Morgunblaðið - 12.08.1986, Page 27

Morgunblaðið - 12.08.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 27 Israel: Rannsókn hafin í máli leyni- þjónustunnar Tel Aviv, AP. SAMKVÆMT fréttum ísraelskra dagblaða hóf lögregla landsins í gaer rannsókn á dauða tveggja Palestínumanna árið 1984 og ásökunum um að reynt hafi verið að hylma yfir málið. Rannsóknin mun m.a. beinast að þætti ísra- elsku leyniþjónustunnar Shin Bet, og verða leyniþjónustumenn fyrst yfirheyrðir um máiið. ísraelska útvarpið skýrði frá því í gær að sjö starfsmenn leyniþjón- ustunnar hefðu farið fram á að þeim yrði veitt sakaruppgjöf. Tals- menn lögreglunnar neituðu að staðfesta fréttimar, en samkvæmt fyrirmælum stjómarinnar verður ekkert skýrt frá gangi rannsóknar- innar fyrr en lokaniðurstöður liggja fyrir. Avraham Shalom, yfirmanni ísraelsku leyniþjónustunnar, og þremur aðstoðarmönnum hans hef- ur veitt sakaruppgjöf, en þeir em sakaðir um að hafa fyrirskipað morðin á Palestínumönnunum og reynt að hylma yfir málið með því m.a. að falsa sönnunargögn. Hæstiréttur ísraels staðfesti í síðustu viku lögmæti ákvörðunar forsetans Chaim Herzogs um sakar- uppgjöf fjórmenninganna. Ymsir lögfræðingar höfðu dregið í efa að forsetinn hefði vald til að náða Shalom áður en þeir hefðu verið ákærðir. Holland: Sprenging í tehúsi Schiedam, Hollandi, AP. MIKLAR skemmdir urðu á tyrkn- esku tehúsi í sprengingn í borg- inni Schiedam í Hollandi snemma á sunnudag. Tveir menn voru handteknir síðar um daginn. Samtök hægri öfgamanna, sem nefnast Ungliðaflokkur Schiedam, lýsti yfir ábyrgð á verknaðinum, að sögn lögreglu. Þessi flokkur ber einnig ábyrgð á árás, sem gerð var á samkomustað fyrir útlendinga í borginni í mars. Sciedam er skammt frá Rotter- dam og er þar mikið um erlenda verkamenn. Hægri samtök hafa undanfarin ár haldið fram að útlend- ingarnir tækju bæði atvinnu og félagsleg hlunnindi af Hollending- um. Flóð í Ástralíu Að undanförnu hafa verið mikii flóð í Ástralíu, en þau komu í kjölfar gífurlegra rigninga eftir þurrasta vetur aldarinnar. Hér sést hvar úthverfi Sidney liggur að miklu leyti undir vatni. Nýja Suður-Wales varð verst úti í flóðunum og er vitað um a.m.k. sex manns sem fórust í þeim. Samkomulag* OPEC verði framlengt Abu Dhabi, AP. Olíumálaráðherra Iraks spáði því um helgina að gildistími sam- komulags OPEC-ríkja um tak- mörkun olíuframleiðslu yrði framlengdur. Samkomulagið gildir til októberloka. Ráðherrann, Qassan Taqi, kvaðst ennfremur í viðtali við blað í Samein- uðu arabísku furstadæmunum, búast við því að aðildarríki OPEC mundu draga úr olíuframleiðslu í september og október, svo að hún yrði 16,7 milljónir tunna á dag. Olíumálaráðherrar OPEC-ríkja munu hittast að máli að nýju 6. október nk. til að ræða um hvort bráðabirgðasamkomulag þeirra verði framlengt eða ekki. Átöká skyndi- bitastað London, AP. KONA lét lífið og tveir menn slös- uðust í hnífabardaga á Gatwick-- flugveili á sunnudaginn. Fólkið starfaði á skyndibitastað á flug- vellinum. Fréttir voru nokkuð á reiki en svo virðist sem starfmenn skyndibita- staðarins hafi lent í hinni hatrömm- ustu rimmu með fyrrgreindum afleiðingum. 24 ára gömul kona, sem stungin hafði verið í brjóst og háls, lést á leiðinni í sjúkrahús og tveir menn, sem einnig höfðu hlotið hnífstungur, þurftu á aðhlynningu lækna að halda. Lögreglan hefur handtekið einn mann vegna máls þessa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.