Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 Sitjandi frá vinstri við borðið eru: Jóhannes Nordal stjórnarformaður, Albert Guðmundsson iðnaðarráð- herra, Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar. Standandi frá vinstri eru: Árni Þ. Ámason skrifstofustjóri, Halldór J. Kristjánsson deildarstjóri og Páll Flygen- ring ráðuneytisstjóri iðnaðarráðuneytinu og Sigurður Þórðarson skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu. Landsvirkjun kaupir Jarðvarma- veitur ríkisins í Bjarnarflagi SAMNINGAR hafa nú tekist milli ríkisins og Landsvirkjunar um sölu á eignum Jarðvarmaveitna ríkisins í Bjarnarflagi í Skútu- staðahreppi í Suður-Þingeyjar- sýslu og var samningur þar að lútandi undirritaður í Reykjavík i gær. Kaupverð eignanna er 120 milljónir kr. sem greiðist með skuldabréfi til 15 ára verðtryggt og em ársvextir 3%. Samninginn undirrituðu Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra, og Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð- herra, fyrir hönd ríkisstjórnar íslands og dr. Jóhannes Nordal, stjómarformaður og Halldór Jónat- ansson, forstjóri Landsvirkjunar fyrir hönd fyrirtækisins. VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT: Á hádegi í gær var 1005 millibara lægð á vestanverðu Grænlandshafi sem þokaðist í norðnorðaustur, en 1035 millibara hæð um 500 km vestsuðvestur af írlandi ÍSLAND: Suðvestanátt verður ríkjandi, kaldi eða stinningskaldi suðvestan- og vestanlands, en hægari á norðaustur- og austur- landi. Skúrir verða á suður- og vesturlandi, en að mestu úrkomu- laust annars staðar. Hiti verður á bilinu 10— 14 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR: Búist er við sunnanátt og rigningu um mest allt land og fremur hlýju veðri. LAUGARDAGUR: Það mun kólna lítillega þegar skil fara yfir landið og verða skúrir vestantil en léttir til austantil. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 13 léttskýjað Reykjavík 10 skýjað Bergen 7 skýjað Helslnki 11 léttskýjað Kaupmannah. 13 léttskýjað Narssarssuaq 7 rigning Nuuk 7 alskýjað Osló 12 skýjað Stokkhólmur 12 léttskýjað Þórshöfn 8 skýjað Algarve 23 skýjað Amsterdam 13 skýjað Aþena 30 heiðskírt Barcelona 28 skýjað Berlín 12 alskýjað Chicago 11 alskýjað Glasgow 12 skýjað Feneyjar 22 léttskýjað Frankfurt 11 alskýjað Hamborg 12 skýjað Jan Mayen 2 skýjað Las Palmas 25 skúr London 13 skýjað LosAngeles 16 skýjað Lúxemborg 9 súld Madríd 23 skýjað Malaga 28 skýjað Mallorca 27 skýjað Miami 26 léttskýjað Montreal 6 skýjað Nice 25 léttskýjað New York 11 léttskýjað Paris 11 alskýjað Róm 28 léttskýjað Vín 22 heiðskírt Washington 10 léttskýjað Winnipeg 9 súld Studia Islandica: Form og hugmynda- fræði í sagnagerð ÚT ER komin bókin Ást og út- legð eftir Matthías Viðar Sæmundsson. Undirtitill hennar er Form og hugmyndafræði í íslenskri sagnagerð 1850—1920. Bókin skiptist í sjö kafla: I. „Form og hugmynd“ þar sem höf- undur gerir grein fýrir rannsóknar- aðferðum sínum og meginhug- myndum. II. „Ást og útlegð" fjallar um rómantísk viðhorf til ástarinn- ar. III. „Óland í bókmenntum" Qallar um sögur Jóns Thoroddsen, Jóns Mýrdal, Páls Sigurðssonar og Torfhildar Hólm. IV. „Raunveru- leiki í bókmenntum“ fjallar um sögur Jóns Ólafssonar, Gests Páls- sonar og Þorgils gjallanda. V. „Málamiðlun í bókmenntum" fjallar um sögur Jónasar Jónassonar, Jóns Trausta, Einars H. Kvarans og Guðmundar Friðjónssonar. VI. „Þróunin til einveru" fjallar um sögur Jónasar Guðlaugssonar, Ein- ars Benediktssonar og Jóhanns Gunnars Sigurðssonar. VII. „Ást í útlegð" fjallar um hvörfin við upp- haf nútímabókmennta, einkum verk Gunnars Gunnarssonar og Jóhanns Signrjónssonar. Um verk sitt segir höfundur í I. kafla: „Hér á eftir verður ljósi beint að ástarhugsjóninni, þróun hennar, myndbreytingum og loks hnignun í byrjun nýrrar aldar. Könnuninni Matthías Viðar Sæmundsson er og ætlað að sýna þá hugarfars- byltingu sem varð á tímabilinu 1850—1920, þróunina tii nútíma í hugmyndum manna um líf og sam- félag.“ Ást og útlegð er 44. heftið í rit- röðinni Studia Islandica sem Bókmenntafræðistofnun Háskóla íslands og Bókaútgáfa Menningar- sjóðs gefa út. Bókin er 295 blaðsíð- ur og prentuð í prentsmiðjunni Leiftri. „KA átti tvímælalaust siðferðislegan rétt á j öfnunargjaldi“ — sagði Arnór Valgeirsson í yfirheyrslu fyrir Sakadómi í „Kaffibaunamálinu“ ARNÓR Valgeirsson, deildarstjóri fóðurvörudeildar SÍS, sagði við yfirheyrslur í Sakadómi Reykjavíkur í gær að hann liti svo á að Kaffibrennsla Akureyrar ætti ekki lagalegan rétt til jöfnunargjalds á kaffi, en hins vegar tvímælalaust siðferðilegan rétt. Arnór sagði ennfremur að hann hafi fengið sent samrit af samningi NAF (Nordisk Andelsforbund) og IBC, brasilísku kaffimálastofnunar- innar, fyrir árið 1981. Hafi hann afhent Hjalta Pálssyni samiitið og bréf sem fylgdi með því, en áður hefur Hjalti neitað í yfirheyrslum að hafa þekkt efni þessa samnings eða annarra samninga milli NÁF og IBC. Á samningum þessara að- ila er avisos, eða afsláttarkerfið, byggt. Arnór sagðist aðspurður alltaf hafa litið svo á að raunverulegt verð hverrar kaffisendingar sé til- boð kaffiseljenda, sem samþykkt hefði verið að taka af Kaffibrennslu Akureyrar og SIS og staðfest hefur verið af NAF. Geti jöfnunargjald, eins og Arnór kallar avisos, sem greitt er af brasilísku kaffimála- stofnuninni (IBC) ekki undir ncinum kringumstæðum verið túlk- að sem afsláttur frá einstökum kaffiútflytjendum. Gjaldið sé hluti af uppsöfnuðu jöfnunargjaldi hjá IBC vegna viðskipta við mismun- andi kaffiútflytjendur í Brasilíu. Með frádrættinum sé SÍS að nýta þann rétt er það hefði öðlast til ráðstöfunar þessa jöfnunargjalds. Ekki kvaðst Arnór hafa vitað um fjögurra manna nefnd, sem falið var árið 1981 að reyna að komast að samkomulagi um skiptingu þessa jöfnunargjalds, en í nefndinni áttu sæti þeir Guðmundur Skafta- son, endurskoðandi KA^ Geir Geirsson, endurskoðandi SIS, Geir Magnússon, framkvæmdastjóri fjármálasviðs SÍS bg Snorri Egils- son, aðstoðarframkvæmdastjóri innflutningsdeildar SÍS. Sagði Arn- ór að Snorri Egilsson hefði þó sagt sér frá því um haustið sama ár að þessi mál væru í skoðun. Þegar yfirheyrslum yfir Arnóri Valgeirssyni lauk var kallað fyrir fyrsta vitnið í málinu, Þröstur Sig- urðsson, fyrrum framkvæmdastjóri Kaffibrennslu Akureyrar. Þröstur kvaðst ávallt hafa álitið að hann fengi bestu upplýsingar um heims- markaðsverð á kaffi á hveijum tíma frá innflutningsdeild SÍS og hefði því ekki séð ástæðu til að leita upplýsinga víðar. Sagðist Þröstur hafa litið svo á að SÍS væri umboðs- aðili í kaffiviðskiptunum og að KA hafi fengið góða vöru á góðu verði fyrir milligöngu þess. Þröstur sagði að hann hafi að mestu leyti séð sjálfur um kaffivið- skiptin við innflutningsdeild SÍS, en borið þau undir Val Arnþórsson, stjórnarformann, ef ócðlilegt ástand skapaðist, t.d. vegna uppskeru- brests. Pantanir hafi venjulega farið fram með símtali og síðan hafi kom- ið skriflegar staðfestingar frá SÍS. Sagði Þröstur að samskipti sín við innflutningsdeildina hafi jafnan verið við einn aðila og nefndi hann Gísla Theodórsson, Sigurð Áma Sigurðsson og Amór Valgeirsson, en mundi ekki hver þeirra hpfði verið á hvaða tíma. Þegar Þröstur var inntur eftir því hvort honum hefði verið kunn- ugt um samninga milli NAF og Brasilíumenn um kaffiviðskipti á árunum 1979-1981 svaraði hann því neitandi. Hann kvaðst muna eftir símtali frá innflutningsdeild í ársbyijun 1981 þess efnis að byija ætti að endurgreiða KA niður- gi-eiðslur frá Brasilíu. Hafi hann skömmu síðar fengið bréf til stað- festingar því. Ekki minntist hann þess að hafa leitað eftir eða fengið nánari upplýsingar frá SÍS um þess- ar greiðslur og mundi ekki hvenær hann kynnti stjórn og stjórnarfor- manni KA þessa ákvörðun, en það hljóti hann að hafa gert. Sagðist hann ekki hafa talið þörf á að kynna sér heimsmarkaðsverð á kaffi þrátt fyrir tilkynningu um endurgreiðsl- ur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.