Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
Á kvöldvökunum er faríð i margvísleg'a leiki og oft reynt að hafa leikina þannig að það er ekkert allt
of auðvelt að taka þátt í þeim.
um.
Krakkarnir upplifi
sumarbúðimar
sem ævintýri
Árni Karlsson og Helga Guð-
mundsdóttir úr Reykjavík.
Borg^arfirði.
Á undanfomum árum hefur sum-
arbúðum fjölgað að mun í landinu.
Áður fyrr vom það einna helzt
kristilegar sumarbúðir, sém störf-
uðu. Nú hin siðustu ár hafa sprottið
upp hinar margvíslegustu sumar-
búðir vítt og breitt um landið. Þegar
velja skal sumarbúðir fyrir böm ber
ekki einungis að hafa það í huga
að koma bömunum frá sér í ein-
hvem tíma á einhvem stað. Heldur
skal einnig hafa það vel í huga að
það, sem fyrir bömunum er haft í
sumarbúðunum, vari eftir að heim
er komið. Það er fljótt að fymast
yfir einhveija reiðtúra og bátsferð-
ir, sem vissulega em skemmtilegar
á meðan þær standa yfir. En þegar
upp er staðið þá er innihaldið lítið.
Þess vegna hlýtur markmiðið að
vera það, að eitthvað sitji eftir sem
vari áfram eftir að heim er komið.
Með það að takmarki hafa sumar-
búðir kirkjunnar og annarra kristi-
legra samtaka starfað. Að
krakkamir séu ekki bara í einhvers
konar geymslustofnun í 12 daga
heldur læri eitthvað sem sé þeim í
huga eftir að heim er komið.
Til að fræðast aðeins gerr um
það, hvernig sumarbúðir með þetta
markmið að leiðarljósi starfa, vom
einar þessháttar heimsóttar við
vestanverðan Borgaifyörð, nánar
tiltekið f Laugargerðisskóla á Snæ-
fellsnesi. Rekur Reylqavíkurpró-
fastsdæmi þar sumarbúðir fyrir
krakka á aldrinum 7-12 ára og
geta þar verið 40 böm í einu. Bjami
Karlsson, einn sumarbúðastjó-
ranna, fræddi okkur aðeins um
það, hvemig dagur í sumarbúðum
gengi fyrir sig.
Svona líður sumar-
búðadagurinn
Dagurinn hefst með því, að liðið
er ræst kl. átta á morgnana og
morgunstímmar þvegnar í burtu
úr andliti. Þá er farið í morgunbæn
og sfðan árbítur þeginn úr hendi
Hafdísar ráðskonu og Jóhönnu. Þar
er m.a. hinn vinsæli hafragrautur
til staðar ásamt öðmm miður holl-
um mat, sem þó er ákaflega vinsæll
meðal hinna yngstu, þannig að allir
sumarbúðum sem eru í sveit verður að styrkja bændur vel með
miklu áti af afurðum þeirra. Þarna eru nokkrir krakkamir að gæða
sér á vellingi og skyri með Rúnu, einum foringjanum i sumarbúðun-
Á kvöldin safnast börnin saman fyrír framan altaríð inni í kapellu. Þar er viðfang dagsins í uppfræðslunni um Krist áréttað og Guði falin
nóttin og komandi dagur.
fá eitthvað við sitt hæfi vitaskuld.
Eftir morgunmat er tekið til í her-
bergjunum og einkunn gefin fyrir
tiltekt til að hvetja bömin að gera
það sem bezt. Þá er komið að því,
sem flestum þykir mest gaman að
í sumarbúðunum, en það er að fara
í sund. Sundlaug er við Laugargerð-
isskóla og er hún óspart notuð. Er
mjög almenn þátttaka í sundinu og
fá mestu ærslabelgimir útrás fyrir
orku sína við að synda kafsund og
kappsund eða þá bara að kaffæra
þann næsta, þótt það heyri nú frek-
ar til undantekninga að gert sé.
Eftir hádegismat er fræðslustund
með bömunum. Þar er farið í
grundvallaratriði kristindómsins.
Jesús Kristur kynntur og til hvers
hann kom á jörðina forðum daga.
Er þar notuð leiklist, föndur, söngur
og talað mál til þess að tjá þá upp-
lifun. Að lokinni fræðslustund er
farið í íþróttir, leiki og gönguferðir
fram að kaffi og aftur eftir kaffi
fram að kvöldmat. Allt eftir því
hvemig veður er. Ef veður er leiðin-
legt, þá er unnt að vera inni í skóla
og leika sér þar. Nóg er húsplássið
í skólanum til samfélagseflingar
með krökkunum.
Að loknum kvöldmat er kvöld-
vaka, þar sem sungnir eru æsku-
lýðs- og hreyfísöngvar. Sagði
Bjami, að herbergin skiptust á um
að sjá um efni kvöldvökunnar. Þau
færðu upp leikrit, færu í leiki og
fengju þannig alla til þess að vera
virka á kvöldvökunni. Væri oft mik-
il eftirvænting að sýna það, sem
hefði verið undirbúið með margra
daga fyrirvara.
Að lokinni kvöldvöku er farið í
kvöldbænir, þar sem viðfang dags-
ins er enn betur útskýrt fyrir
bömunum og endað með sambæna-
stund. Þá er enn farið í borðsalinn
og fengin kvöldhressing og síðan
streymt í rúmið til að hlusta á fram-
haldssöguna. Sofna gjaman sumir
undir henni, enda ekki nema að
vonum, þar sem mikið hefur gengið
á yfir daginn og menn eðlilega
þreyttir eftir langan og viðburðarík-
an dag.
Á sunnudögum er farið í bama-
guðsþjónustu í einhverja nærliggj-
andi sóknarkirkjuna við Laugar-
gerðisskóla, þar sem sóknarprestur-
inn, hann Hreinn Hákonarson,
hefur stund með bömunum og þau
auðvitað líka með honum, þar sem
allir taka virkan þátt í guðsþjón-
ustunni, syngja, klappa með og
hreyfa sig í samræmi við innihald
textanna, sem þau eru að syngja.
Þannig líður hver dagurinn eftir
annan í sumarbúðunum og sagði
Hróbjartur Ámason, einn sumar-
bústaðastjóranna, að tilgangurinn
og markmiðið með dvöl krakkanna
væri það, að þau kæmust í nýtt
umhverfi, myndu öðlast þar ein-
hveija nýja upplifun, að lífið væri
eitt allsheijar ævintýri og með því
að hafa daginn svona skipulagðan
m.a. vonaðist hann til þess að það
tækist.
Til að fræðast dulítið gerr um
upplifun sjna af sumarbúðunum
vom þau Ámi Karlsson og Helga
Guðmundsdóttir, bæði úr
Reykjavík, tekin tali. Ámi sagðist
hafa farið í sumarbúðimar í Lauga-
gerði í hitteðfyrra og hefði ólmur
viljað komast aftur, því þá var svo
gaman. Helga sagði, að hún hefði
frétt af þessum sumarbúðum og sig
hefði langað til þess að prófa.
Og hvemig er svo að vera í sum-
arbúðunum?
— Æðislega gaman.