Morgunblaðið - 12.08.1986, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
177. tbl. 72. árg.__________________________________ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsíns
Risaveldin:
Fundir fyrir luktum
dyrum í Moskvuborg
Moskvu, AP.
SENDINEFNDIR risaveldanna
Fundur forsætisráð-
herra Norðurlanda:
Stuðningnr
við hval-
veiðar í vís-
indaskyni
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, gerði grein
fyrir afstöðu íslendinga í hval-
veiðimálinu á forsætisráðherra-
fundi Norðurlanda í Danmörku
í gær og sögðust ráðherrar Dan-
merkur, Noregs, Svíþjóðar og
Finnlands styðja áframhaldandi
veiðar íslendinga i vísindaskyni.
Aðalcfni fundarins var viðskipta-
þvinganir gegn Suður-Afríku.
Að sögn Steingríms var einhugur
um að Norðurlöndin yrðu sam-
stiga í viðskiptaþvingunum
vegna aðskilnaðarstefnu Suður-
Afríkustjórnar. Aftur á móti yrði
í fyrsta lagi gripið til slíkra að-
gerða í upphafi næsta árs.
„Ég óskaði eftir stuðningi við það
að Islendingar haldi áfram hvalveið-
um í vísindaskyni og að hvalveiðar
verði hafnar að nýju 1990 undir
vísindalegu eftirliti. Það vakti
ánægju mína að þetta hlaut stuðn-
ing allra,“ sagði forsætisráðherra.
Hann sagði að forsætisráðherrar
Norðurlanda hefðu sagt að afskipti
einnar þjóðar af þessu máli væru
illþolandi og það ætti að afgreiða
innan Alþjóðahvalveiðiráðsins.
Hvað við-
skiptaþvingan-
ir gegn
Suður-Afríku
varðaði var
lagt til að málið
yrði tekið upp
hjá Sameinuðu
þjóðunum og
það kæmi þá í
hlut Dana, sem
sitja í öryggisráði SÞ. Steingrímur
sagði að Danir væru tregir til þess.
Hægt væri að beita neitunarvaldi
og þá væri verr farið en heima set-
ið. Steingrímur sagðist hafa gert
grein fyrir því að innflutningur okk-
ar frá Suður-Afríku hefði dregist
verulega saman. „Meginniðurstaða
þessa fundar var að allir töldu sig
hlynnta því að hafa samflot í því,
sem ofan á kann að verða,“ sagði
Steingrímur.
Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svía, sagði að hann myndi
fylgja hinum Norðurlöndunum að
málum ef ekki yrði gripið til al-
þjóðlegra aðgerða.
hittust í Moskvu í gær og stóðu
viðræður í átta klukkustundir. I
fréttatilkynningu bandaríska
sendiráðsins, sem aðeins var cin
setning, höfð eftir Paul Nitze,
aðalsamningamanni Bandaríkja-
manna, sagði að viðræðurnar
hefðu verið „alvarlegar" og
ríkisstjórnum landanna til
glöggvunar. Aftur verður komið
saman til fundar í dag.
Samkomulag er með málsaðiljum
að láta ekkert uppi um gang mála
á fundunum, en gert er ráð fyrir
að þeir standi í tvo daga. Viktor
Karpov, aðalsamningamaður Sov-
étríkjanna, sagði þó fyrir fundinn,
að Sovétmenn væru reiðubúnir að
„gera hvað sem er,“ til þess að leið-
togar risaveldanna kæmu saman á
ný, en hann sagði að viljaleysi
Bandaríkjamanna í afvopnunarmál-
um setti strik í þann reikning. í
viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð
sagði Karpov að Sovétmenn myndu
leggja áherslu á bann við kjamork-
utilraunum og jafnframt að þar
myndi hvað mest reyna á samnings-
vilja Bandaríkjamanna, því ekki
gæti orðið af leiðtogafundi fyrr en
árangur hefði náðst í afvopnunar-
málunum. Samkomuiag varð með
Reagan Bandaríkjaforseta og Gor-
bachev leiðtoga Sovétríkjanna í
Genf um að hittast í Washington á
þessu ári. Enn er þó ekki ákveðið
hvort eða hvenær af honum verður.
Athygli hefur vakið að Sovét-
menn hafa ekki sagt frá viðræðun-
um á heimavelli, þó svo að þeir
hafi getið þeirra í fréttaútsendingu
Moskvuútvarps á ensku.
Kenneth L. Adelman, einn aðal-
samningamaður Bandaríkjanna í
afvopnunarmálum sagði að ýmsar
aðgerðir Bandaríkjaþings í varnar-
málum hefðu veikt samningsað-
stöðu Bandaríkjamanna, en sagðist
þó bjartsýnn á árangur fundarins í
Moskvu, þar sem að Sovétmönnum
væri orðið ljóst að þeir græddu
ekki á frekari töfum. Af sömu
ástæðum taldi hann öruggt að af
fundi leiðtoga risaveldanna yrði,
áður en árið væri allt.
Sjá ennfremur grein á bls. 25.
A-vítamín getur dregið
stórlega úr barnadauða
Kaltimore, AP.
VÍSINDAMENN við John Hopkins-háskólann
telja sig hafa fengið óyggjandi sannanir fyrir
því að A- vítamín geti dregið verulega úr ung-
barnadauða í þróunarlöndunum. Gengist var
fyrir A-vítamíngjöfum í 450 þorpum í Indónesíu
til þess að fyrirbyggja blindu, en A-vítamín er
einkar áhrifaríkt í þessu skyni. I kjölfar gjaf-
anna minnkaði barnadauði stórlega.
Að sögn dr. Alfreds Sommer, sem stjórnaði áætl-
uninni, fækkaði dauðsföllum barna á forskólaaldri
um 34%. „Við vitum ekki hvers vegna A-vítamín
hefur þessi áhrif en svo virðist sem það dragi veru-
lega úr líkum á sýkingum í öndunarfærum og
meltingarvegi en þess konar sýkingar valda flestum
dauðsföllum í þróunarríkjunum," sagði dr. Sommer.
A-vítamínskortur getur leitt til blindu og er nátt-
blinda oftast fyrsta einkennið. Lýsi er sérstaklega
ríkt af A- og D-vítamíni en D-vítamínskortur veldur
beinkröm sem var landlægur sjúkdómur hér á landi
áður en íslendingar hófu að neyta lýsis.
Steingrímur
Hermannsson