Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 JSB hefur vetrarstarf á þremur stöðum í borginni VETRARSTARF Jazzballett- ■^skóla Báru hefst af fullum krafti I lok þessa mánaðar og verður kennt á þremur stöðum í borg- inni. Bára Magnúsdóttir opnaði nýjan skóla í Hraunbergi i Breið- holti i apríl sl. og verður þar boðið upp á likamsrækt alla virka daga. „Við erum að komast í gang núna eftir sumarið," sagði Bára í stuttu spjalli við Morgunblaðið. „Um 400 konur hafa sótt hjá okkur námskeið síðan í apríl og eigum við von á því að mikil aukning verði á þátttöku þegar vetramámskeiðin heQast." Salarkynni JSB í Hraunbergi eru um 200 fm og er þar rúmgóður æfíngasalur, biðstofa, móttaka bún- ingsklefar o.fl. Bára sagðist mjög ánægð með húsakynnin, nema hvað búningsaðstaðan væri eilitið þrengri en þær ættu að venjast. Konur á öllum aldri sækja líkamsræktartíma JSB og eru yfir- leitt 28 í hvetjum hópi. Hjá Báru er líkamsræktin kennd eftir ákveðn- um kerfum og eru byijendur í fyrsta flokki og þeir sem lengst eru komn- ir í fimmta flokki, sem er þolþjálfun, eða eróbikk. „Líkamsræktin er geysivinsæl hér í Breiðholtinu og er hún löngu búin að sprengja utan af sér þá tíma sem við upphaflega ætluðum henni," sagði Bára. Eftirspumin eftir líkamsrækt í Breiðholti virðist því mikil og sagði Bára að konumar væru ákaflega fegnar að fá aðstöðu í Hraunbergi. Bára er með fimm kennara í fullu starfi og þijá í hlutastarfi og kenna þeir á öllurn stöðunum, en Bára rekur einnig skóla í Suðurveri og í Bolholti. Aðspurð sagði Bára að áhugi á líkamsrækt virtist hafa aukist á síðari árum og hefði þá líkamsrækt- arstöðvum farið mjög flölgandi. „Við emm nú búnar að vera með skóla í 20 ár og höfum haft yfir 20.000 konur á Reykjavíkursvæð- inu í tímum hjá okkur. Eg var með þeim fyrstu sem bauð upp á almenn- ingsheilsurækt og hefiir því verið nóg að gera hjá okkur í gegnum árin og við höfum ennþá alveg nóg að gera vegna aukinnar eftirspum- ar.“ Bára sagði að mikill tími færi nú í að reka staðina og hefði hún því minnkað kennsluna nokkuð. „Þetta hefur allt sínar skemmti- legu hliðar. Mér finnst þó stundum nokkur hvíld í því að kenna," sagði hún. Auk líkamsræktar býðst nem- endum í nýja skólanum í Hraun- bergi aðstaða til Ijósabaða og þar er einnig gufubað, þar sem nemend- ur geta slappað af og losað sig við harðspermr. Bára sagðist fullviss um að hún myndi ílengjast í Hraun- berginu fyrst hún á annað borð væri komin þangað með skólann. „Ég er búin að vera með skólann í Suðurveri í 20 ár og í Bolholti í sex ár, þannig að ég verð örugglega hér um kyrrt. Þetta er notalegur staður og hér er góður andi, þannig að það leggst vel í mig að vera komin hingað," sagði hún að Iokum. Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Sagt er að ástæðan fyrir hve vitur Salomon konunugur var hafi verið sú að hann hafði svo margar konur að ráðfæra sig við. — Þá vitið þið það. — Fjölkvæni er þó ekki lausnarorðið piltar. Stúlkur í dag vita vel að góð ráð komast prýðilega til skila — milliliðalaust. Það má hafa hugfast við næstu kosningar. Fiskur er góður fyrir hjartað og lítið eitt kryddaður og hæfir hann við öll tækifæri. Hér er Ofnbakaður f iskur í krydd- marinaði 700—800 gr fiskur, ýsa, lúða, sil- ungur 1 sítróna (safinn) 1 tsk. salt 4 matsk. smjörlíki 1 lauf hvítlaukur (pressaður) '/8 tsk. rosmarin 'A tsk. parsley eða steinselja '/« tesk. chives eða graslaukur 1 tsk. salt. 1. Fiskstykkin eru roðflett og skorin í hæfilega stór stykki. Þau eru síðan sett í smurt eldfast fat og er salti stráð yfir þau. Sítrónusafinn er sett- ur yfír fiskinn. 2. Smjörlíkið er brætt í potti og kiyddinu, rosmarin, parsley og chiv- es, bætt í. 3. Fiskurinn er síðan grillaður í ofni í 10—15 mín. eða þar til hann er steiktur í gegn. Penslið með smjör- líkisblöndunni á meðan á steikingu stendur. Berið fiskinn fram með soðnum grjónum og hrásalati. Verð á hráefni 800grýsa ..... kr. 144,00 1 sítróna .... kr. 12,50 Kr. 156,50 Sumar freistingar eru beinlínis til þess að falla fyrir þeim. Gott dæmi um það er ein fiðurlétt Súkkulaði kaka 2/a bolli smjörlíki l3/« bolli sykur 2 egg 1 tsk. vanilla *** 3'/2 bolli hveiti 3 matsk. kakó l*/« tsk. matarsódi '/2 tsk. sait * l>/« bolli ísvatn 1. Hrærið smjörlíki, sykri, eggj- um og vanillu og þeytið í 5 mín. 2. Hveiti, kakói, matarsóda og salti er blandað saman. Degið er sett saman á venjulegan hátt. Hveitið og ísvatnið er hrært á víxl með smjörinu og þeytt vel á milli. Þéytið deigið síðan áfram þar til það fer að þykkna. 3. Tilskorinn smjörpappír er sett- ur í botn á tveim kökumótum, 3 cm djúpum. Smyijið mótið og hristið með hveiti. Kakan bökuð við venjulegan hita (180—190° í 30—35 mínútur. Hún er síðan kæld og smurð með súkkulaði- kremi. Morgunblaðið/RAX Bára ásamt kennurum I Hraunbergi. F.v. Margrét Amþórsdóttir, Sigríður Guðjohnsen, Bára Magnús- dóttir, Irma Gunnarsdóttir, Anna Norðdahl og Margrét Ólafsdóttir. Á myndina vantar þijá kennara sem eru í hlutastörfum, þær Agnesi Kristjónsdóttur, Auði Valgeirsdóttur, og Katrínu Hall. Eutectic í® FIRST IN MAiNTENANCE WELDING TECHNOLOGY Gastolin ÞUNGAVINNUVÉLAEIGENDUR. Euteclic Rgg&ljy FIRST IN MAINTENANCE WELDiNG TECHNOLOGY Gastolin • •* / / / *••* V-, -m>>. ^ZrrrW/i Cju j|ír Hin vaxandi samkeppni meðal verktaka í jarðvegsvinnu og grjótmölun hefur hvatt þá til að stórauka fyrirbyggjandi viðhald á tækjum sínum, því ónauðsynleg stöðvun tækja til viðhalds- og viðgerða er mjög kostnaðarsöm. Fækkum því þessum ótímabæru stoppum og notum CASTOLIN viðhalds- og viðgerðar suðuefni. CASTOLIN + EUTECTIC er fyrsta fyrirtækiö sem sérhæfir sig eirtgöngu í fyrirbyggjandi viögeröar- og viöhaldstækni með raf- og logsuðu. CASTOLIN + EUTECTIC hefur 80 ára reynslu að baki (framleiðslu sérvíra og efna til viðhalds- og viðgerðarsuðu. Reynsla CASTOLIN + EUTECTIC kemur Islendingum nú að góðum notum við lausn á mörgum viðgerðar- og viðhaldsvandamálum. Notkun CASTOLIN efna er ört vaxandi þáttur I starfsemi fjölda vélsmiðja, vélaverkstæða, jarðvegsverktaka, útgerðarfélaga og verksmiðja. iSTÆKNI HF. er umboðsaðili CASTOLIN + EU- TECTIC á Islandi og hefur á að skipa úrvalsliði fag- manna sem sérhæfa sig í lausn þinna mála. □sQaBfeDiiB OdOo Ármúla 34 - Pósthólf 8556 -128 Reykjavík Sími 91-34060-34066
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.