakklands er sannkölluð sólarparadís. Úrval gerir allri fjölskyldunni kleift aö komast þangað fyrir viöráðanlegt verö með því aö bjóöa mjög ríflegan barnaafslátt: 50% afslátt af fullorðinsverði fyrir 2-12 ára. í júlí getur fjölskyldan farið í 2 vikna ferö fyrir kr. 24.975.- á mann og í 3 vikna ferð fyrir kr. 27.225.- á mann. Verðið miðast viö hjón með tvö börn 2-12 ára. Vatnsrennugarðurinn Aqualand, sem er við hliðina á gististöðum Úrvals, er heimur út af fyrir sig jafnt fyrir börn sem fullorðna. Greitt er 20% út og afgangurinn á 6-8 mánuðum eftir heimkomu. Innifalið: Flugfar, akstur milli flugvallar og gististaða úti. Gisting í glæsilegu íbúðarhóteli. íslenskur fararstjóri. Brottför 23. júlí - 2 eða 3 vikur: 4 íbúðir lausar Brottför 13. ágúst - 2 eða 3 vikur: 2 íbúðir lausar FfRÐASKRIFSTOFANÚRVAL Ferðaskrifstofan Úrval v/Austurvöll. Sími (91) 26900. G0TT FÖLK / SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.