Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 Neytendasamtökin mótmæla verðhækkun á kartöflum: Telja hækkunina um 100% umfram matvöruvísitölu — Kartöfluverð mun lækka talsvert, segir talsmaður Ágætis Neytendasamtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau mótmæla harðlega þeim miklu verðhækkunum sem orðið hafa að undanförnu á kartöflum og ýmsum öðrum tegundum garð- ávaxta. Heildsöluverð á nýjum islenskum kartöflum hefur hækkað um 39% milii ára á meðan verðbólga hefur verið um 20%. Það misræmi ásamt yfirlýsingu kartöflubænda á Suðurlandi um að ekki væri von á mikium verðlækkunum á næst- unni gerir það að verkum að Neytendasamtökin sjá sig knúin til að mótmæla. ^ Á blaðamannafundi sem neyt- endasamtökin héldu, kom m.a. fram að frá því í byijun júlí sl. hefur verð á kartöflum hækkað úr 47 kr. kílóið, að meðaltali, í 82 kr., sem er rösklega 74% hækkun. I septem- ber í fyrra, þegar nýjar íslenskar kartöflur voru komnar á markað, kostuðu þær 37 kr. kílóið, og eru kartöflur því nú, tæpu ári síðar, seldar á 122% hærra verði. Á undanfömum 12 mánuðum hefur framfærsluvísitalan Iiækkað ■ ium 21,5% og matvöruvísitalan um 23%. Samkvæmt því ætti meðalverð á kartöflum að vera um 45 kr. kíló- ið. Þrátt fyrir þetta misræmi og væntanlegt offramboð vegna mikill- ar uppskeru, lýsir formaður Félags kartöflubænda á Suðurlandi því yfir í fjölmiðlum, að ekki sé von á miklum verðlækkunum á næstunni. Neytendasamtökin vilja því skora á framleiðendur og dreifingaraðila að lækka nú þegar verð á kartöflum og öðrum garðávöxtum sem hækk- að hafa óeðlilega mikið. Ennfremur vilja neytendasamtökirv beina því til alþingismanna að á næsta þingi verði felld niður heimild landbúnað- arráðherra til að leggja allt að 200% jöfnunargjald á innfluttar kartöflur. Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, sagði að sú hækkun sem jöfnunargjaldið hefði valdið hefði verið notuð til þess að fá neytendur til að sætta sig betur við hið háa verð sem nú væri á nýjum íslenskum kartöflum. „Neyt- endasamtökin óska eftir því við verðlagsyfirvöld að verðmyndun kartaflna og annars grænmetis verði nú þegar rannsökuð og borin saman við verðmyndunina áður en verðlagning var gefin fijáls. Við höfum til þessa verið hlynntir fijálsri verðlagningu en ef hún leið- ir til þess sem við höfum orðið vitni að nú, sjáum við okkur tilneydda að krefjast verðlagsákvæða eða grípa til annarra ráðstafana til að knýja fram verðlækkun," sagði Jó- hannes. „Eðlileg samkeppni er ekki fyrir hendi á kartöflumarkaðnum eins og málum er háttað nú. Innflutning- ur á kartöflum er bannaður og einungis fjórir innlendir aðliar standa að dreifingu á kartöflum. Engar eldri kartöflur eru á mark- aðnum svo neytendur eru tilneyddir að kaupa nýjar íslenskar kartöflur. Tvær tegundir kartaflna eru á markaðnum en það eru annarsveg- ar fljótsprottnar Premier-kartöflur og hins vegar gullauga sem eiga að vera betri og dýrari. Að sögn Jóhannesar Gunnarssonar vill verða misbrestur á því að verð og gæði kartaflna fylgist að í verslunum þar sem kaupmenn þekki ekki í sundur gullauga og Premier. „Við hjá Neyt- endasamtökunum leggjum áherslu á að innlend gæðaframleiðsla sé forsenda innflutningsbanns. Neyt- andinn á rétt á að velja og hafna.“ „Kartöflur og garðávextir eru nauðsynjavara sem fráleitt er að íþyngja með tollum eða öðrum gjöldum. Þess vegna hvetja Neyt- endasamtökin stjórnvöld til að fella niður gjöld af þessum vörum þegar þær eru fluttar til landsins. Jafn- framt verði gjöld af rekstrarvörum garðjurtaframleiðenda afnumin. Við leggjum áherslu á að hér er um sameiginlegt hagsmunamál neytenda og framleiðenda að ræða. Óeðlilega hátt verð er líklegt til að hvetja til breyttra neysluvenja og auka þannig á offramleiðlu og þann vanda sem af henni leiðir," sagði Jóhannes. „Ef leyft væri að flytja inn kart- öflur núna myndu þær kosta á bilinu 44-57 kr. kílóið. Ef jöfnunar- gjaldið væri afnumið myndu þær kosta á bilinu 29-39 kr. en nú kost- ar kílóið af nýjum íslenskum kartöflum 82 kr. Hvað verð á öðrum garðávöxtum en kartöflum varðar er afar brýnt að verð á hvítkáli lækki. Kílóið af hvítkáli kostar nú 80 kr. en inn- flutt kál myndi kosta um 30 kr. Helsta baráttumál okkar er þó að verð á kartöflum og gulrófum, sem eru 58% af heildargrænmetisneyslu landsmanna, verði lækkað, en það hefur hækkað lang mest og verður það að teljast harla óeðlilegt þar sem þarna er um hollustu- og nauð- synjavöru er að ræða,“ sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, að lokum. Morgunblaðið hafði samband við Gest Einarsson, framkvæmdastjóra Ágætis, sem sér um dreifingu á kartöflum og sagði hann að ástæð- an fyrir þessu háa verði á kartöflum nú, væri að skortur hefði verið á þeim og verðið því stjómast af framboði og eftirspurn. Bændur sæju sér ekki hag í að taka upp hálfsprottnar kartöflur nema fá fyrir þær gott verð. Hann sagði ennfremur að nú hefði framboð af Premier-kartöflum aukist til muna og markaður fyrir þær orðinn svo til mettaður og því myndi verð á þeim lækka talsvert. Enn væri skortur á gullauga og rauðum og því lækkuðu þær minna. T Dömur skartíð ykkar fínasta á 200 ára afínæli Reykjavíkur ★ í MAIDENFORM undirfatnaði ★ í BITTE fötunum vinsælu frá Danmörku ★ í sumarlegum, léttum samkvæmiskjólum, síðum eða stuttum. ★ Og heildarsvipurinn fæst með GINUSKÓM og veski í stíl við. VERIÐ VELKOMNAR Blái fuglinn Sjávarútvegsráðuneytið; Synjaði löndun- arbeiðni fær- eysks loðnuskips — Astæðan m.a. sú að ekki hafa tekist samningar um skiptingu loðnustofnsins Sjávarútvegsráðuneytið synjaði Síldarverksmiðjum ríkisins leyfis að taka við afla úr færeysku loðnuskipi síðastliðinn föstu- dag, en fyrirspurn hafði borist frá færeyska skipinu þar að lútandi. Að sögn Árna Kolbeinssonar, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu, barst ekki formlegt erindi frá Síldarverksmiðjum ríkis- ins varðandi löndunarbeiðni fær- eyska skipsins, heldur var haft símasamband við ráðuneytið og spurst fyrir um hvernig slíkri beiðni yrði tekið. „Meginreglan í okkar löggjöf er sú að erlendum skipum er bannað að landa hér á landi og heimild til löndunar og verkunar afla hér er bundin við íslensk skip,“ sagði Árni. „Hins vegar eru sérstak- ar 'undanþáguheimildir sem ráð- herra hefur til að víkja frá þessari meginreglu og okkur sýndist ekki að ástæða væri til að víkja frá meginreglunni í þessu tilviki." Ámi Kolbeinsson sagði að í þessu máli væru mörg sjónarmið, meðai annars þau, að samningar hefðu ekki náðst við Grænlendinga um skiptingu á loðnustofninum. Meðan þannig væri ástatt væri ekki við því að búast að íslensk stjórnvöld færu að teygja sig eins langt og íslensk lög framast leyfðu í að auð- velda þessar veiðar. Norðmenn hefðu tekið svipaða afstöðu gagn- vart svipuðum beiðnum af sömu ástæðu. „Án þess að ég vilji full- yrða að þetta sé eina eða megin ástæðan fyrir því að við synjuðum beiðni færeyska skipsins held ég að þessi sjónarmið hljóti að vera uppi í rnálinu," sagði Árni Kol- beinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.