Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 44

Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 Áfengið gleymdist í ofboðinu vegna ólöglegra fíkniefna eftir Árna Einarsson Breska stjómin sætir stöðugt auknum þrýstingi frá heilbrigðis- yfirvöldum þar í landi að snúast betur en gert hefur verið gegn auknum áfengisvandamálum. Bretar neyta nú nær tvöfalt meira áfengis en fyrir 30 árum og á sama tíma hefur raunverð áfeng- is lækkað um helming, segir í skýrslu sem liggur fyrir Neðri mál- stojfu breska þingsins. í skýrslunni (An Agenda for Action on Alcohol) er farið fram á aukið aðhald í leyfisveitingum til áfengissölu, aukna skatta á áfengi og herta löggjöf vegna ölvunarakst- urs. „í skýrslunni er farið fram á aukið aðhald í leyfisveitingum til áfengissölu, aukna skatta á áfengi og herta löggjöf vegna ölvunar- aksturs.“ kom fram í máli eins ræðumanna, Don Steele, að: „Ofboðið vegna ólöglegra fíkniefna dregur athygli frá aðalQandanum, áfenginu. Arið 1984 létust a.m.k. 26.500 vegna ofneyslu áfengis — en „aðeins" 235 vegna ofneyslu ólöglegra fíkniefna. Stjómin eyðir 17 milljónum punda árlega í að vinna gegn neyslu ólög- Árni Einarsson legra fíkniefna, en 1 milljón punda er varið til fræðslu um áfengi." I skýrslunni kemur fram að á liðnum ámm hafi þrír ráðherrar heilbrigðismála látið uppi áhyggjur vegna áfengismála en lítið hafi ver- ið að gert þar eð fjármálaráðuneytið ákveði skattlagninguna. Lagt er til að stefnt verði að 30—40% minnkun á áfengis- neyslu næstu fimm árin; t.d. með því að hækka áfengisverð umfram almennar verðhækkanir og með enn hærri sköttun á sterka drykki. Áfengisframleiðendur eyða milli 1 og 2 milljónum punda árlega í aug- lýsingar og íjárstyrkir í auglýsinga- skyni hafa aukist um nær 25% á ári frá 1981, segir í skýrslunni. Kannanir sýna að þar að auki ber áfengi á góma eða er sýnt í a/4 breskra sjónvarpsþátta. Breska læknasambandið (British Medical Association) lýsti á ársþingi sínu 1985 yfir stuðningi við bann við áfengisauglýsingum frá árinu 1990; einnig að skattar á áfengis- auglýsingum, þ. á m. fjárstuðningi ýmiss konar, standi undir kostnaði vegna heilbrigðisfræðslu þangað til. I skýrslunni er lýst áhyggjum vegna ölvunaraksturs sem leiddi til dauðau.þ.b. 1.200 manns árið 1983 og 7.000 alvarlegra slysa. Rúmlega 50% aukning varð á dómum vegna ölvunaraksturs á árunum 1973— 1983. Samtökum gegn ölvunar- akstri vex nú fylgi í Bretiandi en þau hafa strangari löggjöf vegna ölvunaraksturs á stefnuskrá sinni. Prófessor Brian Pritchard við Uni- versity College í London segir: „Algengasta orsök dauða ungs fólks er umferðarslys þar sem ölvun kemur við sögu en yfir 500 ung- menni farast af þessum sökum árlega." „Þetta manndráp er svívirðilegt siðleysi þar sem koma má í veg fyrir það að mestu leyti," segir pró- fessor Prichard einnig. Byggt á „Health Education News nr. 58 maí/ júní 1986.) Höfundur er fulltrúi hjá Áfengis- varnarráði. búið að gefast upp fyrir tóbakinu og sér enga von til þess að geta lagt af þennan ávana eða dregið úr reykingum sínum. Munnstykkin geta í fyrsta lagi hjálpað þessu fólki til að minnkaa reykingarnar og í öðru lagi til að öðlast betri — í versta falli skárri — líðan með því að draga úr þeirri hrikalegu meng- un sem líkami stórreykingamanna verður fyrir. Niðurstaðan verður því óhjá- kvæmilega sú að munnstykkin dragi úr skaðsemi reykinga — hjálpa meira að segja sumum til að hætta — og láta þar af leiðandi ekkert nema gott af sér leiða. En þeir sem ráða tóbaksvömum í landinu virðast þó ekki geta fallist á þessi rök. Hinsvegar treysta þeir sér til að mæla með þartilgerðu jórturleðri sem hefur verið eyðilagt með nikótíni og menn geta fengið út á lyfseðil í hvert sinn sem tóbaks- löngunin ætlar þá lifandi að drepa. Þetta er auðvitað gott og blessað ef það hjálpar einhverjum til að losna úr viðjum tóbaksins — en því miður: fyrir því er engu meiri trygg- ing en að munnstykkin geri það. Dr. Þorsteinn Blöndal er að vísu í DV mánud. 30. júní borinn fyrir einhverjum tölum um ágæti þessa jórturgúmmís en ég fæ ekki séð að þær séu á nokkum hátt hvorki áreiðanlegri né merkilegri en tölur sem ég he um ágæti munnstykkj- anna. Þess vegna fínnst mér vægast sagt mótsagnakennt — og sérstak- lega ef höfð er í huga sú herferð sem nú er farin gegn reykingum — að yfirmenn tóbaksvama skuli ýmist beinlínis leggjast gegn sölu á munnstykkjunum eða mæta þeim með algjörri þögn. Það læðist að manni sá illi grunur að þama kunni að liggja einhverskonar viðskipta- hagsmunir að baki. Með innflutningi á Tar-Gard- munnstykkjunum tel ég mig vera að leggja þeim öflum lið sem beij- ast gegn reykingum. Þar af leiðandi finnst mér hreint og beint ljótt af stýrendum reykingavama á Islandi að halda því leyndu fyrir neytendum — og þá sérstaklega þeim sem eiga í virkilegum vandræðum með að stjóma reykingum sínum — að munnstykkin geti orðið þeim að liði í baráttunni við tjöru og nikótín. Ef einhver getur sýnt mér fram á með haldbærum rökum að þau stuðli að eða auki reykingar skal ég gjarnan endurskoða þessa af- stöðu — en ekki fyrr. Allar rann- sóknir sem á þeim hafa verið gerðar benda ótvírætt til þess að með notk- un þeirra dragi mjög úr flutningi á skaðlegum efnum til lungnanna. Og svona í lokin sakar kannski ekki aðgeta þess að munnstykkin má fá um allt land — án lyfseðils .. . Höfundur er forstjóri íspró í Reykjavík. Jón Magnússon og Bjamveig Friðriksdóttir, Fögrubrekku, Gjögri. Að reykja eða ekki Stjómendur Steríó í nýja húsnæðinu. Frá vinstri: Garðar Runólfsson, Magnús Karlsson og Þóroddur Skaptason. Verslunin Steríó flutt í stærra húsnæði VERSLUNIN Steríó er nú flutt í nýtt og stærra húsnæði á Laugaveg 63. Verslunin var áður til húsa í Hafnarstræti 5 en þar var gólfrými einungis um 35 fermetrar. Á nýja staðnum er gólfrými hins vegar 300 fermetrar og gjörbreytist því öll aðstaða viðskiptavina og starfs- manna verslunarinnar. Steríó verslar með ýmiss konar tæknivöru svo sem hljómflutnings- tæki, myndbönd, sjónvörp, ör- bylgjuofna og bílaútvörp. Auk þess hefur verslunin einkaumboð fyrir um 40 vörumerki, þar á meðal Ac- om BBC-tölvumar, sem um 60 íslenskir skólar hafa tekið í notkun. Þeir hjá Steríó hafa annast upp- setningu tölvubúnaðar og hljóðvera og á síðustu árum hafa þeir í vax- andi mæli tekið upp forritunar- þjónustu og samningu forrita. , eftir Róbert Clausen Á undanfömum sex mánuðum hef ég verið að kynna og markaðs- færa litla og einfalda vöm hér á landi. Hún er þó með þeim eiginleik- um gerð að hún dregur úr skaðsemi reykinga þannig að stór hluti af nikótíni og tjöm sem annars berst til lungnanna gerir það ekki. Varan heitir Tar-Gard og er sígarettu- munnstykki. Uppgötvun munnstykkisins — eða tjömsíunnar — byggist á lög- máli ítalska eðlisfræðingsins Venturis sem var uppi á átjándu öld. Reykurinn dregst gegnum örmjótt op og síðan er hraði hans aukinn upp í um það bil 300 km hraða á klst. Þá rekst hann á haft sem stöðvar tjöm og nikótín. Munn- stykkin em gagnsæ svo reykinga- fólk getur fylgst með hversu mikil tjara berst úr hverri sígarettu og hef ég fyrir satt að þessi áhrif hafi hjálpað mörgum til að hætta að reykja. ^Ættarmót í TILEFNI af hundrað ára fæð- ingarafmæli Jóns Magnússonar frá Gjögri síðar á þessu ári ætla afkomendur hans og konu hans, Bjarnveigar Friðriksdóttur, að koma saman og halda upp á þessi tímamót. Jón, sem var fæddur 11. desem- ber 1886 og lést 1946, ogBjamveig (f. 1897 d. 1976) bjuggu allan sinn búskap á Gjögri í Strandasýslu og reistu sér þar hús er þau nefndu Fögmbrekku. Mótið verður haldið í Ámesi í Strandasýslu, laugardag- inn 12. júlí nk., og hefst með minningarguðsþjónustu í Ámes- ). kirkju kl. 14. Að henni lokinni ' hefjast hátíðahöld í samkomuhús- inu í Ámesi. „Margt af þessu fólki er hreinlega búið að gefast upp fyrir tóbak- inu og sér enga von til þess að geta lagt af þennan ávana eða draga úr reykingum sínum.“ Þetta er kannski í sjálfu sér ekk- ert merkilegt og varla tilefni til blaðaskrifa. En hitt er þó öllu at- hyglisverðara að hvar sem ég hef reynt að kynna þetta einfalda tæki fyrir þeim sem starfa að tóbaks- vömum hefur mér ýmist verið mætt með fáleikum eða andúð. Það reyndist ekki rétt sem ég í einfeldni minniu hélt: að allt sem orðið gæti til að minnka skaðsemi reykinga eða jafnvel hjálpað fólki til að hætta væri vel þegið af þeim sem láta tóbaksvamir í landinu til sín taka. En sem sagt: nei. Og þess vegna fannst mér ástæða til að skrifa nokkur orð í blöðin. Til er fjöldinn allur af fólki sem nú á síðustu árum og mánuðum hefur farið að hugsa til þess að hætta að reykja. Það hefur átt sér stað viðhorfsbreyting gagnvart reykingum sem hefur veitt mörgum „móralskan" stuðning í stríðinu við sígarettuna. Sumir hafa einfaldlega hætt að reykja. Aðrir hafa reynt að minnka reykingamar, farið á námskeið, en sífellt byrjað aftur. Og svo eru þeir sem alltaf ætla að hætta á morgun. Það em þessir tveir síðastnefndu hópar sem hafa verulegt gagn af tjörusíunum — þó ekki væri nema til þess eins að minnka hratið sem annars færi ofan í lungun, svo ekki sé talað um þann möguleika að síumar geta beinlínis hjálpað fólki til að hætta reykingum. Hvemig? Jú, þannig að þegar munnstykkin eru notuð minnkar nikótínmagnið sem berst til líkamans og þar með Iöngunin f efnið. Eg hef undir höndum skýrslu sem dr. Robert Bames, forstöðumaður Greiningarstofnunarinnar (Ana- lytical Laboratories) í Bandaríkjun- um, hefur gert fyrir framleiðendur munnstykkjanna, Bissell, Inc. þar í landi. Þar kemur fram að tjara og nikótín sem berst til lungnanna úr hverri sígarettu sem er reykt minnkar um 7,4 mg — úr 19,9 í 12,5 mg miðað við algenga ameriska sígarettutegund. Þetta eru 37,3%. Menn geta svo leikið sér að því að margfalda þessa tölu með þeim fjölda sígaretta sem þeir reykja á dag eða jafnvel ári og þá kemur fljótlega í ljós hversu miklu magni af óþverra þeir forða lungum sínum frá. Satt að segja sé ég engin hald- bær rök fyrir því að munnstykki af þessu tagi stuðli að eða auki reykingar — þvert á móti raunar. Eins og allir vita em þeir margir sem hafa gert ótal misheþpnaðar tilraunir til að hætta að reykja. Margt af þessu fólki er hreinlega

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.