Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 16

Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 Tölvur í skólastarfi eftirJón Torfa Jónasson Inng-angur Undanfarin ár hef ég tekið virkan þátt í umræðu um tölvur í skóla- starfi. Stundum hefur verið haft á orði að ég væri helst til ákafur tals- maður mikillar tölvuvæðingar í skólum, en ég hef einnig heyrt kvartað yfir því að ég væri dragbí- tur á stórstíga uppbyggingu tölvu- kosts í skólum. í hvoru tveggja felst nokkur sanngimi og mun ég hér á eftir reyna að útskýra hvers vegna. Rök fyrir tölvu- væðingu skóla Fyrir tveimur ámm tók ég þátt í undirbúningi norræns fundar um tölvur í skólastarfi. Þar lagði ég til að meðal annars yrði rætt hvort gera ætti sérstakt átak til tölvuvæð- ingar í skólum. Samstarfsmenn mínir svöruðu því til að þetta væri útrætt mál í þeirra löndum. Nær væri að ræða hvernig ætti að standa að verki. Ég var ósáttur við þetta þá og er raunar enn. Það má vel vera að flestir séu sammála um að tölvur eigi nú þegar umtalsvert er- indi inn í skólana, en rökin verða að koma fram svo hægt sé að taka tillit til þeirra. Það er að vísu auð- velt að gera heldur mikið úr kröfum um rök og útskýringar. Það er ekki nóg að tala um hlutina, það verður líka að framkvæma. En þar sem kröfumar um tölvuvæðingu skól- anna eru allháværar, kosta bæði fé og tíma, en eru jafnframt afar óljós- ar, tel ég athugun röksemdanna nauðsynlega. Hér á eftir nefni ég sjö vel þekkt- ar staðhæfingar um nauðsyn þess að tölvuvæða skólana. Röðin ræðst af því hve mikinn hljómgrunn þær hafa fengið í almennri umræðu. Ég tel þær fyrst upp og geri síðan grein fyrir sannleiksgildi þeirra og dreg þá ályktun að engin þeirra réttlæti mikla Qárfestingu í tölvu í skólana eins og sakir standa. Hins vegar tel ég nauðsynlegt og eftirsóknar- vert að flétta notkun tölvu inn í ýmsa þætti skólastarfsins og mun útskýra í lokin hvers vegna, hvaða þætti og hvemig þetta mætti gera. Nokkrar staðhæfingar um tölvur í skólastarfi 1. Tölvumar em komnar. Þær em allt í kringum okkur og ef menn læra ekki á tölvur þá verða þeir undir. Við sem eldri emm getum vonandi sloppið á eftirlaun án þess að læra að nota þessi tæki, en krakkamir sleppa ekki. Við verðum aldeilis að taka til hend- inni og kenna þeim öllum á tölvur. Kaupum tölvur. 2. Við stefnum inn í hátækniþjóð- félagið, upplýsingaþjóðfélagið, sem byggir að meira eða minna leyti á tölvum. Atvinnulífið tekur stökkbreytingum og við verðum að miða skólastarfið við að und- irbúa nemendur okkar undir þessar breytingar. Þetta krefst m.a. fræðslu um tölvur og notk- un þeirra. 3. Tölvusérfræðingar, áhugamenn um tölvur, en þó fyrst og fremst sölumenn tölva, em iðnir við að láta frá sér fara hástemmdar fullyrðingar um gagnsemi þess- ara stórkostlegu tækja. Tölvur má nota til flestra hluta, m.a. má nota þær til þess að annast drjúgan hluta venjulegs skóla- starfs. Það er því ærin ástæða til þess að gera stórátak í tölvu- væðingu skólans. 4. Tölvutæknin tekur sífelldum breytingum þannig að ekki er víst að það sem við kennum nemendum okkar nú komi að miklu gagni í starfi þeirra síðar. En aðalatriðið er að fólk losni við tölvuhræðslu og öðlist skiln- ing á nýtingu þessarar nýju tækni. Það skiptir ekki öllu máli hvað kennt er, bara að það sé eitthvað. 5. Tölvur em þegar notaðar tölu- vert í skólastarfí erlendis til margvíslegra hluta og eðlilegt er að auka notkun þeirra hér á landi að sama skapi. Þær em mikilvirk, gagnleg og afar spennandi kennslutæki og auk þess létta þær af kennumm ótal leiðinlegum, vélrænum verkum. 6. Tækniþróun síðustu áratuga krefst þess að ný fræðigrein — tölvunarfræði — verði kennd í öllum skólum, helst strax í gmnnskóla. Þetta er forsenda þess að við getum tekið þátt í samkeppni þróaðra þjóða í há- tækniiðnaði. 7. Tækniþróun síðustu ára hef- ur skapað skilyrði fyrir ný vinnubrögð, bæði í daglegu starfí, atvinnulífí og fræðilegri vinnu. Það er eðlilegt að þetta speglist sem fyrst í þeim þáttum skólastarfsins þar sem það á við. Víkjum nú að þessum staðhæfingum 1. Tölvumar em allt í kringum okkur. Vissulega. Innreið þeirra hefur verið ótrúlega hröð. En það er líka svo ótal margt annað sem er allt í kringum okkur. í nánasta umhverfí em flugvélar, bílar, lyf og vímuefni, popptón- list, sjónvarpstæki, kapalkerfí og myndbönd, bókhaldsreglur og umferðarreglur, kvikmyndir, álverksmiðjur og fískeldi, kjam- orka og geimferðir. Framþróun lífefnafræði og erfðafræði er bæði hröð og ógnvekjandi. Eilí- tið fjær okkur geisa stríð og hungur og mengun ógna mörg- um þjóðum. Líf okkar og umhverfi er orðið æði flókið, en það er ekki ljóst að mönnum sé best borgið með því að læra allt um tæknilegar hliðar þessara mála, þótt vitaskuld sé eftir- sóknarvert að fólk sé vel upplýst um sem flesta þætti umhverfis síns. Þeim mun betri yfírsýn og skilning sem við öðlumst, þeim . mun líklegra er að við stýmm frekar en látum stjómast af tækniflóðinu. En almennar full- yrðingar um innreið tölvanna — blandnar hálfgerðri taugaveikl- un — em til lítillar leiðsagnar fyrir þá sem vilja gera raun- hæfar tillögur um það hvemig tölvur tengjast skólastarfi. 2. Við stefnum inn í hátækniþjóð- félagið, upplýsingaþjóðfélagið. Dveljum um stund við þessa setningu. Hvað varðar upplýsingaþjóðfé- lagið, þá virðist mér öll umræða með ólíkindum óupplýst — mglings- leg og til lítillar hjálpar. Hvað eiga menn við? Við heymm orð eins og upplýsingaiðnaður, upplýsinga- tækni, upplýsingafræði. Þegar talað er um upplýsingar kemur mér stundum' í hug máð skilti á gömlum kofa sem ég sá einu sinni á ferð minni á Álandseyj- um. Það var augljóslega ætlað ferðamönnum og á því stóð: In- formation. Einhvem tíma hefur verið þama leiðsögn að fá um báts- ferðir á nálægar eyjar. Auðvitað er fásinna að láta sér detta í hug að upplýsingar og miðlun þeirra sé eitthvað nýtt, í þann veginn að skella yfir okkur nú á síðustu ámm eða jafnvel á þessari öld. Það sýndi skrýtinn skilning á mannkynssög- unni. En það er bersýnilegt að eitthvað er að gerast nú þessa ára- tugina sem auðveldar öflun, meðferð, geymslu og miðlun upp- lýsinga. Eitthvað, sem skiptir máli þótt við vitum ekki hve miklu. Umræðan um upplýsingar og upplýsingaþjóðfélag er mglingsleg af tveimur ástæðum: í fyrsta lagi er mörgu hrært saman. Rafeinda- fískivogum, myndbandagerð (og -glápi), bókhaldi, skjalavinnslu, tölvustýrðum geimferðum, skóla- og rannsóknastörfum, auglýsinga- gerð, vörulagerkerfum og gervi- Jón Torfi Jónasson Fyrri hluti „Niðurstaða mín er sú að í almennu skóla- starfi eigi ekki að fara sér óðslega í kennslu ákveðinna tækniatriða, en beina athyglinni að ýmsum grunnþáttum í meðferð upplýsinga og undirstöðuatriðum tölvutækninnar.“ hnöttum, allt er þetta merkt upplýsingum. I öðm lagi er mikið rætt um tæki og tækjabúnað en lítið um upplýsingar. Það er sem sagt óljóst hvers konar upplýsingar er verið að tala um þegar talað er um upplýsinga- þjóðfélag og jafnframt er óljóst að hvaða marki umræðan snýst í raun og vem um þær. Það er vitaskuld ýmislegt í nýju tækninni sem gerir okkur auðveld- ara um vik en áður bæði hvað varðar tjáningu og vinnu með upp- lýsingar, hún lætur okkur í té mikilvirk tæki af mörgu tagi. Ég ætla að nefna hér þekktustu dæmin. Ritvinnsla Þar er texti skrifaður, settur skipulega upp og geymdur. Forrit (m.a. íslensk) geta að vissu marki leiðrétt stafsetningarvillur og höf- undur fær jafnvel stíllegar ábend- ingar. Ef um fræðilegt efni er að ræða er hægt að láta tölvuna búa til atriðaorðaskrá og efnisyfírlit. Töflureiknar Þar em gerðir margs konar út- reikningar og tölur, hvort sem það em bókhaldstölur eða rannsóknar- niðurstöður settar í myndrænt form t.d. línurit eða súlurit. Þessi tæki em notuð til áætlanagerðar og yfír- lits í rekstri fyrirtækja, til tölfræði- legra útreikninga, og til skýrslu- gerðar af ýmsu tagi. Gagnagrunnar Inn á tölvu em skráðar upplýs- ingar af ýmsu tagi, svo sem þjóð- skráin, lagasöfn eða birgðaskrár, skjalasöfn og heimildaskrár og auð- veldar þetta til muna alla upplýs- ingaleit. Ekki líður á löngu þar til orðabækur og alfræðirit af ýmsu tagi verða fáanleg á tölvuskífum eða í litlum teningum, sem setja má í tölvu. í fljótu bragði virðist mikilvægt að læra á öll þessi kerfí vegna þess hve hjálpleg þau geta verið við okk- ar daglegu störf í hinu nýja upplýs- ingaþjóðfélagi. Ef kennsla slíkra kerfa væri tekin upp í skólunum nú þá er vel af stað farið. Eða hvað? Það er einmitt þróun ofan- greindra kerfa sem hefur verið mest áberandi nú síðustu tvö árin. Með tilkomu einmenningstölvanna stækkar markaðurinn fyrir þau hreint ótrúlega og þau verða sölu- vara af öðm tagi en fyrr. Nú em það ekki einungis stórar stofnanir og fyrirtæki sem kaupa þennan búnað. Geysilegt átak hefur verið gert til þess að gera kerfín þannig úr garði að sem flestir geti notað þau, en til þess að svo megi verða, þurfa þau að vera afar auðlærð (svo ekki þurfí að fara á námskeið til þess að ná valdi á þeim) og auð- veld í meðfömm þannig að þau liggi vel við daglegri notkun. Sum em furðu aðgengileg (sbr. „Mac-write“-ritvinnslukerfíð), en samt má búast við miklum breyting- um á næstu ámm. Kerfí nánustu framtíðar munu að mörgu leyti verða öðmvísi uppbyggð, en þau sem við emm nú að venjast og krefj- ast annarra vinnubragða. Einstök forrit úreldast að þessu leyti afar fljótt. Um nokkurt skeið verður vélritunarkunnátta þó mikilvæg í allri tölvunotkun og að mínu viti mættu menn gefa henni ennþá meiri gaum en nú er gert. Spumingin er því sú hvort helstu kerfín verði ekki bráðlega svo auð- lærð að ástæðulaust sé að kenna þau en við gætum einbeitt okkur í alvöru að efnislegum þáttum tölvu- notkunarinnar. Snúið okkur að þeim þáttum sem virðast oft verða útundan í umræðu um tölvur og tölvunotkun. Það em þó einmitt þeir þættir sem réttlæta tölvuvæð- ingu og gera hana spennandi. Hveijir em þessir þættir? Við viljum nota tölvu til þess að afla, vinna úr og miðla upplýsingum. Þetta skilja margir svo að nauðsyn- legt sé af þessum sökum að læra allt um tölvur og tæknibúnað. En þetta er misskilningur. Mun mikil- vægara er að læra um það, sem lýtur beint að upplýsingunum sjálf- um. Hyggjum nú nánar að þessu. Við viljum nota tölvur til þess að afla upplýsinga og þekkingar. Tölvur hafa að mörgu leyti gjörbreytt að- stöðu okkar til þess að safna og skrá upplýsingar og — því miður liggur mér við að segja — gert þetta svo ótrúlega auðvelt. En það er eftir sem áður vandasamt verk að afla upplýsinga, sem em einhvers virði og ég er sannfærður um að hlutfall nauðsynlegra upplýsinga af hinu ört stækkandi upplýsinga- fjalli fer sífellt minnkandi. Það sem brýnt er að kenna nemendum í þessu sambandi er einmitt að afla upplýsinga almennilega og kenna þeim að velja og hafna. En þetta verður ekki gert á almennum nám- skeiðum, heldur fyrst og fremst innan hverrar kennslugreinar fyrir sig. Það er fátt, sem kennt er um skilmerkilegar athuganir á hraun- kvikunni undir Kröflu, sem nýtist þegar athuga á lesblindu, þegar fínna þarf nýtt símanúmer gamals kunningja á Akureyri eða þegar leitað er eftir vel skrifaðri og efnis- mikilli grein um upplýsingaþjóð- félagið. Sá vandi, sem hér er íað að er iðulega vanmetinn og þau em ófá dæmin um að böm upplýsinga- þjóðfélagsins, helli sér út í upplýs- ingasöfnun af miklu hugrekki og full bjartsýni, en átti sig engan veginn á því hve gögnin sem þau fá í hendumar em lítils virði og hve eftirleikurinn er oft erfiður. Sumir halda jafnvel að þeir geti bara látið tölvuna sjá um afganginn: „Ur- vinnsla gagnanna; jú, hún er öll unnin í tölvu." Hér er raunar komið að helstu réttlætingu tölvuvæðingar. Tölvur em fyrst og fremst gagnlegar til þess að vinna úr upplýsingum. Hér má nefna tölfræðilega útreikninga sem t.d. er beitt á vísindalegar nið- urstöður, reikninga þjóðarbús, fyrirtækja eða einstaklinga og nið- urstöður kannana af ýmsu tagi. Hér má einnig nefna tölvuleit að upplýsingum þar sem safnað hefur verið saman fróðleik um t.d. af- mörkuð svið jarðfræði, læknisfræðí eða lögfræði. Svipaða sögu er að segja um miðlun upplýsinga og áður er sögð um úrvinnslu þeirra og öflun. Fram- reiðsla ritaðs máls er orðin ákaflega auðveld, en öguð og skilmerkileg samantekt og frásögn vefst fyrir mörgum. En ég held að margt megi læra um þetta eins og um margt annað. En það hlýtur fyrst og fremst að lúta að efninu ssm miðla á og framsetningu þess, en ekki þeim tölvukerfum sem kunna að verða notuð. Nú dreg ég saman athugasemdir mínar um tæki og efni. Ef svo heldur sem horfír að rit- vinnslan, reiknikerfín og gagna- grunnskerfín verði tiltölulega auðveld í notkun er nauðsynlegt og mögulegt að skerpa dómgreind og skilning notendanna á þeim verkum sem vinna á. Þetta næst ekki nema með því að þekkja efnið vel og skilja þær aðferðir sem á að nota. Þetta eru atriði sem virðast verða ótrúlega oft útundan í umræðu manna um tölvur og tölvuvæðingu skólastarfsins. I máli mínu hér að framan um tölvur og svokallað upplýsingaþjóð- félag, hef ég einkum rætt tvennt. í fyrsta lagi afar óljósa notkun hugtaka og síðan tengsl tækninnar og efnisins sem við ætlum að nota hana til þess að glíma við. Næst vil ég snúa mér að öðrum þætti þessa nýja þjóðfélags, þeim sem nefndur er hátækniiðnaður. Undanfarið hefur nokkuð verið rætt um að við íslendingar þurfum að taka þátt í stórstígri þróun nýrr- ar tækni og til þess að svo megi verða þá má ætla að við verðum að tengja tölvur og tölvutækni skólastarfinu í auknum mæli. Það er vert að hafa það í huga í þessu sambandi að töívuvæðing breskra skóla byggist fyrst og fremst á slíkum rökum og raunar kom mest af því fé sem varið var til kaupa á búnaði í skólana frá breska iðnaðar- ráðuneytinu og frá iðnfyrirtækjun- um sjálfum, en ekki frá menntamálaráðuneytinu. Þetta skiptir að sjálfsögðu máli þegar við (eða önnur Norðurlandanna) erum að bera okkur saman við Breta í þessum málum. Við bendum á þeirra framtak og fjárfestingar til samanburðar en gleymum því stundum að réttlætingin var fyrst og fremst sú að undirbyggja bre- skan hátækniiðnað. Hátækniiðnaður er afar vítt og sveigjanlegt hugtak og tvær spum- ingar skjóta upp kollinum ef hugmyndina um samkeppni á að taka alvarlega. Hin fyrri er sú hvort ekki sé nauðsynlegt að einbeita okkur að tilteknum sviðum og hin seinni, hvemig best megi undirbúa komandi kynslóðir undir þátttöku í harðri samkeppni svo eitthvert vit sé í? Eigum við að stefna að smíði gervihnatta, fjarskiptakerfa, for- rita, fiskormaskynjara eða sér- hæfðra upplýsingabanka? Ekki getum við orðið samkeppnishæf á öllum sviðum hátækninnar. Við emm að mínu mati í svip- aðri stöðu og Álendingar. Vorið 1985 var ég á norrænum fundi sem haldinn var á Álandseyjum og fjall- aði um tölvuvæðingu skólanna. Heimamönnum þótti heldur óvæn- legt að reiða sig á helstu atvinnu- vegi sína, siglingar og ferðamanna- straum og útskýrðu fyrir fundarmönnum að þeir ætluðu sér, si svona, að hasla sér völl í hátækni- iðnaði, þar væri framtíðin. Við sama tækifæri sagði mér Finni, sem stjómar rannsóknarstofnun í Hels- inki, að þessi yfírlýsing hljómaði kunnuglega í eyrum. Ótrúlega mörg bæjarfélög, stór og smá, hefðu haft um það stór orð að nú ætluðu þau að hella sér út í hátækniiðnaðinn. Hann taldi raunar að fá þeirra ættu erindi út í þá samkeppni sem nú ríki á þessu sviði. En hvað um það. Líklegt er að margir ætli sér nú að róa á þessi mið og væntanlega verður að velja einhver ákveðin við- fangsefni. Þá væri e.t.v. hægt að gera markvisst og öflugt átak í menntun þess fólks sem ætlar að taka þátt. En ef menn eru að hugsa um slíkt af einhverri alvöru hér á landi þá er ég sannfærður um að það kostar allt önnur vinnubrögð og mun meira fé en nú er um að tala. Síðan verða menn að átta sig á því að það dugar ekki að veita fé bara til rannsókna. Uppbygging til lengri tíma krefst peninga til menntunar, (en þeim á ekki að veija

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.