Morgunblaðið - 12.08.1986, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986
Rölt
Aður en lengra er haldið vil
ég minna hlustendur á að
nýtt framhaldsleikrit, Eyja í hafinu
eftir Jóhannes Helga, hefir hafíð
göngu sína á rás 1, nánar til tekið
á sunnudögum klukkan 16.20 og
síðan er hver þáttur endurtekinn á
laugardagskvöldum klukkan 22.00.
Fyrsti þáttur þessa verks Jóhannes-
ar Helga hafði afar einkennileg
áhrif á undirritaðan og þá sérstak-
lega hið kaldranalega andrúmsloft
er lék um sviðið, en verkið gerist í
ímynduðu þorpi í nálægð herstöðv-
ar. Ég rek ekki frekar efni þessa
framhaldsleikrits enda ekki mitt að
segja útvarpshlustendum hvemig
þeir skuli nálgast eyjuna hans Jó-
hannesar Helga.
En að lokum endurtek ég að
þeir er hafa misst af fyrsta þættin-
um eiga þess kost að hlýða á hann
á rás 2 næstkomandi laugardags-
kvöld klukkan 22.
Vinnum saman
Svona kvikna hugmyndimar. Ég
sit hér galtómur í grámósku mánu-
dagsins og hef ekki minnstu
hugmynd um hvað ég á að segja
næst við ykkur kæru lesendur —
en neyðin kennir og ég lít aftur á
lokalínu fyrstu málsgreinar greinar-
komsins . . . þeir er hafa misst af
fyrsta þættinum eiga þess kost að
hlýða á hann á rás 2. Hvemig læt
ég, auðvitað get ég ritað nokkrar
línur um nánari samvinnu rásanna.
Ykkur er ljóst kæru lesendur að
rás 1 og 2 tengjast með ýmsum
hætti, til dæmis em sameiginlegir
fréttatímar á rásunum fímm sinn-
um á dag og ýmsir starfsmenn
ríkisútvarpsins flakka á milli rás-
anna. Þá er þátturinn I loftinu
sendur út eftir klukkan 18.00 á
báðum rásum og svo hef ég áður
minnst á útvarpsleikritin — en má
ekki auka þessa samvinnu á milli
rásanna enn frekar þó ekki væri
nema til að nýta betur afnotagjald-
ið og auglýsingatekjumar? Hér
dettur mér í hug hvort ekki væri
hægt að beita rás 1 til að bijóta
upp hinar fremur stöðluðu þáttarað-
ir rásar 2 sem em viku eftir viku
og jafnvel svo ámm skiptir í umsjón
sömu manna? Til að skýra nánar
hvað ég á við gríp ég af handahófí
niður í dagskrá rásar 2 síðastliðinn
sunnudag en þá var að venju á
dagskrá vinsældalisti hlustenda
rásar 2 er spannar hvorki meira
né minna en tvær klukkustundir. Á
rás tvö em fleiri slíkir þættir en
að mínu mati er út í hött að ætla
hlustendum að hlýða á ákveðna
dagskrárgerðarmenn í tvær
klukkustundir samfellt.
Vinsældalisti rásar 2 er reyndar
á dagskrá alla vikuna og er svo sem
ekkert við því að segja en er ekki
til full mikils ætlast að hlustendur
sitji undir ræðu til dæmis Gunn-
laugs Helgasonar í tvær klukku-
stundir á sunnudögum þegar hvorki
meira né minna en 30 vinsælustu
lög þeirrar viku em kynnt. Mætti
ekki breyta hér svolítið fyrirkomu-
laginu og kynna 10 lög á dag fram
eftir viku og þannig yrði þáttur
Gunnlaugs þrískiptur nú og máski
efnismeiri í hvert skipti án þess að
ég sé nokkuð sérstaklega að setja
út á þáttinn sem slíkan. En það er
víst kominn tími til að tengja eins
og þeir Skriðjöklar segja og þannig
hvarflaði að mér að ef til vill væri
hægt að færa sunnudagsrölt Guð-
jóns Friðrikssonar á rás 1 svolítið
framar í dagskrána þannig að það
hljómaði á báðum rásum upp úr
klukkan 17.30. Rabb Guðjóns um
gömlu Reykjavík er mjög fræðandi
og skemmtilegt og ég er nú einu
sinni þeirrar skoðunar að blessaðir
unglingamir, er ku vera helstu að-
dáendur vinsældalistans, séu
vitsmunavemr sem vilji kunna skil
á umhverfí sínu, ekki bara afurðum
poppiðnaðarins. Jæja, nóg um það,
ég held bara að greinin sé í höfn
og þá er bjöminn unninn.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP / SJÓNVARP
Barnaútvarpið:
Múmían
sem hvarf
■■■■ í dag verður les-
1 703 inn annar hluti
A • framhaldssögu
Bamaútvarpsins, Múmían
sem hvarf. Sagan fjallar
um þá félaga, Dracula, sem
reyndar er kallaður Gúlli,
Edda varúlf og Mumma
múmíu og ævintýri þeirra.
Mummi múmía týnist og
þeir félagar gera sér lítið
fyrir og ræna stráknum
Fredda og láta hann að-
stoða við leitina að
Mumma. Margt verður þó
til að leiða þá af réttri leið.
Eddi varúlfur er orðinn
sjúkur í hamborgara og
lítur helst ekki við öðm og
Gúlli á í mestu vandræðum
með að fínna ómengað
blóð.
Umsjón Vemharður
Linnet og Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
Svitnar sól og tárast tungl:
Inkakóla
■^■B í þriðja þættin-
OA35 um af Svitnar
sól og tárast
tungl ætlar Jack Pizzey að
fræða sjónvarpsáhorfendur
um afkomendur Inkanna
sem stunda landbúnað og
reyna að halda í leifamar
af sérkennum sínum þrátt
fyrir vestræn áhrif. Mikill
fólksflótti er nú úr sveitum
Suður-Ameríku til borg-
ánna.
Þættirnir em ástralskir
og eitt stærsta verkefni
sem þarlend sjónvarpsstöð
hefur tekist á hendur.
Þýðandi og þulur Óskar
Ingimarsson.
Arfur Afródítu
■li^M í kvöld er á dag-
Ol 40 skrá sjónvarps
Li í ~~~ fjórði þátturinn
af sakamálamyndaflokkin-
um Arfur Afródítu, The
Aphrodita Inheritance.
Leikstjóri og handrits-
höfundur er Michael J.
Bird, sá sami og gerði
Hver borgar ferjutoilinn?
sem íslenskir sjónvarps-
áhorfendur sáu fyrir
skömmu. Bird heldur sig
við Miðjarðarhafíð í þáttum
sínum, Hver borgar ferju-
tollinn? var tekin á Krít en
Arfur Afródítu er tekin að
mestu á syðri hluta Kýpur.
Með aðalhlutverk fara
Peter McEnery og Alex-
andra Bastedo. Þættimir
em gerði í samvinnu
bresku sjónvarpsstöðvar-
innar BBC og sjónvarps-
stöðvar Kýpur.
Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
Morgunstund barnanna:
Olla og Pési
■■■■ Fjórði hlutinn af
9 05 „Ollu og Pésa“
verður lesinn í
Morgunstund bamanna í
dag.
Olla og Pési eiga heima
í Reykjavík. Þau alast upp
í hópi kynlegra kvista á
sveitabæ inni við sundin
með útsýn til Viðeyjar og
þangað berst leikurinn
einnig.
Allir eiga sín vandamál
og hjá Ollu og ijölskyldu
er vandamálið hvemig þau
geti bjargað jörðinni sinni
frá því að lenda undir mal-
biki, en borgin ágimist
hana fyrir bílastæði
Sagan er eftir Iðunni
Steinsdóttur og annast hún
sjálf lesturinn.
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
12. ágúst
7.00 Veöurfregnir. Fréttir
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veöurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Olla og Pési" eftir
löunni Steinsdóttur. Höf-
undur les (4).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
9.45 Lesiö úr forystugreinum
dagblaöanna.
10.00 Fréttir.
10.10 Veöurfregnir.
10.30 Ég man þá tiö. Her-
mann Ftagnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Þórarinn Stefánsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 I dagsins önn — Heilsu-
vernd. Umsjón: Jón Gunnar
Grétarsson.
14.00 Miödegissagan:
„Katrin", saga frá Álands-
eyjum eftir Sally Salminen.
Jón Helgason þýddi. Stein-
unn S. Siguröardóttir les
(31).
14.30 Tónlistarmaöur vikunn-
ar — Valgeir Guöjónsson.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Á hringveginum —
Norðurland. Umsjón: Örn
Ingi, Anna Ringsted og Stef-
án Jökulsson.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Divertimenti
a. Divertimento fyrir flautu
og hljómsveit op. 52 eftir
Ferruccio Busoni. Hermann
Klemeyer leikur á flautu
meö Sinfóníuhljómsveit
Berfínar; Carl A. Búnte
stjórnar.
b. Divertimento fyrir
strengjahljómsveit eftir Béla
Bartók. Kammersveitin í
Moskvu leikur; Rudolf Bars-
hai stjórnar.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi: Vernharöur Linnet.
Aðstoöarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.45 í loftinu — Hallgrimur
Thorsteinsson og Guölaug
María Bjarnadóttir. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Guðmund-
ur Sæmundsson flytur
þáttinn.
19.50 Fjölmiölarabb. Guö-
mundur Heiöar Frímanns-
son talar. (Frá Akureyri).
20.00 Ekkert mál. Ása Helga
Ragnarsdóttir sér um þátt-
inn.
20.40 Leyndarmál öræfanna.
Fyrri þáttur Höskuldar Skag-
fjörö. Lesari meö honum:
Guörún Þór.
21.00 Perlur. Barbra Streisand
og Luciano Pavarotti.
21.30 Útvarpssagan:
„Dúlsíma" eftir H.E. Bates.
Erlingur E. Halldórsson lýk-
ur lestri þýöingar sinnar (6).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orö kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Sumartónleikar i Skál-
holti 1986. Ann Toril Lind-
stad leikur á orgel verk eftir
Ludwig van Beethoven.
Louis Vierne, Arnild Edvin
Sandvold, Vincent Lúbeck
og Johann Sebastian Bach.
Kynnir: Þorsteinn Helgason.
23.10 Á tónskáldaþingi. Þor-
kell Sigurbjörnsson kynnir.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
SJÓNVARP
19.00 Dansandi bangsar
(Das Tanzbáren Márchen)
Fyrsti þáttur. Þýskur brúöu-
myndaflokkur í fjórum
þáttum. Þýðandi: Kristrún
Þórðardóttir.
19.25 Úlmi (Ulme)
Sænskur teiknimyndaflokk-
ur um dreng á víkingaöld.
Þýöandi: Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision —
sænska sjónvarpiö)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og dagskrá
20.35 Svitnar sól og tárast
ÞRIÐJUDAGUR
12. ágúst
tungl (Sweat of the Sun,
Tears of the Moon)
Þriöji þáttur: „Inkakóla".
Ástralskur heimildamynda-
flokkur í átta þáttum um
Suður-Ameríku og þjóöirnar
sem hana byggja. í þessum
þætti segir frá afkomendum
Inka sem yrkja jöröina og
reyna aö halda þjóöarein-
kennum sínum þrátt fyrir
vestræn áhrif. Mikill fólks-
flótti er nú úr sveitum Suöur
Ameriku til borganna. Þetta
skapar mikinn vanda sem
erfitt veröúr aö leysa. Þýö-
andi og þulur: Óskar
Ingimarsson.
21.40 Arfur Afródítu
(The Aphrodite Inheritance)
Fjóröi þáttur. Breskur saka-
málamyndaflokkur í átta
þáttum. Aöalhlutverk: Peter
McEnery og Alexandra
Bastedo. Þýöandi: Jóhanna
Þráinsdóttir.
22.30 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
23.10 Fréttir i dagskrárlok
ÞRIÐJUDAGUR
12. ágúst
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Ásgeirs Tómassonar,
Gunnlaugs Helgasonar og
Siguröar Þórs Salvarssonar.
Guðriöur Haraldsdóttir sér um
barnaefni í fimmtán minútur
kl. 10.05.
12.00 Hlé
14.00 Hingað og þangaö
Meö Andreu Jónsdóttur
16.00 Hringiöan
Þáttur i umsjá Ingibjargar
Ingadóttur.
17.00 I gegnum tiöina
Jón Olafsson stjórnar þætti
um íslenska dægurtónlist.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar kl. 9.00
10.00, 11.00, 15.00, 16.00
og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæöisútvarp fyr-
ir Reykjavik og nágrenni.- FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæöisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.