Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Rallakstur:
Sjö eiga góða mögrileika á
íslandsmeistaratitlinum
ÞEGAR íslandsmeistara-
keppnin í rallakstri er tæplega
hálfnuð eru nokkrir ökumenn
líklegri en aðrir til að beijast
iiiii titilinn. Keppt er bæði til
Islandsmeistara ökumanna og
aðstoðarökumanna, en vegna
mannabreytinga eru horfur á
jafnri keppni. Yfirleitt keppa
sömu áhafnir á sömu keppnis-
bUum, en mismunandi aðstoð-
arökumenn hafa fylgt sumum
ökumönnum, sem ruglar stöð-
una þegar spáð er í möguleika
keppenda á titlinum eftirsótta.
Fyrir næstu keppni á Húsavík,
dagana 19,—20. júlí, standa feðg-
amir Jón Ragnarsson og Rúnar
Jónsson best að vígi, báðir eru í
efsta sæti í stigakeppninni.
Árangur þeirra frá því þeir byij-
uðu að aka saman á síðasta ári
er stórkostlegur. Aldrei hafa þeir
orðið að hætta keppni og alltaf
náð einu af efstu sætunum. Þeir
sigruðu í Ólafsvíkurrall fyrir
nokkrum vikum og státa því af
glæsilegum árangri. Er engin
ástæða til að ætla annað en fram-
hald verði á velgengninni. Jón er
í fyrsta skipti kominn með sigur
í sarpinn sem ökumaður, sem
gæti kynnt hann upp í grimmari
akstur, sigur verði eina markmið-
ið í röllum hér eftir. Það gæti ýtt
undir bilanir eða mistök í akstri.
Ford Escort Jóns er traustur, bú-
inn 260 hestafla vél og hann hefur
Morgunbladið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Þórhallur á leið til sigurs í fyrstu keppni ársins á Talbot Lotus. Hann er í öðru sæti.
Stórhuga voru Hafsteinn Aðal-
steinsson og Birgir Viðar Hall-
dórsson á Ford Escort fyrir
keppnistímabilið og eftir að hafa
náð þriðja sæti í fyrstu keppn-
inni. Birgir meiddist í umferðar-
óhappi fyrir næstu keppni og
Sigurður Jensson fór með Haf-
steini til Ólafsvíkur. Þar hættu
þeir keppni vegna bilunar, sem
hefti frekari stigasöfnun Haf-
steins. Óljóst er hver fara mun
með Hafsteini, en 200 hestafla
Escort hans er nánast öruggur í
toppsæti og verður Hafsteinn að
ná góðum árangri í Húsavík elleg-
ar missa af lestinni í baráttunni
um titilinn.
Fjarlæga möguleika eiga tveir
aðrir ökumann. Eiríkur Friðriks-
son á Ford Escort og Steingrímur
Ingason á Nissan eru jafnir að
stigum í sjötta sæti, en nokkuð
langt frá toppnum. Steingrímur
verður á heimaslóðum á Húsavík
og ekur því örugglega grimmt,
en óljóst er hvort Eiríkur heldur
áfram keppni ásamt félaga sínum
Þráni Sverrissyni. Þeir hafa ekki
ákveðið hvort þeir keppa á
Húsavík. Einnig hyggur Júlíus
Vífíll Ingvarsson, aðstoðaröku-
maður Steingríms, á hvíld vegna
Seigla og áræði hafa skilað Þorvaldi Jenssyni og Pétri Sigurðssyni
í fjórða sætið á lítt breyttum Opel Kadett.
Hjörleifur Hihnarsson á Toyota kom á óvart og náði öðru sæti í
Ólafsvíkurrallinu. Hann gæti orðið ofarlega i íslandsmeistarakeppn-
„Allt á síðasta snúningi“
- segir Gunnlaugnr Rögnvaldsson, sem
keppir 1 rallakstri í Tékkóslóvakíu
„ÞETTA er allt á seinasta snúningi. Ég var hættur við að fara
til Tékkóslovakíu því ekki fékkst leyfi fyrir því að ég æki bílnum
hjá einhveijum kerfisköllum þar í landi. Það bjargaðist skyndi-
lega um helgina, en timi til undirbúnings hefur ekki verið neinn.
Það þýðir samt ekkert annað en að kýla á þetta,“ sagði Gunnlaug-
ur Rögnvaldsson i samtali við Morgunblaðið. Um næstu helgi,
dagana 11.—13. júlí, keppir hann á Skoda 130 L í rallkeppni í
Tékkóslóvakiu. Er það bíll sem hann fær lánaðan hjá Chemopet-
rol Skoda Team, sem er framarlega í flokki þar í landi.
„Fyrir tveimur mánuðum var
ákveðið að ég færi til Tékkóslóv-
akíu og keppti á þessum bíl. Síðan
kom bakslag á það í síðustu viku
og ég var hættur við að fara, fékk
ekki tilskilið léyfí til að aka
bílnum. Síðan hringdi aðstoðar-
ökumaðurinn, Tékkinn Pavle
Sedivy, í mig um helgina og sagði
að allt væri klárt! Það er bagalegt
að fara undirbúningslaus út, en
ég keppti þó þama í fyrra og
þekki sumar leiðimar sem allar
em á malbiki. Sedivy þekkir allar
leiðimar, hefur keppt þama í
mörg ár og varð m.a. í ellefta
sæti í stórri keppni fyrir tveimur
vikum á eins bíl og ég mun aka.
Það er um 100 hestafla Skoda.“
„Það var mikið ævintýri að
keppa þama í fyrra og þó liftiaðar-
hættir séu mun fátæklegri en í
Vestur:Evrópu er fólkið hjálp-
samt. Áhugi á rallakstri er mikill,
enda lítið um að vera dags dag-
lega á þessum slóðum. Rallið er
í Mlada Boleslav, framleiðsluborg
Skoda-bflanna. Það er því stutt
að sækja varahlutina," sagði
Gunnlaugur.
Gunnlaugur fór með Skoda frá tslandi til keppni i fyrra í Tékkóslóvakíu og þá var þessi mynd
tekin. Nú ekur hann lánsbO frá Chemopetrol Skoda Team.
inni.
peninga til að halda bflnum í topp-
standi. Að því leyti stendur hann
betur að vígi en margir rallöku-
mann, það gæti vegið þungt á
vogarskálunum.
Þórhallur Kristjánsson á Talbo
Lotus er í öðru sæti. Hann hefur
haft tvo aðstoðarökumenn á ár-
inu, Sigurður Jensson ók með
honum til sigurs í fyrstu keppni
ársins, en á Ólafsvík varð hann
þriðji með Úlfari Eysteinssyni. Fór
hann þar rólega yfír miðað við
fyrri keppnina, enda með nýjan
mann sér við hlið. Bíll hans bilaði
líka á mikilvægu augnabloki. Þeg-
ar Þórhallur tekur sig til við
aksturinn standa honum fáir á
sporði. Talbot hans er með 200
hestafla vél og er dálítið léttari
en bfll Jóns. Hann hentar því bet-
ur á erfíðar leiðir Húsavíkurralls-
ins, en spumingin er hvort
Þórhallur nær upp hraða þar.
Hjörleifur Hilmarsson lék á
aðra ökumenn á fyrsta degi Ól-
afsvíkurrallsins, náði forystu í
sinni annarri keppni. Ók hann með
Ara Amórssyni og saman em
þeir þriðju að stigum til íslands-
meistara. En Ari fer ekki með
Hjörleifi í næstu keppni, það gerir
Sigurður Jensson sem er þriðji til
meistara í keppni aðstoðaröku-
manna. Toyota Hjörleifs hentar
vel á Húsavík og verður gaman
að sjá hvort hann nær að halda
sama hraða og setti allt á annan
endann á síðustu keppni. Báðir
ökumenn eiga góða möguleika á
titlinum. Seigla Opel Kadett og
ákveðni ökumannanna hafa komið
Þorvaldi Jenssyni og Pétri Sig-
urðssyni í ijórða sætið. Þeir hafa
náð fjórða og fímmta sæti í keppn-
um ársins, ekki síst vegna trausts
bfls. Rekstrarkostnaðurinn fór þó
Iangt fram úr áætlun; þegar þeir
tóku reikningana saman vom þeir
að spá í að pakka saman og
hætta. Þeir halda áfram en spum-
ingin er hvort þeir eigi raunhæfa
möguleika á efsta sæti, en ofar-
lega verða þeir ömgglega.
anna. Úlfar Eysteinsson aðstoðar-
ökumaður Þórhalls er fímmti að
stigum ásamt Birgi Viðari Hall-
dórssyni. Úlfar verður í fullu Qöri
á Húsavík, en Birgir er enn meidd-
ur og keppir því ekki.
Allir kappamir sem taldir hafa
verið hér eiga fræðilega mögu-
leika á sigri. Suma vantar tilfínn-
anlega peninga sem sannarlega
skipta máli í þessari íþrótt, en
samkeppni eykst með hveiju árinu
og bflamir batna. Má ætla að
rekstrarkostnaður góðs keppn-
isbfls sé milli sjöhundmð þúsund
til ein milljón króna og keppendur
reyna að íjármagna það með aug-
lýsingum. Sumir ökumenn hafa
látið að því liggja að hraðinn hafí
aukist hættulega mikið og spum-
ing sé hvort bflar og ökumenn
haldi áreynsluna út án óhappa.
Keppnin á Húsavík gæti orðið
vendipunktur í íslandsmeistara-
keppninni, en líklegra er að
baráttan standi alveg fram á
haust, þegar fímmta og síðasta
keppnin fer fram. Á milli verður
síðan erfíðasta og dýrasta rallið,
Ljómarallið alþjóðlega.
G.R.
Staðan í íslandsmeistara- keppninni I rallakstri
Ökumenn stig
Jón Ragnarsson 35
Þórhallur Kristjánsson 32
Hjörleifur Hilmarsson 21
Þorvaldur Jensson 16
Hafsteinn Aðalsteinsson 12
EiríkurFriðriksson 10
Steingnmur Ingason Aðstoðarökumenn 10
Rúnar Jónsson 35
Ari Amórsson 21
Sigurður Jensson 20
Pétur Sigurðsson 16
BirgirV. Halldórsson 12
Úlfar Eysteinsson 12
Júlíus V. Ingvarsson 10
Þráinn Sverrisson 10