Morgunblaðið - 12.08.1986, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 1986
54
Morgunblaðid/Ámi Sæberg
Grafarholtsvöllurinn er með óvenjulegri golfvöllum í heiminum. Það vekur furðu þeirra útlendinga sem hann heimsækja, að nokkrum manni skuli hafa komið til hugar að
yygera goifvöll þarna, á grýttum holtunum upp af Grafarvoginum. Það var líka harðsótt að koma honum upp, moldina og sandinn þurfti að flytja að, og ókjör af gijóti burt. Nú
er þetta eitt mest sótta útivistarsvæði höfuðborgarinnar. Og til stendur að prýða völlinn með tijám. 22 þúsund tré voru gróðursett i fyrra og svipaður fjöldi í sumar.
Golfvöllurinn í Grafarholti:
Einn vinsælasti útivist-
arstaðurinn í Reykjavík
GRAFARHOLTSVÖLLURINN er heimkynni Golfklúbbs Reykjavík-
ur. Hann var lagður á erfiðum stað, á gijótholtum upp af Grafarvog-
inum, í um 100 metra hæð yfir sjávarmáli. Samt hefur tekist að
koma þar upp einum besta golfvelli landsins, sem fjöldi fólks sækir.
Ekki er ofsagt að þetta sé einn vinsælasti útivistarstaður á landinu.
Morgunblaðsmenn komu þar við einn fagran sólskinsdag og heilsuðu
upp á fólkið.
Golfklúbbur Reykjavíkur var
stofnaður 1934, og hafði til að bytja
með aðsetur í Laugardalnum, þar
sem Laugardalshöllin er núna. En
sambýli við búfé var all-erfitt þar,
svo klúbburinn flutti von bráðar
yfir í Leynimýri við Öskjuhlíðina,
þar sem nú er hluti af Hlíða- og
Háaleitishverfum.
Um 1960 þurfti borgin á því
svæði að halda undir byggingar og
flutti golfklúbburinn þá upp á Graf-
arholt. Þá var þar bara smá-tún-
skiki, svo að það þurfti að brjóta
nánast allt landið til að hægt væri
að gera þar golf-völl. Ekki var
landið árennilegt, stórgrýtt malar-
holt og mýrar á milli. Völlurinn var
fyrst notaður 1963, og nú hefur
verið leikið á 18 hola velli í um 20
ár.
„Það var óskiljanlegt að menn
skyldu láta sér detta í hug að gera
hér golfvöll," sagði Björgúlfur
Lúðvíksson framkvæmdastjóri GR.
„Útlendingar eru alveg undrandi á
þessum velli, þetta er einn óvenju-
legasti völlurinn í heimi. Það þurfti
að flytja jarðveginn að og ijarlægja
ósköpin öll af gijóti. Gijótið er eilíft
vandamál hér. Það kemur upp úr
jörðinni á hveijum vetri. Það er
ekki nokkur leið að giska á hveiju
til hefur verið kostað við gerð vall-
arins. Það er slík óhemjuvinna, sem
hefur farið í þetta.
Viljum ekki loka
klúbbnum
Nú er völlurinn að verða of lítill
fyrir starfsemina. Hann rúmar