Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 20

Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 Leikhús í hættu — rætt við Guðmund Steinsson í Guðmundur Steinsson er þjóð- kunnur fyrir leikrit sín. Honum hefur á undanförnum árum boð- ist að kynna þau í ýmsum löndum og nú siðast í Bandaríkjunum. Þar fluttu íslenskir leikarar nýtt verk Guðmundar „Brúðarmynd- ina“ á nokkurskonar starfsþingi þarlendra leikskálda. Þetta þing er haldið í júlímánuði ár hvert í Eugene O’Neill leiklistarmið- stöðinni i Waterford í Connecti- cut-fylki. Þingið nefnist á ensku “National Playwrights Confer- ence“ og er einn af mikilvægari viðburðum í bandarísku leik- húslifi. Þama í Waterford er O’Neill leik- listarmiðstöðin til húsa á fallegu sveitasetri við ströndina. Til þings- ins er boðið 15 bandarískum höfundum, sem hafa verið valdir úr hópi 1.500 manna sem bjóða fram handrit sín. Þingið á að vera vettvangur þar sem menn einbeita sér að textanum en ekki umgjörð- inni. Leikarar fá aðeins fjóra daga til æfinga og er skylt að hafa hand- ritið í hendi allan tímann sem þeir eru á sviðinu. Hugmyndin er bæði að minna áhorfendur á að þeir sjá ekki fullmótaða sýningu og að draga fram vandkvæði leikritsins höfundinum til leiðsagnar. Hvert leikrit er sýnt tvisvar og sækja sýningamar þátttakendur, íbúar úr nágrenninu, blaðamenn og leikhúsmenn. Báðar sýningar „Brúðarmyndarinnar" voru mjög vel sóttar og undirtektir góðar. Rétt er að geta þess að ensk þýðing textans var lesin í takt við flutning- inn á íslensku og fengu áhorfendur sérstök þráðlaus heymartæki til að hlusta. Morguninn eftir síðari sýn- ingu mæta þátttakendur í þinginu á fund til að ræða um leikritið. „Brúðarmyndin" hlaut einróma lof á fundinum þann 12. júlí. Guðmundur Steinsson tók þátt í leikskáldaþinginu sem lauk 26. júlí, en leikhópurinn fór heim um miðjan júií. Fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við Guðmund nokkmm dög- um eftir að þinginu lauk. — Hvað viltu segja okkur um bandariskt Ieikhús? Bandarískt leikhús gæti verið stórkostlegt. í þessu stóra landi er fjöldinn allur af hæfileikafólki, en það gengur grátlega illa að nýta möguleikana. Atvinnuleysi er mikið meðal leikhúsfólks, leikarar og leik- stjórar vinna ekki nógu samfellt til að vera í fyllsta formi. Leikhúsið er í svelti, æfingatími er oft aðeins fjórar vikur — í íslensku leikhúsi em það 6 til 12 vikur. Það líður oft langt á milli þess að menn leiki, tíminn til æfinga er of naumur, peningasjónarmiðið ríkjandi og leikhúsin fá allt of lítinn stuðning. Maður dáist að þeim sem em í leikhúsinu hér þrátt fyrir þessa óhemju erfiðleika. Fæstir gera sér grein fyrir því, hvað þetta fólk þarf að leggja á sig og hveiju það þarf að fóma. Það er orðið mjög torvelt að lifa af leikhúsvinnu í Bandaríkjunum. Þetta veldur því að leikarar, leik- stjórar og höfúndar líta til sjón- varpsins og þeir stökkva nánast úr miðri uppfærslu yfir til sjónvarps- ins, ef það kallar á þá. Samt em allir óhamingjusamir, vegna þess að hjá sjónvarpinu er ekki verið að vinna listræn störf. Menn em í auglýsingum eða í sápuópemm, og þar er takmarkið það eitt að halda fólki við skerm- inn. Þetta er fullkomin afþreying, og fullkomin niðurlæging fyrir lista- manninn, sem smám saman tapar Bandaríkjunum getunni eða þörfinni fyrir að tjá sig listrænt. Og leikhúsið bíður afhroð. Um þetta em aliir sammála, ég er bara að segja það sem allir hér vita, sem hafa hugsað um þessa hluti. Fyrir vikið er leikhúsið ekki eins gott og það gæti verið og fjarri því að vera nógu gott. Með því að vera á höfundaþingi eins og í Waterford, skilur maður þessa hluti betur. Þetta er heilmik- il menntun fyrir mann, ekki bara sem höfund heldur bara almenn menntun um leikhúsið og heims- málin, má segja. — Þú ert þá að tala um bandarískt leikhús almennt. Já, raunar em til leikhús út um land sem gera mjög góða hluti og em í betri aðstöðu til að spjara sig listrænt, heldur en leikhúsin í New York. Broadway er nánast hætt með alvarlegar leiksýningar, þar em aðallega sýndir söngleikir. Þeg- ar einföld uppfærsla á Broadway- leikriti kostar um milljón dollara, vilja menn vera ömggir um að ekk- ert komi upp sem gæti vakið óróa. Val verka og öll vinna miðast mjög mikið við að sýnirtgarnar skili arði og menn hafa lítið svigrúm til þess að hugsa alfarið um gæði verk- anna sjálfra, þegar þeir em að Ijúka þeim. Umboðsmenn og þeir sem setja upp verk, velta fyrir sér hvað þurfi til að verk séu fjölsótt og gera þessvegna kröfur til höfundar- ins sem ganga á skjön við listrænar þarfir verksins og sköpunarþörf höfundarins sjálfs. Og verkið líður fyrir bragðið. Lloyd Richards er sífellt að undir- strika að höfundamir verði að geta lifað mannsæmandi lífi eins og aðr- ir. En þeir geta það ekki, það er ekki gert ráð fyrir því að leikhús- fólk þurfi að komast af. Jú, menn detta inn í sjónvarpið og sápuópe mmar og verða ríkir. En það er engin iist. Leikritun líður vegna þess að margir höfundar skrifa mikið fyrir sjónvarp og hugsa á máli sjón- varpsins þegar þeir skrifa fyrir leiksvið. Howard Stein, prófessor í leikhúsfræðum við Columbia- háskólann, sagði við mig að kunn- áttan að skrifa fyrir svið virðist vera að glatast, að menn séu að tapa getunni eða frumkvæðinu til að skrifa fyrir leikhúsið sem sjálf- stætt listform. Takmark leikskáldaþingsins í Waterford er meðal annars það, að þar gefist höfundinum kostur á að vinna að sínu leikverki með þarfír verksins einar í huga. Þar eiga ekki að koma við sögu fjárhagsleg sjónarmið og höfundurinn á að fá þar allan þann stuðning sem hann þarf frá leikumm og leikstjóra. — Hvaða gildi hefur Water- ford þá fyrir bandarískt leikhús? Mjög mikið, vegna þess að það gefur amerískum höfundum von um að það sé hægt að vinna af alvöru. Þeir sem koma sínum verkum á framfæri, hafa_ þama vettvang til að ljúka þeim. í þessari hörðu sam- keppni opnar O’Neill miðstöðin möguleika á að vönduð leikverk komist inn í leikhúsin. Þessi ráð- stefna kemur líka þeim leikhúsum til góða, sem em þrátt fyrir allt að leita að alvarlegum verkum. i — Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að koma hingað? Þetta er heilmikill lærdómur um okkar vinnubrögð og um amerískt leikhús og leikhús yfir höfuð. Við í íslenska hópnum unnum hér að okkar verki á sömu forsendum og við sömu aðstæður og Bandaríkja- mennimir. Við fengum því gott tækifæri til að bera okkur saman við bandarískt leikhús. Bandaríkjamenn sjá mjög lítið af erlendum verkum, þeir hafa lítinn áhuga haft á því sem gerist í leik- húsi utan landsteinanna, og almennt á því sem gerist erlendis. Við skulum hafa í huga að þetta er stórveldi sem hefur áhrif um all- an heim, en veit samt furðu lítið um það sem menn eru að hugsa annars staðar í heiminum. Þetta er eitt af því sem hefur lokist skýrar upp fyrir mér en áð- ur: Hversu hættulegt það er að stórveldi sé svona fáfrótt um hugs- un og mennningu annarra þjóða — og hversu lítill áhugi hefur verið á því sem skeður annars staðar í leik- húsinu. Einn prófessorinn frá Stokkhólmi sagði við mig: Við sjáum verk sem gerist í Reykjavík, Moskvu eða London og erum strax tilbúin að meðtaka það, en meðaljóninn í Ameríku — ja, ef það skeður í Bronx eða Los Angeles, skilur hann — en eitthvað se m skeður í Kaupmanna- höfn eða Búdapest — það er ofar hans skilningi. nn Á hinn bóginn er áhugi á er- lendu leikhúsi smám saman að aukast í Bandarikjunum, og menn vita vel að rætur leikhússins eru í Evrópu. Tengslin eru enn sem kom- ið er fyrst og fremst við önnur engilsaxnesk lönd, það er komið með bresk, áströlsk og kanadísk leikverk hingað. — Heimsókn ykkar er eitt af því sem greiðir fyrir frekari sam- skiptum? Það er alveg rétt og í þessu sam- Senan í kirkjunni var í senn alvarleg og sprenghlægileg: Kristbjörg, Þorsteinn og Guðmundur undir beykitrénu á útisviðinu þar sem Brúðarmyndin var flutt. Um Gere og Davíð konung Kvikmyndir Amaldur Indriðason DAVÍÐ KONUNGUR (King David). Sýnd í Regnboganum. Stjömugjöf: ★ Bandarísk. Leikstjóri: Bmce Beresford. Handrit: Andrew Birkin og James Costigan eftir sögu James Costigan byggðri á Biblíunni. Framleiðandi: Martin Elfand. Kvikmyndataka: Donald McAlpine. Tónlist: Carl Davis. Leikmyndahönnuður: Ken Ad- am. Helstu hlutverk: Richard Gere, Edward Woodward, Alice Krige, Denis Quilley, Niall Buggy og Cherie Lunghi. Margar stórstjömumar í Hollywood hafa ákveðna ímynd í hugum kvikmyndahúsagesta ann- aðhvort af því að þeir eru takmark- aðir leikarar og ráða helst ekki við nema eina gerð af hlutverkum eða þeir hafa fest sig í ákveðinni rullu, sem þeir eiga erfitt með að slíta sig frá. Þessar stjömur gætu aldrei leikið ákveðin hlutverk vegna þess að það hentar ekki ímynd þeirra. Clint Eastwood gæti t.d. aldrei leik- ið Jesús Krist án þess að það þætti fáránlegt. Honum yrði heldur aldrei boðið hlutverkið nema ef það væri grínmynd. Það væri líka skrítið að sjá Jack Nicholson í hlutverki Gandhis eða Dustin Hoffman S hlut- verki Rambós eða Richard Gere í hlutverki Davíðs konungs. En bíðið við. Þetta síðastnefnda er engin firra. Stórborgartöffaran- um og gigalónum Richard Gere var Richard Gere í hlutverki Daviðs " boðið hlutverk Davíðs í stórmynd- inni Davíð konungur (King David) á sfðasta ári og til að trompa þá vitleysu þáði hann boðið. Það hald manna að stórstjömur trekktu áhorfendur á myndir hefur ráðið valinu á Gere en það hefur því mið- ur sýnt sig æ ofaní æ að þeir tímar em liðnir. Gere hefur sjálfsagt þeg- ið boðið í virðingarverðri tilraun til að breyta ímynd sinni á hvíta tjald- inu. En það hefur þveröfug áhrif og skemmir bæði fyrir Gere og myndinni. Hann er sami töffarinn. Hann er bara í skrítnari búningum. Frá því Gere birtist fyrst (það er auðvitað í rúmsenu) missir mað- ur tökin á þvf sem er að gerast, nærvera hans er svo ankannaleg að athyglin beinist öll að honum og það veldur óbætanlegu tjóni. Þetta vissi Richard Attenborough þegar hann fékk tiltölulega óþekkt- an leikara (Ben Kingsley) til að fara með hlutverk Gandhis og þetta vissi Milos Forman þegar hann réði Tom Hulse í hlutverk Mozarts í Amadeus. Þessu hefúr leikstjóri „Davíðs“, Bmce Beresford, hins vegar gleymt þegar hann réði Gere.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.