Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 21 En það er ekki aðeins flónska að hafa Gere í titilhlutverkinu; gerð myndarinnar almennt er flónska. Hvað sem segja má um þetta tíma- bil sem nú stendur yfir í sögu amerískra bíómynda, þá er það ekki tímabil epískra biblíumynda. Davíð konungur fylgir frásögn- um biblíunnar í hvívetna og þrátt fyrir góðar bardagasenur, vandaða búninga og leikmyndir vottar ekki fyrir frumlegum vinnubrögðum í meðferð sögunnar frá því spámað- urinn Samúel tilkynnir Sál konungi að drottinn hafi ekki lengur áhuga á honum og þar til Davíð deyr í hárri elli. Hvergi er neitt sem kem- ur á óvart, engin hliðarspor eni tekin, ekkert er gert til að auka skilning manns á efninu og síðast en ekki síst hefur Riehard Gere jafnmikið að gera í hlutverk Davíðs og Mikki mús. Það er lítið af ástralanum Beres- ford í Davíð- konungi. í stað þess að blása ferskum vindum um draumaborgina hefur hann samlag- ast mollunni og gerst þátttakandi í kapphlaupinu um stórgróðamynd- ina. Megi „Davíð" honum að kenningu verða. ★ A * 4 Fegrum borgina á 200 ára afmælinu Við bjóðum fyrirtækjum og ein- staklingum mjög vandaðar og sterkar sænskar trefjaplast flagg- stangir 6 og 8 metra. Framleiddar af: 5£i iotmenia mb Þær eru nu með mest seldu fíag* _. * ; , ,■ - •' ' á Islandi og má sjá víða bandi nauðsynlegt að undirstrika að vinna hópsins héma og kynning á verkinu sýndi fólki sem vann hér og þeim sem hingað komu að á Islandi er frábært leikhús. Menn voru nánast undrandi yfir því hvaða vald 'islenskir leikarar háfa á því að skila verki til áhorfandans. Menn sögðu: „Vá, eru þeir að gera svona góða hluti á íslandi, er svona gott leikhús þar?“ Já! Það er vegna þess að við höfum hæft fólk og það hefur að- stöðu til að vinna stöðugt að sinni list, náttúrulega fyrst og fremst hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélaginu. Á- hinn bóginn er leikhúsfólk hér í Bandaríkjunum meira og minna í svelti, það er þrengt að því úr öllum áttum. Þetta verðum við að hafa í huga og megum ekki gleyma nauðsyn þess að varðveita okkar leikhús. Við getum ekki sagt að við viljum eiga leikhús sem skiptir máli og samtímis að það eigi að sjá um sig sjálft. v Menn þurfa bara að spyija sig: Viljum við eiga íslenskt leikhús eða ekki. Og ef við viljum það, þá verð- um við að gera eitthvað iyrir íslenskt leikhús, fjárhagslega og í öðrum skilningi. Ef við stöndum ekki vel að þessum leikhúsum okk- ar, þá eigum við ekkert leikhús eftir nokkur ár og förum ekki til útlanda að sýna neitt. Islensk leiklist koðnar niður og höfundamir flytja burt — á sama hátt og Guðmundur Kamb- an og Jóhann Siguijónsson fóru til útlanda, vegna þess að á íslandi var ekkert leikhús. — Er íslensku leikhúsi hætta búin? Því er hætta búin eins og pólitík- in hefur verið rekin að undanfömu. Það hefur verið rekinn hatrammur áróður gegn leikhúsinu. Það er sagt: Tökum fyrir fjárveitingar til þeirra og látum þá spjara sig sjálfa. En leikhús þarf fjárhagslegan stuðning og hann skilar sér í mörg- um myndum. Hann skilar sér í menningu okkar og sjálfstæði. Hann skilar sér í því að við emm áfram þjóð. Við segjum — ja, Islendingasög- urnar, ef þær væm ekki til, þá væmm við kannski ekki þjóð. En ef við ættum ekki alla hina þætt- ina, þar á meðal leikhúsið, þá væmm við heldur ekki íslensk þjóð. Og ef við höfum ekki efni á því, hvetju höfum við þá efni á? Mér fínnst þetta mjög alvarlegt mál og ég sé það mun skýrar í ljósi þessa samanburðar sem við höfum rætt um. Við sem vomm héma úti höfum gert okkur betri grein fyrir þessu. Það er mjög auðvelt að eyði- leggja, fljótgert að rífa niður — en hvenær verður þá byggt upp aftur? Hlutirnir em ekki alltaf eins ömgg- ir og við skyldum halda. — Hverju spáirðu um framtíð islenskrar leikritunar? Leikhópurinn við samlestur (talið réttsælis frá vinstra horni neðst): Sigrún Edda Björnsdóttir, Þor- steinn Gunnarsson, Valgeir Skagfjörð, Guðmundur Pálsson, Guðmundur Steinsson, Sigríður Hagalín, Róbert Arnfinnsson, Kristbjörg Kjeld, Guðrún Gísladóttir og Stefán Baldursson. Ennfremur voru Þór- unn Sigurðardóttir aðstoðarleikstjóri og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir leikmyndateiknari með í förinni. Þau Toni Motter og William Atli Kendall lásu enska textann í hljóðflutningskerfið á sýningum. Ég held að íslensk leikritun muni aukast og að við eigum eftir að fá fleiri og betri höfunda og leikhúsinu eigi eftir að vaxa fiskur um hrygg. Leiklistarskólinn er eftir því sem mér sýnist mjög góður. Þaðan koma leikarar sem eru með betri menn tun og undirbúning en áður. Við reiðum okkur á, að það fólk og þeir sem fyrir em haldi uppi hinu raunvemlega leikhúsi. Dvölin þarna í Waterford var okkur öllum feykileg uppörvun og það er gott fyrir íslenska leik- húsmenn að sjá að þeir em teknir alvarlega erlendis. Mér finnst að leikhús sé þrátt fyrir allt ekki tekið nógu alvarlega á íslandi og mér finnst stuðningur við það fara minnkandi. íslenskt leikhús á í vök að veijast. Við þurfum, yfirvöld og þjóðin öll, að veita leikhúsinu fullan stuðn- ing, hlúa að því eins og lög gera ráð fyrir — í bókstaflegri merkingu. Við höfum ekki efni á því að vera án leikhúss. — Hvað veldur þessum minnk- andi stuðningi? Minni peningar til menningar- og félagsmála. Það hefur borið á neikvæðum viðhorfum — sumum er í nöp við listir og finnst verið að sóa peningum. Nú hafa þessi öfl sig í frammi. Það gengur jafnvel svo langt, að sumir listamenn hafa orð á því að það eigi bara að leigja leikhúsin hæstbjóðanda. Það eru til leikhúsmenn sem vinna opinberlega að því að drepa íslenskt leikhús. Ég held að þetta orsakist öðmm þræði af fávísi, skilningsleysi, skorti á yfirsýn og gmnnhyggni. Það er ekki hægt að láta ein- hveijar almennar hugmyndir um markaðshyggju vaða yfir allt og eyðileggja. Bara af því að við ákveð- um að markaðurinn eigi að ráða. Það er alltof gróft. Það hefur oft verið talað um að ídeólógían sé hættuleg, þama finnst mér verið að útfæra ídeólógíu á hinn mdda- legasta hátt, af fólki sem geysist fram og skilur hvorki eitt né neitt í íslensku þjóðlífi. Mér sýnist örla á því að Þjóðleik- húsið sé farið að keppa við skemmtanabransann og hafi ekki hugsað sitt mál. Það á að — svo ég noti þetta lummulega útjaskaða orðalag — það verður að hafa „list- rænan metnað". Mér fínnst að þar hafi ekki verið unnið af nægri al- vöm að listinni og ég held að ráðmenn þar verði að hugsa sinn gang. Leikhús má ekki gefa eftir í list- rænum efnum, þótt móti blási. Ef leikhúsið stendur ekki sjálft fast á listrænum kröfum, hvernig er þá hægt að ætlast til að aðrir geri það? — Fer áhugi almennings minnkandi? Við höfum á Islandi þá sérstöðu að meirihluti íbúanna sækir leikhús. En þessi áhugi verður að nærast af góðum verkum og góðum sýning- um, það má ekki breyta leikhúsinu í einhvers konar skemmtanaiðnað. Sú tilhneiging hefur gert vart við sig , af ótta og getuleysi sumra til að standa á listrænum metnaði. I stað þess að reyna að gera betur á listrænum forsendum, vilja þessir menn slaka til, hlaupa í létt- metið og auka aðsókn fólks á þeim forsendum. Áhorfandinn glatar þar- með skilningi á góðu leikhúsi og missir það sem hann sóttist eftir í upp hafi og veit að lokum ekki hvað gott leikhús er. Þannig er það með fjölmarga sem fai-a í leikhús í Bandaríkjunum, þeir sjá sjaldan gott leikhús og vita ekki hvað það er. Auk þess fara margir ekki í leik- hús, einmitt vegna þess að þeim finnst það ekki nógu gott. Ég hef alltaf haft þá trú að þeirn mun betra sem verkið er, þeim mun betur sem unnið er að því, þeim mun betri verði árangurinn og þeim mun fleiri fáum við í leikhúsið. Fólk þráir gefandi leikhús sem hef- ur það upp andlega í einhveijum skilningi og þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að menn skemmti sér ekki. — Hvað geta leikhúsmenn á Islandi lært af O’Neill þinginu? Með þessum aðferðum er hægt að skoða mun fleiri verk en ella, það er hægt að skoða verk höfunda sem eru að byija að skrifa. Höfund- amir kynnast verkum sínum mikið betur með þessum hætti. Það er hægt að gera þetta án þess að viðstaddur sé stór hópur áhorfenda, þetta gæti verið innan leikhússins og bara komið aðstand- endur þess. Þessa aðferð mætti nota til kynna erlend verk, klassík- ina og margt af því sem við sæjum ekki annars. Ég sé fyrir mér að það væri hægt að taka einn höfundinn eftir annan, það væri hægt að taka þijú til ijögur Tsjékof verk og Garcia Lorca og við skulum segja fjögur til fimm af leikritum Shakespeares í svona lestur. Maður skoðar verk- in, fær tilfinningu fýrir inntakinu og sér möguleika þeirra fyrir sér. Þetta gæti verið aðdragandi þess að fullvinna eitthvað eitt verk hveiju sinni. Þetta gæti hjálpað okkur að velja og hugsanlega gefið áhorfendum yfirsýn yfir verk slíkra höfunda. Ég hugsa að þetta verði gert og gæti jafnvel séð þetta fyrir mér sem samvinnu leikhúsanna, eða þá að einhveijir tveir eða þrír menn tækju sig til að stæðu fyrir vinnubrögðum af þessum toga. Leikhúsfólk þyrstir auðvitað í að vinna sem mest, fólk gengur alloft um verkefnalaust, hvort sem það er á launum eða ekki. Það væru hæg heimatökin að fá fólk til að vinna að svona verkum - sérlega ef þetta tengdist leik- húsinu beint. Texti: Jón Ásgeir Sigurðsson Ljósmyndir: A. Vincent Scarano og Jón Ásgeir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.