Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 18.09.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. SEPTEMBER 1986 59 Sagt eftir leikinn: Jim Barron „Við töpuðum stórt og ég man ekki eftir svona tölum, en við vorum að leika gegn frábærum knattspyrnumönn- um, sem voru okkur fremri á öllum sviðum, en þetta er munurinn á atvinnumönnum og áhugamönnum," sagði Jim Barron, þjálfari ÍA. „Ég get ekki annað en hrós- að Sporting, því leikmennirnir voru mjög góðir, og knatt- spyrnulega hreifst ég af leik þeirra, þó sárt sé að fá svona skell. Þeir unnu eins og vel smurð vél og varamennirnir voru hinum ekkert síðri. Hvað okkur varðar þá höf- um við ekki leikið gegn svona sterku liði í sumar. Við breytt- um um leikaðferð i bikarúr- slitaleiknum, hún gekk vel þá og hefur gengið vel síðan þar til í þessum leik. Strákarnir börðust allir vel, en ég var óánægður með vörnina. Við ætluðum ekki að spila eins og við gerðum, en leikmenn Sporting réðu ferðinni og við dönsuðum með. En vonandi lærum við af mistökunum og við stefnum að því að fá ekki svona útreið í seinni leiknum," sagði Jim Barron. Manuel José „EFTIR leik Fram og Katowice voru leikmenn mínir fullir bjartsýni, en við töldum Akranes mun betra lið en Fram og fórum í leikinn með því hugarfari að við mættum ekkert gefa eftir. En Akranes var slakt gegn okkur og við unnum stórsigur, mik- ið meiri en ég bjóst við,“ sagði Manuel José, þjálfari Sporting. „Við lékum eins og við best getum og allt gekk upp hjá okkur. Ég hélt að völlurinn og veörið myndi hafa áhrif á leik okkar, en sú varð ekki raunin. Við skoruðum snemma í leikn- um, en héldum áfram á fullu þar til dómarinn flautaði leik- inn af. Mótstaðan var engin, en þetta var ekki síður móralskur sigur, því svona úrslit þjappa leikmönnunum vel saman. McDonald hefur lítið verið með til þessa, en hann lék með seinni hálfleikinn, skoraöi þrennu og lék vel, sem kemur honum og liðinu til góða þegar fram í sækir. Leikmenn Akraness gáfust ekki upp og börðust allan leik- inn. Bestir voru Guðbjörn Tryggvason og Pétur Péturs- son.“ Morgunblaðiö/Júlíus • Sigurður fyrirliði Lárusson brá sér í sóknina þegar Skaginn fékk horn, sem ekki var oft en hér rétt náði markvörðurinn að slá í annað horn. Fótaliprir og léttir Portúgalir tóku ÍA í kennslustund Eitt skemmtilegasta lið sem hér hefur leikið ÞAÐ VAR sannkölluð markasúpa á Laugardalsvellinum f gærkvöldi er Skagamenn tóku þar á móti Sporting Lissabon í UEFA-keppninni. Þeir portúgölsku skoruðu hvorki meira né minna en 9 mörk í leiknum en Skagamenn ekkert. Stórt tap, og það stærsta sem íslenskt lið hefur orðið fyrir á heimavelli frá upphafi. Portúgalir gerðu fjögur mörk í fyrri hálfleik og í þeim síðari bættu þeir enn um betur og skoruðu þá fimm mörk. Skagamenn mættu í gærkvöldi ofjörlum sínum og áttu þeir aldrei möguleika gegn léttleikandi og skemmtilegu liði Sport- ing Lissabon. á ferðinni og skoruðu fallegt mark. Sá fyrrnefndi gaf þá stungusend- ingu á þann síðarnefnda sem skoraði með góðu skoti. Síðan komu marktækifærin á færibandi. Snillingarnir frá Portúg- al, því það eru þeir svo sannarleg, fóru á kostum. Hver glæsisóknin rak aðra og Ijóst var að mikið yrði um mörk. Áður en flautað var til leikhlés höfðu þeir Meade og Fern- andes (víti) skorað tvö mörk til viðbótar. Leikið á fullu Flestir bjuggust við að Portúgal- ir hægðu ferðina í síðari hálfleik því þeir eiga erfiða leiki fyrir hönd- um i deildarkeppninni en það virtist ekki vera efst í huga þeirra. Þeir léku á fullu allan leikinn og höfðu þeir 1.518 áhorfendur sem á Laugardalsvellinum gaman af snilli þeirra. McDonald (nr. 14) skoraði fimmta markið snemma í síðari hálfleik og skömmu síðar skoraði hann annað mark en heiðurinn af því átti Zinho (nr. 6). Hann prjón- aði sig snilldariega framhjá hálfu Skagaliðinu en Birkir náði að verja en boltinn fór til McDonald sem skoraði. Negrete bætti síðan við sjöunda markinu og McDonald því áttunda og sínu þriðja áður en Zinho skor- aði síðasta markið úr vítaspyrnu. Þar með var martröð Skagamanna á enda. Morgunblaðið/Einar Falur • Zinho var besti maður vallarins af mörgum góðum. Hér á hann f baráttu við Sveinbjörn Hákonarson og Guðjón Þórðarson. Skagamenn daufir Það er lítið hægt að segja um Skagaliðið í þessum leik. Svein- björn og Júlíus voru þeirra bestu menn og reyndu ýmislegt á miðj- unni þó svo það gengi ef til vill ekki alveg upp. Einnig átti Guð- Skagamenn byrjuðu leikinn með miklum látum og útlitið var bara bjart - en því miður var það aðeins fyrstu mínúturnar sem Skagamenn áttu eitthvað í leiknum. Fyrsta markið gerðu Portúgalir strax á 10. mínútu og átti Zinho (nr. 6) sem var besti maður þessa leiks mest- an hlut þar að máli. Hann stal þá knettinum af tánum á Ólafi Þórðar- syni og gaf á Fernandes fyrirliða sinn sem skoraði. Fimm mínútum síðar voru svert- ingjarnir tveir sem hófu leikinn, Oceano (nr. 7) og Meade (nr.11), □M&S Texti: Skúli Sveinsson björn góða spretti en hann var ef til vill aðeins of seinn að losa sig við boltann enda mótherjarnir ein- staklega fljótir og snöggir í bolt- ann. í fyrri hálfleik reyndu Skagamenn að leika maður á mann en það gekk ekki upp gegn hinu léttleikandi liði Sporting. Spurning hvort gamla ieikaðferö Skagans, það að leika ekki með „sweeper" hefði ekki gefist betur að þessu sinni. Eitt besta iiðið Sporting Lissabon er án efa eitt skemmtilegasta knattspyrnulið sem hingað til lands hefur komið. Allir leikmenn þess hafa yfir að ráða geysilegri boltameðferð. Þeir leika einstaklega skemmtilega á milli sín og hvað eftir annað gekk boltinn manna á milli án þess aö leikmenn stöðvuðu knöttinn. Alltaf var sent i fyrstu snertingu. Við þetta verður leikur liðsins hraður og Skagamenn réðu ekkert við hraðann og tækni þeirra þannig að sigurinn varð stór. Besti leikmaður þeirra í þessum leik var án efa hinn smávaxni en snöggi Celso Santiago de Sousa (Zinho) sem var númer 6. Hann er hreint ótrúlega leikinn með bolt- ann og hver einsasta sending sem hann átti var úthugsuð og hárná- kvæm. Allir eru leikmenn liðsins góðir og erfitt að gera upp á milli þeirra. Liðið lék á fullu allan tímann og það er hlutur sem ekki er al- gengt að sjá þegar erlend lið eiga i hlut hér á landi. Lið ÍA: Birkir Kristinsson, Siguröur Larus- son, Sigurður B. Jónsson, Guöjón Þóröarson, Heimir Guömundsson, Ólafur Þórðarson, (Hafliöi Guöjónsson vm. á 46. min.), Svein- björn Hákonarsson, Guöbjörn Tryggvason, Júlíus Ingólfsson, (Árni Sveinsson, vm. á 70. mín.), Pétur Pétursson og Valgeir Baröason. SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670^| ORKIN/SlA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.