Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 12.08.1986, Qupperneq 56
3» Flugleiðir: Samningur um vöruflug* í Saudi- Arabíu í eitt ár FLUGLEIÐIR hafa samið við Saudia Airlines, ríkisflugfélag Saudi- Arabíu, um vöruflutningaflug. Til þessa verkefnis munu Flugleiðir nota eina Douglas DC 8-þotu og munu 10-15 íslendingar að jafnaði starfa ytra. Flugið hefst 15. ágúst nk. og gildir 'samningurinn i eitt ár en í honum eru ákvæði um framlengingu. Guðmundur Pálsson, fram- kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að til þessa flugs yrði notuð eina DC 8-vöruflutningaflug- vél fyrirtækisins, TF-FLC. Undan- farið ár hefur vélin verið í ieigu hjá bandaríska flugfélaginu Evergreen Intemational en þar áður var hún í nokkur ár í vöruflutningum fyrir Saudia Airlines á vegum ONA- flugfélagsins sem leigði hana af Flugleiðum. Fiugvélin mun fljúga frá Jedda í Saudi-Arabíu, þar sem verður aðset- ur íslendinganna og verður aðallega flogið til Amsterdam, Brussel og Frankfurt. Einnigverður vélin notuð í annað tilfallandi flug, innan Saudi-Arabíu og til Afríku og Evr- ópu. Fyrir skömmu lauk leigusamn- ingum við Evergreen-flugfélagið og undanfama daga hefur vélin verið í stórskoðun hjá Cargolux í Lúxem- borg og jafnframt hefur verið unnið að því að koma henni inn í við- haldskerfi Flugleiða. Sem fyrr segir munu eingöngu íslendingar starfa að þessu verkefni ytra, 3 flugáhafnir, flugafgreiðslu- menn og flugvirkjar. Lækkað olíuverð: Minnkandi van- skil útgerðarinnar VANSKIL útgerðarinnar vegna olíukaupa hafa farið mjög minnkandi að undanförnu, sem rekja má til batnandi afkomu vegna lækkaðs olíuverðs. Þórð- ur Ásgeirsson, forstjóri Olíu- ‘ verslunar íslands, staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið og sagði að útgerðin stæði nú í skilum með olíukaup og væri farin að greiða niður gamlar skuldir. „Það er ljóst að innheimta hefur gengið mun betur á þessu ári held- ur en í fyrra,“ sagði Þórður. „Við fáum nú greitt umfram það sem við seljum, þannig að við fáum nú greitt upp í gamlar skuldir. Það má segja að tími hafi verið til kom- inn því skuldir útgerðarinnar voru orðnar uggvænlegar. Hins vegar er töluvert langt í það enn að skuldaskil útgerðarinnar séu kom- in niður í það sem eðlilegt má telja,“ sagði Þórður ennfremur. Morgunbladið/Jón Sigurðsson Drengurinn sem heldur á 30 punda laxinum heitir Einar Örn Jónsson og er frá Blönduósi. Einar er að verða 11 ára og er 154 sm á hæð en laxinn er 105 sm að lengd. 30 punda hængur veiðist í Víði- dalsá Blönduósí. GUÐMUNDUR B. Ólafsson úr Reykjavík landaði á sunnudaginn 30 punda hæng úr Víðidalsá. Veiðistaðurinn þar sem þessi risi fékkst heitir Dalsárhús. Þessi 30 punda fiskur gein við rauðum „Francis" nr. 8 og stóð viðureign manns og lax yf ir í fjórar klukku- stundir og fjörutiu minútur. Þennan sama dag fékk enskur veiðimaður, Richard Butler, 25 punda hæng einnig á rauðan „Francis". Sú viðureign stóð einnig yfir í um fimm klukku- stundir. í samtali við Morgunblaðið sagði Guðmundur B. Ólafsson að klukkan hefði verið 11.50 þegar 30 punda laxinn tók fluguna og þegar að við- ureigninni lauk var klukkan orðin 16.30. „Laxinn stökk fljótlega og stikaði niður á svokallaða Skip- stjórabreiðu lagðist þar og hreyfði sig tiltölulega lítið eftir það.“ En um síðir var laxinum landað með dyggri aðstoð Birgis Hauks- sonar leiðsögumanns við Víðidalsá. Þess skal geta að báðir þessir laxar voru nokkuð legnir og hafa verið að minnsta kosti 3 til 4 pundum þyngri þegar þeir komu í ána. 30 punda laxinn var 105 sm langur og 54 sm í ummál. Síðast veiddist 30 punda lax sumarið 1984. Þá veiddi Hörður Helgason sendiherra slfkan risafisk, einnig í Víðidalsá. — Jón Sig. Fundur um endurskoðun fiskveiði- stefnu Sjávarútvegsráðherra hefur boðað til fundar á morgun um fiskveiðistefnuna. Að sögn Halldórs Asgrímssonar hafa helstu hagsmunaaðilar í sjáv- arútvegi verið kallaðir til fundar, auk sjávarútvegs- nefndar Alþingis. „Það var ákveðið á síðasta ári að taka fiskveiðistefnuna til end- urskoðunar í haust,“ sagði Halldór, „og við hittumst fyrst og fremst nú til að skiptast á skoðunum." Endurskoðuninni verður haldið áfram í haust og vetur. Halldór sagði að lögin um fiskveiðargiltu fram á næsta ár. 4-5 helstu hvalverndarsamtök Bandaríkjanna samræma aðgerðir: Hvetja fólk til að kaupa ekki íslenzkar fiskafurðir Frá Jóni Ásgeiri Signróssyiii, fréttaritara Mor^unblaösins í Bandarikjunum. „VIÐ HÖFUM ákveðið að leggjast gegn því að fólk kaupi islenskar fiskafurðir," sagði Campbell Plowden hjá Mannúðarsamtökum Bandaríkjanna er fréttaritari Morgunblaðsins ræddi við hann í gær. Helstu hvalaverndarsamtökin héldu samráðsfund í Washington í gær og kváðust fulltrúar 4—5 helstu samtakanna, þar á meðal Green- peace, ætla að mælast til að samtök þeirra taki sömu afstöðu á næstunni. Um það bil 450.000 manns greiða ársgjöld til Mannúðarsamtaka Bandaríkjanna, sem reka skrifstofu með rúmlega 60 fastráðnum starfs- mönnum í Washington. Samtökin voru stofnuð 1954 og láta dýra- vemdarmál af ýmsu tagi til sín taka. „Við munum eiga fund með dr. Cal- io hjá útvegsdeild bandaríska við- skiptaráðuneytisins 20. ágúst næstkomandi og ætlum þar að leggja til að Bandaríkin haldi fast við andstöðu gegn öllum innflutningi á hvalkjöti til Japan," sagði Camp- bell Plowden. „Andstaða gegn kaupum á íslenskum vörum krefst mikilla fjár- útláta,“ sagði Dean Wilkinson full- trúi Greenpeace á fundinum í gær. Hann sagði fréttaritara Morgun- blaðsins að á næstunni yrði kannað nákvæmlega hvernig megi ná sem mestum árangri í aðgerðum gegn hvalveiðum íslendinga. „Við höfum ekki tekið neina ákvörðun um að- gerðir, það gerir alþjóðadeild Greenpeace sem hefur aðsetur í Englandi," sagði hann. „Það hefur farið sérstaklega illa í fólk að Islcnd- ingar skuli ætla að nota hvalkjötið til að fæða loðdýr," sagði Dean Wilk- inson. Greenpeace í Bandaríkjunum tel- ur um 550.000 fullgilda félagsmenn og á skrifstofu þeirra í Washington starfa um 35 fastráðnir starfsmenn. Helstu málaflokkar eru kjarnorku- mál, eiturefnaúrgangur og lífríkið í hafinu. „Fundurinn 20. ágúst með dr. Calio er oinnig sá fyrsti til undir- búnings næsta ársfundar Alþjóða hvalveiðiráðsins og við munum leggja aðaláherslu á að taka þessar vísindaveiðar föstum tökum,“ sagði Dean Wilkinson. Grímsey: Engin veðurskeyti vegna sumarleyfa VEGNA sumarleyfa veðurathugunarmanns í Grimsey hafa ekki borist veðurskeyti þaðan til veðurstofunnar að undanförnu. Að sögn Flosa Hrafns Sigurðsson- ar veðurfræðings hefur ekki verið hægt að fá afleysingamann í Grímsey að þessu sinni. Hann taldi það ekki koma að sök i stuttan tíma yfír sumarið. Eftir sem áður geta sjómenn og aðrir hagað ferðum sínum eftir veðurspánni frá veður- stofunni. „Okkur þykir að sjálfsögðu slæmt að ekki skuli vera regluleg veðurathugun í Grímsey," sagði Flosi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.