Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
Fram hlaut
markabikar
Morgun-
blaðsins
LEIKMENN Fram skoruð flest
t mörk 11. deild karla í knattspyrnu
í sumar og hlutu markabikar
Morgunblaðsins, sem veittur var
í fyrsta skipti. Liðið skoraði 39
mörk í 18 leikjum, en Skagamenn
komu næstir með 33 mörk og
Valsmenn gerðu 31 mark.
Alls skoruðu 79 leikmenn mark
eða mörk fyrir félag sitt í 1. deild
í sumar, þrír gerðu sjálfsmark,
Keflavík tapaði einu marki á kæru
og Víðir fékk þrjú vegna sama
máls.
Framarar skoruðu 39 mörk í 14
leikjum af 18 og eins og margoft
hefur komið fram, skoruðu Guð-
mundur Torfason og Guðmundur
Steinsson bróðurpartinn eða 29
jmörk, en hin 10 skiptust á fjóra
leikmenn, þá Kristinn Jónsson,
sem gerði 4 mörk, Pétur Ormslev
3, Gauti Laxdal 2 og Ormarr Ör-
lygsson eitt mark. Guðmundur
Torfason skoraði 19 mörk og varð
markakóngur, en Guðmundur
Steinsson gerði 10 mörk.
Skagamenn skoruðu einnig í 14
leikjum, en mörkin urðu 33 sam-
tals. Tólf leikmenn skoruðu fyrir ÍA,
en aðeins fyrirliðinn, Sigurður Lár-
usson, komst ekki á blað að þessu
sinni úr fastaliðinu. Valgeir Barða-
son skoraði 9 mörk, Guðbjörn
Tryggvason 7 og aðrir þrjú eða
færri.
Sigurjón Kristjánsson skoraði
10 mörk fyrir Val og var einn af
níu markaskorurum liðsins.
Ámundi Sigmundsson gerði 6,
Valur Valsson og Hilmar Sighvats-
son 4 hvor og aðrir færri. Vals-
menn unnu Breiðablik 7:0, og var
það stærsti sigur sumarsins, en
alls skoruðu Valsmenn 31 mark
og þar af var eitt sjálfsmark.
Keflvíkingar töldu sig vanta
markaskorara i byrjun móts, en
annað kom á daginn. Liðið hafnaði
í 4. sæti í keppni um Morgunblaðs-
bikarinn, mörkin urðu 25, eitt
þeirra sjálfsmark, og skoruðu 9
leikmenn mörkin. Flest gerði Freyr
Sverrisson eða 6, Óli Þór Magnús-
son gerði einnig 6, en missti
markið á móti Víði vegna Sigurðar-
málsins, og er því skráðúr með 5
-Góð þátttaka
eldri kylfinga
LANDSAMBAND eldri kylfinga,
sem nýlega hefur verið stofnað
og rúmar alla þá sem eldri eru
en 55 ára (og konur yfir fimm-
tugt) stóð fyrir stóru golfmóti á
Grafarholtsvelli um síðustu helgi.
Raunar var bætt við aukaflokki
karla 50—54 ára og mættu 34 úr
þeim flokki til leiks, 13 konur og
54 karlar úr eldri flokknum. Sam-
tals voru þátttakendur því 101
'!'og veitti ekki af dagsbirtunni þótt
byrjað væri strax að morgni.
Keppt var um glæsileg verðlaun,
ýmiskonar nothæfa hluti og verð-
laun veitt bæði með og án forgjaf-
ar í öllum þremur flokkunum.
Úrslit urðu sem hér segir:
Karlafiokkur 55 ára og eldri:
Án forgjafar:
1. Jóhann Benediktsson 8
2. Svan Friögeirsson 80
3. Gisli Sigurðsson
Með forgjöf:
1. Aðalsteinn Guðlaugsson
2. Svan Friðgeirsson
3. Zóphonias Áskelsson
Kvennaflokkur:
Án forgjafar:
1. Katla Ólafsdóttir
2. Kristín Eide
3. Steindóra Steinsdóttir
Með forgjöf:
1. Katla Ólafsdóttir
2. Steindóra Steinsdóttir
3. Kristin Eide
Karlaflokkur 50—54 ára:
Án forgjafar:
1. JónÁrnason
2. Pótur Antonsson
3. Ásgeir Nikulásson
Með forgjöf:
1. Helgi V. Jónsson
2. JónÁrnason
3. Skarphéöinn Sigursteinsson
Morgunblaöið/Július
•Guðjón Arngrímsson blaðamaður Morgunblaðsins, afhendir Guðmundi Steinssyni, fyrirliða Fram, marka-
bikar Morgunblaðsins fyrir leik Fram og Katowice í Evrópukeppni bikarhafa.
mörk. Ingvar Guðmundsson skor-
aði 4 mörk og aðrir færri.
Sjö leikmenn FH skoruðu sam-
tals 24 mörk og leikmaður númer
7, Ingi Björn Albertsson, þjálfari,
varð markakóngur Hafnfirðing-
anna með 7 mörk. Hörður
Magnússon og Pálmi Jónsson
skoruðu 4 mörk hvor, Kristján
Gíslason 3 og þrír leikmenn gerðu
tvö mörk hver.
KR-ingar fengu fæst mörkin á
sig, en þeir höfðu engan afgerandi
markaskorara. Átta leikmenn skor-
uðu samtals 21 mark. Július
Þorfinnsson og Björn Rafnsson
skoruðu 5 mörk hvor, Ásbjörn
Björnsson 4 og aðrir tvö eða eitt
mark.
Þórsarar skoruöu einnig 21
mark og þar af var eitt sjálfsmark.
Sex leikmenn gerðu mörkin og var
Hlynur Birgisson með flest eða 6
mörk, Kristján Kristjánsson gerði
5, Jónas Róbertsson 4 og aðrir
færri.
Víðismenn fengu 21 mark
skráð, en skoruðu sjálfir 18. Þeir
töpuðu 1:0 fyrir ÍBK, en var dæmd-
ur 3:0 sigur sem kunnugt er.
Grétar Einarsson skoraði 6 mörk,
Guðjón Guðmundsson 5 og aðrir
tvö mörk eða færri.
Sjö Eyjamenn skoruðu 20 mörk
og komust sjö menn á lista yfir
markaskorara. Jóhann Georgsson
skoraði 6 mörk, Ómar Jóhannsson
5, Bergur Ágústsson 4 og aðrir
færri.
Leikmenn Breiðabliks skoruðu
fæst mörk í 1. deild í ár. Átta leik-
menn gerðu 18 mörk og skoraði
Jón Þórir Jónsson flest þeirra eða
7 mörk. Guðmundur Guðmunds-
son var næstu.r með 3 mörk og
aðrir færri.
Morgunblaðsliðið — 18. umferð
ÞÁ ER komið að þvf að stilla upp liði 18. og si'ðustu umferðar íslandsmótsins. Flestir þeir sem nú eru
í liðinu hafa komið við sögu þar áður, en þó er einn nýliði. Hann heytir Arnljótur Davíðsson, 17 ára
sóknarmaður úr Fram, sem lék gegn KR og barðist þar af miklum dugnaði. Ungur og upprennandi
leikmaður sem á eftir að vera Fram mikill styrkur í framtíðinni. Guðni Bergsson er leikreyndasti
maður liðsins með átta leiki, eða helming þeirra leikja sem liðinu hefur verið stillt upp í yfir sumarið.
Stefán Jóhannsson
KR (2)
Jónas Róbertsson
Þór (3)
Sveinbjörn Hákonarson
ÍA (3)
Gunnar Gíslason
KR (5)
Guðbjörn Tryggvason
ÍA (4)
Guðni Bergsson
Val (8)
Nói Björnsson
Þór (3)
Árni Stefánsson
Þór (2)
Ómar Jóhannsson
ÍBV (3)
Sigurjón Kristjánsson
Val (4)
Arnijótur Davi'ðsson
Fram (1)
•Guðmundur Torfason átti stóran þátt f því að Fram fékk markabik-
ar Morgunblaðsins en hann skoraði alls 19 mörk f leikjum Fram á
íslandsmótinu.
Enginn með 12
AF ÞEIM fjórum leikvikum sem
lokið er hjá ísl. getraunum á
þessu starfstfmabili, hefur tóif
aðeins komið fram í einni leikviku
en það var í þeirri fyrstu.
Nú í fjórðu leikviku komu fram
18 raðir með 11 réttum og er vinn-
ingur fyrir hverja röð kr. 38.480.
Tíurnar urðu heidur fleiri eða 236
og vinningur kr. 1257.
Vinningspotturinn var samtals
kr. 989.565. en samtals seldust
412.319 raðir. Mest seldi knatt-
spyrnudeild Fram, 36.574 raðir,
enda þeirra helgi.
Getrauna- spá MBL. Sunday Mirror i Sunday People Sunday Express Sunday Telegraph Morgunblaðið SAMTALS
1 X 2
Arsenal — Oxford i i i 1 1 5 0 0
Aston Villa — Norwich 2 X 2 X 1 1 2 2
Charlton — Coventry 2 1 1 X X 2 2 1
Chelsea — Nott’m Forest 2 - - - X 0 1 1
Everton — Man. United - — — — 1 1 0 0
Leicester — Tottenham X X X 1 2 1 3 1
Man.City-QPR 1 2 X 2 1 2 1 2
Newcastle — Wimbledon 2 1 2 2 X 1 1 3
Southampton — Liverpool 2 — — — 2 0 0 2
Watford - Sheff. Wed. 2 X 1 X 1 2 2 1
West Ham — Luton X 1 1 1 1 4 1 0
Hull — Birmingham 1 1 X X 1 3 2 0