Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.08.1986, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986 39 Afmæliskveðja: Sveinn Tryggvason fv. framkvæmdasljóri í dag er sjötugur Sveinn Tryggvason, mjólkurfræðingur, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Sveinn fæddist á Akranesi 12. ágúst 1916. Foreldrar hans voru hjónin Tryggvi Benónýsson, sjó- maður ættaður úr Skorradal, og Sveinsína Sveinsdóttir. Þau bjuggu og störfuðu á Akranesi alla tíð. Sveinn ólst upp með foreldrum sínum við heldur kröpp kjör eins og flestir í smáþorpum á Islandi bjuggu við í lok fýrri heimsstyijald- arinnar og fram yfir kreppuárin. Hann stundaði gagnfræðanám í Reykjavík 1932—1933 og iðnnám á Akureyri 1933-1934. Ungur fór hann í sumarvinnu að Hvanneyri til Halldórs Vilhjálmssonar skóla- stjóra. Halldór var næmur á að finna góð mannsefni og hvetja þau til dáða. Hann hvatti Svein til að fara í landbúnaðamám. Um þessar mundir var Sigurður Guðbrandsson nýtekinn við forstöðu mjólkursam- lagsins í Borgamesi, þá nýkominn úr mjólkurfræðinni í Noregi. Hann bar með sér nýjar hugmyndir um framleiðslu, meðferð og vinnslu mjólkur frá Noregi. Það réðst svo að Sveinn fór í mjólkufra^ðinám og starf til Sigurð- ar Guðbrandssonar. Eftir tveggja ára starf í mjólkursamlaginu í Borg- amesi og á Akureyri réðst svo fyrir hvatningu Sigurðar og þó enn meir Halldórs skólastjóra á Hvanneyri að Sveinn fór til Noregs í fram- haldsnám í mjólkurfræði. Hann réðst til inngöngu í Statens Meieriskole, Þrándheimi í Noregi 1935 og lauk þaðan námi 1937. Eftir heimkomuna tók hann til að vinna samkvæmt menntun sinni í mjólkuriðnaðinum. Fyrst réðst hann til mjólkustöðv- Þessir krakkar efndu til hlutaveltu í Langagerði 29 hér í bænum fyrir nokkru til ágóða fyrir Blindrafélagið. Þau söfnuðu 846 krónum til félagsins. Þau heita: Ása Einarsdóttir, Jörgen A. Guðmundsson og Anna L. Sigurðardóttir. Bryndís, Berglind og Jóhanna efndu til hlutaveltu i Bakkaseli 12, Breiðholtshverfi fyrir þó nokkru. Ágóðanum sem var rúmlega 600 krónur færðu þær Krabbameinsfélaginu. Þessir krakkar heita: íris E. Elísdóttir, Bragi V. EHsson, Svanfríður I. Guðbjörnsdóttir og Guðbjörg A. Guðbjörnsdóttir. Þau færðu Lyng- ási 1.100 krónur sem var ágóði af hlutaveltu sem þau efndu til. arinnar í Reylq'avík og var stöðvar- stjóri þar í eitt ár. Þá réðst hann til mjólkurstöðvar Hafnarfjarðar. Þar vann hann í fjögur ár frá 1938-1942. Síðan réðst hann norður á Sauð- árkrók og var mjólkurbússtjóri þar í eitt ár. Á þessum árum voru miklar breytingar að geijast í íslenskum landbúnaði. Ný tækni hélt innreið sína í landbúnaðinn. Á stríðsárun- um flutti fólk úr sveitum í strfðum straumum til þéttbýlisins. Færri hendur voru til að vinna verkin og vélar urðu að koma til svo búskap- urinn gæti gengið. Mæðiveiki herjaði á sauðfjárstofn landsmanna og bændur snéru sér meira að mjólkurframleiðslu til sölu en áður hafði verið. Þéttbýlisfólkið hafði um aldirnar orðið sjálft að bjarga sér með mjólk eða vera án hennar ella. En nú hófst framleiðsla á mjólk, smjöri og ostum til sölu í þéttbýlinu en kúaeign þar lagðist smám saman af. Þessar miklu þjóðlífsbreytingar og atvinnuháttabreytingar kröfðust nýrrar þekkingar og aukinnar leið- beiningarstarfsemi. Búnaðarfélag íslands stóijók ráðunautastarfsemi sína á stríðsár- unum og í lok stríðsins til að mæta þessum nýju viðhorfum og kröfum. Ákveðið var að stofna embætti ráðunauts í mjólkurfræðum og Sveinn var valinn til að gegna því embættí og var ráðunautur hjá BÍ í mjólkurfræðúm frá 1942 til 1947. Hann fór víða um land til að leið- beina um bætta meðferð mjólkur og að aðstoða bændur og félags- samtök þeirra við að stofna ný mjólkursamlög þar sem þeirra var talin þörf og endurskipuleggja önn- ur. Mjólkurmatur hafði verið gerður á heimilum landsmanna allt frá landnámsöld. En nú voru kröfur gerðar um aukna fjölbreyttni í vöru- framboði, miklar kröfur voru gerðar um hreinlæti og ný geymslutækni tekin upp, enda um verksmiðju- framleiðslu að ræða í úrvinnslu mjólkurinnar. Sveini þótti takast vel og farsæl- lega að leysa þessi störf og hann ávann sér traust þeirra manna, sem hann vann með. Þegar Framleiðsluráð landbún- aðarins var stofnað með iögum er tóku gildi 1. júlí 1945 varð nokkur umræða um hvaða maður væri líklegastur til að verða fram- kvæmdastjóri þess. Menn í Framleiðsluráði urðu strax sammála um að leita til Sveins um að taka starfið að sér og svo varð. Sveinn var framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs frá stofnun þess og til loka ársins 1979 eða í þijátíu og tvö og hálft ár alls. Það kom í hlut hans að móta að miklu leyti starfsemi ráðsins og fórst honum það mjög farsællega. En jafnframt hélt hann áfram að vera ráðgjafi um byggingu nýrra mjólkursamlaga víðsvegar um landið og sameiningu annarra þar sem það átti við og átti stóran þátt í umbótum og framförum mjólkur- iðnaðarins um langt árabil. Hann var frumkvöðull að land- búnaðarsýningunni 1947, sem varð mikil lyftistöng fyrir landbúnaðinn og olli straumhvörfum um framtíð hans. Síðar beitti hann sér fyrir öðrum sýningum. Hann var fulltrúi Stéttarsam- bands bænda í stjóm útflutnings- sjóðs 1957-1960. Hann átti lengi sæti í sexmanna- nefnd, sem einn þriggja fulltrúa bænda í nefndinni. Sveinn gekksj^ fyrir stofnun íslandsdeildar nor- rænu bændasamtakanna 1949/1950. Hann var lengi formað- ur deildarinnar. Hann sótti fijölda funda til Norðurlandanna fyrir ís- lands hönd og átti stóran þátt í að koma á nánari og betri verslunar- samböndum á milli íslands og annarra Norðurlanda en verið höfðu, auk annarra tengsla við bændur ( þeim löndum. Sveinn var ritstjóri Árbókar land- búnaðarins frá 1964 til 1983. Hann átti sæti í mörgum stjómskipuðum nefndum um fjölda ára. Hann átti lengi sæti í miðstjóm Framsóknarflokksins og var fulltrúi í framkvæmdanefnd hans um mörg ár. Hann var einn helsti ráðgjafi stjómvalda um mótun stefnu í land- búnaðarmálum á meðan hann var framkvæmdastjóri Framleiðslu- ráðs. Sveinn er mjög glöggur á aðalat- riði mála. Hann er öfgalaus í skoðunum og setur þær fram skýrt og skilmerkilega í fáum orðum. Hann þekkti vel til landbúnaðar- mála meðal nágrannaþjóða okkar og gat miðlað öðmm af þeirri þekk- ingu. Hann var mjög afkastamikill og farsæll í störfum. Kona Sveins er Gerður Þórarins- dóttir. Þau hafa lengi átt fallegt heimili í Brekkugerði 18 hér í borg. Það verða margir til að þakka Sveini ævistarfið í dag. Heillaóskir fylgja honum fram á áttunda ára- tuginn frá Framleiðsluráði land- búnaðarins og gömlum vinnufélög- um í bændasamtökunum með þakklæti fyrir gott samstarf. Gunnar Guðbjartsson YTOMINNUMA Okkar frábæru barna- og unglingahúsgögn. Fiölbreytt- asta úrval sem völ er á. __ __ írVTTU / FURU Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði, s. 54343. Skrifstofiiliúsgögn Skrifborð 90x180 kr. 14.400,-. SENDUMIJM ALLT LAND SKBIFBOU MAUAKSIÆUn VÉUUTIINAUOU TÖLVUBOU SKÁPAHNIN6AB HHLLUEININ GAB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.