Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
STÝRILIÐAR
SEGULROFAR
YFIRALAGSVARNIR
STJORNUÞRI-
HYRNINGSROFAR
TIMALIÐAR
ROFAHUS
Hagstættverð
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRTWITANIR-WÓNUSTA
VLT HRAÐABREYTAR
fyrir: dælustýringar,
færibönd, loftræstingar,
hraðfrystibúnað o.fi.
Danfoss VLT hraða-
breytar fyrir þriggja fasa
rafmótora allt að 150 hö.
Hraðabreytingin er
stiglaus frá 0-200% og
mótorinn heldur afli við
minnsta snúningshraða.
Leitið frekari upplýsinga
í söludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLilN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER
Neytenda
þjónusta
/Tl greiðir hluta \
\/ T^af kostnaði fyrir \
▼ JL félagsmenn slna\
Sala og þjónusta
í verslun
Á undanfömum árum hefur samkeppni smá-
söluverslana farið harðnandi og kröfur neyt-
enda aukist. Kaupmenn verða því að tryggja
að starfsmenn þeirra veiti eins góða þjónustu
og auðið er. Vegna eindreginna óska hefur
Stjórnunarfélagið skipulagt námskeið fyrir
afgreiðslufólk og þjónustuaðila. Námskeiðið
mun veita innsýn í þjónustuheim verslunar og
örva umræður, þannig að starfsmenn geti tek-
ist á við verkefni af meiri skilningi og veitt betri
þjónustu.
Efni: Smásöluverslun •Vöruþekking • Útstillingar og
uppröðun • Vörukynningar • Sölumennska í mörkuðum •
Neytendaþjónusta • Neytendaatferli • o.fl.
Þátttakendur: Námskeiðiðer
sniðið að þörfum starfsfólks
í verslunum og ætlunin er að
gefa öllum sem hafa áhuga á
neytendaþjónustu, innsýn
í heim verslunar.
Tími oa staður:
29. sept,—1. okt.,
kl. 14.00—18.00
Ánanaustum 15, 3. hæö.
Leiðbeinandi:
Haukur Haraldsson, sölu-
og markaðsrádgjafi.
SgómunarfÉlag
Islands
UTFLUTNINGS OG
MARKAÐSSKÓLIÍSLANDS
Ananaustum 15 ■ 101 Reykjavlk ■ & 91-621063- TU2085
Samleikur á tvo
gítara í Kristskirkju
Gitarleikararnir Carlos Trepat og Arnaldur Amarson.
Rætt við katal-
ónska gítar-
leikarann
Carlos Trepat
Útlendingar sem hér dveljast
undrast stórlega yfir því fjöl-
skrúðuga tónlistarlífi sem er
hér í höfuðborginni. Tónleika-
hald „Tónlistarfélaga Krists-
kirkju“ var áberandi síðastlið-
inn vetur. Raunar má segja að
lítið sem ekkert hlé hafi orðið
á starfseminni í sumar. Hvað
um það, nú er vetrarstarfið
hafið af fullum krafti. Formað-
ur og framkvæmdastjóri fé-
lagsins, Leifur Þórarinsson,
tónskáld, lofar spennandi dag-
skrá í vetur.
í kvöld eru sem sagt tónleik-
ar í kirkjunni. Að þessu sinni
eru það gítarleikaramir Arn-
aldur Arnarson og Carlos
Trepat sem leika saman á tvo
gítara.
Amaldur Arnarson er búsett-
ur á Spáni og er hann kennari í
gítarleik við Luthier-tónlistarskól-
ann í Barcelona. Það hefði
einhvem tímann þótt saga til
næsta bæjar hér á landi að Islend-
ingur starfaði sem gítarkennari á
Spáni. Amaldur hóf gítamám í
Svíþjóð tíu ára gamall. Hann hélt
áfram námi hjá Gunnari H. Jóns-
syni hér í Reykjavík og síðar í
Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar og tók þaðan burtfararpróf
1977. Hann var fjögur ár við tón-
listamám í Royal Northem Col-
lege of Music í Manchester og tók
lokapróf 1982. Kennarar hans þar
vom Gordon Crosskey og John
Williams. Síðar lagði hann stund
á framhaldsnám í eitt ár hjá José
Tomás í Alicante á Spáni.
En okkur langaði að kynnast
Carlos Trepat aðeins nánar. Það
reyndist ekki auðvelt að króa
meistarann af, þeir félagar vom
önnum kafnir við æfingar, en það
tókst þó að lokum nú í vikunni.
Trepat var fyrst spurður, hvort
honum fyndist ekki íslendingar
frekar dauflegir miðað við hina
blóðheitu landa hans?
„Nei,“ svarði hann og brosti,
„ég er Katalóníumaður og við
emm nú ekki þekktir fyrir að
bera tilfinningar okkar á torg.“
Carlos Trepat er fæddur
1960. Hann hóf tónlistamám í
heimaborg sinni þrettán ára og
hélt síðan áfram námi í Barcel-
ona. Hann var um tveggja ára
skeið í tónlistarskólanum í Aiic-
ante undir handleiðslu José Tomás
og tók þar lokapróf með hæstu
einkunn. Hann stundaði fram-
haldsnám í Ecole Normale de
Musique í París hjá Alberto Ponce
og lauk prófi með frábæmm vitn-
isburði.
Carlos Trepat var spurður,
hvort gítarinn skipaði ekki vegleg-
astan sess í spönsku tónlistarlífi.
„Jú, það má segja það,“ svar-
aði listamaðurinn. „En þess ber
þó að gæta að þó við Spánveijar
eigum marga frábæra gítarleik-
ara, þá em í dag fjölmargir
snillingar í gítarleik sem ekki em
Spánveijar."
En semja spönsk nútímatón-
skáld verk fyrir gítar?
„Jú, mikil ósköp, það er tölu-
vert samið fyrir gítar.“
Hvað um þig sjálfan, hefur þú
samið einhver verk fyrir gítar?
Nú brosir Katalóníumaðurinn
Trepat. „Það get ég nú varla sagt.
Það litla sem ég hef samið er
aðeins fyrir sjálfan mig.“
Em spönsku nútímatónskáldin
ekki undir sterkum áhrifum frá
hinni þjóðlegu hefð?
„Jú, vissulega, mjög margir.
Það mætti til dæmis nefna Rodr-
igo í því sambandi. Nú og einnig
hið ágæta tónskáld Mompou, en
svo em aðrir sem hafa orðið fyrir
öðmm áhrifum. í svipinn dettur
mér til dæmis í hug tónskáldið
Tómas Marco og Luis de Pablo
sem em undir áhrifum frá þýska
skólanum."
Þess má geta að Carlos Trepat
hefur haldið Ijölda tónleika á
Spáni og ennfremur komið fram
í Frakklandi og á Ítalíu. Hann
hefur unnið til margvíslegra verð-
launa í keppni innanlands og á
alþjóðlegum vettvangi og er þar
helst að telja fyrstu verðlaun í
keppni ungra einleikara á Spáni
1979, fystu verðlaun fyrir flutning
á verkum katalónskra höfunda í
Mataró 1982, önnur verðlaun og
Tárrega-verðlaunin í alþjóðlegu
Tárrega-keppninni í Bericasim
1983—’84 og sérstök heiðursverð-
laun dómnefndar í Havana á Kúbu
1986.
Carlos Trepat var spurður,
hvort hann hefði haft tækifæri til
að kynna sér íslenska tónlist þann
tíma sem hann hefur dvalist hér?
„Nei, því miður. Tíminn hefur
að mestu farið í æfingar. Við
munum þó leika eitt íslenskt verk
eftir Hróðmar Sigurbjömsson,
sem hann kallar „Tilbrigði fyrir
tvo gítara". Meðal annarra verka
á efnisskránni em verk eftir
Alessander Piccinini, Franz P.
Schubert, Isaal Albéniz ogfleiri."
Hvað er svo framundan?
„Þegar heim til Spánar kemur
mun ég halda nokkra tónleika.
Eg hef verið kennari að undan-
fömu en í vetur mun ég taka mér
frí frá kennslunni og nota tímann
til að „stúdera".
Þar með var hann floginn. Carl-
os Trepat gítarleikari frá Katal-
óníu kvaddi og klæddi sig í þykka
uilarvettlinga og gekk út í haust-
veðrið.
Sigmar B. Hauksson
Tilkynning frá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
Gottskálk Björnsson og Jón Gunnlaugsson munu láta af störfum sem heimilislæknar.
frá og með 1. október nk.
Þeir samlagsmenn, sem hafa haft þá fyrir heimilislækna vinsamlegast komi í af-
greiðslu S.R. að Tryggvagötu 28 og velji sér nýjan lækni.
SIGLFIRDINGAFÉLAGID
f Reykjavík og nágrenni
Síldarballið verður haldið í Ártúni
laugardaginn 20. september
og hefst kl. 21.00.
AHir í fjöriö!
Stýórnin.