Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986
47
Nýja íþróttahúsið á Laugum í byggingu.
Morgunblaðid/Ingiberg
Dalasýsla:
Laugaskóli hefur vetrarstarf
Hvoli, Saurbœ, Dalasýslu.
KENNSLA er nú hafin við
Laugaskóla í Dölum eftir sumar-
leyfið og var byijað með undir-
búning kennslu í byrjun
mánaðarins og kennsla hafin 8.
september.
Nokkrar breytingar hafa orðið á
starfsliði skólans, eins og oft vill
verða, en þó ekki stórvægilegar,
enda er allmikil festa í kennaraliði
og hefur svo verið mörg undanfarin
ár. Skólastjóri í vetur verður Krist-
ján Gíslason, yfirkennari frá
Blönduhlíð, í ársleyfi skólastjórans,
Guðjóns Sigurðssonar. Yfirkennari
verður Guðríður Aadnegaard. Þá
hefur verið ráðinn nýr húsvörður
við skólann, Jón Benediktsson í
Miðgarði, en fyrrverandi húsvörður,
Höskuldur Davíðsson, hefur nú
gerst útvegsbóndi á Hnúki í Klofn-
ingshreppi, og er þess að vænta að
útgerðin sú megi bera sig sem bezt.
Svo sem verið hefur, mun skóla-
sel verða starfrækt í Saurbænum
fyrir yngstu börnin er þar búa, sjö
til níu ára, og hefur sú starfsemi
gengið ágæta vel. Kennari þar er
Brynja Jónsdóttir á Þverfelli. Und-
anfarin ár hefur verið unnið að því
að koma upp íþróttahúsi við skól-
ann, en það verk gengur alltof
hægt og háir þar skortur þess fjár-
magns er til þarf. Iþróttasalur
hússins er þó orðinn fokheldur en
eftir að byggja búningsaðstöðu og
tilheyrandi búnað. Er þess að vænta
að fjármagn fáist hið fyrsta svo
unnt reynist að Ijúka byggingu
íþróttahússins sem allra fyrst, enda
ekkert íþróttahús í allri sýslunni og
þörfin því afar brýn, og á Laugum
er heimavist með á annað hundrað
börn í senn, svo augljóst er að þessa
aðstöðu skortir tilfinnanlega.
UH
Nýkomið gott úrval af
ódýrum vestur-þýskum
leðursófas
Leðursófasett
Verö frá kr.
82*875 st.gr.
vara við
vægu
verði
BÚSTOFN _______________
Smiöjuvegi 6, Kópavogi simar 4SÓ70 — 44544.
—
------|----|----I—
**i
Gódan daginn!
UTSALA
Einstakt tilboð!
Seljum næstu daga útlitsgallaða skápa
á stórlækkuðu verði. Komið að
Smiðjuvegi 9 í Kópavogi og
gerið hagstæð kaup.
AÐEINS
ÍÞRJÁDAGA ,
i.
ASKAPUM
AXIS
SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI
SÍMI 91 43500