Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 31
.'iS’. -'vx
30
■p^-
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
—s--
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
31
Plnrgw Útgefandi nttbtfetfr Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö.
Merkileg
umskipti
Nú þegar tæp tvö ár eru
liðin frá hinu harða verk-
falli opinberra starfsmanna
hafa orðið merkileg umskipti
er snerta mikilvæga þætti í
framkvæmd verkfallsins. Eins
og menn muna vakti það helst
heimsathygli á verkfallinu, að
lögreglumenn í Reykjavík fóru
í einkennisbúningum í verk-
fallsgöngu. Þá skapaðist
veruleg spenna í millilanda-
flugi vegna verkfalls tollvarða.
Með lokun Ríkisútvarpsins var
skrúfað fyrir alla fjölmiðlun í
landinu, þar sem bókagerðar-
menn voru í verkfalli á sama
tíma og opinberir starfsmenn.
Kæmi til verkfalls opinberra
starfsmanna nú, stæðu lög-
reglumenn utan við það. Þeir
sömdu fyrr í sumar við fjár-
málaráðuneytið um að afsala
sér verkfallsrétti. Var sú niður-
staða samninganna síðan
staðfest með góðum meirihluta
í allsherjaratkvæðagreiðslu
meðal lögreglumanna. Undir
forystu Ragnhildar Helgadótt-
ur, þáverandi menntamálaráð-
herra, var staðið þannig að
málum á Alþingi, að unnt
reyndist að ná samstöðu um
lagafrumvarp, sem mælir fyrir
um afnám ríkiseinokunar á
útvarpsrekstri. Nú hefur fyrsta
einkastöðin tekið til starfa; það
verður ekki framar dæmt sem
brot á íslenskum lögum, þótt
aðrir noti öldur ljósvakans hér
á landi en starfsmenn ríkisins.
Og enn hefur það gerst, að á
vegum fjármálaráðuneytisins
undir stjóm Þorsteins Pálsson-
ar, íjármálaráðherra, hafa
tekist samningar við tollverði,
sem svipar til samninganna við
lögreglumenn.
Geir H. Haarde, aðstoðar-
maður fjármálaráðherra, segir
í Morgunblaðsviðtali í gær, að
samningurinn við tollverði sé
launalega sambærilegur við
samninginn við lögreglumenn
og í samningunum séu sams-
konar ákvæði um afnám
verkfallsréttar. Þá segir Geir
H. Haarde einnig, að það sé
ekki ætlun samninganefndar
ríkisins að gera hliðstæða
samninga við önnur aðildarfé-
lög Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja (BSRB). Sú
stefna hefði verið mörkuð varð-
andi samningsréttarmál þegar
í febrúar sl., að löggæslustétt-
irnar hefðu ekki verkfallsrétt
vegna sérstöðu sinnar.
Eftir að lögreglumenn höfðu
gert samning sinn í sumar,
snerust forystumenn BSRB
harkalega gegn honum. Var
hart lagt að lögreglumönnum
að snúast gegn þeirri stefnu,
sem mótuð var í samningnum
og þar með forystumönnum
sínum. Þessi barátta skilaði
ekki árangri, það var forystu-
sveit BSRB, sem tapaði henni.
Ef að líkum lætur munu for-
svarsmenn BSRB nú snúa sér
að tollvörðum og mælast til
þess við þá, að þeir felli hinn
nýgerða samning í atkvæða-
greiðslu.
Á þessu stigi er ógjörlegt
að fullyrða, hver verða úrslit
atkvæðagreiðslunnar hjá toll-
vörðum. Sú skoðun hefur ráðið
í kjaraviðræðum aðila á al-
menna vinnumarkaðnum
undanfarin ár, að forðast beri
í lengstu lög að hleypa þeim
upp með hörðum átökum; væn-
legra sé til árangurs að halda
uppi eðlilegum samskiptum við
samningaborðið en bíta í
skjaldarrendur við verkfalls-
vörslu. Um það hvora leiðina
á að fara, að semja undir svipu
verkfalls eða ekki, hefur verið
deilt innan verkalýðshreyfing-
arinnar, milli ASI og BSRB,
og þó sérstaklega á véttvangi
Alþýðubandalagsins. Deilur af
því tagi eru ekki úr sögunni,
þótt vilji alls þorra fólks standi
til friðsamlegra lausna á kjara-
þrætum eins og öðrum ágrein-
ingi manna og þjóða í milli.
Þegar rætt var um niður-
stöðu í atkvæðagreiðslu lög-
reglumanna um samninga sína
hér á þessum stað, var komist
þannig að orði, að úrslitin yrðu
ekki túlkuð á annan veg en sem
áfall fyrir forystusveit BSRB.
Þá var einnig minnt á, að í
desember síðastliðnum tapaði
forysta BSRB í baráttunni um
það, hvort kennarar yrðu
áfram í bandalaginu og sú
ályktun dregin, að óhjákvæmi-
legt væri fyrir forystumenn
BSRB að líta í eigin barm og
huga að málflutningi sínum og
baráttuaðferðum. Full ástæða
er tii að endurtaka þessi orð.
Elli kerling leikur
ríki Evrópu grátt
Fólksfækkunar mun taka að gæta á Islandi árið 2010
EVRÓPA er ekki eingöngu gömul í sagnfræðilegum skilningi þess
orðs. Meðalaldur íbúa álfunnar er hinn hæsti í heimi hér. íbúafjöldi
margra Evrópuríkja stendur í stað og víða fer fólki fækkandi. I
nýjasta hefti hins virta tímarits The Economist er athyglisverð grein
um þennan vanda sem hér birtist í íslenskri endursögn. Einnig þótti
við hæfi að víkja stuttlega að mannfjöldaþróun hér á landi en skýrslu
þar að lútandi er að vænta í haust.
Fijósemi kvenna fer minnkandi
víðast hvar í Vestur-Evrópu. A
Norðurlöndum verður þessarar þró-
unar vart en hér á landi mun fólki
ekki taka að fækka fyrr en árið
2010. Raunar kann að fara svo að
ísland muni skera sig úr ríkjum
Evrópu hvað varðar þróun mann-
fjölda. Alltént hlýtur það að vekja
vissar vonir þegar skólaböm segjast
telja æskilegt að eignast fleiri en
tvö böm eins og fram kemur í ný-
legri skoðanakönnun. Þegar talna-
meistarar höfðu meðhöndlað svör
þeirra kom í ljós að bæði kynin virt-
ust nokkuð sammála um að 2,36
böm væri mjög æskilegur fjöldi
innan hverrar fjölskyldu.
í Evrópu telja menn að hver kona
þurfi að fæða 2,1 lifandi böm að
meðaltali til að viðhalda sama íbúa-
fjölda. Áríð 1983 fæddi hver kona
2,24 lifandi böm hér á landi, en á
síðasta ári var sú tala komin niður
í 1,93 böm á hverja konu. Fóiks-
fjölgun er nú 1% á ári en mun
fljótlega lækka í 0,5% samkvæmt
nýjustu spám. Eldri spá um mann-
fjöldaþróun gerði ráð fyrir mun
meiri frjósemi íslenskra kvenna og
var því mjög villandi.
Víðtækur vandi
Bamsfæðingum fer ekki ein-
göngu fækkandi í ríkjum Vestur-
Evrópu. Austantjaldsríkin eiga við
svipaðan vanda að glíma þrátt fyrir
skipulagðar tilraunir hinna komm-
únísku ríkisstjórna til að snúa
þessari þróun við. Orsakir þessa eru
vitaskuld fjölmargar en sérfræðing-
ar nefna einkum getnaðarvamir,
breytta stöðu konunnar og aukið
valfrelsi hennar, áhyggjur manna
af efnahagslegri afkomu, borgar-
menningu og einfaldlega breytt
hugarfar.
Spænskar konur fæða að meðal-
tali 2,1 lifandi börn hver og er
Spánn hið eina af stærri ríkjum
Vestur-Evrópu, sem nær að halda
æskilegri tíðni bamsfæðinga. Fijó-
semi kvenna er hvergi minni en í
Danmörku og Vestur-Þýskalandi.
Þar fæðir hver kona að meðaltali
l, 4 lifandi böm. Meðaladur íbúa
Vestur-Þýskalands er hinn hæsti í
heimi. Þjóðin samanstendur mest-
megnis af miðaldra fólki og ellilíf-
eyrisþegum.
Albanir og Tyrkir halda sínu
striki og þar fer fólki enn fjölg-
andi. íbúum Póllands og írlands
fjölgar einnig lítilllega og kann það
m. a. að stafa af því að mikill meiri-
hluti íbúanna játar kaþólska trú.
Sovétmönnum fer einnig fjölgandi
en þá staðreynd má einkum þakka
fijósemi kvenna í þeim hluta lands-
ins, sem tilheyrir Asíu.
Konur í ríkjum Þriðja heimsins
eru margfalt frjósamari en kynsyst-
ur þeirra í Evrópu. Áhrifa þessa
mun gæta á næstu öld því nú eru
sex Evrópuríki í hópi fjölmennustu
ríkja heims en árið 2020 munu að-
eins tvö ríki teljast í hópi þeirra 20
fjölmennustu. I byijun þessarar ald-
ar voru 20 fjölmennustu borgir
heims í Evrópu. Um næstu aldamót
mun engin þeirra komast á lista.
Alvarleg’ar afleiðingar
Því hefur verið haldið fram að
minnkandi fijósemi evrópskra
kvenna sé beinlínis æskileg. Skoðun
þessi hefur verið rökstudd með til-
liti til þess að atvinnutækifærum
fjölgi ekki þótt fólkið sé fijósamt,
margfaldist og uppfylli jörðina, líkt
og boðað var í árdaga. Þessi rök-
semd er einfaldlega röng því ekki
er tekið tillit til þeirra þátta sem
ráða þróun hagvaxtar.
Afleiðing minnkandi fijósemi
tveggja eða þriggja kynslóða
kvenna blasir við; íbúar viðkomandi
þjóðar verða að meðaltali aldur-
hnignari en ella. Snemma á næstu
öld mun ungt fólk bókstaflega
skorta í fjölmörgum ríkjum Evrópu
líkt og þegar hefur gerst í Vestur-
Þýskalandi.
Verði Evrópa eins konar elliheim-
ili heimsbyggðarinnar mun það
hafa alvarlegar afleiðingar fyrir
efnahag viðkomandi rílqa. Fyrir-
tæki munu þurfa að aðlaga sig að
kröfum eldri neytenda, verkefnum
á sviði heilbrigðismála mun fjölga,
þjónustuiðnaður ýmiss konar mun
væntanlega blómstra og byggingar-
iðnaður mun óhjákvæmilega
dragast saman. Ef vélmenni annast
ekki verksmiðju- og skrifstofustörf
framtíðarinnar mun að lokum fara
svo að skortur verður á starfsfólki.
Þá kann að reynast nauðsynlegt
að flytja inn vinnuafl frá Afríku og
Asíu.
Þar með er ekki öll sagan sögð.
Hærri meðalaidur þegnanna mun
reynast ríkjum Evrópu dýrkeyptur
í þess orðs fyllstu merkingu. Fleiri
munu þiggja eftirlaun, sem aftur
mun þýða að vinnandi fólki mun
fækka. Færra fólk mun þurfa að
standa undir auknum lífeyris-
greiðslum. Árið 2030 munu ellilíf-
eyrisþegar í Vestur-Þýskalandi
verða jafnmargir launþegum.
Réttur einstaklingsins
Þrátt fyrir að útlitið virðist dökkt
hafa ríkisstjómir ríkja Vestur-
Evrópu ekki gripið til miðstýrðra
aðgerða gegn vandanum líkt og
ríkin austan Jámtjaldsins. Sú skoð-
un hefur verið ráðandi í lýðræð-
isríkjunum að það sé ekki í
verkahring stjómvalda að ákvarða
æskilega fjölskyldustærð. Slíkt er
talið bijóta í bága við sjálfsákvörð-
unarrétt einstaklingsins og ógna
hinu nýfengna frelsi konunnar.
Ríkisstjómir Austurblokkarinnar
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
ákvörðunarrétti einstaklingsins um
eigið líf. Nokkrar kommúnista-
stjómir hafa boðað að hver fjöl-
skylda skuli að minnsta kosti telja
þijú böm. Til þess að gera móður-
hlutverkið aðlaðandi njóta þær
konur sem fjölga mannkyninu
ákveðinna forréttinda. Þær fá
greiðslur við fæðingu annars og
þriðja bams og njóta margra mán-
aða fæðingarorlofs. Síðast en ekki
síst komast bammargar Qölskyldur
framar á biðlista eftir húsnæði.
Getnaðarvamir og fóstureyðing-
ar hafa verið bannaðar í Rúmeníu
og fylgjast stjómvöld grannt með
því að þegnamir virði gildandi lög.
Póllans sker sig nokkuð úr öðrum
kommúnistaríkjum hvað þetta varð-
ar. Þar hafa stjómvöld áhyggjur
af því að fleiri munnar komi til með
að sliga efnahag þjóðarinnar. Þrátt
FÆKKUN FÆÐINGA
Frávik frá æskilegri tíðni fæðinga 1984
(2,1 lifandi fætt barn á hverja konu ef við-
halda á sömu ibúatölu).
-0.8 -0.4 0 0.4 0,8 1,2 1,6 2,0
E
d
E
E
E
Júgóslavia
Spánn
Grikkland
Malla
ísland
Rúnnenia
Sovétríkin
Pólland
Kýpur
irland
Albanía
Tyrkland
V-Þýskaland.....
Danmörk.........
Holland.........
Svlss...........
lúxemborg.......
Sv.b.áó.........
Auslurríki......
Belgia..........
italía.......
Finnland........
Noregur........
Ungverjaland...
A-Þýskaland....
Bretland.......
Frakkland......
Portúgal.......
Búlgaría.......
Tékkóslóvakia .
núll...........
núll...........
núll...........
núll....:......
3
B
sa
sa
.....Fjöldi
ibúa
(milljónir)
.61.0
....5,1
.14.5
...6,4
....0,4
...8,4
...7,6
...9,9
T.57,1
.........4,9
.........4,2
.........10,6
.........16,7
.........56,5
.........55,0
.........10,2
.........9,0
.........15,5
.........23,1
.........38,6
..........9,9
..........0,4
.........0,2
.........22,6
.........276,3
.........37,1
49,3
Asía
Fjöldi jarðarbúa
(eftir svæðum)
7 milljarðar-----
fyrir viðleitni kommúnistaríkjanna
til að stemma stigu við dvínandi
ftjósemi þegnanna virðist sem al-
menningi þar eystra sé einkum
umhugað um að njóta hinna verald-
legri gæða tilvemnnar. Bíll og
ísskápur er ofar á óskalistanum en
bamavagn.
Mannfjöldaspár hafa reynst
misjafnlega áreiðanlegar í gegnum
tíðina. Á fjórða áratug aldarinnar
þóttust menn sjá þess merki að
dagar Evrópubúa yrðu senn taldir.
Þá tók fólkinu að fjölga. Þegar
menn tóku að velta sér upp úr „of-
fjölgunarvandamálinu" á sjötta
áratugnum hríðféll fæðingatíðnin.
Hvað sem þessu líður er ljóst að
Elli kerling mun leika ríki Evrópu
grátt ef ekkert verður að gert.
A.Sv.
Hér á landi eru börn á forskólaaldri nú 30 þúsund en verða 24 þúsund um næstu aldamót samkvæmt nýjustu spám. Árið 2010 mun fólki
á vinnualdri taka að fækka.
W <
Jú, ekki ber á öðru en dilkar komi vænir af fjalli.
Leikskólakrakkarnir borða nesti sitt í rólegheitum, en
kalla mildi að ekki fór illa.
RETTAÐ
VATNSDAL
Blðnduósi.
FÖSTUDAGINN 13. september og laugardaginn þann 14. var réttað í
Undirfellsrétt í Vatnsdal og Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi í A-Hún. Að
sögn gangnamanna var veðrið gott þá daga sem leitað var og gekk smöl-
un vel. Á meðfylgjandi myndum má sjá fólk og fénað í Undirfellsrétt í
Vatnsdal og var margt af hvorutveggja. Leikskólabömin frá Blönduósi
komu í réttina til að líta fjallalömbin. Það óhapp vildi til meðan bömin
vom að gæða sér á nestinu fyrir utan réttina að krakki kom aðvífandi á
hesti sem hann hafði misst stjórn á og fór inn í krakkahópinn. Tvö af
bömunum meiddust lítilsháttar og má teljast mildi að ekki fór verr.
— Jón Sig.
Það er ekki verra að vera örugg á háhesti þegar stikað er um al-
mennin&rinn.
nokkru eftir að þessi mynd var tekin hljóp stjómlaus hestur inn í hópinn og má
í
Bændur
svipast
um eftir
kindum
sínum.