Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 55 Þessir hringdu . . . Kvenúr tapaðist Þórdís Jónsdóttir hringdi og sagðist hafa tapað silfruðu Seikó kvenúri fímmtudaginn 4.septem- ber sl. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 624257, eftir kl. 17. Sessa týndist 1 flutningum Helga Ingvarsdóttir hringdi: „Þann 9. þessa mánaðar var sonur minn að flytja búferlum í Kópavogi. Hann flutti dótið sitt á stórum bíl og lausum vagni. Með- al þess sem var á aftanívagninum var forláta leðursófasett. Á leið- inni hefur dottið í götuna ein sessa úr sófanum og þegar það upp- götvaðist hafði einhver hirt hana. Þetta átti sér stað á leiðinni um Kópavogsbraut eftir Borgarholts- braut að Holtagerði 12. Eins og gefur að skilja kemur sér afskaplega illa að missa svona eina sessu, því þarmeð er settið ónýtt. Sá sem hirti hana úr göt- unni er því vinsamlegast beðinn að koma hénni til skila að Holta- gerði 12 eða á lögreglustöðina í Kópavogi." Hjólastóla- námskeið inn í ökukennsluna Haukur Friðriksson, Sjálfs- björg, hringdi og sagðist hafa farið í Laugardalshöll um síðast- liðna helgi til að sjá hjólastólaral- lið sem þar fór fram. Það hafði verið alveg frábært og vildi hann koma þökkum á framfæri til allra þeirra sem að því stóðu. Einnig vildi hann stinga upp á því að námskeið í notkun hjólastóla yrði haldið í sambandi við ökukennslu, þar sem ekki er hægt að segja fyrir um hvað gerst getur í um- ferðinni og nám af þessu tagi gæti ekki einungis búið fólk undir ýmislegt heldur fyrst og fremst vakið það til umhugsunar um hættur umferðinnar. Einnig vildi Haukur koma þökkum á framfæri til Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, söng- konu, fyrir fallegan söng áður en landsleikur Islendinga og Frakka hófst, en þá söng Diddú þjóð- söngva beggja landanna. Svefnpoka saknað Katrín hringdi: „Til þess kulvísa sem tók traustataki brúnan, tveggja manna svefnpoka á Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum: Er ekki kom- inn tími til að skila honum aftur? Honum er hægt að koma til skila í Box 70, 820 Eyrarbakka, merkt Katrín." Silkiblússa týndist Guðný Hjaltadóttir hringdi og sagðist hafa týnt röndóttri silki- skyrtu þegar hún var að sækja hana í efnalaugina við Stigahlíð, föstudaginn 5. september. Ef ein- hver hefur fundið skyrtuna er viðkomandi beðinn að hringja í síma 12267. Ég trúi þessu ekki Guðrún Kristín hringdi: Hér um daginn var ég viðstödd meistarakeppni í ökuleikni. Eitt var það sem vakti mig til um- hugsunar. Hversvegna í ósköpun- um er sérstakur kvennaflokkur þegar keppt er í ökuleikni? Erum við í alvöru svona miklir klaufar að við getum ekki komist í úrslit nema í sérstökum kvennaflokki? Hversvegna í ósköpunum er kvennaflokkur þegar keppt er í Bridge? Hvað kemur þetta estro- geni við? Hversvegna í ósköpunum er tefld sérstök kvennaskák? Er þá enginn jafnréttisvilji til staðar? Hversvegna í ósköpunum er sérstakur kvennaflokkur í reið- mennsku (hestaíþróttum)? Er það ekki kostur að knapinn sé léttur og lipur? Er þetta bara til að stað- festa að við séum ekki samkeppn- isfærar? Ég trúi þessu ekki. Fékk ekki að sjá frönsku sýninguna Borjjari hringdi: „Ég er bálvondur fyrir hönd hins almenna borgara. Þannig er mál með vexti að ég ætlaði mér, eins og fleiri, að heimsækja franska skipið sem var hér í heim- sókn um helgina og skoða þar sýninguna sem auglýst hafði ver- ið. Þegar ég var kominn um borð og spurðist fyrir um hvar sýning- in væri var mér sagt að ég mætti ekki fara á hana og þyrfti að fara frá borði, þar sem Vigdís Finn- bogadóttir, forseti íslands, ætlaði að skoða sýninguna þennan dag. Ég svaraði sem var, að sýningin hefði verið auglýst opin almenn- ingi á þessum tíma og að forseti íslands væri alvanur því að skoða sýningar með þjóð sinni. Það varð þó engu tauti við komið og ég þurfti frá að hverfa. Þetta var síðasti dagur sýningarinnar og því enginn möguleiki að skoða hana síðar." Hjá franska sendiráðinu feng- ust þær upplýsingar að þessi ákvörðun, að meina almenningi aðgang, hefði verið tekin af yfír- manni skipsins. Það væri skylda hans að loka skipinu almenningi þegar þjóðhöfðingi kæmi um borð. Ástæðan fyrir því að sýningin hefði verið auglýst opin á þessum tíma var sú, að heimsókn forset- ans bar að með skjótum hætti og því ekki gefíst tími til að leiðrétta auglýstan tíma. Tann- stöngull í tertusneið Hótel Örk, Hveragerði. Um alvörusvip veður- og hagfræðinga Ingibjörg skrifar: „Sunnudaginn 7. sept. sl. fór ég ásamt þremur vinkonum mínum í eftirmiðdagskaffi á hið nýja Hótel Örk í Hveragerði. Fengum við kaffí og ijómatertu. Til að byrja með kom hvorki sykur né mjólk á borðið, en ég bað um það og kom það þó eng- in afsökun fylgdi. Síðan fórum við að gæða okkur á veitingunum og er ég var komin inn í miðja tertu- sneiðina mína kom þar út tann- stöngull og hár með honum. Ég kallaði aftur á stúlkuna sem bar fram veitingamar og sýndi henni það sem komið hafði í ljós. Hún baðst ekki afsökunar, en kvaðst geta komið með aðra sneið. Þetta endaði með að hún kom með sneið af annarri tertu, sem ég þó hafði enga lyst á, sem von er eftir það, sem á undan hafði gengið, enda var heldur enginn gaffall borinn með þessu né skeið. Vil ég endilega koma þessu á framfæri við rétta aðila og benda þeim á, að þetta geri staðinn varla langvinsælastan á landinu að mínu mati, enda býst ég ekki við að bera þar við aftur. Seinfari skrifar: Þannig ritar Dagfari í DV þann 11. september 1986: „Hagfræðingar . .. hafa einnig áberandi skaddað hægra heilahvel, og veðurfræðingar sömuleiðis ef marka má alvörusvipinn á þeim á sjónvarpsskerminum.“ Það er nú venjulega ekki mikið að marka Dagfara, og heldur er ég á því að honum hafi enn einu sinni skjátlast í ályktunum sínum. Vil ég nú með leyfi bijóta upp á annarri skýringu, miklu sennilegri: Þess ber að gæta að það getur ekki verið neitt skemmtiverk að reyna að segja fyrir um veður á svo óstöðugu veðursvæði sem íslandi og grennd. Svo kemur meira til: Manni skilst að veðurfræðingar megi gera svo vel og sitja óg hlusta þegjandi á allar svonefndar sjónvarps„fréttir“, þ.e. ýtarlegar romsur um kosti gámaútflutnings, fískrannsókna- .niðurstöður, fískverðsákvarðanir, samanburð á bolfiskafla þriggja mánaða ársins 1986 samanborið við sömu mánuði „í fyrra“. Það má rétt nærri geta hvemig þessum veðurfræðingum veiður loks innan- bijósts. Þeir verða líka að horfa á þetta lesið upp. Loksins þegar veðurfræðingur fær orðið, eftir allar þessar hörm- ungar, þá er nú orðin tíska að hann verði skotspónn persónulegrar spumingar, kjámakaralega fram borinnar: „ .. .og getur þú nú, kæri Páll tíhí, upplýst okkur um eitt, — megum við eiga von á að þessi ó, yndislega sól, tíhí, fái að skína á okkur enn um hríð?“. Eða þá svona: „Eru nú ekki mestar líkur á því að við megum vænta betra veðurs en voru þama á fiskimiðunum, ha, Markús?" Þessi skýring á tilteknum svip tiltekinnar stéttar virðist mér miklu sennilegri en skýring Dagfara. KJÖTMIÐSTÖOIN Sfmí 686511 V < ALLT I ROÐ OC REGLU! Ef þú ert þreytt(ur) á óreiðunni og uppvaskinu í kaffistofunni þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum. Duni er ódýrasti barinn í bænum Duni kaffibarinn sparar bæði tíma og pláss. Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg. ^- kaffistofa í hverjum krók! FAINIIMIR HF Bíldshöfða 14, sími 672511 BJORNINN HF Borgartún 28 — simi 621566 Reykjavík URVALS VARA FRÁBÆRU VER síma 1621566 Og nú erum við í Borgartúni 28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.