Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 Vegaskemmdir vegna vatnavaxta í Öræfasveit Austurlands vegur grófst í sundur við sex brýr MIKLAR vegarskemmdir urðu vegna rigninga og vatna- vaxta í Öræfasveit í gær og fyrrinótt. Nokkrar ár í sveitinni flæddu yfir bakka sína og grófu þjóðveginn í sundur. Austur- landsvegur hefur verið ófær síðan I fyrrinótt en unnið er að viðgerðum og búast vegagerðarmenn við að hann verði fær í dag. Ferðafólk hefur orðið fyrir miklum óþægindum vegna þessa og fram eftir degi gær voru hátt í eitt hundrað ferðamenn innilokaðir á Hofi Rigningin bytjaði aðfaranótt sunnudagsins og var úrkoman í Skaftafelli 107 millimetrar þann sól- arhring. Einnig rigndi mikið að- faranótt mánudagsins. Vegurinn fór í sundur við að minnsta kosti sex ár. Á milli Skaftafells og Hofs urðu vegarskemmdir við fjórar brýr, á Svínafellsá, Falljökulskvísl, Virkisá og Kotá. Vegagerðarmenn úr sveit- inni gerðu akfært yfir Svínafellsá síðdegis í gær og byijuðu að fylla að Virkisá. Mestu skemmdirnar urðu á veginum við Kotá, 20—30 metra skarð myndaðist við vestari brúar- endann og um miðjan dag í gær rann öll áin framhjá brúnni og var hægt að ganga þurrum fótum undir brúna. Vegagerðarmenn frá Höfn komu að um hádegið en gátu lítið aðhafst fyrr en síðdegis þegar stytti upp. Hófu þeir vinnu við að beina og Fagurhólsmýri. vatninu í réttan farveg en það var erfitt verk. Snorri Jónsson, vega- verkstjóri frá Höfn, sem stjórnar verkinu sagði við blaðamann Morg- unblaðsins í gær að þeir ætluðu að vinna við veginn mestalla nóttin og vonaðist til að þeim tækist að gera hann færan til bráðabirgða sem fyrst í dag. Austan við Fagurhólsmýri urðu vegarskemmdir við Hólá og Kvíá en vegagerðarmönnum tókst að gera þar akfært yfir í gærkvöldi. Vegagerðarmönnum gekk illa að hemja Kotá í gær. Reyndu þeir að beina henni undir brúna en straum- urinn var svo mikill að áin tók jafnan með sér möl sem ýtt var að vestari brúarstöplinum. „Þegar við náum ánni af okkur og undir brúna verður fljótlegra að gera akfært yfir,“ sagði Snorri vegaverkstjóri í gær. Snorri Jónsson á brúnni á Kotá þar sem 20—30 metra skarð er í veginn. Morgunblaðið/Júlíus Hundrað ferðamenn á Hofi og Fagurhólsmýri: Óvænt uppbót á Islandsferðina HÁTT í hundrað ferðamenn voru innilokaðir á Hofi og Fagurhólsmýri í gær þegar blaðamenn Morgunblaðsins komu fljúgandi í sveitina og biðu flestir eftir að komast vestur yfir Kotá. Austan við var Kvíá ófær en vegagerðarmönnum tókst að gera akfært þar yfir á áttunda tímanum í gærkvöldi. Nokkrir bílar biðu þar, en flestir höfðu snúið við til Hafnar, meðal annars Austurleiðarrútan. I nýja félagsheimilinu á Hofí voru tveir ferðahópar, mest Austurríkis- menn, alls um 50 manns. „Það er allt í stakasta lagi hjá okkur enda er hér allt gert til að bjarga málum fyrir okkur. Annars hefðum við lent í miklum vandræðum," sögðu farar- stjóramir, Ingis Ingason og Guðmundur Áki Lúðvíksson farar- stjórar Austurríkismannanna. Báðir hópamir eru í 12 daga ferðum og ætluðu að gista á tjaldstæðunum í Skaftafelli aðfaranótt mánudagsins. Fararstjóramir sögðu að allt hefði verið að fara á flot á tjaldstæðinu á sunnudagskvöldið og þeir því sem betur fer hætt við að tjalda og feng- ið inni í félagsheimilinu. Seint á sunnudagskvöldið voru tjaldstæðin í Skaftafelli orðin eins og sundlaug, að sögn þeirra. Rútumar sluppu yfir ámar §órar á leiðinni að Hofi og var sofið þar um nóttina. Ferða- mennimir vöknuðu þar á mánudags- morguninn innilokaðir á milli ófærra vatna og urðu fararstjóramir því að gera nýja ferðaáætlun og sleppa úr einhverjum stöðum. Erlenda ferðafólkið virtist taka þessari óvæntu uppákomu vel og er ekki ólíklegt að fyrir sumum hafí þetta verið einn ánægjulegasti kafli ferðarinnar. Ingis sagði til dæmis að útlendingarnir hefðu fylgst með því af áhuga þegar hann þurfti að draga brauð, sem þeir fengu sent frá Höfn, í spottum yfír Kvíá. Oðinn Kristmundsson úr Reykjavík var á ferðalagi ásamt fjöl- skyldu sinni og kom að Kotá að austan um klukkan 9 á mánudags- morgun og var þá búið að loka veginum. Hann var á leiðinni til Reykjavíkur. Óðinn sagði að fyrst þegar hann kom að brúnni hefði áin verið að grafa sig í gegn um veginn við brúarendann en annað hjólfarið eftir þó. Hann kom aftur að brúnni um hádegið og þá var komið 20—30 metra skarð í veginn eftir ána og alveg stíflað undir brúnni sjálfri. Óðinn sagðist ekki geta annað en beðið eftir því að vegurinn yrði fær og héldi þá heim, eftir þessa smátöf. Morgunblaðið/Júlíus Guðmundur Áki Lúðvíksson og Ingis Ingason ásamt austurriskum ferðamönnum í félagsheimilinu á Hofi. Kotá flæðir hressilega yfir bakka sína. Skaftafell: Þeir sem voru í tjöldum áttu slæma nótt — sagði Ragnar Stefánsson þjóðgarðsvörður „ÞAÐ var talsvert margt fólk hér á tjaldstæðinu á laugardag en tíndist í burtu þegar fór að rigna aðfaranótt sunnudags. Aðrir höfðust hér við í tjöldum og áttu náttúrlega heldur slæma nótt því þetta varð allt blautt bæði tjöld og farangur," sagði Ragnar Stefánsson þjóðgarðsvörður í Skaftafelli en á laugardag voru um 400 í tjöldum í Skaftafelli og fjöldi annarra ferðamanna í þjóðgarðinum. Ragnar sagðist ekki vita hversu Ragnar sagðist þakka fyrir að margir hefðu verið í tjöldum um símasambandið væri enn í lagi en nóttina. Fært er vestur um og jarðstrengur liggur yfir brýmar hafa margir notfært sér það en og er því í lausu lofti þar sem þjóð- þeir sem ætla austur verða að vegurinn hefur rofnað á stómm sætta sig við töfina. „Ástandið sem kafla við brýmar. Þá sagðist Ragn- hér skapast við svona aðstæður ar hafa frétt að grafið hefði undan er mjög slæmt," sagði Ragnar. rafmagnsstaur við Svínafellsá og „Hér er ekkert húsnæði fyrir fólk héngi hann í raflínunni. „Við í að flýja í og er það mjög baga- Skaftafelli megum því eiga’ von á legt. Við höfum enga möguleika að missa rafmagnið þá og þegar “ að hýsa svona ijölda eins og hér sagði hann. Hann bætti við áð var þegar fór að rigna. Margir vatnsmagnið í ánum minnti á hefðu sjálfsagt þegið að komast í Skeiðarárhlaup á seinni ámm, sem húsaskjól í svona beljandi rigningu að vísu hefðu ekki verið stór. eins og þá var.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.