Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
45
í húsi með foreldrum, bróður, afa
og ömmu, föðursystkinum og
frændsystkinum, öllum undir sama
þaki og var elst bamabama. Ef Jón
stoppaði í landi var þetta hans heim-
ili. Við Jón vorum því vinir frá því
ég var lítil hnáta. En alltaf var
haldið vestur á sumrin, að færa
björg í bú og vinna með foreldrum
sínum og systur í sumarönnum.
Karólína systir Jóns kom suður að
vinna í Reykjavík vetrarlangt. Hún
kom auðvitað líka heim til okkar
hverja frístund. Mikil var gleðin um
vorið er mér var boðið að koma
með henni vestur í sumardvöl þá
5—6 ára. Þau sumur urðu mörg,
því ég dvaldi þarna á hvetju sumri
upp frá því, þar til ári eftir ferm-
ingu. Það var nóg að gera, þá var
allt slegið með orfi og Ijá, allt vatn
borið heim í hús, ljós á olíulömpum
og sandskúraður gamli torfbærinn,
en gleðistundir voru líka margar,
svo mikið er vlst að ég komst aldr-
ei nógu snemma af stað á vorin og
aldrei nógu seint heim á haustin.
Elín húsfreyja var sívinnandi dugn-
aðarkona. Lína, heimasætan, vann
auðvitað líka bæði úti og inni. Kol-
beinn var ekki heilsusterkur en
fylginn sér á sinn hægláta Ijúfa
hátt, nú og svo auðvitað reynt að
nota okkur krakkana, því venjulega
var strákur þarna líka sumarlangt.
En aðalstarfið hvíldi auðvitað á
Jóni. Hann var hinn ungi duglegi
maður, hægur og traustur alla tíð,
en alltaf skammt í glettnina í aug-
unum. Jón var ekki margmáll en
krakkar finna fljótt hvað þeim er
óhætt, þó við værum þreytt á kvöld-
in, er æskan söm við sig, við leituð-
um eftir ærslum við Jón, svo langt
gekk að ég man að við urðum einu
sinni að semja um að lofa honum
að hvíla sig nema um helgar. Já,
mikið þótt mér vænt um þetta fólk.
Árin liðu. Karólína giftist sveitunga
sínum. Ungu hjónin settust I búið.
Jón fór í siglingar á skipum Eim-
skipafélagsins. Eg var orðin 15 ára
og vann mitt fyrsta sumar í
Reykjavík, en um haustið dó Kol-
beinn. Við Jón fórum saman vestur
að fylgja gamla manninum. Það var
okkur báðum minnisstæð ferð. En
svo komu jólin. Á aðfangadags-
kvöld þegar fjölskyldan hafði
hlustað á húslesturinn hjá afa, upp-
götvuðum við að Jón og Valgerður
kennari, föðursystir mín, höfðu gift
sig fyrr um daginn. Hún Valla var
mín uppáhaldsfrænka og reyndar
allra sem eru svo heppnir að eiga
hana að. Það var mikið gæfuspor
beggja. Þau hafa lifað í ástríku
hjónabandi síðan. Jón sigldi fyrstu
stríðsárin en fór svo að vinna í
landi. Valgerður frænka kenndi.
Elín, móðir Jóns, dvaldi hjá þeim á
vetrum en vestra á sumrum. Þau
voru bamlaus. En vestur á Amar-
stapa urðu systrabömin átta.
Valgerður og Jón tóku þá tvær
dætumar til sín og ólu þær upp sem
eigin böm og komu báðum til
mennta. Og nú er Jón vinur minn
ailur. Hann var þéttur fyrir en ljúf-
ur drengskaparmaður, sem allir
virtu sem kynntust. Valgerður
frænka mín og Jón Kolbeinsson
hafa lifað saman í ást og eindrægni
í áratugi, alltaf tvö saman um alla
hluti. Eg þakka honum ævilanga
vináttu og óska honum guðs bless-
unar.
Frænku minni og fósturdætmm
sendi ég samúðarkveðjur. Megi
minningin um góðan mann og fóst-
urföður verða þeim styrkur, sem
og öðrum ástvinum hans.
Pálína Eggertsdóttir
Aðalfundur Kvenfélagasambands
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
Stykkisliólnii.
AÐALFUNDUR Kvenfélagasam-
bands Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu var haldinn í Stykkis-
hólmi dagana 29. og 30. ágúst
sl. Á fundinum voru mættir full-
trúar frá 10 félögum af 11 sem
í sambandinu eru auk formanna
félaganna og stjórnar sambands-
ins.
Fundurinn hófst með helgistund
í Stykkishólmskirkju sem sóknar-
prestur loiddi. Þaðan var haldið á
Hótel Stykkishólm sem hefir látið
útbúa sérstaklega góðan ráðstefnu-
sal fyrir smærri fundi á neðstu hæð
hússins, en þar setti Kristín Björns-
dóttir formaður sambandsins
fundinn, bauð konur velkomnar til
starfa og ályktana.
Þá hófst skýrsla stjórnar og
reikningar lesnir og síðan umræður
um þá og samþykktir.
Á fundinum voru rædd mörg inn-
anhéraðsmál og sérstaklega þau
sem kvenþjóðina snerta eins og
líknarmál en sambandið hefír verið
þar í fararbroddi. Orlofsmál kvenna
voru til umfjöllunar og skýrt frá
hve áunnist hefði á þeim vettvangi.
Einnig var rætt um námskeiðahald
á vegum sambandsins og hinna
ýmsu kvenfélaga. Kom fram að
undanfarin ár hafa 20 konur átt
þess kost á vegum sambandsins að
fara á 5 daga garðyrkjunámskeið
í Garðyrkjuskóla ríkisins í Hvera-
gerði og hefir af því orðið góður
árangur enda samvinna góð þar á
milli.
Kvenfélagið Hringurinn undirbjó
fundinn og bauð fulltrúum í mat á
Hótelinu og einnig í hádegisverð í
eigin félagshúsi Freyjulundi sem
staðsettur er í skrúðgarði bæjarins.
Starf Hringsins hefir verið viðamik-
ið undanfarin ár og á næsta ári
verður Hringurinn 80 ára.
Seinni daginn flutti gestur sam-
bandsins, frú Sigrún Sturludóttir
úr Reykjavík, snjallt og fróðlegt og
yfirgripsmikið erindi um fíkniefni
og áhrif þein-a í íslensku þjóðfé-
lagi, en Sigrún er í stjóm Áfengis-
varnaráðs n'kisins og KI. Hún ræddi
mjög um hættuna af þessum efnum
og hvemig þau legðu hvert heimilið
á fætur (iðru í rúst og líklega væri
Auglýsingar
22480
Afgreiðsla
83033
svo komið að ekkert heimili í
landinu væri laust við einhver áhrif
af þessum vanda. Hún minntist á
allar þær stofnanir sem hefðu verið
reistar til að hjálpa þeim sem væm
flæktir í þessi eiturefni og hve mik-
ið börn liðu af völdum vímugjaf-
anna. Tap þjóðai’innar fjárhagslega
gæti enginn mælt og því síður þann
mannskap sem fórnað væri á altari
þessara ólyfjana. Miklar fyrirspurn-
ir og umræður urðu um erindið.
Ymsar tillögur voru samþykktar á
fundinum meðal annai-s þessar:
1. Fundurinn skorar á valdhafa að
gera allt sem í þeirra valdi stend-
ur til öflugrar sóknar gegn
vímuefnum og sjá til þess að fjöl-
miðlar sjónvaip og útvarp og aðrir
hafi aukna fræðslu um þessi efni
og áhrif þeirra og stjórnvöld stuðli
að hert verði eftirlit og barátta
gegn smygli og viðurlög hert.
2. Varðandi tillögur menntamála-
ráðherra um niðurskurð fjár-
magns til skólaaksturs og
heimavistar og gæslu mótmælir
sambandið þessum tillögum og
telur að sveitafélög hafi engin tök
á að taka þann kostnað að sér.
I sambandinu eru nú 340 konur.
Kristjana Hannesdóttir heiðurs-
félagi sambandsins sat fundinn en
hún er nú 92 ára. Kristjana var
foi'stöðukona húsmæðraskólanna á
Staðarfelli um skeið og kennari um
langa hríð. I stjórn sambandsins
eiga sæti; Kristín Björnsdóttir,
Stykkishólmi, formaður, Ina Jónas-
dóttir, Stykkishólmi, gjaldkeri og
Ásgerður Halldórsdóttir, Fum-
brekku, ritari. - Ámi
Kvenfélagskonur úr Snæfells- og Hnappadalssýslu.
Morgunbladið/Ámi Helgason
Litlan sætan mjúkar, góóar
Fást í heílum, hálfum og i/4dösum í næstu versiun.