Morgunblaðið - 10.07.1986, Page 64
64
íþróttadagur
á Selfossi
LAUGARDAGINN 12. júlí nk.
efna Svæðisstjórn um málefni
fatlaðra á Suðurlandi, íþrótta-
samband fatlaðra og hið
nýstofnaða íþróttafélag fatl-
aðra á Suðurlandi til íþrótta-
dags á Seifossi.
Dagskrá íþróttadagsins
verður með þeim hætti að kl.
10.30. verður útitrimm sem
hefst við íþróttahúsið á Sel-
fossi. Þá gefst þátttakendum
kostur á að hlaupa, ganga,
hjóla eða keyra hjólastól 2,5
eða 5 km. Eftir útitrimmið verð-
ur þátttakendum boðið upp á
létta hressingu.
Dagskráin hefst síðan aftur
við íþróttahúsið kl. 14.00. Þá
gefst þátttakendum kostur á
að reyna sig í hinum ýmsu
iþróttagreinum sem fatlaðir
leggja stund á, t.d. hjólastóla-
ralli, bogfimi, boccia, borð-
tennis auk hefðbundinna
íþróttagreina eins og sund og
knattspyrnu. Af ofansögðu má
Ijóst vera að hér verður mikið
um að vera og allir ættu að
geta fundiö eitthvað við sitt
hæfi. Áætlað er að dagskránni
Ijúki um kl. 17.00.
Til að auövelda fólki úr
Reykjavík og nágrenni að taka
þátt í íþróttadeginum verður
farin ferð frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 9.00 og til baka aftur
um kl. 17.00.
• Sverrlr Einarsson með
jámið góða, en hann bættist
í golfkiúbb Einherja um helg-
ina
Fór holu
■ hoggi
MIKIÐ var um að vera í golfinu
íVestmannaeyjum um síðustu
helgi. Yfir 100 keppendur tóku
þátt í Coca-Cola keppni, tann-
læknakeppni, drengja-,
stúlkna-, unglinga- og öld-
ungakeppni, en í þeirri síðast-
nefndu fór Sverrir Einarsson
holu í höggi.
Hinn landskunni tannlæknir,
grínisti og stórgolfari, Sverrir
Einarsson, sem hefur leikið
golf í 3 ár, gerði sér lítið fyrir
og fór holu í höggi á 2. braut.
Brautin er 133 m og notaði
Sverrir járn nr. 5. Kári B. Sig-
urðsson sigraði í öldunga-
keppninni, en hann er afi
unglingameistarans.
Birgir Ágústsson sigraði í
unglingaflokki á 148 höggum,
Katrín Harðardóttir í stúlkna-
flokki á 99 höggum og Sveinn
Michelsson í drengjaflokki á
144 höggum.
í Coca-Cola keppninni voru
leiknar 36 holur. Þorsteinn
Hallgrímsson sigraði í keppni
án forqjafar á 143 höggum, en
Birgir Agústsson með forgjöf á
134 höggum. Sigmar Pálma-
son, umboðsmaður Coca-Cola
í Vestmannaeyjum, gaf vegleg
verðlaun til keppninnar.
— Sigurgeir
Borðtenniskúlur fljúgandi
horna á milli á 180 km hraða
Morgunblaðið fylgist með nokkrum af bestu borðtennisleikurum heims:
• Spaðin er mikilvægur. Keppendur labba ekki út f búð og kaupa
hvaða spaða sem er. Sumir nota harðan við, aðrir mjúkan, síðan
þarf að finna rétt gúmmi. Allt eftir þvf hvort spilarinn er sókndjarfur,
spilar varnarleik eða er mikið fyrir snúningsbolta.
• Kúlan getur náð hátt f 200 km hraða, þegar hún fer hraðast og þá
er betra að hafa sjónina í lagi. Hér rfður hörkuskot af eða „smass“
eins og borðtennismenn segja.
• Einbeitnin er mikil þegar Kínverjar spila. Hér gefur Fan, sem er
í kvennaliði Kínverja, upp kúluna með miklum snúning. Takið eftir
hvernig hún heldur hægri hendi.
niður í borðið hjá sér. Bestu borð-
tennisspilararnir leika ýmist
varnar- eða sóknarleik, geta spilað
ákveðið eða rólega og beðið eftir
tækifæri. Þegar Kínverjar spila á
móti hvor öðrum og þekkja hvorn
annan út í gegn, þá er málið að
geta skyndilega breytt út af venj-
unni. Tekið einhver furðuskot og
um leið áhættu. „Það gerir leikinn
skemmtilegan fyrir alla,“ sagði
Weng Tong, þjálfari kínverska liðs-
ins.
Usti yfir bestu borðtennisleikara heims frá
1985
Karlmenn
1. Jiang Jialiang, Kína
2. Chen Longcan, Kína
3. Xie Saike, Kína
4. Wang Huiyuan, Kína
5. Teng Yi, Kína
6. Andrzej Grubba, Póllandi
7. Lo Chung, Hong Kong
8. Cheng Xinhua, Kína
9. Mikael Aplegren, Svíþjóð
10. Jan Ove Waldeer, Svíþjóð
Kvenmenn
1. Cao Yanhua, Kína
2. Geng Lijuan Kína
3. Dai Lili, Kína
4. Qi Baoxing, Kína
5. Tong Ling, Kína
6. Ni Xialian, Kína
ÞAÐ var nánast ótrúlegt að sjá leikni kepp-
enda á opna bandarfska meistaramótinu á
borðtennis, sem fram fór f júní f Miami í
Flórída. Sérstaklega voru Kfnverjar, Svíar og
Japanir með leikna spilara, enda eiga þessar
þjóðir marga af bestu keppendum í þessari
íþrótt. Kínverjar sigruðu á mótinu í öllum flokk-
um, í einliðaleik karla og kvenna og f tvíliðaleik
karla og kvenna.
Velgengni Kínverjanna byggist á
því hve mikill fjöldi þeirra stundar
þessa íþrótt í Kína og hve mikil
rækt er lögð við þá sem æfa borð-
tennis. Skólar hjálpa til við
uppbyggingu krakka sem þykja
líkleg til að ná árangri og þegar
þeir byrja að æfa með keppnislið-
um kunna þau öll undirstöðuatriðin
upp á hár. Síðan er það bara
keppnisreynslan sem gerir þá enn
betri og hæfari i stórum mótum.
Það þarf mikla leikni til að komast
í röð þeirra bestu, tækni leikmanna
er mikil. Borðtenniskúlan er aðeins
rúm þrjú grömm að þyngd, en
getur engu að síður náð rúmlega
180 km hraða í föstustu skotunum
en venjulega er hún á ferðinni á
80 km hraöa. Keppendur hafa
ýmsar gerðir af spöðum, og mis-
munandi leikaðferðir.
Varnarleikmaður spilar t.d. bolt-
anum alltaf án áhættu og vonast
eftir mistökum mótspilarans,
þreytir hann af fremsta megni.
Margir varnarleikmenn sækja aldr-
ei, en fæstir ná árangri á þann
hátt, og því beita margir varnarleik
og skyndisóknum, líkt og í knatt-
spyrnu. Ef færi gefst þá slær
leikmaður kúlunni eins fast og
mögulegt er, eða reynir að finna
stað á borðinu sem er erfiður and-
stæðingnum.
Sóknarleikmenn er skemmtileg-
ast að horfa á í keppni. Margir
slíkir gera allt til að slá boltann
fast og hratt, sum skot mistakast
en venjulega tekst að ná rúmlega
50% skotanna þannig að and-
stæðingur getur ekki svarað. Að
sjá góðan sóknarleikmann gegn
varnarmanni er stórkostlegt. Þá
„smassar" sóknarmaðurinn af al-
efli, en varnarmaðurinn er kannski
kominn 4-5 metra frá borðinu og
svarar ætíö skotunum. Þegar
Kínverjar spiluðu saman í einliða-
leik karla tók í eitt skiptið fimm
mínútur að fá úr því skorið hvor
keppandinn hlyti stig, eftir upp-
gjöf. Þá hamraði annar Kínverjinn
kúlunni margsinnis í borðið en hinn
svaraði alltaf og tókst svo að
lauma óvæntum snúningsbolta til
baka, þannig að hinn féll flatur við
að reyna að teygja sig eftir kúlunni.
Keppendur notuðu ýmis sál-
fræðibrögð, horfðu í augu and-
stæðinga fyrir uppgjafir, reimuðu
skóna í miðjum leik, þurrkuðu svit-
ann eða gáfu frá sér torkennileg
búkhljóö í miðjum skotum. Nær
allar uppgjafir og skot voru þannig
að kúlan var á snúning sem gerir
leikmönnum erfitt fyrir. Bogaskot
nokkuð hátt upp í loft eru vinsæl
meðal Kínverjanna, en þá verður
snúningur kúlunnar óútreiknanleg-
ur þegar hún skellur á borðinu hjá
mótspilaranum. Þeir sem geta
svarað mega svo vænta þess að
í næsta skoti verði kúlan „negld"